Morgunblaðið - 08.04.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 33
UMRÆÐAN
Vönduð norsk timburhús byggð á
staðnum eftir ströngustu stöðlum um heilsárs íveruhús
Framúrskarandi handverk, kjörviður og frábær frágangur
HÚSIN VERÐA TIL SÝNIS Í DAG KL. 12-16
Hellisvellir ehf.
Uppl. í síma 893 6653
Nýtt þorp rís á Hellnum
www.iceland.as
Sími 555 3000
SELT
SELT
SELT
SELT
SELT
SELT
SELT
MARKMIÐ Samfylkingarinnar á
Akureyri í bæjarstjórnarkosningum
í vor er að leysa núver-
andi meirihluta frá
völdum. Takmark
flokksins er að tryggja
þrjá fulltrúa í bæj-
arstjórn og skapa sér
sterka stöðu til nýrra
áherslna í stjórn bæj-
arins. Á því er full þörf
og raunar nauðsyn.
Núverandi meirihluti
hefur ekki staðið sig í
stykkinu og þess vegna
kalla bæjarbúar eftir
breytingum á stjórn
bæjarins. Við erum
tilbúin til að svara því
kalli.
Íbúarnir skynja
þörfina á breytingum
Við Samfylkingarframbjóðendur
höfum í aðdraganda kosninga farið í
tugi heimsókna til fyrirtækja, stofn-
ana og félagasamtaka á Akureyri og
hlustað eftir sjónarmiðum bæj-
arbúa. Með því viljum við að rödd
bæjarbúa endurspeglist í stefnuskrá
okkar. Við merkjum augljósa þreytu
bæjarbúa á stjórnunarháttum meiri-
hluta bæjarstjórnar með bæjarstjór-
ann Kristján í broddi fylkingar. Sú
þreyta er skiljanleg þegar horft er
til dæmalausrar umfjöllunar í Morg-
unblaðinu síðastliðinn miðvikudag
um skipulagsmál í miðbænum.
Greinin sú er uppfull af sleggju-
dómum og órökstuddum fullyrð-
ingum bæjarstjórans um það fólk
sem leyfir sér að vera annarrar
skoðunar en hann. Með þessu móti
gerir bæjarstjórinn lítið úr þeim
mikla fjölda athugasemda sem bæj-
arbúar gerðu nýlega við tillögu um
breytingar á aðalskipulagi Akureyr-
ar. Hann telur lagalegan rétt íbú-
anna til athugasemda í skipulags-
málum greinilega ekki mikils virði –
hvað þá að ástæða sé til að taka mik-
ið mark á þeim.
Þetta viðmót höfum við áður séð
til bæjarstjórnarmeirihlutans og sér
í lagi bæjarstjórans Kristjáns Þórs.
Bæjarbúar eru augsýnilega svip-
aðrar skoðunar og við ef marka má
nýja skoðanakönnun Gallup þar sem
hátt í 70% bæjarbúa vilja nýjan
meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar í
vor. Niðurstaða sem ekki kemur
okkur Samfylkingarfólki á óvart eft-
ir heimsóknirnar til bæjarbúa í vet-
ur.
Fyrir flesta íbúa bæjarins skiptir
það mestu máli að sú þjónusta sem
stofnanir bæjarins veita sé tryggð til
framtíðar og sífellt leitað leiða til
þess að hún sé sem best og í sam-
ræmi við þarfir íbúanna. Þegar
hlustað er á bæjarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins með bæj-
arstjóra í broddi fylk-
ingar er ljóst að þeim
flokki er ekki treyst-
andi fyrir þessu verk-
efni. Málflutningurinn
á þeim bænum er útboð
og einkarekstur og
ljóst að flokkurinn sá
er tilbúinn til þess að
ganga mun lengra í
þeim efnum en gert var
á þessu kjörtímabili. Á
þessi sjónarmið getum
við aldrei fallist. Við
skulum ekki fórna því
sem vel er gert á altari
úreltra kennisetninga frjálshyggju-
postula Sjálfstæðisflokksins. Okkar
lausn felst í því að styrkja stofnanir
bæjarins og tryggja þeim forsendur
til þróunar og til að veita íbúum bæj-
arins góða þjónustu. Við leggjum
sérstaka áherslu á að sinna vel þörf-
um þeirra hópa sem mest eiga undir
því starfi sem sveitarfélagið ber nú
ábyrgð á. Við viljum setja málefni
barna, unglinga og fjölskyldna
þeirra í forgang og á sama hátt ætl-
um við að gera málefni og aðbúnað
aldraðra að forgangsmáli.
Víða þarf að taka til hendi
Samfylkingin hefur gert grein fyr-
ir meginmarkmiðum og áherslum
fyrir komandi kosningabaráttu. Við
viljum gjörbreytt vinnubrögð af
hálfu bæjarstjórnar og íbúavænni,
við viljum einkavæðingartilhneig-
inguna út úr Ráðhúsinu á Akureyri,
við viljum markaðshugsun fyrir
Akureyri á landsvísu og sömuleiðis
erlendis, við viljum bjóða einstak-
lingum lóðir innan bæjarmarkanna í
stað þess að vísa þeim til nágranna-
sveitarfélaganna.
Samfylkingin ætlar bæjarfélaginu
að taka höndum saman við hags-
munaaðila, háskólaumhverfið og fyr-
irtæki um að nýta tækifæri til at-
vinnuuppbyggingar og verja
hagsmuni okkar. Hjáseta bæj-
arstjórnarmeirihlutans í atvinnu-
málum skapar enga öryggistilfinn-
ingu hjá bæjarbúum!
Svo tæpt sé á nokkrum öðrum
mikilvægum málum sem Samfylk-
ingin mun boða í stefnuskrá sinni til
íbúa er lenginga flugbrautarinnar á
Akureyri og að byggingu Vaðlaheið-
arganga verði ýtt úr vör sem fyrst.
Dæmalausum vandræðagangi í
sorpmálum skal lokið sem fyrst og í
sátt við nágrannasveitarfélög Akur-
eyrar. Þetta eru dæmi af fjölmörg-
um áherslum okkar fyrir komandi
kjörtímabil.
Samfylkingin hefur kjark til að
ræða stefnumál sín við kjósendur
fyrir komandi kosningar. Viðhorfið
sem birtist í garð bæjarbúa frá
meirihlutaflokkunum segir allt sem
segja þarf um nauðsyn þess að fá
nýjan meirihluta í bæjarstjórnina.
Þess vegna þurfa
Akureyringar nýjan
bæjarstjórnarmeirihluta
Hermann Jón Tómasson
skrifar um bæjarstjórnarmál
á Akureyri ’Núverandi meirihlutihefur ekki staðið sig í
stykkinu og þess vegna
kalla bæjarbúar eftir
breytingum á stjórn
bæjarins.‘
Hermann Jón
Tómasson
Höfundur skipar 1. sæti á lista
Samfylkingarinnar á Akureyri.
Í VIKUNNI bárust fréttir af
því að ein af verslunarmið-
stöðvum borgarinnar hefði
misst áfengisverslun til versl-
unar sem höndlar með gróð-
urvörur og fleira. Þetta er
merkileg frétt sem sýnir betur
en flest annað fáránleika einok-
unarverslunar ríkisins. Þarna er
ríkisvaldið að skammta verslun
með vöru. Afleiðingarnar eru
þær að viðkomandi versl-
unarmiðstöð situr eftir með
mjög skerta samkeppnisstöðu
þar sem ekki er lengur hægt að
ganga að þessari vöru í versl-
unarmiðstöðinni. Verslunareig-
endur í Mjódd geta ekkert gert
í málinu. Engum er heimilt að
versla með þessa vöru nema
ríkiseinokunarversluninni. Ef
ekki fæst náð fyrir augum
stjórnenda ríkisfyrirtækisins þá
er ekkert hægt að gera og
Breiðholtsbúar verða að lifa
með að verslunarmiðstöðin
þeirra getur ekki boðið upp á
sömu þjónustu og aðrar sam-
bærilegir verslunarkjarnar.
Í upphafi síðustu aldar setti
ríkið á fót einokunarverslun á
áfengi, tóbaki, viðtækjum, bíl-
um, síldarsölu og eldspýtum.
Það eina sem lifir enn af þess-
um einokunarverslunarháttum
er verslun með áfengi. Við-
skiptavinir verslunarmiðstöðv-
arinnar í Mjódd hafa fengið að
finna fyrir því.
Guðlaugur Þór Þórðarson
Fréttir af
tímaskekkju
Höfundur er varaformaður
þingflokks sjálfstæðismanna.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111