Morgunblaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 9 FRÉTTIR iðunn tískuverslun Úrval af sparitoppum og blússum Kringlunni s. 588 1680 Laugavegi 40 s. 561 1690 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Sparifatnaður Nýir kjólar, pils og perlutoppar Bragðsemendist lengur Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is Nýkynslóð: Mýkraundirtönn! PrófaðuNicorette Freshmint Hnébuxur - Kvartbuxur Síðbuxur Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16 VIÐ EIGUM 10 ÁRA AFMÆLI 20% AFSLÁTTUR LAUGARDAG OPIÐ 10-17 SUNNUDAG OPIÐ 13-17 LAUGAVEGI 1 S. 561 7760 Rýmum fyrir nýjum vörum í 3 daga í Ármúla 15 Opið laugardag 11-16 sunnudag 13-16 Buxur, bolir og blússur frá kr. 1.500 Nýjar vörur Ármúla15, Grímsbæ/Bústaðaveg, Hafnarstræti 106, Akureyri s. 588 8050, 588 8488, 642 4010 SUMARÆVINTÝRI Í SVÍÞJÓÐ! fyrir unglinga - Upplifið sænskt sveitalíf hjá Íslendingum Fara á hestbak, kynnast sænska tungumálinu o.m.fl. Vikudvöl í júní - Allar upplýsingar á heimasíðunni okkar: www.islandshastar-vedum.se FYRSTA úthlutun fyrir páska hjá Fjölskylduhjálp Íslands fór fram á miðvikudag, en úthlutað er alla mið- vikudaga, allt árið um kring. Ás- gerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, segir að sérstök páskaúthlutun verði einnig næsta miðvikudag, og þá verði boð- ið upp á mjög mikið úrval af girni- legum mat. „Við erum með hamborgar- hryggi, kjúklinga, ís, öl, sælgæti og fleira,“ segir Ásgerður, sem segir fyrirtæki hafa verið einstaklega gjafmild nú sem áður. Eins og gert var fyrir síðustu jól hafa þrír hraustir karlmenn tekið að sér að aðstoða við að afhenda matinn, enda gríðarmikið magn og mikið af þungum vörum. Þeir Jón Magnússon hæstarétt- arlögmaður, Eiríkur Stefánsson, fyrrverandi formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar, og Guðbjörn Jónsson ráðgjafi, tóku því til hendinni í Fjölskylduhjálpinni á fimmtudag og munu þeir framvegis aðstoða við úthlutanir á álags- tímum. „Það skiptir rosalegu máli að hafa þessa menn, þetta er svo mikil erfiðisvinna,“ segir Ásgerður. Um 1.000 fjölskyldur eru á skrá hjá Fjölskylduhjálp Íslands, en Ás- gerður segir að reikna megi með að það magn sem fyrirtæki hafa látið af hendi rakna fyrir páskana dugi fyrir 250 til 300 fjölskyldur. Hún segir fólk koma til Fjölskylduhjálp- arinnar óháð kyni og búsetu, mikið öryrkjar, aldraðir, einstæðar mæð- ur og fjölskyldur sem hafi lágar tekjur. Morgunblaðið/ÞÖK Þau Margrét Harðardóttir (t.v.), Ingibjörg Arelíusardóttir, Guðbjörg Pét- ursdóttir, Ásgerður Jóna Flosadóttir, Jón Magnússon, Eiríkur Stefánsson, Guðbjörn Jónsson, Guðrún Magnúsdóttir, Ragna Rósantsdóttir og Anna Auðunsdóttir tóku til hendinni við úthlutunina. Páskaúthlutun hjá Fjölskyldu- hjálp Íslands MJÓLKURSKORTUR og hugsan- legur innflutningur erfðaefnis kúa var meðal þess sem Þórólfur Sveins- son, formaður Landssambands kúa- bænda, gerði að umtalsefni í ræðu sinni á aðalfundi sambandsins á fimmtudag. Tuttugu ár eru nú liðin frá stofnun þess. Þórólfur talaði um minnkaða inn- vigtun mjólkur og hraða söluaukn- ingu og sagði hann meðal annars að líffræðilegir þættir hefðu takmarkað framleiðslugetu síðasta árið en ekki pólitískir. Engu hefði því breytt þótt greiðslumark hefði verið ákveðið hærra á vordögum árið 2005. Þór- ólfur sagði sölu á mjólkurafurðum hafa verið einstaklega góða á árinu. Síðustu tólf mánuði hefðu selst af- urðir úr 112,8 milljónum lítra en framleiðslan verið 109,8 milljónir lítra. Hann sagði að hvatt hefði verið til aukinnar framleiðslu en mestu máli skipti að auka innvigtun á kom- andi sumri. Hann sagði að þrátt fyrir að vitað væri að afkastagetu íslenska kúastofnsins væru takmörk sett hefði komið á óvart að innvigtun minnkaði sex mánuði í röð eftir að greiðslumark hefði verið aukið um fimm milljónir lítra. „Niðursveifla í innvigtuninni hefur skapað nýja stöðu sem vissulega fel- ur í sér svigrúm fyrir framleiðendur en einnig verulegar hættur sem fyrst koma fram hjá mjólkuriðnaðin- um. Eitt af því sem getur þurft að taka til endurmats eru tilraunir til útflutnings á mjólkurvörum,“ sagði hann. „Þær tilraunir lofa góðu en takmarkað hráefni setur okkur mjög þröngar skorður að þessu leyti.“ Þórólfur sagði loks að þótt ekki hefðu verið teknar um það ákvarð- anir benti allt til þess að greitt yrði fyrir alla innvegna mjólk á næsta verðlagsári. Skiptar skoðanir um innflutning erfðaefnis Þórólfur sagði ekkert eitt mál hafa valdið jafnmiklum klofningi innan sambandsins og fyrirhuguð saman- burðartilraun með kýr af NRF- stofni, en flytja hefði átt fósturvísa af því kyni til landsins. Fyrir aðalfund- inum sagði hann liggja tillögur um að huga að nýju að innflutningi erfða- efnis en ekki um að taka upp þráðinn frá árinu 2001 og hefja undirbúning að lokaðri rannsókn eins og þá hafi verið ætlunin. Hann sagði vel hægt að nálgast mat á fjárhagslegum ávinningi af notkun afkastameira kúakyns, en erfitt væri, nú sem áður, að bera það saman við þá breytingu að framleiða mjólkina ekki lengur með landnámskyninu. Hann sagði aðalfundinn þurfa að ákveða hvort sambandið kæmi að málinu og að hugsanlegur innflutn- ingur erfðaefnis nú miðaðist að því að fá sem fyrst afkastameiri og hag- kvæmari gripi í framleiðslu. Mikilvægt að auka innvigtun mjólkur í sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.