Morgunblaðið - 08.04.2006, Page 42
42 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
vetrarins á vegum Hafnarfjarðar-
kirkju. Er þetta 11. veturinn sem
slík námskeið hafa verið haldin þar.
Þetta starf hefur farið vaxandi ár
frá ári. Í upphafi var ætlunin að
halda aðeins tvö námskeið, en að-
sóknin var það mikil að strax varð
að bæta við nýjum námskeiðum.
Nú á þessu vori hafa um 7.500
manns komið á námskeiðin. Þau
hafa reyndar breyst mikið frá
fyrstu árunum eins og gengur og
þróast í takt við tíðarandann.
Það er margir sem hafa lagt
hönd á plóginn til að styðja við bak-
ið á þessu starfi. Fremst í flokki
þeirra er sóknarnefnd Hafnar-
fjarðarkirkju sem ætíð hefur verið
traustur bakhjarl námskeiðanna.
Starfsfólk Hafnarfjarðarkirkju allt
hefur líka lagt sitt að mörkum. Í
upphafi kom dr. Halla Jónsdóttir að
námskeiðunum og hún hefur oft
lagt þeim lið í gegnum árin. Síðar
kom sr.Guðný Hallgrímsdóttir
einnig að starfinu um tíma. Nám-
skeiðin voru í nokkur ár haldin í
samvinnu við Fræðsludeild
Biskupsstofu víða um land. Fóru
þau þá fram meðal annars í Kefla-
vík, Þorlákshöfn, á Selfossi, Eyrar-
bakka og Stokkseyri, í Hruna, Ár-
nesi, Höfn í Hornafirði, á Eskifirði,
Egilsstöðum, Akureyri, Hvamms-
tanga, Húsavík, í Borgarfirði, á
Þingeyri, Suðureyri, Akranesi, Sel-
tjarnarnesi og í Reykjavík.
Sóknarprestar tóku þá þátt í
námskeiðunum á hverjum stað og
undirbjuggu þau. Einnig hefur
námskeiðið verið haldið fyrir ís-
lenska söfnuðinn í Osló. Alltaf hef-
ur námskeiðið verið undir for-
merkjum kirkjunnar, þó enginn
þurfi að vera í Þjóðkirkjunni til að
taka þátt, eða kristinn. Þetta starf
hefur verið ákaflega gefandi og
skemmtileg .
Umfram allt eru það þátttak-
endur sem hafa gert námskeiðin lif-
andi og eftirminnileg. Markmið
námskeiðanna hefur alltaf verið að
hjálpa fólki til að lifa lífinu lifandi í
sínu fjölskyldulífi. Vonandi hefur
það oftar en ekki borið árangur.
Sr. Þórhallur Heimisson,
prestur við
Hafnarfjarðarkirkju.
Fræðslukvöld
í Vídalínskirkju
Í APRÍLMÁNUÐI fram í miðjan
maí verður boðið upp á fræðslu-
stundir í Vídalínskirkju á fimmtu-
dagskvöldum. Fræðslan hefst í
kirkjunni kl. 20. Síðan verður
kyrrðarstund kl. 21. Þar á eftir
verður boðið upp á hressingu og
samfélag í safnaðarheimilinu.
Fræðslukvöldin verða eftirtalda
fimmtudaga:
Skírdag 13. apríl: Kl. 22 altaris-
ganga og afskrýðing altaris. 20.
apríl: Kl. 20 fræðsla: „Drauma-
landið.“ Fyrirlesari: Andri Snær
Magnason. 27. apríl: Kl. 20 fræðsla:
„12 sporin, andlegt ferðalag“.
Fyrirlesarar: Vinir í bata. 4. maí:
Kl. 20 fræðsla: „Kynferðislegt of-
beldi gagnvart börnum“. Fyrir-
lesari: Thelma Ásdísardóttir. 11.
maí: Kl. 20 fræðsla: „Konur og
Kristur.“ Fyrirlesarar: sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir og sr. Hildur Eir
Bolladóttir.
Klassísk messa
í Hallgrímskirkju
LUX Aeterna, sem er áhugahópur
um klassíska messu og iðkun greg-
orssöngs, stendur fyrir messu með
gregorslagi 2. sunnudag hvers
mánaðar kl. 20 í Hallgrímskirkju.
Hópurinn kallar til helgiþjónustu
ýmsa presta. Kynning og æfingar á
messunum verða hálfri klukku-
stund fyrir messuna sjálfa eða kl.
19.30 í Hallgrímskirkju.
Næsta messa verður pálma-
sunnudag 9. apríl kl. 20, prestur er
sr. Geir Waage. Allir eru hjartan-
lega velkomnir.
Klassísk messa og gregorssöngur
er dýrmætur arfur kirkjunnar og
kjarnmikið andlegt fóður. Það er
von þeirra sem að þessari messuröð
standa að með henni skapist vett-
vangur fyrir þau sem gleði hafa af
því að iðka klassíska tilbeiðslu-
hætti, hins elsta söngs kirkjunnar,
sem tjáningarform trúarinnar.
Grafarvogskirkja –
Geir H. Haarde
utanríkisráðherra
les Passíusálm
ALLA virka daga föstunnar hafa
þingmenn og ráðherrar lesið
Passíusálma í Grafarvogskirkju.
Nú á miðvikudaginn 12. apríl kl.
18 mun Geir H. Haarde utanríkis-
ráðherra lesa síðasta Passíusálm-
inn, sálm nr. 50.
Páskaeggjabingó
í Hjallakirkju
MÁNUDAGINN 10. apríl verður
hið árlega páskaeggjabingó í safn-
aðarheimili Hjallakirkju í Kópa-
vogi, efri hæð.
Bingóið hefst kl. 20 og eru allir
velkomnir, ungir sem aldnir. Bingó-
vinningar eru margvíslegir; páska-
egg, páskaskraut, sælgætiskörfur
og fleira. Bingóspjaldið kostar 300
kr. Allur ágóði af bingóinu rennur
til barna- og æskulýðsstarfs kirkj-
unnar. Allir eru velkomnir.
Kvennakirkjan
í Kópavogskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guð-
þjónustu í Kópavogskirkju sunnu-
daginn 9. apríl kl. 20.30. Yfirskrift
messunnar er fastan og koma
páskanna. Kvennakirkjukonurnar
Gréta H. Sigurðardóttir og Ingi-
björg María Gísladóttir tala og séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir verður
með innlegg. Anna Sigríður Helga-
dóttir syngur einsöng. Kór Kvenna-
kirkjunnar leiðir sönginn undir
stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Á eftir verður messukaffi í leikskól-
anum Urðarhóli.
Messur Kvennakirkjunnar eru
öllum opnar. Þær eru með léttu
sniði og í hverri messu eru lesnar
bænir frá kirkjugestum sem þeim
býðst að setja í bænakörfu.
Hjónanámskeið
Hafnarfjarðarkirkju
11 ára
UM þessar mundir er farið að síga á
seinni hluta hjónanámskeiða
Sunnudagaskólarnir
í Garðaprestakalli
sameinast
SUNNUDAGINN 9. apríl sem er
pálmasunnudagur munu sunnu-
dagaskólarnir í Garðaprestakalli
sameinast í Bessastaðakirkju kl. 11
í fjölskylduguðsþjónustu. Boðið
verður upp á akstur með rútu frá
Vídalínskirkju kl. 10.45 og til baka
kl. 12.
Í guðsþjónustunni verður farið
yfir atburði páskanna í tali, tónum
og með myndefni. Rannveig Kára-
dóttir æskulýðsfulltrúi Vídalíns-
kirkju og Kristjana Thorarensen
ásamt sínu góða samstarfsfólki
munu leiða stundina ásamt Bjarti
Loga Guðnasyni organista. Hall-
dóra Pálsdóttir kirkjuvörður býður
svo upp á hressingu í lok samver-
unnar. Sjá www.gardasokn.is. Allir
velkomnir.
Bænadagar og páskar
í Laugarneskirkju
FJÖLBREYTT helgihald verður í
Laugarneskirkju um hátíðarnar.
Miðvikudaginn 12. apríl og skír-
dag 13. apríl verður kirkjan opin
með sérstökum hætti. Báða daga
hefst morgunmessa kl. 8 þar sem
sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt
Helgu Steinunni Hróbjartsdóttur.
Frá kl. 14 til 17.30 verður kirkjan
svo opin til bænar og íhugunar.
Hægt verður að kveikja á bæna-
kertum auk þess sem kirkjuvörður
tekur við bænarefnum. Kl. 17.30
verður loks bænastund við altarið
þar sem sr. Hildur Eir Bolladóttir
þjónar á miðvikudaginn, en Sigur-
björn Þorkelsson á skírdegi.
Kl. 20.30 á skírdegi verður kvöld-
messa þar sem hjónin Erna Blöndal
og Örn Arnarsson flytja bænasálma
ásamt Gunnar Gunnarssyni sem
leikur á píanó og Jóni Rafnssyni
sem leikur á bassa. Kór Laugarnes-
kirkju syngur, sr. Bjarni Karlsson
prédikar og þjónar við altarið
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni með-
hjálpara, fulltrúum lesarahóps
kirkjunnar sem annast lestur úr
píslarsögunni og sóknarnefndar-
fólki sem hefur umsjón með hinni
árlegu afskrýðingu altarisins.
Guðsþjónustu skírdagskvölds
lýkur í raun ekki heldur komum við
saman að nýju kl. 11 á föstudegin-
um langa til að hlýða á framhald
píslarsögunnar. Þar mun sr. Hildur
Eir Bolladóttir prédika og Þorvald-
ur Halldórsson flytja einsöng.
Við komum saman á páskadags-
morgni kl. 8 og fögnum upprisu
frelsarans. Þar mun Þorvaldur Þor-
valdsson syngja einsöng og sr.
Bjarni prédika. Að messu lokinni
býður sóknarnefnd söfnuðinum upp
á volg rúnstykki, ávaxtasafa og ilm-
andi kaffi.
Þess skal einnig geta að kl. 11 á
páskadagsmorgni verður haldinn
sunnudagaskóli í Húsdýragarðin-
um í samvinnu við Langholtskirkju.
Komið verður saman við selatjörn-
ina og svo berst leikurinn inn í veit-
ingatjaldið þar sem sr. Hildur Eir
Bolladóttir, Heimir Haraldsson,
Þorvaldur Þorvaldsson og sr. Jón
Helgi Þórarinsson spjalla og syngja
með börnunum.
Morgunblaðið/Ómar
Afmælismót
Erlu Sigurjónsdóttur
Mánudaginn 3. apríl var haldið vel
heppnað afmælismót til heiðurs Erlu
Sigurjónsdóttur sem allir bridsarar
þekkja.
Þátttaka fór fram úr björtustu
vonum, 52 pör alls eða jafn mörg
spilunum í stokknum og öll sæti í
salnum setin.
Spilaður var 12 umferða Mitchell
með stuttu hléi til að fagna með Erlu.
Í verðlaun voru páskaegg ásamt
matarkörfu sem kemur sér auðvitað
vel fyrir páskana.
Efstu pör urðu í N-S:
Sigurður Sigurjónss. - Jón P. Sigurjónss.323
Anna Jónsd. - Sigurrós Sigurðardóttir 316
Garðar Garðarss.- Kristján Kristjánss. 316
A-V
Dröfn Guðmundsd. - Hrund Einarsd. 310
Hermann Friðrikss. - Gunnl. Sævarss. 308
Óttar Ingi Oddson - Ari Már Arason 300
Þess má geta að Sigurður og Jón
Páll eru bræður Erlu og Dröfn er
fyrrum makker Erlu til margra ára.
Garðar og Kristján gáfu 2. verð-
laun frá sér af höfðingsskap þegar
draga átti spil úr stokk til að ákveða
2. sætið í N-S, kannski mettir af
verðlaunum en Anna og Sigurrós
minna þekktar.
Mótið heldur áfram næsta mánu-
dag, 10. apríl, en mæting er frjáls.
Frekari upplýsingar á heimasíðu
BH http://www.bridge.is/bh
FEBK Kópavogi
Ágæt þátttaka var sl. föstudag,
eða 16 pör, og því spilað á 8 borðum.
Lokastaðan í N/S:
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 197
Eysteinn Einarss. - Ragnar Björnsson 185
Júlíus Guðmss. - Óskar Karlsson 182
A/V:
Guðjón Kristjánsson - Magnús Oddsson 205
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 200
Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ásmundss. 182
Bridsfélag Reykjavíkur
Dræm þátttaka er í tveggja kvölda
páskatvímenningi félagsins sem
hófst þriðjudaginn 4. apríl. Sextán
pör mættu þar til leiks og staða efstu
para að loknu fyrra spilakvöldinu er
þannig:
Stefán Jóhannsson – Sverrir Kristinsson 46
Guðrún Jóhannesd. – Arngunnur Jónsd. 30
Óttar Ingi Oddsson – Ari Már Arason 19
Jón V. Jónmundss. – Þorvaldur Pálmas. 17
Halldór Ú. Halldórsson – Jón Ingþórsson 12
Alfreðsmóti
Bridsfélags Akureyrar lokið
Mótið var tvímenningur þar sem
fólk á einnig sína „sveitarfélaga“.
Heildarstaðan breyttist lítið síðasta
kvöldið en lokastaðan varð þessi:
Frímann Stefánss. - Björn Þorláksson 89
Pétur Guðjónss. - Stefán Ragnarsson 69
Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson 59
Grétar Örlygsson - Haukur Harðarsson -
Sigurður Erlingsson 31
Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir 30
Lítið var um að pörin skoruðu síð-
asta kvöldið þrátt fyrir sveifluspil en
þessi pör skoruðu mest:
Pétur Guðjónsson - Stefán Ragnarsson 14
Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson 13
Gissur Gissurarson - Gissur Jónasson 5
Efsta sveitin var skipuð Birni og
Frímanni ásamt Kára Gíslasyni og
Sigfúsi Hreiðarssyni.
Sunnudaginn 2. apríl var afger-
andi niðurstaða:
Reynir Helgason - Stefán Vilhjálmsson 21
Stefán Sveinbjss. - Magnús Magnúss. 12
Hjalti Bergmann - Sveinbjörn Sigurðss. 3
Næsta mót er Halldórsmótið í
Board-a-Match sveitakeppni og er
fólk hvatt til að tilkynna tímanlega
um skráningu. Spilamennska sunnu-
daginn 9. apríl fellur niður vegna
ferminga. Að lokum er sveit frá B.A.,
sveit Sparisjóðs Norðlendinga, ósk-
að góðs gengis í úrslitum Íslands-
mótsins í sveitakeppni um páskana.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 4. apríl var spilað á
12 borðum. Meðalskor var 216.
Úrslit urðu þessi í N/S
Eysteinn Einarsson – Ragnar Björnsson 291
Sverrir Jónsson – Jón Pálmason 263
Bjarnar Ingimarss. – Friðrik Herm.s. 259
Sigtyggur Ellertss – Magnús Oddsson 254
A/V
Þorvarður S. Guðmss. – Jón Sævaldss. 261
Anton Jónsson – Sigurður Hallgrímsson 251
Katarínus Jónss. – Skarphéðinn Lýðss. 236
Jón Hallgrímsson – Bjarni Þórarinsson 234
Þá er lokið stigakeppni sem fór
fram á þriðjudögum frá áramótum.
Úrslit urðu þessi.
Oliver Kristófersson 91
Jón Sævaldsson 90
Þorvarður S. Guðmundss. 90
Rafn Kristjánsson 81
Ragnar Björnsson 70
Verðlaun fyrir stigakeppnina (10
efstu) verða veitt á síðasta spiladegi
fyrir páska sem verður 11. apríl.
Spilanefndin býður upp á fríar
veitingar (kaffi og meðlæti).
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 3. apríl spiluðu Borg-
firðingar tvímenning á 6 borðum,
sem telst venju fremur dræm mæt-
ing á þeim vígstöðvum. Það gaf for-
manninum tækifæri til að sýna snilli
sína og það gerði hann og tók efsta
sætið ásamt hinum trygga makker
sínum Baldri í Múlakoti. Guðmundur
og Flemming á Varmalandi komu í
humátt á eftir þeim og Akurnesing-
arnir Einar á vigtinni og Alfreð
Kristjáns urðu þriðju.
Úrslit urðu sem hér segir
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 137
Guðm. Þorsteinsson – Flemming Jessen 134
Einar Guðm.son – Alfreð Kristjánsson 130
Þorsteinn Pétursson – Guðm. Pétursson 122
Úrslitakeppni Íslandsmóts
í brids um bænadagana
Úrslitakeppni Íslandsmótsins í
sveitakeppni í brids verður spiluð
dagana 12.–15. apríl á Hótel Loft-
leiðum. Tólf sveitir hafa unnið sér
rétt til spilamennsku í úrslitum og
spila allar 16 spila leiki innbyrðis.
Spilamennska hefst klukkan 16
miðvikudaginn 12. apríl en á þeim
degi verða spilaðar 3 umferðir. Spila-
mennsku lýkur um miðnættið þann
dag. Á skírdag og föstudaginn langa
verða spilaðar fjórar umferðir en
spilamennska hefst um klukkan
11.00 og lýkur um 22.15. Fjórar efstu
sveitirnar spila síðan til úrslita laug-
ardaginn 15. apríl. Spilamennska
hefst þá klukkan 11.00 og lýkur um
klukkan 18.45 með krýningu nýrra
Íslandsmeistara. Að venju verður
leikjum lýst á sýningartöflu og
áhorfendur að sjálfsögðu velkomnir.
Jafnhliða Íslandsmótinu verður
boðið upp á Góu-tvímenningskeppni
þar sem verðlaunin verða glæsileg
páskaegg. Tvær lotur verða spilaðar
fimmtudaginn 13. apríl og ein lota
föstudaginn 14. apríl.
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir
hverja lotu fyrir sig og síðan fær það
par sem nær besta samanlagða ár-
angrinum í tveimur af þremur lotum
páskaegg af stærstu gerð.
Keppnisstjóri í úrslitum verður
hinn röggsami Björgvin Már Krist-
insson. Keppnisgjald á sveit er
12.000 krónur.
Bridsfélagi Selfoss
og nágrennis
Fimmtudaginn 16. mars sl. var
fjórða og síðasta kvöldið í Sigfúsar-
mótinu spilað. Efstu pör:
Gísli Þórarinss. – Sigurður Vilhjálmss. 41
Ólafur Steinason – Þórður Sigurðsson 37
Helgi Helgas. – Kristján M. Gunnarss. 24
Lokastaðan í mótinu varð þessi:
Þröstur Árnason/Ólafur Steinason –
Þórður Sigurðsson 84
Gísli Þórarinsson – Sigurður Vilhjálmsson /
Grímur Magnússon 84
Helgi Helgas. – Kristján M. Gunnarss. 72
Sigfús Þórðarson – Vilhjálmur Þ. Pálsson 66
Björn Snorrason – Guðjón Einarsson /
Ingibjörg Harðardóttir 49
Nánar má finna um úrslitin á
heimasíðu félagsins, http://www.-
bridge.is/bsel.
Þar sem næstu tveir fimmtudagar
eru helgidagar, þá verður ekkert
spilað hjá félaginu 13. og 20. apríl.
Síðasta mót vetrarins verður síðan
tveggja kvölda Íslandsbankatví-
menningur. Mótið verður spilað
fimmtudagana 27. apríl og 4. maí.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtudaginn 6.4.
Spilað var á 12 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Jón Hallgrímsson – Helgi Hallgrímsson 236
Ægir Ferdinandss. – Jóhann Lútherss. 236
Unnar Guðmundsson – Bragi Bjarnason 228
Árangur A-V
Þröstur Sveinss. – Bjarni Ásmunds. 270
Björn Pétursson – Alfreð Kristjánsson 263
Gunnar Jónsson – Guðbjörn Axelsson 252
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson