Morgunblaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 27
hlaupa á innan við þremur og hálfum tíma. Maraþon á innan við fimm tím- um og 17 mínútum. Ef þessi tíma- mörk nást ekki er maður tekinn út.“ Mikinn og góðan undirbúning þarf fyrir maraþon af þessari stærðar- gráðu. „Þú ferð ekkert í últra-mara- þon nema vel undirbúinn,“ segir Erla. „Við stundum báðar hlaup sem líkamsrækt. Þegar fólk svo setur sér einhver svona markmið þarf að undirbúa það sérstaklega. Ég t.d. byrjaði að æfa markvisst fyrir þetta hlaup upp úr áramótum.“ Sama gildir um Hrönn, en stöllurnar hlaupa sex daga vikunnar. „Maður tekur lengra hlaup um helgar og lengst fór ég í undirbúningnum 45 kílómetra,“ segir Erla og Hrönn bætir við að hún hafi lengst farið 39 kílómetra. Aðspurðar um markmið segja þær að það að komast í mark innan tíma- markanna sé sigur fyrir þær. „Leiðin er það krefjandi, ferðalagið og flugið og svo er hitinn spurningarmerki,“ segir Erla og bætir við að þær viti ekkert um hvernig veðrið verður. „Ég er eiginlega á bæn um að það verði rigning,“ segir Hrönn og skelli- hlær. „Það er mjög mikið atriði að fara varlega af stað,“ segir Erla og útskýrir að farið sé yfir það í bækl- ingnum um hlaupið. „Yfirleitt er fólki ráðlagt að fara varlega af stað í mara- þoni, annars getur það komið niður á manni síðar í hlaupinu. Þarna er hins vegar sagt að ef þú ferð ekki rólega af stað þá deyrðu,“ segir hún með áherslu. Hlauparar eru íþróttastjörnur Afríku Tveggja hafa hlaupið er mjög hátt skrifað í Suður-Afríku. „Í Suður- Afríku er það þannig að á börum eru myndir af hlaupurum en ekki fót- boltastjörnum,“ segir Erla til marks um vinsældir hlaupa almennt í Afríku og þó að markmið Erlu og Hrannar sé einfaldlega að komast í mark innan tímamarkanna hefur vegalengdin verið hlaupin á rúmum þremur tím- um. Erla verður í viku í Suður-Afríku ásamt Stefáni, eiginmanni sínum, en Hrönn ætlar að gefa sér tólf daga til að skoða það sem merkilegast er í ná- grenni Höfðaborgar. „Hlaupið er virkileg áskorun,“ seg- ir Hrönn og Erla bætir við: „Áskor- unin er fólgin í lengdinni og brekk- unum.“ „Það má eiginlega segja að það séu nokkrar Hellisheiðar og Kambar á leiðinni,“ klykkir Hrönn út með og á þeim nótum lýkur samtalinu með hlátri beggja kvennanna. Nánari upplýsingar um hlaupið má finna á slóðinni: http://www.two- oceansmarathon.org.za/portal/ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 27 DAGLEGT LÍF Í APRÍL ir fyrir þessu. Það eru yfirleitt eldri borgarar og það kemur þeim oft mjög á óvart að fá að koma í heim- sókn í heimahús,“ segir Rasmus. „Auðveldustu gestirnir eru þeir sem tala skandinavísku, en oft getur verið erfitt að tala við fólk sem hvorki talar ensku né skandinavísku. Til dæmis eru þýskir ferðamenn, sem eru yfir- leitt frekar slæmir í ensku, en þeir hafa alltaf leiðsögumann sem hjálpar við samskiptin.“ Eins og svo margir færeyskir bændur verkar Rasmus sitt eigið skerpukjöt og langstærstur hluti þess matar sem hann býður gestum sínum er fenginn úr heimahagan- um á Selatröð. Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus. Spurðu um KÓPAL. Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík Núpur byggingarvöruverslun, Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík Erlendur Eiríksson málari: „Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“ Þekur betur KÓPAL Glitra ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M A L 29 79 3 1 0/ 20 05 www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar SÖGUMAÐURINN Rasmus er beð- inn um að segja gestum sínum stutta sögu. Hann tekur því vel, stendur beinn við borðið, ræskir sig og hefur frásögn af sauðaþjóf- um, sem í færeyskri sögu eru gríðarlega illa séðir. „Á sextándu öldinni var hér þingstaður og hér voru sauðaþjóf- ar hengdir úti á gálgasteini, steini sem liggur úti í sjónum. Á milli steinanna var lagður planki og mönnum var kastað niður. Einu sinni voru tveir feðgar teknir fyrir sauðaþjófnað og þeir dæmdir til dauða. En böðullinn vildi ekki taka það að sér að hengja feðga. Þá voru þeir spurðir hvort annar hvor þeirra vildi hengja hinn og hljóta fyrir það líf og frelsi. Faðirinn bauð sig þá um- svifalaust fram og hengdi son sinn.“ Undrunarsvipur gestanna og óskir um fleiri sögur kalla á frek- ari sagnalist frá Rasmusi. Hann kann eina lauflétta sögu í viðbót. Sögu sem ber vitni hörðum heimi fyrri tíma, þar sem lítil miskunn var höfð uppi gegn þeim sem brutu gegn viðkvæmu lífsviðurværi ann- arra eyjarskeggja. „Einu sinni var hér bóndi á gangi á túnunum og fann húfu. Menn héldu því fram að sauðaþjóf- ur hlyti að hafa misst hana. Á næsta þingi kom margt fólk á svæðið til að hittast, sýna sig og sjá aðra. Þá lyfti dómarinn upp húf- unni og spurði hvort einhver kann- aðist við húfuna. Þá sagði ungur strákur í mannmergðinni að þetta væri húfa föður hans. Faðirinn var þá gripinn án tafar og hengdur.“ Þjófóttu feðgarnir og húfan dularfulla Fréttasíminn 904 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.