Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FERÐAMÖNNUM, sem heimsækja
Ísland, hefur fjölgað jafnt og þétt og
hefur vöxtur hér verið meiri en hjá
flestum nágrannaþjóðum okkar. Nú
bregður hins vegar svo við, að dregið
hefur úr þessum vexti á síðasta ári og
var vöxtur hér nú hægari og minni en
hjá þeim þjóðum sem við berum okk-
ur helst saman við,“ sagði Jón Karl
Ólafsson, formaður Samtaka ferða-
þjónustunnar, á aðalfundi samtak-
anna á Hótel Loftleiðum á fimmtu-
dag.
Jón Karl sagði ljóst að það væru
ákveðin hættumerki sem yrði að
ræða og bregðast við. Nýsköpun hefði
ekki verið nægileg á undanförnum ár-
um og ef ekki væri að gætt væri það
til þess fallið að draga úr áhuga ferða-
manna á Íslandi. Jafnframt benti Jón
Karl á að ytri aðstæður hafi ekki verið
ferðaþjónustunni hagfelldar á síðustu
tveimur árum.
„Það liggur við að það megi halda
því fram, að greinin líði að nokkru fyr-
ir mikla útrás og þenslu, sem hefur
leitt til mjög sterkrar stöðu krónunn-
ar. Þetta hefur bæði haft gríðarleg
áhrif á mörg fyrirtæki í greininni og
ekki síður leitt til mikillar hækkunar
verðlags hér á landi fyrir erlenda
gesti okkar,“ sagði Jón Karl og bætti
við að miklar sveiflur í gengi valdi fyr-
irtækjum miklum erfiðleikum. Stór
hluti tekna ferðaþjónustufyrirtækja
sé í erlendum gjaldmiðlum, en
stærstur hluti kostnaðar í íslenskum
krónum.
„Við höfum ekki tækifæri til að
taka til fótanna og flytja starfsemi
okkar til landa með lægri kostnað,
eins og sum framleiðslu- og hugbún-
aðarfyrirtæki hér á landi hafa neyðst
til að gera. Samtök ferðaþjónustunn-
ar hafa hingað til ekki viljað blanda
sér mikið í umræður um framtíð ís-
lensku krónunnar og hvort við eigum
að tengja okkur frekar við erlenda
gjaldmiðla og þá helst evru. Ég tel að
það hljóti að vera komið að því, að við
verðum að fara að skoða þessi mál
betur og kanna hvernig hagsmunum
ferðaþjónustunnar verði best tryggð-
ir til framtíðar.“
Bjartir tímar fram undan
í ferðaþjónustu
Jón Karl sagði það ekki hafa verið
til að bæta stöðu greinarinnar að á
sama tíma og gengisþróun hafi verið
óhagstæð hafi verið dregið mjög úr
fjárfestingum í markaðssetningu á ís-
landi á erlendri grundu. Stjórnvöld
hafi ákveðið að draga úr slíkum fjár-
festingum á síðasta ári og hvatti Jón
Karl stjórnvöld til að endurskoða
þessa afstöðu sína. „Við megum aldr-
ei falla í þá gryfju að halda að ferða-
menn muni einfaldlega bíða í röðum
eftir að komast hingað til lands.“
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hélt einnig ávarp á aðalfund-
inum og kom inn á áhrif gengisþróun-
ar á ferðaþjónustu. Hann vísaði í
nýlega skýrslu sem Hagfræðistofnun
vann fyrir Ferðamálastofu en þar
kemur fram að breyting á raungengi
á viðkomandi ári hafði ómarktæk
áhrif á breytingar á fjölda ferða-
manna. Aftur á móti reyndist raun-
gengi krónunnar árið á undan hafa
marktæk áhrif, sem og breyting á ol-
íuverði og breyting á landsfram-
leiðslu þess lands sem ferðamennirnir
komu frá.
„Í lokaniðurstöðum Hagfræði-
stofnunar segir að ferðaþjónusta á Ís-
landi myndi ekki njóta mikils góðs af
því að krónan félli og verðlag hækkaði
hér að sama skapi. Það bendir því allt
til þess að gengisþróun íslensku krón-
unnar hafi ekki haft þau neikvæðu
áhrif í ferðaþjónustu sem ýmsir hafa
látið í veðri vaka,“ sagði Sturla og
sagði að lokum allt benda til að fram
undan séu bjartir tímar í íslenskri
ferðaþjónustu.
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar
Nýsköpun í
ferðaþjónustu ónóg
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SAMTÖK ferðaþjónustunnar vilja
minna stjórnvöld á skýr ákvæði í
stjórnarsáttmálanum, um að ferða-
þjónustan á Íslandi skuli búa við
svipuð eða betri rekstrarskilyrði
en sambærileg starfsemi í okkar
samkeppnislöndum. Enn vantar
mikið upp á að þetta markmið
hafi náðst og skorar aðalfund-
urinn á stjórnvöld að taka vel til
höndum í þessum efnum, nú í lok
kjörtímabilsins, segir í ályktun að-
alfundar Samtaka ferðaþjónust-
unnar sem haldinn var á Hótel
Loftleiðum á fimmtudag.
Í ályktuninni kemur einnig fram
að ljóst sé að mörg fyrirtæki hafi
þurft að lækka verð í íslenskum
krónum til að standast erlenda
samkeppni en eyðsla útlendinga á
Íslandi á árinu 2005 dróst saman
um 1,2% frá árinu á undan.
„Auknir tollar, há vörugjöld, hátt
áfengisgjald, innflutningshindranir
á landbúnaðarafurðum og nýtt ol-
íugjald hafa gert rekstrarum-
hverfi margra fyrirtækja í grein-
inni mun erfiðara en áður.“
Skorað á stjórnvöld að
bæta rekstrarskilyrði
GEIR H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins og utanríkisráðherra,
vonast til þess að með breytingum á
virðisaukaskatti og vörugjöldum
verði hægt að lækka verð á matvæl-
um hér á landi frá og með næsta ári.
Þetta kom fram í máli hans við setn-
ingu flokksráðs-, formanna- og fram-
bjóðendafundarflokksins á Akureyri í
gær. Í ávarpi sínu gagnrýndi Geir þá
sem fullyrða að ríkisstjórnin hafi
hækkað skatta og sagði að þvert á
móti væru tekjur ríkissjóðs 16 millj-
örðum minni á þessu ári en þær ella
hefðu orðið, hefðu skattar ekki verið
lækkaðir.
Geir sagði að nefnd á vegum rík-
isstjórnarinnar ynni nú í því að rann-
saka með hvaða hætti unnt kunni að
vera að lækka matvælaverð í landinu.
„Við sjálfstæðismenn ályktuðum um
það 2003 að það bæri að lækka virð-
isaukaskattinn á matvælum enn frek-
ar en gert var fyrir 10 árum. Ég geri
mér vonir um að um þetta mál geti
náðst viðunandi niðurstaða þó ekki sé
ennþá ljóst í hvaða formi það verður.
En þarna er ákveðið verk að vinna og
eftir því sem menn skoða þetta mál
meira kemur á daginn að þarna er
ákveðinn frumskógur af gjöldum sem
er hægt að taka til í og snertir bæði
vörugjöld og virðisaukaskatt. Við bíð-
um eftir niðurstöðu í því efni, ég vona
að hún verði komin þannig að eitthvað
verði hægt að gera í þessu máli frá og
með næsta ári,“ sagði hann.
Geir ræddi m.a. um varnarmálin og
sagði höfuðatriðið í núverandi stöðu
að finna varanlega og viðunandi
lausn. „Mín skoðun er sú, hvað sem
menn segja í hita leiksins og hvað svo
sem menn renna hýru auga til Evr-
ópuríkjanna, að við eigum engan
raunverulegan kost í þeim efnum
annan en þann að halda áfram sam-
starfinu við Bandaríkin. Um það er-
um við nú að semja við þá. Auðvitað
er aldrei í samningum hægt að útiloka
þann möguleika að semjist ekki og þá
kunnum við að þurfa að endurskoða
þetta allt frá grunni, varnarsamning-
inn og jafnvel tilvist hans. En að því
gefnu að það semjist, að það sé grund-
völlur fyrir slíku, þá er enginn raun-
verulegur annar valkostur en sam-
starf við Bandaríkin, en í góðri
samvinnu við önnur Atlantshafs-
bandalagsríki.“
Vaxtaverkir
Geir kallaði titringinn á hlutabréfa-
mörkuðum og gjaldeyrismarkaði hér
á landi vaxtaverki og afleiðingu af
hröðum hagvexti. „Að mörgu leyti er
það sem er að gerast í okkar efna-
hagslífi velmegunarsjúkdómar; það
gengur svo vel, það hefur gert það í
svo mörg ár að menn taka kannski
meiri áhættu en þeir ættu að gera.
Þeir verða djarfari, menn leggja meira
undir í fjárfestingum og þess háttar.“
Þess vegna telur hann sérstaklega
mikilvægt nú að allir sem taka mik-
ilvægar ákvarðanir og ráða för, „úti á
fjármálamarkaðnum, í atvinnulífinu, í
bönkunum og auðvitað hjá ríkisvald-
inu, sýni varfærni. Það er mjög mik-
ilvægt við núverandi aðstæður og það
sem Seðlabankinn hefur verið að
brýna fyrir mannskapnum. Og það er
boðskapurinn frá ríkisstjórninni.“
Geir sagði 20 milljarða króna af-
gang af fjárlögum ársins en fjármála-
ráðherra hefði þó ekki lagt til að þeim
peningum yrði eytt, en ástæðan væri
sú að ríkisstjórnin vildi fara varlega.
„Við viljum nota þessa peninga til þess
að byggja upp sjóði fyrir mögru árin,
greiða niður skuldir eins og við höfum
gert í stórum stíl og búa í haginn fyrir
framtíðina – sem var nú reyndar mín
uppáhaldssetning þegar ég var fjár-
málaráðherra. Að búa í haginn fyrir
framtíðina. Og það er búið að búa svo
vel í haginn fyrir framtíðina að það er
búið að minnka skuldir ríkissjóðs –
eins og bent var á í yfirlýsingunni frá
lánshæfisfyrirtækinu Moody’s – úr
um það bil 50% af landsframleiðslu ár-
ið 1995 í um það bil 20% um þessar
mundir.“
Stefnt að frekari lækkun
matarskatta á næsta ári
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpar fundinn. Nær eru
þingmenn flokksins í norðausturkjördæmi, Arnbjörg Sveinsdóttir og Hall-
dór Blöndal, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri.
NÝ FLUGLEIÐ til og frá landinu
var opnuð í gær með fyrsta áætlun-
arflugi Icelandair til Manchester í
Englandi. Flogið verður tvisvar í
viku, á föstudögum og mánudögum,
með Boeing 757 þotum félagsins sem
taka 189 farþega. Bókanir fyrir sum-
arið lofa mjög góðu að sögn Iceland-
air og uppselt var í fyrstu ferðina. Í
þeim hópi voru knattspyrnuáhuga-
menn mjög áberandi, en þeir ætluðu
flestir á stórleik Manchester Untited
og Arsenal, sem fram fer á Old Traf-
ford í Manchester á sunnudaginn.
„Við erum með þessu flugi að
sækja af enn auknum krafti inn á
ferðamannamarkaðinn í Bretlandi
og um leið að opna Íslendingum nýja
leið inn á mjög spennandi svæði,“
segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri
Icelandair. Jón Karl segir að öflugt
markaðsstarf Icelandair í Bretlandi
á undanförnum árum og áratugum
hafi gert það að verkum að ferða-
mannafjöldinn þaðan hafi þrefaldast
frá 1995 eða á einum áratug. Flogið
hefur verið til og frá London og Glas-
gow og nú bætist þriðja borgin við.
Hann segir að Manchester sé mið-
punktur í mjög þéttbýlu svæði og
flugtíminn til Íslands sé aðeins tvær
og hálf klukkustund. Við gerum líka
ráð fyrir að borgin og svæðin í kring
heilli Íslendinga.
Manchester er frábær verslunar-
og skemmtiborg. Næturlífið þar er
margrómað og ódýrt og gott að
versla þar,“ segir Jón Karl.
Mörg fræg knattspyrnulið
Síðast en ekki síst er Manchester
fræg fyrir fótbolta, segir Jón Karl
Allir þekki Manchester United og
Manchester City , en Liverpool-liðin
Everton og Liverpool séu einnig á
þessu svæði auk úrvalsdeildarlið-
anna Bolton, Blackburn og Wigan.
Í stuttri athöfn í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar við brottför flugsins í
gær afhentu Jón Karl Ólafsson og
Gunnar Már Sigurfinnsson, fram-
kvæmdastjóri sölu og markaðssviðs
Icelandair, íklæddir keppnistreyjum
Manchester-liðanna, öllum farþeg-
um í fyrsta fluginu miða á Manchest-
er-tónleika sem haldnir verða í
Laugardalshöllinni 6. maí næstkom-
andi, þar sem tónlistarmenn frá
borginni munu leika. Stutt athöfn
var einnig á flugvellinum í Man-
chester þegar haldið var heim á leið.
Fengu farþegar glaðning frá Ice-
landair.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, og Gunnar Már Sigurfinnsson fram-
kvæmdastjóri afhenda farþegum til Manchester tónleikamiða í Leifsstöð.
Fyrsta flug Icelandair
til Manchester
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
í Manchester