Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 26
TIL SÖLU FASTEIGNIN LAUGAVEGUR 84 Óskað er eftir tilboðum í fasteign- ina Laugaveg 84 í Reykjavík. Um er að ræða 4ra hæða verslunar- og íbúðarhúsnæði. Skráð stærð eignarinnar er 415,7 m2. Í dag er verslun á 1. hæð, en íbúðir á efri hæðum. Eignin verður til sýnis milli kl. 14-17, í dag 18. mars. Tilboðum skal skilað fyrir kl. 16, föstudaginn 24. mars á skrifstofu Lagastoðar ehf., Lágmúla 7, 6. hæð, í Reykjavík. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 581 1140. Mývatn | Fátt þykir hestamönnum skemmtilegra en að spretta úr spori á ísilögðum vötnum. Hest- arnir verða einnig frískari og fjaðurmagnaðri en endranær, eins og þessi sprettur gefur til kynna. Nokkuð er um að haldin eru hestamót á ísilögð- um vötnum og þá keppt í ýmsum greinum. Þing- eyingar héldu vel heppnað hestamót á Mývatni um síðustu helgi. Fjöldi fólks og fáka kom til mótsins, víðsvegar að, og tókst mótið vel. Daginn fyrir mótsdaginn fóru heimamenn í hópreið um vatnið en nú er um 50 sentímetra þykkur ís á vatninu. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Fákadans á Mývatni Hestar Akureyri | Suðurnes | Árborg Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Sveitarstjórnarkosningar í vor setja sinn svip á bæjarbraginn enda farið að styttast til vorsins. Nýtt stjórnmálaafl hef- ur að undanförnu haldið úti öflugu starfi til undirbúnings komandi baráttu um völdin í Grundarfjarðarbæ. „Samstaða – listi fólksins“ er nafnið sem þetta nýja afl hefur hlotið, skipað fólki úr röðum Samfylking- ar, vinstri grænna, óháðra kjósenda og framsóknarmanna. Á þeim bænum eru menn komnir svo langt að búið er að halda forval sem reyndar var ekki bindandi en endanleg röðun á listann verður senn gerð kunn. Sjálfstæðismenn hafa enn hægt um sig en hafa þó verið að funda til að und- irbúa slaginn. Á komandi kosningavori verða það því þessir tveir pólar sem takast munu á um stjórn bæjarmála næstu fjögur árin.    Skipulagsmál hafa verið mjög í brenni- depli í Grundarfirði. Af afloknu kröftugu íbúaþingi á síðasta ári voru Zeppilín arki- tektar með Orra Árnason fyrrverandi Grundfirðing í fararbroddi fengnir til þess að leggjast yfir ýmsa þætti sem fram komu frá íbúunum. Meðal þess sem Zeppilín hafa verið að skoða er þétting byggðar, íþrótta- og skólasvæðið, nýtt íbúðahverfi og miðbæjarskipulag. Frumhugmyndir arkitektanna voru kynntar á fundi í vik- unni og mátti heyra meðal fundargesta að sitt sýndist hverjum. Almennt var þó góð- ur rómur gerður að hugmyndunum sem á margan hátt voru býsna athyglisverðar.    Reiðhöll er meðal þess sem Grundfirðing- ar vilja byggja og fá til þess styrk úr sjóði þeim sem landbúnaðarráðherra hefur komið á fót til að styrkja slíkar byggingar á landsbyggðinni. Nefnd sem vann að mál- inu hefur skilað áliti um staðsetningu slíkra húsa um landið og benti m.a. á Grundafjörð sem heppilegan stað fyrir slíka reiðhöll. Einn galli er þó á gjöf Njarð- ar því umsókn um styrk verður að koma frá aðildarfélagi Landssambands hesta- manna og er þar komið að Snæfellingi sem er sameiginlegt félag hestamanna á Snæ- fellsnesi að kveða uppúr með staðsetningu hallarinnar. Hestamenn hafa ekki alltaf verið þeir auðveldustu í samskiptum hver við annan og ljóst að í röðum þeirra eru ekki allir á eitt sáttir um staðsetninguna. Úr bæjarlífinu GRUNDARFJÖRÐUR EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON FRÉTTARITARA fyrsta sæti, í 2. sæti hafn- aði Haukur Björnsson, einnig úr Lundarskóla og 3. varð Baldur Már Guð- mundsson úr Brekku- skóla. Þá er loks að nefna sigurvegarana úr 10. bekk, en þar varð fyrstur Auðunn Skúta Snæbjarn- Gestkvæmt var á Salí Gamla skólaMenntaskólans á Akureyri þegar verðlaun voru veitt fyrir stærð- fræðikeppni grunnskól- anna, sem nú fór fram í fyrsta sinn á Akureyri. Keppendur voru tæplega 30, flestir úr Lundarskóla og Síðuskóla. Verðlaunahafar úr 8. bekk voru Sunna Berg- lind Sigurðardóttir úr Síðuskóla, sem var í 1. sæti, Sunna Björnsdóttir úr Grenivíkurskóla, sem varð í 2. sæti og 3. sætið hreppti Tinna Ingólfs- dóttir úr Oddeyrarskóla. Verðlaunahafar úr hópi 9. bekkinga voru Guðrún Margrét Jónsdóttir úr Lundarskóla, sem varð í arson úr Lundarskóla og skólabróðir hans Aron Skúlason varð í öðru sæti en í því þriðja Tinna Frí- mann Jökulsdóttir úr Síðuskóla. Verðlaunin gaf Verk- fræðistofa Sigurðar Thoroddsen. Nemendur í 1., 2. og 3. sæti í stærðfræðikeppninni, sem viðstaddir voru, þarna vantaði þrjá af þeim. Ungir stærðfræðingar Ingveldur Geirsdóttirvakti athygli á því ípistli sínum Af list- um að börn væru hvött til þess að koma með móður sína á útvarpsstöðina X-ið og láta vigta hana. Barnið sem ætti þyngstu mömmuna ynni leikinn og fengi verðlaun. Sigrún Haraldsdóttir orti: Verðmæt er sú vanadís er vegur lítt í grömmum, en kaupa má í kílóvís kjöt af feitum mömmum. Jón Ingvar Jónsson orti að gefnu tilefni: Mein ég held að herinn sé, hann er þungur klafi. Svei, mér þá! mér finnst að fé farið betra hafi. Og: Enginn gerði af sér neitt undirréttur greinir, setja því upp brosið breitt Baugsmenn engilhreinir. Af lágkúru pebl@mbl.is Húsavík | Lóðaframboð verður aukið á Húsavík, en málið var til umræðu á fundi Umhverfis- og framkvæmdaráðs Húsavík- urbæjar á fimmtudag. Fyrr í vikunni tók Skipulags- og bygginganefnd Húsavíkur- bæjar fyrir tæplega 200 umsóknir um lóðir í bænum, afgreiddi þær með því að draga úr spilastokk í samræmi við vinnureglur nefndarinnar. Dugði spilastokkurinn rétt til verksins, því í tveimur tilvikum barst nefndinni 51 umsókn um eina lóð. Þá bár- ust 50 umsóknir um aðra lóð sem í boði var. Þrír aðilar sóttu um allar lausar lóðir við Höfða, fimm talsins. Á fundinum kom fram að nú eru engar lausar íbúðahúsalóðir laus- ar til umsóknar og óskaði nefndin eftir fjárveitingu til að deiliskipuleggja svæði ofan Langholts. Lóðaframboð verður aukið Árskógssandur | Framkvæmdir við Bruggsmiðjuna ehf., nýju bruggverksmiðj- una á Árskógssandi og þá fyrstu sinnar tegundar hérlendis, hófust fyrir viku. Búið er að taka grunninn og lokið við fyrstu steypu í gær. Hlutirnir þurfa að ganga hratt fyrir sig því stefnt er að því að brugg- un hefjist í júní og fyrsta framleiðsla verði tilbúin 22. júlí. Eigendur Bruggsmiðjunnar eru Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson á Árskógssandi, Sigurður Konráðsson ásamt fleirum. Heildarkostnaður við að koma fyrirtækinu á fót er um 60–65 millj- ónir króna. Byrjað á bruggverk- smiðjunni ♦♦♦ Fréttir í tölvupósti VIÐRÆÐUR standa nú yfir milli Faxa- flóahafna og Stálsmiðjunnar ehf. um flutn- ing á starfsemi Stálsmiðjunnar frá Reykja- vík og til Grundartanga. Með breytingum á skipulagi og landnotkun í miðbæ Reykja- víkur er starfsemi slippanna við Mýrar- götu orðin fyrir. Að frumkvæði stjórnar Faxaflóahafna voru hafnar viðræður við Stálsmiðjuna um flutning á starfsemi fyr- irtækisins. Hefur hafnarsvæðið á Grund- artanga verið nefnt í því sambandi. Fari sem horfir mun því vinnustaður með á annað hundrað starfsmenn bætast í vaxandi flóru iðnfyrirtækja á Grundar- tanga. Frá þessu er greint á vef Skessu- horns. Viðræður um flutning ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.