Morgunblaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÍSLENSKT þjóðfélag hefur á
fáum árum horft upp á og tekið
þátt í miklum breytingum á ís-
lensku viðskiptalífi. Sú nýsköpun
sem kom til með Evrópska efna-
hagssvæðinu og í kjölfar þess
einkavæðing bankanna var drifin
af pólitískum frumkvöðlum. Í kjöl-
far þessa hefur orðið
gríðarleg nýsköpun í
bankakerfinu og svo í
kjölfar þess útrás
banka og fjölda fyr-
irtækja á ýmsum
sviðum viðskipta.
Þessi nýsköpun í út-
rás er drifin af mjög
hæfum viðskipta-
legum frumkvöðlum
með stuðningi stjórn-
málamanna, banka,
lífeyrissjóða og al-
mennings. Hafa mörg
vel launuð störf skap-
ast í þessari nýsköpun. Satt að
segja trúa margir útlendingar því
ekki hvernig við getum haft gott
lífeyrisjóðskerfi, lítið atvinnuleysi,
litlar skuldir íslenska ríkisins og
mikinn hagvöxt.
Þurfa forsvarsmenn þessara
fyrirtækja að huga vel að baklandi
sínu hér svo að það styðji þá komi
til erfiðleika í rekstri þeirra eða til
að „skilningsskortur“ útlendinga
dragi ekki úr hagnaði, endur-
fjármögnun erlendra lána, við-
skiptatækifærum og fjölgun starfa
eins og nýleg dæmi sýna.
Mikil færni, viðskiptaþekking,
menntun og áræðni, stutt af ís-
lenskum almenningi og stjórn-
málamönnum er grundvöllur fyrir
þessi útrásarnýsköpun, en þessi
útrás getur orðið brothætt ef ekki
er hægt að treysta á fjármagn frá
íslenskum lífeyrissjóðum og er-
lendum fjárfestum.
Í umfjöllun um bankana hefur
komið fram að þeir hafa verið að
taka til í lánasöfnum. Með öðrum
orðum, taka minni áhættu í lánum
til minni aðila. Virðist aftur koma
hér fram það viðhorf að standa vel
með stærri aðilum en
ekki þeim minni.
Minnir þetta nokkuð
á hve auðvelt er að
gleyma sér í að dást
að stóru trjánum í
skóginum en gleyma
að sá fræjum og hlúa
að græðlingum. Eins
og fram hefur komið
m.a. hjá WEF (Al-
þjóðaviðskiptastofn-
uninni) og fleiri að-
ilum er Ísland að
standa sig vel í flestu
nema að hlúa að byrj-
unarskeiði nýsköpunar og stuðn-
ingur hins opinbera við frum-
kvöðla þegar þeir eru að byrja
nýsköpun er mjög lítill og banka-
kerfið er áhugalítið. Til að vera
samstiga löndunum í kringum
okkur ætti að vera fjárfest hér á
landi fyrir um 3 milljarða á ári í
frumnýsköpun, í formi lána,
skattaívilnana, lánatrygginga og
styrkja. Þessu til viðbótar kæmu
svo fjárfestingar fjárfesta og
venjulegar fjárfestingar og veltu-
fjármögnun banka.
Það var ánægjulegt að sjá fjár-
málaráðherra Árna M. Mathiesen
kynna, 13. mars, skattalegar um-
bætur sem eiga að nýtast nýsköp-
unar- og þróunarfyrirtækjum,
ásamt því að tilkynna um skipun
nefndar til að sjá hvað aðrar þjóð-
ir eru að gera til að styrkja þessa
starfsemi. Vonandi mun þetta auk
aukins fjármagns til vísinda- og
tæknisjóðs, Nýsköpunarsjóðs og
fjárfestinga m.a. lífeyrissjóða í
Brú fjárfestingafélagi hjálpa eitt-
hvað til að mæta þörf fyrir fjár-
magn til nýsköpunar.
Mikið átak og fjárfesting hefur
verið gerð í að bjóða fleiri kosti í
háskólanámi hér á landi og eru
stórir hópar af háskólamenntuðu
fólki að streyma út í atvinnulífið.
Má búast við að nokkur þúsund
manns hafi sótt í framhalds- og
endurmenntun til að geta síðar
fengið betur launuð störf. Ekki er
við því að búast að þetta háskóla-
menntaða fólk fái vinnu við hæfi
einungis hjá bönkum og núverandi
útrásarfyrirtækjum. Eining þarf
að gera þessu fólki auðvelt að
hefja eigin fyrirtækjarekstur og
stunda nýsköpun. Stuðningur við
slíka nýsköpun frumkvöðla í eigin
fyrirtækjum er með ódýrari störf-
um sem hægt er að skapa hér á
landi.
Nýsköpun og störf
Holberg Másson fjallar
um efnahagsmál ’Nýsköpun í útrás ís-lenskra banka og fyrir-
tækja hefur skapað mörg
ný störf og er ein af und-
irstöðum í íslenskri vel-
gengni og hagvexti.‘
Holberg Másson
Höfundur er frumkvöðull.
ÉG ER sammála Tryggva Her-
bertssyni um að ekki eigi að
semja við hryðjuverkamenn undir
neinum kringumstæðum. Ég er
líka sammála Tryggva um að trú-
verðugleiki séu mestu verðmæti
seðlabanka og annarra banka.
Þegar ég er að fjalla um banka-
ræningja er ég að fjalla um það
hvernig bankar ræna almenning í
landinu. Ég spyr þig Tryggvi:
Hvernig í ósköpunum er hægt að
byggja upp traust á þeim for-
sendum? Ég fullyrði að íslenska
bankakerfið er ekki að starfa í
eðlilegu lagaumhverfi. Íslenska
bankakerfið er í veigamiklum at-
riðum ekki í markaðsumhverfi og
fer þar af leiðandi ekki að sam-
keppnislögum.
Greiðslumiðlunarkerfið með
debet og kredit er miðstýrt sósíal-
ískt fyrirbæri og að planta slíku
miðstýrðu kerfi inn í mitt mark-
aðshagkerfi er álíka fáránlegt og
að staðsetja sjálfan kölska í
himnaríki.
Með tilkomu EES-samningsins
og samkeppnislaga var Verðlags-
stofnun lögð niður sem og almenn
afskipti stjórnvalda af verðmynd-
un aðila á markaði. Í staðinn
komu samkeppnissjónarmið og
sjálfstæð verðmyndun aðila á
markaði, byggð á eigin forsendum
þeirra, í samkeppnisumhverfi. Ég
spyr þig Tryggvi; Hver reiknar út
vísitölur og er eðlilegt að bankar
og fjármálafyrirtæki styðjist við
slíka hækju? Er ekki eðlilegra í
núverandi lagaumhverfi að bank-
arnir fari í heiðarlega samkeppni
og leggi sínar eigin forsendur á
vogarskálarnar í verðákvörð-
unum sínum.
Samráð og samstarf innan ís-
lenska bankakerfisins birtist auk
þess í ýmsum þjónustugjöldum
s.s. seðilgjöldum sem allir bank-
arnir innheimta fit-kostnaði o.fl.
Samráðið snýst ekki endilega um
samræmdar gjaldskrár heldur
fremur um samræmdar stefnur
og aðferðafræði í gjaldtökum sín-
um. Kæri Tryggvi, finnst þér ekki
kominn tími til að brjóta upp mið-
stýringuna, samstarfið og sam-
ráðið innan bankakerfisins? Hvíl-
ir ekki undirstaða traustsins á
kviksandi?
E.s. Seðlabanki Íslands er ekki
að verja íslenska gjaldmiðilinn
fyrir ásókn erlendra auðhringa
(skrifist Visa International og
Masterbation nei afsakið Mast-
ercard).
Sigurður Lárusson
Eiga Íslendingar
að semja við
bankaræningja?
Höfundur er kaupmaður.
!"# $$%&!'!
&(' )
**&+,%,- ) &.!/ 0 ! "!"
$ ,1 2,*"%!'!3%*/4# $$% **5&
6' + )""-+, ' 7+***!" * %%% "*8
%&!'!
!'!
**% "' " 2**9#*" :
"%*"%,' */%:"!": *%&
8# 7#%/ ,
*/ % 2* +," '% ) %*/' "% &#'
%)*#% % ' "" $,) :"; %$7#%- %%7*',&
(%$: #7#%- :%,# ,%',&(<
8$'+ **
)"" %,:! %,' / "%% %, ) +, *#
!"7&=9#% +," % 9 ,( , 1 +
% !"**% *% :' %, ** & /
!'!
!"# $$%&.!/ 0 ! "!"
*%, !'!
8!,%,% ,*-:)*"/% 8
$* **-:)*"/% / *"*%!"' "72,*% #%*'
72 *' "72,# $$%&
!,%,2 * 7 1 2,*"% *%)""*"
%%*7+**,&.)** :1 >?@%7*)'+ **% %2 **% ,7*%%!"7
% *$ * &A )"" B&
( )"" %,!'! % 7% ** 7 7' ,&
6)** :1 1 %% 2*!'! '% % "2,%*/8
! *7' !'!
&(2* )
$ * %2*C "" ',#+ ,D 7 * 8
*&6** 1 '%, %8 ,% , * 9 -)!"
+, * + 7%%' ,!*2$ ,%8
'2 %:#,% %,A!8( B!" %',!*2'%%&
$ ,)*'2//%, +,!'!
7*/ %
%, *"* ** % : "% 9,&>"%,+ **&
, B& /!'!&
!""
# $% & '()*
! " # $
% " # $
M
N
O
M