Morgunblaðið - 18.03.2006, Side 22

Morgunblaðið - 18.03.2006, Side 22
22 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞESSI unga stúlka, sem þátt tók í hátíðahöldum vegna dags heilags Patreks í Dublin á Írlandi í gær, hafði málað andlit sitt í þremur lit- um írska þjóðfánans í tilefni dags- ins. Dagur heilags Patreks er þjóðhátíðardagur Íra, enda heil- agur Patrekur verndardýrlingur Íra. Talið er að um fimm hundruð þúsund manns hafi tekið þátt í há- tíðahöldunum í miðborg Dublin í gær og lét fólkið ekki rok, rigningu og nístandi kulda hafa áhrif á gleðina. Deginum var fagnað víðar, venju samkvæmt var mikil skrúð- ganga í Boston í Bandaríkjunum, þar sem margir íbúanna eiga ættir að rekja til Írlands. Í Hvíta húsinu tók George W. Bush Bandaríkja- forseti jafnframt á móti helstu stjórnmálaleiðtogum Írlands eins og hin fyrri ár. AP Írar létu veðrið ekki spilla gleðinni TALSMENN breska Verkamanna- flokksins viðurkenndu í gær að hafa móttekið lán frá stuðningsmönnum sínum fyrir síðustu kosningar, jafn- virði um 1.700 milljóna íslenskra króna, sem þeir tilkynntu þó ekki til kjörstjórnar, sem eftirlit hefur með framlögum til stjórnmálaflokka. Talsmaður Verkamannaflokksins sagði í gær að lánin hefðu verið í samræmi við reglur flokksins um fjáröflun. „Þessi lán verða skráð í efnahagsreikningi okkar fyrir árið 2006 með hefðbundnum hætti,“ sagði talsmaðurinn. Í fyrradag neitaði Tony Blair, for- maður flokksins og forsætisráð- herra Bretlands, með öllu að um óeðlileg lán hefði verið að ræða og sagði jafnframt að sjálfstæður aðili myndi kanna fýsileika þess að auka ríkisframlög til stjórnmálaflokka. Áður hafði stjórnarandstaðan sakað flokk Blairs um að veita tilteknum stuðningsmönn- um sínum vilyrði fyrir sætum í Lá- varðadeild breska þingsins í staðinn fyrir kosningaframlög. Vegna þessara ásakana staðfesti Blair að hann vissi að Verkamannaflokkurinn hefði tek- ið stór lán hjá einstökum aðilum, en tók fram að hann hefði ekki upplýst útnefningarnefnd Lávarðadeildar- innar um þau þegar hann veitti þremur aðilum aðalstign í fyrra. Víki fyrir Brown Þá var umdeilt frumvarp Blairs í menntamálum naumlega samþykkt í vikunni með atkvæðum úr röðum Íhaldsmanna, eftir að 52 flokks- bræður forsætisráðherrans höfðu greitt atkvæði gegn því. Má segja að það hafi kórónað erf- iða viku fyrir Blair að vikuritið The Economist, sem studdi hann í síð- ustu kosningum, hvetur hann nú til að hætta. Segir í leiðara í nýjasta hefti blaðsins, sem kemur út í Bret- landi síðdegis á fimmtudögum, að nú sé tími til kominn að Blair víki fyrir Gordon Brown fjármálaráð- herra vegna þess að allir viti að tími hans sé liðinn. Þar segir einnig að sátt sé á milli stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um ýmis mál á miðjunni og þess vegna kunni samsteypustjórn að verða útkoman úr þingkosningunum á Bretlandi 2009. Bill Emmott, fráfarandi ritstjóri The Economist, sagði í viðtali á BBC í gær ólíklegt að Blair myndi hætta núna einmitt þegar deilan um hin leynilegu lán stæði sem hæst en leiddi að því líkur að forsætisráð- herrann kynni að hætta skyndilega í júní eða júlí, eftir sveitarstjórnar- kosningar í Bretlandi. Blair í vanda vegna leynilegra lána Vikuritið The Economist hvetur Tony Blair til að hætta Eftir Baldur Arnarson og Davíð Loga Sigurðsson Forsíðan í gær. RICHARD Wright hefur komið víða við á löngum ferli. Hann hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum hjá Evrópusambandinu (ESB) og starf- að sem sendiherra sambandsins í Moskvu. Wright heimsótti Ísland í vikunni og flutti hann þá m.a. er- indi á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs í samvinnu við alþjóðamálastofnun Háskóla Ís- lands og Rannsóknasetur um smá- ríki. Í erindi sínu á fimmtudag fjallaði Wright um samvinnu Bandaríkj- anna og ESB í varnarmálum. Innt- ur eftir helstu áherslum ESB í varnarmálum segir hann að nýir tímar hafi kallað á nýjar áherslur. „Nýjar hættur eru ekki tengdar einstökum ríkjum líkt og í kalda stríðinu,“ segir Wright. „Í dag er- um við að glíma við hryðjuverk, innflytjendamál, glæpi, útbreiðslu kjarnavopna og önnur málefni sem krefjast öðruvísi viðbragða og úr- lausna.“ Wright er spurður að því hvernig hann meti samband ESB og Atl- antshafsbandalagsins (NATO) í þessu samhengi í dag. Hann svarar því til að ESB og NATO eigi í virku samstarfi. Nefnir hann sér- staklega í því samhengi samninga sem varða notkun ESB á herbúnaði NATO í ýmsum verkefnum sam- bandsins og tekur sem dæmi sam- starf í Bosníu, þar sem niðurstaðan var að hans mati viðunandi. – Hvernig sérðu hlut Íslands í þessari samvinnu? „Að sjálfsögðu er þróun NATO ofarlega í huga Íslendinga eftir at- burðina á miðvikudag [þegar Bandaríkjamenn tilkynntu að allar þyrlur og þotur Bandaríkjahers yrðu kallaðar frá Íslandi í haust], en þetta er mál sem varðar Banda- ríkin, Ísland og NATO. Í þessu sambandi er það ekki hlutverk ESB að tryggja sameiginlegar varnir Evrópu.“ Hlutur Evrópu minnkar Wright telur að ESB hafi að- lagað stefnu sína í varnarmálum að nýjum aðstæðum. „Við höfum þró- að skyndiviðbragðssveitir fyrir verkefni erlendis. Við höfum her- afla í Bosníu og munum þróast frekar eftir því sem áherslur í öryggismálum taka breytingum. Hvað varðar ástæður þessara áherslubreytinga held ég að svarið liggi í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins,“ segir hann. „Bandaríkin eru ekki aðeins að færa herafla sinn frá Evrópu því að þau eru einnig að færa diplómata sína frá álfunni til þeirra svæða sem þau telja að þeim stafi mest ógn af.“ Í þessu sambandi bendir Wright á að stækkun ESB hafi haft áhrif á varnarmál sambandsins. „Meg- inmarkmið ESB er að breiða út stöðugleika og frið í álfunni. Við höfum unnið að þessu markmiði í gegnum stækkun sambandsins, með dæmi frá Búlgaríu og Rúmen- íu, og einnig í stefnu okkar gagn- vart nágrannaríkjum ESB á borð við Úkraínu og Moldovu. Vinur minn Chris Patten, fyrrum framkvæmdastjóri erlendra stjórn- málasamskipta hjá ESB, sagði t.a.m. að hann teldi stækkun sam- bandsins vera best heppnuðu áhersluna í utanríkisstefnu þess.“ – Því hefur verið haldið fram að samvinna ESB og Bandaríkjanna hafi versnað í stjórnartíð George W. Bush forseta og þeirri utanrík- isstefnu sem nýíhaldsmenn hafa fylgt eftir. Ertu sammála því mati? „Nei, því að samband ESB og Bandaríkjanna er mun betra en það var t.d. fyrir 18 mánuðum síð- an. Við höfum sett ágreining okkar vegna innrásarinnar í Írak til hlið- ar. Ef málið er skoðað út frá því sem hefur verið að gerast en ekki út frá yfirborðskenndum slagorðum er auðséð að það er öflug samvinna þar á milli. Þá markaði heimsókn Bush til ESB í fyrra ákveðin tímamót og síðan hefur samvinna í málum á borð við kjarnorkumál Írana tekið miklum framförum. Ég myndi hins vegar vilja sjá nánari samvinnu á sviði loftlagsbreytinga.“ Aukin samvinna við Asíuveldin – Hvernig telur þú að sívaxandi mikilvægi Indlands og Kína á al- þjóðavettvangi muni hafa áhrif á stefnu ESB í varnarmálum? „Ég tel að í báðum tilvikum séum við að auka samvinnu okkar við þessi ríki. Við eigum reglulega fundi með fulltrúum þeirra og ég held að allir viti að þau eiga eftir að gegna lykilhlutverki í framtíð- inni.“ Nýjar hættur kalla á nýjar varnir Richard Wright, einn framkvæmdastjóra er- lendra stjórnmálasamskipta framkvæmdastjórn- ar ESB, var á Íslandi í vikunni. Baldur Arnarson ræddi við hann um áherslur ESB í varnarmálum. Richard Wright baldura@mbl.is París. AFP. | Jacques Chirac Frakk- landsforseti hvatti í gær námsmenn og aðra, sem tekið hafa þátt í mót- mælaaðgerðum í París og víðar síð- ustu dagana, til að sýna stillingu en til harðra átaka kom í höfuðborginni í fyrrakvöld. Hvatti hann ráðherra í frönsku ríkisstjórninni til að hefja þegar viðræður um umdeild ný lög, sem ætlað er að draga úr atvinnu- leysi ungs fólks. Lögreglan í Frakklandi reiknar með að allt að ein milljón manns taki þátt í mótmælagöngu sem samtök námsmanna og verkalýðsfélög hafa boðað í dag, laugardag. Chirac lýsti hins vegar þeirri von að þessi ganga færi friðsamlega fram. Koma þyrfti í veg fyrir að atburðir fimmtudags- kvölds endurtækju sig, en þá tók allt að hálf milljón manns þátt í mótmæl- um í helstu borgum Frakklands. Kom til harðra átaka milli lög- reglu og hópa ungmenna í nágrenni Sorbonne-háskóla í París, kveikt var í bílum og skemmdir unnar á nær- liggjandi kaffihúsum. Lögreglan beitti táragasi og vatnsþrýstitækjum gegn ólátabelgj- unum og handtók þrjú hundruð manns. Kenndi Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, „þorpurum“ og „ólátabelgjum“ er tilheyrðu hópum öfgahægri- og öfga- vinstrimanna um atburðina. Einnig nefndi hann unglinga á refilstigum úr úthverfum Parísar, en hann sagði slíka aðila hafa smyglað sér inn í mótmæli námsmanna. 23% atvinnuleysi hjá ungu fólki Deilt er um lög sem Dominique de Villepin forsætisráðherra beitti sér fyrir en þau fela í sér að fyrirtækjum verði heimilt að segja upp ungu fólki, yngra en 26 ára, þegar þeim hentar á fyrstu tveimur starfsárum þess hjá viðkomandi fyrirtækjum. Tilgangur laganna er sagður sá að gera at- vinnuumhverfið opnara og hvetja vinnuveitendur til að ráða ungt fólk í ríkari mæli til starfa, en um 23% at- vinnuleysi er meðal ungs fólks á landsvísu og mun meira í sumum fá- tækari hverfum stórborganna. Chirac hvetur til viðræðna Eldar brunnu og bílar voru eyði- lagðir í átökunum í Sorbonne. Haag. AFP. | Eng- ar vísbendingar hafa fundist um að eitrað hafi ver- ið fyrir Slobodan Milosevic, fyrr- verandi forseta Júgóslavíu, en hann fannst látinn í fangaklefa sín- um í Haag í Hol- landi sl. laugardag. Þetta kom fram í máli forseta alþjóðastríðsglæpadóm- stólsins í gær en stuðningsmenn Mil- osevics og ættingjar hafa haldið því fram að Milosevic hljóti að hafa verið myrtur. Fausto Pocar, forseti dómstólsins, sagði einnig að engar leifar lyfsins ri- fampicin hefðu fundist heldur, en um er að ræða sýklalyf sem kynni að hafa valdið því að hjartalyfin sem Milosev- ic var á virkuðu ekki sem skyldi. Útför Milosevics fer fram í Pozare- vac í Serbíu í dag. Háttsettur erind- reki Sósíalistaflokksins, sem Milos- evic fór fyrir, sagði í gær að fjölskylda hans myndi ekki vera við útförina, sökum „hótana“ sem þau hefðu sætt. Gert hafði verið ráð fyrir því að Mira Markovic, ekkja Milosev- ic, og sonur hans, Marko, kæmu til Serbíu en þau eru búsett í Moskvu. Ekkert sem bendir til eitrunar Slobodan Milosevic

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.