Morgunblaðið - 08.04.2006, Page 4
4 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stóra orðabókin
veitir einstaka
leiðsögn um orðaval
í ræðu og riti.
Yfirgripsmesta
verk sem út hefur
komið um íslenska
málnotkun.
Bókin er
yfir 1600 bls.
í stóru broti.
Fæst á einstöku
tilboðsverði á
www.jpv.is
www.jpv.is ORÐABÓK
FRAMTÍÐARINNAR
M I K L U M E I R A E N H E F Ð B U N D I N O R Ð A B Ó K
Rafræn
útgáfa
á geisladiski
fylgir.
Stóra orðabókin sameinar
alhliða lýsingu á íslenskri
málnotkun, þar sem orðin
birtast í margs konar
notkunarsamhengi, til dæmis
orðasamböndum af ólíku
tagi og samsetningum og er
jafnframt samheitaorðabók.
GÓÐ OG GAGNLEG
FERMINGARGJÖF
„BREYTINGA er þörf á núgildandi
löggjöf um samkeppnismál hér á
landi í ljósi þróunar í átt til auk-
innar samþjöppunar í íslensku við-
skiptalífi,“ sagði Páll Gunnar Páls-
son, forstjóri Samkeppniseftir-
litsins, á morgunráðstefnu sem
stofnunin efndi til í gær undir yf-
irskriftinni „Fákeppni í smærri
hagkerfum“.
Yfirmenn samkeppnisyfirvalda
Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar
héldu allir erindi á fundinum, en í
máli þeirra kom fram að þeir töldu
ekki endilega þörf á strangari sam-
keppnisreglum í smærri hagkerf-
um. Páll Gunnar sagði hins vegar
að þörf væri á að endurskoða ís-
lensku löggjöfina og veita Sam-
keppniseftirlitinu aukin tæki til að
bregðast við skaðlegri fákeppni og
samþjöppun.
Vanrækja að tilkynna
um samruna fyrirtækja
Páll sagði að alltof algengt væri
að tilkynningaskylda um samruna
fyrirtækja væri vanrækt. „Sam-
kvæmt núgildandi lögum er ekki
unnt að beita stjórnvaldssektum
gagnvart fyrirtækjum sem uppvís
verða af því að hafa brotið ákvæði
laganna um tilkynningu samruna til
samkeppniseftirlitsins. Hér verður
að gera bragarbót á,“ sagði Páll.
Hann bætti við að jafnframt væri
of algengt að ekki væri nægilega
vandað til upplýsinga sem eftirlit-
inu berast með samrunatilkynningu
og að þær væru ónákvæmar eða
villandi. „Þetta skapar Samkeppn-
iseftirlitinu talsverða erfiðleika við
rannsókn samrunamála, en sú rann-
sókn lýtur ströngum tímafrestum
samkvæmt lögum.“
Að sögn Páls Gunnars er einnig
þörf á að efla rannsóknarúrræði í
samráðsmálum hér á landi. „Sam-
kvæmt núgildandi lögum einskorð-
ast húsleitir Samkeppniseftirlitsins
við starfsstöð viðkomandi fyrir-
tækja. Reynsla annarra þjóða sýnir
að upplýsingar sem mikilvægar eru
í rannsókn brota á samkeppnislög-
um er oft að finna á heimilum
stjórnenda,“ sagði Páll og benti á
að Eftirlitsstofnun EFTA væri
heimilt að gera húsleit hjá stjórn-
endum fyrirtækja hér á landi við
framkvæmd samkeppnisreglna.
„Vandséð er að rök séu til þess að
veita Samkeppniseftirlitinu ekki
sömu heimildir.“
Páll Gunnar sagði að einnig
kæmi til álita að tekin yrðu upp í ís-
lensk lög ákvæði áþekk þeim sem
veita breskum samkeppnisyfirvöld-
um heimild til að bregðast við fá-
keppni með kröfum um atferlis- og
skipulagsbreytingar, jafnvel þótt
viðkomandi fyrirtæki eða fyrir-
tækjasamsteypur hefðu ekki orðið
uppvís að eiginlegri misnotkun á
markaðsráðandi stöðu.
Stærðin getur haft áhrif
„Í litlu hagkerfi eins og því ís-
lenska getur stærð fyrirtækis á til-
teknum markaði eins og hér haft
samkeppnishamlandi áhrif, jafnvel
þó ekki sé um eiginlega misnotkun
á markaðsráðandi stöðu að ræða.
Ákvæði af þessu tagi væru a.m.k.
fyrirtækjum þörf áminning um að
fara ekki offari og geta verið nauð-
synleg til að þess að skapa skilyrði
fyrir virkri samkeppni á einstökum
mörkuðum hér á landi,“ sagði Páll
Gunnar ennfremur.
Aukin samþjöppun kallar
á breytt samkeppnislög
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að stofnunin eigi að hafa sömu heimildir
til húsleitar á heimilum stjórnenda fyrirtækja og Eftirlitsstofnun EFTA
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
EFTA-dómstóllinn hefur ógilt
ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA,
ESA, um að hreyfa ekki andmælum
við ríkisaðstoð til Íbúðalánasjóðs. Er
hún ógild vegna formgalla og ESA er
gert að taka málið fyrir að nýju. Í yf-
irlýsingu frá Samtökum banka og
verðbréfafyrirtækja (SBV), sem leit-
uðu með málið til ESA, er niðurstöðu
dómstólsins fagnað.
Ákvörðun ESA frá í ágúst 2004
byggðist á að ríkisaðstoð til handa
Íbúðalánasjóði, m.a. í formi ríkis-
ábyrgðar, væri samrýmanleg EES-
samningnum, þar sem hlutverk
Íbúðalánasjóðs væri m.a. að veita
þjónustu sem hefði almenna efna-
hagslega þýðingu. Dómur EFTA-
dómstólsins nú byggist á að ákvörð-
un ESA hafi verið haldin formgalla
þar sem vafi hafi leikið á því hvort að
ríkisaðstoðin samrýmdist fram-
kvæmd EES-samningsins. Því hafi
ekki verið rétt að taka ákvörðun að
lokinni forathugun heldur hafi átt að
hefja formlega rannsókn.
Bendir dómstóllinn meðal annars
sérstaklega á það að ekkert ákvæði í
húsnæðislöggjöfinni hafi takmarkað
stærð eða verð íbúðarhúsnæðis sem
fjármagnað var með almennum lán-
um. Þá væru hin almennu lán ekki
takmörkuð við það að lántakandi
fjármagni eigið íbúðarhúsnæði.
Í samræmi við sjónarmið SBV
Samtök banka og verðbréfafyrir-
tækja fagna niðurstöðunni. Hún sé í
samræmi við sjónarmið sem samtök-
in hafi haldið fram til margra ára.
„Áður en SBV ákváðu að nýta sér
þann lögmæta rétt að fara með málið
til ESA og síðar EFTA-dómstólsins
höfðu samtökin ítrekað reynt að ná
sátt við stjórnvöld sem tryggði eðli-
legt samkeppnisumhverfi húsnæðis-
lánamarkaðarins á Íslandi,“ segir í
yfirlýsingu frá samtökunum.
Formgalli hjá ESA um rík-
isaðstoð við Íbúðalánasjóð
Vafi talinn leika á hvort aðstoð samrýmist EES-samningi
HÁSKÓLINN í Reykjavík hefur
gengið frá leigusamningi við Klasa
hf., eiganda húsnæðis Morgunblaðs-
ins í Kringlunni 1, um leigu á öllu
húsnæðinu þar til háskólinn flytur í
nýtt húsnæði í Vatnsmýrinni árið
2009. Háskólinn fær húsnæðið af-
hent í 1. júlí nk. en Morgunblaðið
flytur ritstjórnarskrifstofur sínar og
starfsemi blaðsins að Hádegismóum
í lok júní nk.
Nokkrar breytingar verða gerðar
á Morgunblaðshúsinu en ráðgert er
að á fyrstu og annarri hæð húsnæð-
isins muni vera kennslustofur, rann-
sóknaraðstaða, rannsóknarstofnanir
og vinnuaðstaða fyrir kennara og
nemendur á verkfræði- og tölv-
unarfræðisviði HR. Á þriðju og
fjórðu hæð mun háskólinn svo opna
Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
og verður leigð út aðstaða fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki sem starfa að
nýsköpun, rannsóknum og öðru
frumkvöðlastarfi. Einnig verður
boðið upp á margvíslega þjónustu
sem leigjendum stendur til boða
sem og samstarf við háskólann á
öllum þeim sviðum sem hann starf-
ar. Með opnun miðstöðvarinnar
leggur HR aukna áherslu á tengsl
við atvinnulífið og að vinna með há-
tækni- og sprotafyrirtækjum.
Þegar háskólinn tekur aftur til
starfa næsta haust verður hann því
á þremur stöðum en hann er einnig
með húsnæði í Ofanleiti, þar sem
viðskiptadeild, lagadeild og
kennslufræði- og lýðheilsudeild eru
til húsa, og að Höfðabakka er
tæknifræði- og frumgreinadeild,
hluti viðskiptadeildar, lífeindafræði
og geislafræði og tilraunastofur til
verklegrar kennslu. Samtals verður
húsnæði skólans um 20 þúsund fer-
metrar en gert er ráð fyrir 2.800
nemendum við skólann á næsta
skólaári.
Flutningar Morgunblaðsins
hefjast 19. júní nk.
Ráðgert er að flutningur rit-
stjórnar og starfsemi Morgunblaðs-
ins hefjist 19. júní nk. þegar nýtt
húsnæði að Hádegismóum verður
afhent. Að sögn Arnar Jóhanns-
sonar, skrifstofustjóra Morg-
unblaðsins, verður hafist handa í
lok maí við að undirbúa tölvusali,
tengingar og annað slíkt en eig-
inlegir flutningar hefjist í kjölfar
formlegrar afhendingar húsnæð-
isins. Verða flutningarnir í þrepum
og jafnvel að ein deild innan blaðs-
ins verði flutt á degi en áætlað er að
flutningunum verði lokið 28. júní.
Háskólinn í Reykja-
vík tekur Morgun-
blaðshúsið á leigu
Morgunblaðið/Golli
MATTHÍAS Guðmundsson, formað-
ur Félags kjúklingabænda, segir sölu
á kjúklingakjöti ekki hafa minnkað í
kjölfar frétta um að fuglaflensa hafi
greinst í álft á Skotlandi nýlega. Hann
sagði að kjúklingabúin á Íslandi væru
vel varin fyrir sjúkdómum og að kjúk-
lingabændur hefðu undanfarna mán-
uði unnið líkt og viðbúnaðarstig tvö
ríkti, en yfirdýralæknir lýsti því yfir
nú fyrir nokkrum dögum.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
sagði að sala á kjúklingakjöti hefði
ekki minnkað þrátt fyrir fréttir síð-
ustu daga. Innan Haga væri starfandi
hópur sem fundaði reglulega um
neyðaráætlun ef illa færi. Sólmundur
Einarsson, innkaupastjóri hjá
Kaupási, hafði sömu sögu að segja og
sagðist hann ekki hafa orðið var við
neina minnkun á sölu á kjúklingakjöti
síðustu daga. Hann sagði að hjá
Kaupási fylgdust menn vel með
ástandinu og væru í reglulegu sam-
bandi við yfirdýralækni en ekki væri
hugað á neinar aðgerðir að svo
stöddu.
Engin
áhrif á
kjúklinga-
sölu