Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Þorlákshöfn | Íþróttalífið í Þor-
lákshöfn stendur í miklum blóma
og aðstaðan er með því besta sem
þekkist í sambærilegum sveit-
arfélögum. Körfuboltalið Þórs
hefur nú unnið sér rétt til að leika
í úrvalsdeild næsta vetur. Hins
vegur hefur enn ekki tekist að fá
landsmót eða unglingalandsmót
UMFÍ til Þorlákshafnar þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir.
Ragnar Matthías Sigurðsson,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Þor-
lákshöfn, er einn frumkvöðla
körfuboltans í Þorlákshöfn. „Jú,
það er víst alveg rétt sem er um
mig sagt að ég verð að kæla mig
örlítið niður þegar spennan verð-
ur sem mest og er þá gott að fá
sér smá rúnt fyrir utan hús og
koma svo inn aftur. En ég er ekki
einn um það því gjaldkeri félags-
ins er lítið betri, hann hefur fram
að þessu þurft að fara í kælingu
líka,“ sagði Ragnar. Ragnar sagði
það hafa mikla þýðingu fyrir
körfuboltann og íþróttalífið í Þor-
lákshöfn að komast í efstu deild.
„Íþróttalíf í Þorlákshöfn er í
miklum blóma og aðstaða til iðk-
unar með því besta sem gerist í
bæjarfélögum af svipaðri stærð-
argráðu. Við höfum nú upp á síð-
kastið lagt mikið upp úr því að al-
menningur hreyfi sig sem mest.
Við höfum verið með heilsuvikur
þar sem við hvetjum bæjarbúa til
að huga að bættri heilsu og stunda
einhverja hreyfingu. Markmiðið
er að hreyfa sig á hverjum degi
þessa viku, fara í sund, hjóla,
skokka eða bara fara í göngutúra.
Ein svona vika verður nú í lok
apríl og verður þá efnt til sund-
keppni og komast allir sem synda
5000 m eða meira í verðlaunapott.
Frítt verður í sund þessa viku.“
Sótt um landsmót
einu sinni enn
„Við sóttum um að halda Lands-
mót Ungmennafélaganna 2007
eða 2009 en hlutum ekki náð fyrir
augum UMFÍ, einnig sóttum við
um að halda Unglingalandsmót
2007 en fengum ekki. Nú höfum
við sótt um að halda Unglinga-
landsmót 2008 og erum þar í sam-
keppni við Bláskógabyggð hér á
HSK svæðinu og síðan kemur til
kasta UMFÍ. Allar aðstæður til
íþróttaiðkunar í Þorlákshöfn eru
mjög góðar ef undan er skilin að-
staða til frjálsíþrótta en á dagskrá
er að byggja frjálsíþróttavöll. Við
höfum átján holu golfvöll, reið-
höll, sundlaug, íþróttahús og tvo
knattspyrnuvelli auk gervigras-
vallar og nú er verið að fullgera
braut fyrir akstursíþróttir fyrir
nýstofnaða akstursíþróttadeild
Þórs,“ sagði Ragnar M. Sigurðs-
son.
Verður að fara úr húsi
til að kæla sig niður
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Af lífi og sál Ragnar Matthías Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í
Þorlákshöfn, lifir sig inn í íþróttirnar, ekki síst á körfuboltaleikjum.
Eftir Jón Hafstein Sigurmundsson
Selfoss | Aðalfundur Vinafélags
heimilisfólks á Ljósheimum á Sel-
fossi var haldinn 26. mars síðastlið-
inn í setustofu Ljósheima að við-
stöddu heimilisfólki, félögum og
aðstandendum. Í setustofunni var
sýning á munum sem heimilisfólk
hefur unnið í tómstundastarfi vetr-
arins. Á fundinum var kosin stjórn,
ályktað um málefni Ljósheima og
Bjarni Harðarson ritstjóri flutti er-
indi um fyrri tíma og viðhorf nú-
tímans til aldraðra.
Í umræðum um málefni Ljós-
heima kom fram að nauðsynlegt
væri að heilabilað aldrað fólk gæti
búið við þá aðstöðu að geta farið út
þegar vel viðraði, án mikillar fyrir-
hafnar. Bent var á að þriðja hæðin
ofan á nýbyggingu Sjúkrahúss Suð-
urlands byði ekki upp á slíkt. Nauð-
synlegt væri við hönnun hjúkrunar-
heimila að leggja áherslu á aðgang
að útisvæði og heimilislega þáttinn
sem slíkar stofnanir byðu upp á
ásamt því að gera fólki kleift að búa í
sérbýli í persónulegu umhverfi.
Á fundinum sagði Magnús Skúla-
son, framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
stofnunar Suðurlands, frá málum
tengdum nýbyggingu stofnunarinn-
ar á Selfossi. Þá var að venju sungið,
að þessu sinni undir stjórn Heiðmars
Jónssonar, og lauk fundinum og
samverunni í setustofunni með góðu
heimiliskaffi þegar samþykkt hafði
verið eftirfarandi ályktun: „Aðal-
fundur Vinafélags heimilisfólks á
Ljósheimum leggur áherslu á að
fundin sé lausn á þeim vanda sem
uppi er varðandi hjúkrunarrými fyr-
ir aldraða á Selfossi. Nýbygging
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er
mjög þarft framtak og kemur í stað
Ljósheima. Nýbyggingin leysir ekki
úr þeim vanda sem uppi er. Til þess
þurfa að koma til fleiri hjúkrunar-
rými í nýju hjúkrunarheimili á Sel-
fossi svo koma megi til móts við það
fólk sem er í brýnni þörf fyrir hjúkr-
unarheimili og ekki getur nýtt sér
þau heimahjúkrunarúrræði sem í
boði eru. Aðalfundurinn hvetur alla
þá sem fara með málefni aldraðra til
að finna sem allra fyrst lausn á þeirri
brýnu þörf sem er fyrir hjúkrunar-
heimili á Selfossi.“
Tómstundastarf og afþreying
Í ársskýrslu félagsins kemur fram
að meginatriðið í starfsemi félagsins
er að halda úti reglubundnu tóm-
stundastarfi og andlegri afþreyingu
og hreyfiþjálfun fyrir heimilisfólk á
Ljósheimum. Félagið stendur
straum af launum starfsmanna sem
sinna þessum þáttum undir stjórn
deildarstjóra hjúkrunarheimilisins
sem rekið er af Heilbrigðisstofnun
Suðurlands. Félagið var stofnað 22.
febrúar 2004 í kjölfar niðurskurðar á
tómstundastarfi heimilisfólks og hef-
ur haldið því starfi áfram síðan.
Einnig er unnið að ýmsum fleiri
verkefnum í þágu heimilisfólks, m.a.
aðstandendadögum og ferðum.
Í stjórn Vinafélagsins voru kosin
Sigurður Jónsson formaður, Guð-
björg Gestsdóttir gjaldkeri, Þórey
Axelsdóttir ritari, Hjördís Gunn-
laugsdóttir og Ingibjörg Steindórs-
dóttir meðstjórnendur.
Áhersla lögð á að
byggt verði nýtt
hjúkrunarheimili
SUÐURNES
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Innri-Njarðvík | Hafnar eru fram-
kvæmdir við byggingu nýs leik-
skóla Reykjanesbæjar í Tjarna-
hverfi.
Leikskólinn fær nafnið Akursel
og það voru þau Ívar Þór Þórð-
arson og Birgitta Ýr Sigurðar-
dóttir, fimm ára leikskólanemar af
Holti í Innri Njarðvík, sem tóku
fyrstu skóflustungurnar með því að
grafa niður á litla fjársjóðskistla.
Akursel verður stærsti leikskóli
Reykjanesbæjar. Hann þjónar nýja
hverfinu, Tjarnahverfi, sem rís
hratt og Dalshverfi til að byrja
með og stendur skammt frá hinum
nýja Akurskóla. Þar verða sex leik-
skóladeildir og pláss fyrir 140
börn. Gert er ráð fyrir meira rými
á hvert barn en í eldri leikskólum
bæjarins.
Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.
sem Reykjanesbær á aðild að
byggir skólann. Gert er ráð fyrir
að hann verði tekinn í notkun í júlí
2007.
Börnin eru dýrmætust
Í kistlinum sem Ívar Þór og
Birgitta Ýr fundu á byggingar-
staðnum í gær var raunverulegur
fjársjóður, 2006 krónur í smámynt,
sem Árni Sigfússon bæjarstjóri
hvatti þau til að ávaxta í bréfi sem
fylgdi um leið og þeim var þökkuð
aðstoðin.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá bænum að fjársjóðurinn eigi að
vera táknrænt merki þess að bæj-
arstjórn Reykjanesbæjar hyggist, í
samstarfi við starfsfólk og foreldra,
kappkosta að Akursel verði góður
og þroskandi leikskóli sem haldi
utan um dýrmætasta fjársjóðinn,
börnin sem þar verða.
Grófu niður á fjársjóð við
upphaf framkvæmda
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Fjársjóður Ívar Þór Þórðarson og Birgitta Ýr Sigurðardóttir fundu fjár-
sjóð þegar þau tóku fyrstu skóflustunguna að Akurseli.
Grindavík | Grindavíkurstúlkur
urðu Íslandsmeistar í minnibolta
kvenna nú á dögunum. Mikil og
jöfn keppni var í þessu síðasta
fjölliðamóti ársins sem haldið var
í Hveragerði.
Þar spiluðu til úrslita Keflavík,
Njarðvík, Grindavík, Hrunamenn
og Hamar/Selfoss. Grindavík-
urstúlkur höfðu það að þessu
sinni og var hann kampakátur
þjálfari stúlknanna þegar blaða-
maður náði tali af honum:
„Þetta var mikill slagur hjá öll-
um þessum liðum og nánast eng-
inn munur á þeim. Ég var alveg
að fara á límingunum þegar
spennan var sem mest. Foreldr-
arnir styðja vel við bakið á þess-
um stelpum og til lengri tíma litið
er það besta forvörnin. Nú þurfa
þessar stúlkur að vera duglegar,
halda áfram að æfa og þær sem
ekki eru enn byrjaðar að byrja,“
sagði Ellert Sigurður Magnússon,
þjálfari Grindavíkur.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Alveg að fara
á límingunum