Morgunblaðið - 08.04.2006, Side 2
2 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BNA EINI KOSTURINN
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði í gær að
áframhaldandi samstarf við Banda-
ríkjamenn í varnarmálum væri eini
raunhæfi kosturinn. Þá sagðist hann
vona að breytingar á virðisauka-
skatti og vörugjöldum leiddu til
lægra matarverðs.
Bankarnir standast
Íslensku bankarnir standast allir
álagspróf sem Deutsche Bank gerði.
Bankarnir standast prófið með góð-
um árangri en þar er gert ráð fyrir
ákveðnum áföllum og áhrif þeirra á
eiginfjárhlutfall bankanna metin.
Libby ásakar Bush
Ásakanir Gordons Libbys, fyrr-
verandi skrifstofustjóra Dicks Chen-
eys, varaforseta Bandaríkjanna, um
að George W. Bush forseti hafi sjálf-
ur heimilað leka á upplýsingum um
leyniþjónustumann eru taldar geta
komið sér afar illa fyrir Bush.
Læknaskortur í heiminum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, segir í nýrri skýrslu að vegna
skorts á læknum, hjúkrunarfræð-
ingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki
sé svo komið að lífslíkur fari minnk-
andi í mörgum fátækum ríkjum. Er
talið að alls skorti um 4,3 milljónir
heilbrigðisstarfsmanna í heiminum.
Einnig er sagt að sumar ríkar þjóðir
leysi sinn vanda að nokkru með því
að fá lækna frá fátækum þróunar-
löndum til starfa og auki þannig enn
á vanda slíkra landa.
Verkfalli lokið
Tveggja sólarhringa setuverkfalli
ófaglærðs starfsfólks á tíu hjúkr-
unar- og dvalarheimilum lauk á mið-
nætti. Starfsmenn ætla að hittast á
mánudag og ræða frekari aðgerðir,
þar á meðal uppsagnir.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 34
Fréttaskýring 8 Kirkjustarf 37/42
Úr verinu 14 Brids 42
Viðskipti 16/17 Minningar 43/52
Erlent 18/19 Myndasögur 56
Minn staður 20 Dagbók 56/59
Akureyri 21 Víkverji 56
Árborg 22 Velvakandi 57
Suðurnes 22 Staður og stund 58
Landið 23 Bíó 62/65
Daglegt líf 24/27 Ljósvakamiðlar 66
Menning28/29, 62/65 Staksteinar 67
Umræðan 30/36 Veður 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
TVEIR Nígeríumenn voru í gær ákærðir af
lögregluembættinu á Keflavíkurflugvelli fyrir
fjársvikastarfsemi hér á landi. Mennirnir voru
stöðvaðir þegar þeir komu til landsins með
flugi frá Kaupmannahöfn 16. mars en ábending
mun hafa borist frá erlendum lögregluyfir-
völdum um að þeir kynnu að hafa fíkniefni
meðferðis. Við leit fundust ekki fíkniefni á þeim
félögum og var þeim sleppt. Hins vegar kom í
ljós að mennirnir höfðu talsvert magn af svört-
um bréfmiðum í peningaseðlastærð, joð, vasilín
og álpappír og svokallaðan „fluorescent“-lampa,
en lítið af peningum.
Lögreglan segist hafa aflað sér upplýsinga
frá erlendum lögregluyfirvöldum um að fram-
angreind efni og tæki megi noti til tiltekinna
fjársvika og hafi af þeim sökum verið ákveðið
að leita á mönnunum þegar þeir færu á ný úr
landi. Þegar mennirnir hugðust fara úr landi
hinn 17. mars fundust á þeim um 100.000 evrur
í reiðufé, eða hátt í níu milljónir króna. Lög-
reglan segir að mennirnir hafi ekki getað gefið
trúverðugar skýringar á því hvers vegna þeir
höfðu þessa fjármuni meðferðis.
Við leit á hótelherbergi sem mennirnir
dvöldu í fundust merki þess að umrædd efni
hefðu verið notuð með tilteknum hætti. Þeir
hafa nú verið ákærðir fyrir að hafa svikið út fé
með því að setja reiðufé fórnarlamba sinna í
umslag ásamt öðrum hlutum og skipta síðan
um umslag. Tveir Íslendingar eru taldir hafa
orðið fyrir barðinu á mönnunum og hafa þeir
verið yfirheyrðir.
Jóhann Benediktsson sýslumaður á Keflavík-
urflugvelli gaf út ákæru gegn mönnunum í gær.
„Mennirnir neita sök, en við lítum málið al-
varlegum augum og okkur finnst mjög mik-
ilvægt að senda skýr skilaboð til að kæfa slíka
starfsemi í fæðingu,“ sagði Jóhann í gær.
Tveir Nígeríumenn ákærðir
fyrir fjársvikastarfsemi
SIGURÐUR Demetz
Franzson, óperusöngv-
ari og söngkennari,
andaðist að morgni 7.
apríl í hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni í Reykja-
vík. Hann fæddist 11.
október 1912 í St. Úlrik
í Grödendal, þar í Ölp-
unum á landamærum
Austurríkis og Ítalíu
sem heitir Suður-Tíról,
sonur hjónanna Franz
og Mariu Demetz.
Sigurður Demetz
nam söng á Ítalíu og
sönggáfa hans og hæfi-
leikar vöktu athygli tónlistarmanna
á borð við dr. Karl Böhm og Herbert
von Karajan. Hann söng víða um
Evrópu við góðan orðstír en e.t.v.
skein frægðarsól hans skærast þeg-
ar hann söng í Scala-óperunni í Míl-
anó á árunum í kringum 1950.
Sigurður Demetz fluttist hingað
til lands frá Ítalíu árið 1955 og hóf
söngkennslu víða um land auk þess
sem hann söng hér nokkur óperu-
hlutverk og á tónleikum og stjórnaði
kórum. Jafnframt varð hann vinsæll
fararstjóri útlendinga í kynnisferð-
um um landið.
Ýmislegt varð Sig-
urði Demetz að fóta-
kefli á ferlinum á um-
brotatímum í álfunni.
Styrjaldir og veikindi
öftruðu honum, en
hann taldi það gæfu
sína að hafa borist til
Íslands eins og fyrir
guðlega forsjón. Frá
því segir hann í ævi-
sögu sinni sem kom út
árið 1995.
Sigurður Demetz
kvæntist Þóreyju Sig-
ríði Þórðardóttur árið
1960. Hún lést árið
1992. Systkini Sigurðar Demetz, öll
yngri, eru Ulrike, læknisfrú, Ivo,
forstjóri, Franz, listamaður, og
Giancarlo, húsvörður, sem er látinn.
Með Sigurði Demetz er genginn
merkur listamaður og söngfrömuð-
ur, lærimeistari margra kunnustu
óperusöngvara íslensku þjóðarinnar.
Hann var sæmdur stórriddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf
í þágu söngmenntunar á Íslandi,
riddarakrossi ítalska ríkisins og
kjörinn heiðursborgari í fæðingarbæ
sínum. Hann var verndari Nýja
söngskólans Hjartansmáls.
Andlát
SIGURÐUR DEMETZ
FRANZSON
KARLMAÐUR á fertugsaldri liggur
alvarlega slasaður á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi eftir umferðar-
slys sem varð á Reykjanesbraut á
fjórða tímanum í gærdag. Ökumað-
urinn, sem var einn í bílnum, slas-
aðist illa þegar hann velti jeppabif-
reið sinni skammt vestan við
Grindavíkurafleggjara og var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi þar sem hann
gekkst undir aðgerð. Í gærkvöldi
fengust þær upplýsingar hjá vakt-
hafandi lækni að manninum væri
haldið sofandi.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Keflavík eru tildrög slyss-
ins ekki kunn en svo virðist sem öku-
maðurinn hafi misst stjórn á bifreið
sinni. Engin hálka var á vegum þeg-
ar slysið varð.Morgunblaðið/Júlíus
Alvarlega
slasaður eft-
ir bílveltu
ÚTBOÐSGÖGN vegna smíði nýs
varðskips hafa verið send til þeirra
sex fyrirtækja sem stóðust forvals-
kröfur Ríkiskaupa en alls komu
fimmtán fyrirtæki þar til greina.
Þórhallur Hákonarson, verkefnis-
stjóri hjá Ríkiskaupum, segir að
stofnunin hafi sett fram kröfur sem
tryggja hafi átt að tilboð bærust að-
eins frá skipasmíðastöðvum með
fullnægjandi reynslu og þá fjárhags-
legu getu sem þarf til að smíða skipið
þannig að sómi verði að.
Af þeim sex fyrirtækjum sem geta
tekið þátt í útboðinu eru þrjú frá
Noregi en hin eru frá Hollandi,
Þýskalandi og Chile.
Kynningarfundur fyrir alla bjóð-
endur verður haldinn í Kaupmanna-
höfn 8. júní nk. þar sem farið verður í
gegnum aðalmódelið og þær kröfur
sem Ríkiskaup gera. Opnun tilboða
fer fram 24. ágúst nk. og er tilboðs-
tíminn fjórir mánuðir en Ríkiskaup
áskilja sér síðan rétt til að taka tutt-
ugu vikur til að ganga frá og meta til-
boðin. Í forvali Ríkiskaupa þurftu
fyrirtækin að skuldbinda sig til að af-
henda skipið þrjátíu mánuðum eftir
undirritun samnings.
Útboðsgögn vegna
varðskips send út
STARFSMENN fíkniefnadeildar
Lögreglunnar í Reykjavík gerðu
húsleit í húsi við Ármúla fyrr í vik-
unni vegna gruns um að þar væri
fíkniefni að finna. Nokkurt magn af
efnum fannst í húsinu og var hús-
ráðandinn, ung kona, handtekin.
Þá handtók lögreglan í Borgar-
nesi í gær þrjá menn þegar smá-
ræði af kannabisefnum, ásamt
áhöldum til neyslu, fannst við hús-
leit í Borgarfirði.
Mönnunum var sleppt að lokinni
yfirheyrslu.
Fíkniefni fundust við húsleit