Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 21
MINNSTAÐUR
ÚTSALA
verslun
AKUREYRI
HELGI Jóhannsson hjá Kjarna-
fæði á Akureyri varð kjötmeistari
Íslands 2006. Úrslit í fagkeppni
Meistarafélags kjötiðnaðarmanna
voru tilkynnt á sýningunni Matur
2006 um síðustu helgi. „Ég lagði
mig allan fram; vann mikið í
þessu,“ sagði Helgi þegar hann
var spurður hvers vegna honum
hefði gengið jafn vel og raun ber
vitni, en hann fékk alls níu verð-
laun, þar af tvenn gullverðlaun.
Helgi segir að mikil vinna hafi
farið í undirbúning keppninnar.
Varan sem kjötiðnaðarmennirnir
skili inn í keppnina sé í raun ná-
kvæmlega eins og sú sem almenn-
ingur kaupir í verslunum „en
vegna þess að dómararnir reyna
að finna öll smáatriði sem hægt er
að setja út á vandar maður sig lík-
lega alveg sérstaklega vel fyrir
svona keppni. Þeir fara eftir svo
ströngum reglum. Þetta eru allt
einhver smáatriði sem venjulegt
fólk myndi aldrei taka eftir.“
Helgi er 26 ára og tók nú þátt í
keppninni í annað sinn. Hann hef-
ur engin verðlaun fengið áður,
varð í 8. sæti á fyrsta mótinu.
Helgi sendi inn 10 vöruflokka
og hlaut verðlaun fyrir níu þeirra.
Gullið fékk hann fyrir sveitakæfu
og spægipylsu.
En hvað skyldi hann ánægð-
astur með?
„Ég er mjög ánægður með
sveitakæfuna. Það tók stystan
tíma að gera hana en hún tókst
vel. Ég eyddi til dæmis mjög mikl-
um tíma í hangikjötið; saumaði
það til að halda útlitinu en mat-
urinn fer allur eldaður fyrir dóm-
arana. Það verður að vanda sig til
þess að halda útlitinu eftir eldun.“
Helgi fékk 287 stig af 300 mögu-
legum í keppninni og er alsæll.
„Svona góður árangur eflir
vissulega sjálfstraustið. Það er
gott að sjá að vinnan skili ein-
hverjum árangri og svo er þetta
örugglega góð auglýsing fyrir fyr-
irtækið,“ sagði Helgi.
Hann lærði iðn sína í Kjarna-
fæði og hefur starfað hjá fyrirtæk-
inu síðan hann var 15 ára með
hléum.
Sigurbros Eiður Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Kjarnafæðis og kjötiðnaðarmeistari, Valgerður Sverrisdóttir
ráðherra, Helgi Jóhannsson, kjötmeistari Íslands 2006, og Ólafur R. Ólafsson, sölustjóri og kjötiðnaðarmeistari.
Gaman að sjá að vinnan skili árangri
GYÐINGAR í Mið- og Vestur-
Evrópu óttast mjög að andúð á gyð-
ingum (anti-Semitism) breiðist út
vestur um álfuna
með inngöngu
ýmissa landa
gömlu Austur-
Evrópu í Evrópu-
sambandið. Þetta
segir þýskur pró-
fessor, dr. Wolf-
gang Benz, einn
helsti sérfræð-
ingur heims á
þessu sviði. Hann
flytur fyrirlestur í dag á málþingi í
Háskólanum á Akureyri um málið.
Dr. Benz segir gjarnan talað um
að gyðingaandúð sé að aukast í heim-
inum, en hann telur svo ekki vera.
„Ástandið er alveg nógu slæmt, en
ég held það sé ekki að versna,“ sagði
hann við Morgunblaðið í gær.
Andúð í garð gyðinga er mjög mis-
munandi eftir löndum, að sögn dr.
Benz, en algengt sé að fólk telji að öll
vandamál þess, bæði félagsleg og
fjárhagsleg, séu gyðingum að kenna.
Þetta eigi ekki síst við í löndum
gömlu Austur-Evrópu.
Hann nefnir dæmi. „Andúð í garð
gyðinga er mjög hefðbundin í Pól-
landi og prestar kaþólsku kirkjunnar
hamra á henni. Í Póllandi eru nánast
engir gyðingar, aðeins 10 til 15 þús-
und, en margir landsmanna eru engu
að síður sannfærðir um að gyðingar
ráði öllu landinu.“
Dr. Benz segir múslima helst ala á
andúð gagnvart gyðingum í Frakk-
landi. „Í úthverfum stórborganna
eru margir fátækir innflytjendur,
sannfærðir um að gyðingar stjórni
öllu og vilji m.a. koma í veg fyrir að
þetta fólk geti haft það betra en
hingað til.“
Í Svíþjóð er ekki hefð fyrir gyð-
ingahatri en með fjölgun innflytj-
enda hefur farið að bera á því og í
Stokkhólmi segir hann starfandi út-
varpsstöð sem sendi út áróður og
hatursefni gegn gyðingum og Ísrael.
„Þýskaland er auðvitað áhuga-
verðasta landið hvað þetta varðar, í
ljósi sögunnar. Þar er raunverulega í
gildi sú pólitíska regla að ræða ekki
gyðingaandúð. Enda er það ekki gert
opinberlega en fólk ræðir þessi mál í
einkasamtölum. Þá er því stundum
haldið fram að gyðingar séu of
áhrifamiklir, t.d. í fjölmiðlum og
bankaheiminum.“
Hann segir Þjóðverja helst velta
fyrir sér andúð á gyðingum vegna
Helfararinnar, ekki þrátt fyrir hana.
„Þjóðverjar hugleiða gjarnan hvort
þeim verði aldrei fyrirgefið það sem
þeir gerðu gyðingum í síðari heims-
styrjöldinni.“
Hann segir gyðinga í Þýskalandi
og Frakklandi velta því mjög mikið
fyrir sér hvort stjórnvöld séu nægi-
lega vakandi. Hvort þeir verði nægi-
lega öruggir þegar samskipti aukist
við lönd, þar sem gyðingahatur sé al-
gengt.
„Gyðingar í Mið- og Vestur-
Evrópu bíða mjög spenntir eftir því
hvernig málin þróast. Stjórn-
málamenn verða að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til þess að koma
í veg fyrir að þróunin verði slæm,“
sagði Dr. Benz.
Málþingið fer fram á Sólborg við
Norðurslóð í stofu L201 og hefst kl. 9
árdegis í dag.
Margir gyðingar
óttast þróunina
Dr. Wolfgang Benz