Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 23
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
GENGUR ÞÚ
SVONA UM
BÆINN?
Öll viljum við ganga vel um heimili okkar. Gildir ekki það sama um borgina
sem við búum í? Hreinsun sorps af götum borgarinnar kostar um 23 milljónir
króna árlega. Þetta samsvarar árlegu meðalútsvari rúmlega 100 Reykvíkinga.
ÞAÐ MUNAR ENGU FYRIR ÞIG AÐ GANGA VEL UM
ÞAÐ MUNAR ÖLLU FYRIR UMHVERFIÐ
Reykjavíkurborg
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Bláskógabyggð | Bláskógabyggð hefur gert
samning við björgunarsveitir og ungmenna-
félög í sveitarfélaginu um fastan árlegan
styrk. Hingað til hafa þessi félög þurft að
sækja um rekstrarstyrki til sveitarfélagsins á
hverju ári en með samningnum er vísi-
tölubundin ákveðin upphæð til félaganna.
Styrkurinn er kærkominn og mun efla
innra starf björgunarsveitanna Ingunnar á
Laugarvatni og Biskups í Biskupstungum til
muna og er mikil viðurkenning á starfi þeirra
til samfélagsins. Björgunarsveitirnar eru litl-
ar en mjög virkar, og eru á svæði þar sem út-
köllum fer fjölgandi, bæði í tengslum við
aukna sumarbústaðabyggð og vetrarnotkun
hennar og gríðarlega aukningu ferða á eitt
vinsælasta vetrarútivistarsvæði landsmanna,
þ.e.a.s. Skjaldbreið og Langjökul. Ungmenna-
félögin eru tvö í Bláskógabyggð, Umf. Bisk-
upstungna og Umf. Laugdæla, bæði stofnuð
1908. Félögin halda uppi þróttmiklu barna- og
unglingastarfi sem sveitarfélaginu er í mun að
haldist áfram. Styrkurinn tryggir rekstrar-
grundvöll félaganna og tryggir þeim húsnæði
til íþróttaiðkunar. Í samningnum eru einnig
ákvæði um að félögin geri kröfur til þjálfara
er varðar faglega færni og eftirlit gagnvart
einelti. Þar er einnig ákvæði um að allir iðk-
endur skuli vera tryggðir til jafns við grunn-
skólanemendur.
Undirritun samninganna fór fram í Ara-
tungu í Reykholti að viðstöddum stjórnum fé-
laganna sem hlut áttu að máli og sveitarstjórn
Bláskógabyggðar.
Björgunarsveitir og ungmennafélög fá fasta styrki
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Samið Eftir undirritun, f.v. Bjarni Daníelsson úr Ingunni, Guttormur Bjarnason, Umf. Bisk-
upstungna, Valtýr Valtýsson, Helgi Guðmundsson, Biskupi, og Kári Jónsson, Umf. Laugdæla.
Ísafjörður | Haldið verður svokallað
„Big-Jump snjóbrettamót“ á hafnar-
svæðinu á Ísafirði á föstudaginn
langa. Gámum frá Eimskip verður
staflað upp og byggð verður renna
niður af þeim, sem snjó verður síðan
mokað yfir, og af því munu snjó-
brettakappar svo stökkva yfir annan
gám.
Mótið verður haldið að kvöldi til,
klukkan 20. Hljómsveitin Noise leik-
ur hátt og jafnvel munu gamalreyndir
skíðakappar láta á reyna að stökkva
af pallinum, segir í fréttatilkynningu
frá Snjóbrettafélagi Ísafjarðar.
Nánari upplýsingar eru að finna á
Netinu, www.skidavikan.is.
Stokkið á
snjóbrettum
milli gáma
Heimasíða tengslanets | Heima-
síða T.A.K., www.tengslanet.is,
verður opnuð formlega í dag klukk-
an 15. Samhliða verða kynning-
arfundir með aðstoð fjarfundabún-
aðar á sex stöðum á Austurlandi:
Vopnafirði (grunnskóla), Neskaup-
stað (Verkmenntaskóla Austur-
lands), Fáskrúðsfirði (grunnskóla),
Egilsstöðum (FNA-Vonarlandi),
Djúpavogi (grunnskóla) og Höfn í
Hornafirði (Nýheimum).
T.A.K. er vettvangur samvinnu og
samstöðu austfirskra kvenna.
♦♦♦
Ráðgjafi í Eyjum | Stjórn At-
vinnuþróunarsjóðs Suðurlands hefur
samþykkt að ráða Hrafn Sævaldsson
sem ráðgjafa á
sviði atvinnu- og
byggðamála hjá
sjóðnum með að-
setur í Vest-
mannaeyjum.
Hrafn er fædd-
ur í Vestmanna-
eyjum árið 1977.
Hann lauk B.Sc-
prófi í við-
skiptafræði með
sérsvið í vörustjórnun frá Háskól-
anum í Reykjavík 2006. Hann hefur
lokið þremur stigum frá Stýri-
mannaskólunum í Vestmannaeyjum
og Reykjavík. Hans fyrri starfs-
reynsla er í sjávarútvegi.
Útibú Atvinnuþróunarsjóðs Suður-
lands er til húsa að Strandvegi 50, í
Rannsókna- og fræðasetri Vest-
mannaeyja.
Hrafn Sævaldsson