Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 25
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
Ævintýraferðir
Kínaklúbbs Unnar
Kínaklúbbur Unnar gengst fyrir
tveimur 22 daga ferðum til Kína í ár.
Fyrri ferðin verður dagana 18.
maí–8. júní, og verður þá farið á
nokkra staði, sem ekki eru í al-
faraleið, fyrir utan þekkta staði eins
og Beijing, Forboðnu borgina og
Sjanghæ. Staðir utan alfaraleiðar eru
eyjan Putushan, í austur Kínahafi,
borgirnar Ningbo, Shangx Ningbo,
Shangxing, Moganshan og þúsund
ára gamla postulínsborgin
Jingdezhen.
Einnig verður siglt á Keisaraskurð-
inum og gengið á Kínamúrnum. Þessi
ferð verður 22. ferðin, sem Unnur
Guðjónsdóttir skipuleggur og leiðir
um Kína.
Seinni ferðin, sem verður sú 23. í
röðinni, verður farin dagana 7.–28.
september. Hápunktur þeirrar ferðar
er vikan sem eytt verður í Tíbet, en
þar verða borgirnar Lhasa, Gyantse
og Sigatse heimsóttar. Síðan verður
farið til Xian, Guilin þar sem siglt
verður á Lí fljótinu. Höfuðborgin Bej-
ing og Forboðna borgin verða skoð-
aðar og svo verður farið þangað sem
Pekingmaðurinn (500.000 ára)
fannst á síðustu öld. Farið verður
einnig á Kínamúrinn.
Verð á mann er það sama fyrir
hvora ferð, 350 þúsund í tvíbýli. Er
þá allt innifalið.
Kynning á handbók
ferðamannsins
Um helgina verður kynning á hand-
bók ferðamannsins, Made in Iceland, í
Kringlunni. Á kynningarbásnum
verða m.a. auglýsingar á kínversku,
ljósmyndir og aðrar tungu-
málaauglýsingar. Bókin inniheldur yfir
500 setningar á hverju tungumáli
sem auðvelt er að þýða á milli allra
tungumálanna. Tungumálunum 13
(chn-dan-eng-esp-fin-fra-ger-isl-
ita-nor-pol-por-sve) er raðað í staf-
rófsröð, og hefur hvert mál 19 ólíka
flokka s.s. gisting, íþróttir, viðskipti
eða samtöl. Þá er auðvelt að flakka á
milli mála og skoða sömu setningu á
mörgum tungumálum. Bókin er mjög
lítil og kemst í vasa. Hú kostar 1.500
kr. og einnig er hægt að panta 20 ein-
tök bókarinnar á sérstökum kjörum á
vefsíðu www.madeiniceland.is.
Nákvæma ferðalýsingu á Kína-
ferðunum er hægt að lesa á vef-
síðunni: www.simnet.is/
kinaklubbur . Eins er hægt að
hringja í Unni, s. 551 2596, og fá
ferðaskrána heimsenda. Netfang
Kínaklúbbs Unnar er: kinaklubb-
ur@simnet.is
Morgunblaðið/Sverrir
SÖGU Andalúsíuhraðlestarinnar
má rekja til ársins 1929 en hún var
í eigu bresku konungsfjölskyld-
unnar. Lestin er
spænskt lúxus-
hótel á teinum
og með dvöl þar
gefst kostur á að
kynnast lands-
lagi Andalúsíu
vel, að því er
fram kemur í
fréttabréfinu
Spaniabulletinen.
37 herbergi eru í
lestarhótelinu og
rúm fyrir 74 farþega. Vistarver-
urnar hafa verið gerðar upp m.t.t.
upprunalega útlitsins en þar eru
einnig öll nútímaþægindi. Hægt er
að stilla loftræstinguna í hverjum
klefa fyrir sig og sturta og salerni
eru í öllum herbergjum. Í lestinni
eru eldhúsvagn, tveir veit-
ingavagnar, barvagn, setustofu-
vagn, sjö svefnvagnar og einn vagn
fyrir starfsfólk. Leiðin sem farin
er er eftirfarandi: Sevilla, Gran-
ada, Jerez og til baka til Sevilla.
Ferðin tekur sex daga og fimm
nætur.
Lúxushótel
á teinum
SPÁNN
http://www.alandalusex-
preso.com/
Fréttasíminn
904 1100
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
FJÖLVÍTAMÍN
FYRIR BÖRN
APÓTEK OG
HEILSUBÚÐIR
www.nowfoods.is
w
w
w
.is
ak
w
in
th
er
.c
om
Sumartilboð
DUX 1001 Original 90x200 cm og Duxiesta yfirdýna AÐEINS 99.000 verð áður 149.370
Hjónarúm 180x200 cm (2x90x200 cm) og heil yfirdýna AÐEINS 198.000 verð áður 297.000
TAKMARKAÐ MAGN
Sérfræðingur frá DUX í Svíþjóð verður í versluninni
dagana 7. og 8. apríl