Morgunblaðið - 18.03.2006, Qupperneq 63
eeee
„…listaverk,
sannkölluð perla“
DÖJ – kvikmyndir.com
Sími - 551 9000
Big Momma´s House 2 kl. 4, 6.50, 9 og 11.10
Rent kl. 2.40 og 5.20 B.i. 14 ára
Capote kl. 5.30 og 8 B.i. 16 ára
Constant Gardener kl. 2.40 og 10.20 B.i. 16 ára
HINSEGIN BÍÓDAGAR
Einu sinni var kl. 4 Sígaunapakk kl. 6
Bangsalingur kl. 8 Transamerica kl. 8
Síðari dagar kl. 10 Brokeback Mountain kl. 10.15
Vinsælasta myndin á Íslandi 2 vikur í röð
BEYONCÉ KNOWLES
STEVE
MARTINKEVIN
KLINE
JEAN
RENO
BESTA LEIKKONA
Í AUKAHLUTVERKI
RACHEL WEISZ
G.E. NFS
e e e
M.M.J. Kvikmyndir.com
e e e
S.K. DV
e e e
Ó.H.T Rás 2
e e e e
L.I.B. - topp5.is
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Bleiki demanturinn er
horfinn og heimsins
frægasta rannsóknarlögregla
gerir allt til þess að
klúðra málinu…
eeee
Topp5.is
eee
kvikmyndir.com
eee
A.B. Blaðið
eeee
S.K. / DV
Sýnd kl. 10 - Allra síðustu sýningar
Sýnd kl. 8
EIN ATHYGLISVERÐASTA
MYND ÁRSINS
SUM ERU
HÆTTULEGRI
EN ÖNNUR
ALLIR EIGA SÉR LEYNDARMÁL
Rolling Stone Magazine
Kvikmyndir.com
eeee
Roger Ebert
Empire Magazine
ee e
Topp5.is
eeee
GOYA VERÐLAUNIN
Besta Evrópska myndin
Scarlett Johansson
Jonathan Rhys Meyers
MATCH
POINT
Sýnd kl. 8 og 10:15
Ein besta mynd Woody Allen
Sýnd kl. 2, 4 og 6
TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MARTIN LAWRENCE
Mamma allra grínmynda er mætt aftur í bíó!
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
18 krakkar. Foreldrarnir.
Það getur allt farið úrskeiðis.
Sýnd kl. 2, 4 og 6
eee
S.V. Mbl.
200 kr. afsláttur
fyrir XY félaga
www.xy.is
ALLRA SÍÐASTA
SÝNINGARHELGI
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA SÝNUM VIÐ ÞESSA STÓRKOSTLEGU
VERÐLAUNAMYND AFTUR. EINGÖNGU UM HELGINA
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU
-bara lúxus
eee
Kvikmyndir.com
eee
Kvikmyndir.is
eee
RollingSTone
eee
Topp5.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 63
Nafnlaust
Skósvertar leifar limgerðisins
vikna hástöfum í sinneps-
maríneraðri hádegissólinni.
Og svartstorkið blóðið undir
brotinni tánögl minni engist um
líkt og utankjörstaðaatkvæða-
þyrstur slímþörungur.
Ó! Kakódýrið brokkar valhopp-
andi gegnum nóttina. Það stirn-
ir á loðdrapplitaðan líkama
þess.
Ég finn hvernig svitinn logar í
kakóbolla augnabliksins og súr-
eygður sykurpúði skelfur í auðn-
inni um stund.
Í remúlaðibaði hringiðar hring-
ormakös – Kakódýrsins og mín,
eitt óútsprungið og titrandi síð-
sumarkvöld í maí.
Tánögl mín klofnar til blóðs,
götuna fram eftir veg, og stund
míns gulasta plásturs er sokkin
í graftarhaf.
Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
„Ljóð Eyrúnar Eddu er ein-
hvers konar babelsturn ömurlegra
ljóðmynda, þær hlaðast hver ofan
á aðra og standa hver í vegi fyrir
annarri; það er engin leið að vita
hvar ljóðið er líklegast til að byrja
að molna við lestur, og það verður
aldrei á sama stað hjá einum les-
anda og hjá öðrum. Er það við
„sinnepsmaríneraða hádegissól-
ina“? Við „loðdrapplitaðan líkama
kakódýrsins“? Eða kannski strax
við „skósvertar leifar limgerð-
isins“? Við getum einungis verið
þess fullviss að einhvers staðar við
lesturinn mun ljóðið hrynja, og við
munum fá stærstu bitana í haus-
inn.“
Ömurlegasta ljóð á Íslandi
Mér fannst ég heyra lágvært
suð í ölvuðum býflugum
En þá varst það þú að strjúka
flötum lófa yfir silkið
og hvísla nafnið mitt, nafnið
þitt, nafnið mitt, nafnið þitt
Aftur og aftur og aftur og enn
aftur og aftur.
Eins og fínlegt grátt sandkorn á
strönd eilífðarinnar
Sem hafið strýkur sinni síðustu
öldu yfir
og frussar nafnið mitt, nafnið
þitt, nafnið mitt, nafnið þitt
Einu sinni enn og svo aftur,
einu sinni enn
Þetta fölnaða lauf sem hangir
dauðahaldi á grein
sem norðangarrinn hrifsar í svo
það missir takið og ýlfrar nafnið
mitt, nafnið þitt, nafnið mitt,
nafnið þitt
í síðasta sinn, í síðasta sinn, í
síðasta síðasta sinn.
Örn Úlfar Sævarsson
„Rómantískur tour-de-force
Arnar Úlfars Sævarssonar skekur
jörðina með vemmilegheitum sín-
um, og vafalítið verður langt í að
aulahrollurinn sem hríslast um sál-
ir dómnefndarmeðlima hverfi með
öllu. Ljóðlínur á borð við „Eins og
fínlegt grátt sandkorn á strönd ei-
lífðarinnar“ gætu vart með nokkru
móti verið ömurlegri, og hinar
hýperljóðrænu víxlendurtekningar
„nafnið mitt, nafnið þitt“ eru settar
saman af kraftmiklum metnaði.
Ljóðið er í alla staði gisin og
margútjöskuð þvæla, sem bendir
til þess að Örn Úlfar sé vel verser-
aður í ömurlegri ljóðlist, og hafi
jafnvel lesið heilu ömurlegu bóka-
skápana upp til agna, að hann
dragi varlega til stafs og geri sér
vel grein fyrir því að jafnvel metn-
aðarfyllstu ömurðarskáldum getur
skrikað fótur.“
Handalögmál
Lögmál handa.
Handa hverjum?
Handalögmál.
Handa hverra?
Lög mála.
Mál laga.
Lagamalur.
Legmagi.
Hagamelur.
Agalegur.
Skúli Þórðarson
„Þessi skemmtilega (en að sjálf-
sögðu jafnframt ömurlega) barna-
gæla er stórkostlega úttroðin af
furðulegum uppásnúningum; ef
Þórarinn Eldjárn á sér illan tví-
burabróður þá er hann fundinn í
Skúla Þórðarsyni.“
Ljóð | Íslandsmeistaramótið í ömurlegri ljóðlist
Vinningsljóðin þrjú
JAÐARFORLAGIÐ Nýhil hefur undanfarnar vikur staðið fyrir Íslandsmeistaramótinu í ömurlegri ljóðlist. Í
vikunni birtust fjögur „ömurleg ljóð“ en í gær voru svo þrjú vinningsljóð valin af dómnefnd og höfundar þeirra
verðlaunaðir í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi.
Dómnefnd skipuðu þau Eiríkur Örn Norðdahl, Hildur Lilliendahl Viggósdóttir og Sölvi Björn Sigurðarson.
Ömurlegustu ljóð Íslands
Bandaríski kvikmyndaleikstjór-inn Kevin Reynolds er vænt-
anlegur hingað til lands í næstu viku
í tilefni af frum- og styrktarsýningu
á nýjustu
mynd sinni,
Tristan & Is-
olde. Reyn-
olds á að baki
fjölmargar
kvikmyndir
og er einna
þekktastur
fyrir stór-
myndir á
borð við Wat-
erworld og
Robin Hood:
Prince of Thieves sem báðar skört-
uðu Kevin Costner í aðahlutverkinu.
Síðasta mynd hans var The Count of
Monte Cristo með stórleikurunum
James Caviezel, Guy Pearce og
Richard Harris í aðalhlutverkum.
Tristan & Isolde er framleidd af
bræðrunum Ridley og Tony Scott
og í aðalhlutverkinu er hin unga
stjarna James Franco úr Spider-
Man-myndunum. Um er að ræða
klassíska og spennandi ástarsöga
um forboðið samband ungra elsk-
enda, sem blandast inn í stríð og
valdabaráttu kónga og riddara.
Myndin hefur fengið góða dóma hjá
gagnrýnendum, meðal annars
Rogert Ebert, sem líkti henni við
Romeo & Juliet og The Gladiator.
Kvikmyndin verður frumsýnd 24.
mars í Laugarásbíói og verður leik-
stjórinn viðstaddur. Um styrkt-
arsýningu er að ræða og munu allar
tekjur renna óskiptar til samtak-
anna Einn af fimm, sem voru stofn-
uð með það að leiðarljósi að vekja at-
hygli á því að einn af hverjum fimm
einstaklingum í heiminum er haldinn
þunglyndi. Kevin Reynolds hefur
mikinn áhuga á þessu verkefni og
varð það hvatinn að því að hann vildi
koma til landsins og veita málefninu
stuðning.
Fólk folk@mbl.is