Morgunblaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Karl ÁgústBjarnason fæddist í Holti á Mýrum 18. ágúst 1919. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands 2. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Bjarni Þor- leifsson frá Seli og Ragnhildur Einars- dóttir. Eiginkona Karls er Nanna Halldóra Jónsdóttir, f. á Smyrlabjörgum í Suðursveit 13. janúar 1923. Þau gengu í hjóna- band 6. maí 1945 og bjuggu allan sinn búskap á Smyrlabjörgum. Börn þeirra eru: 1) Helgi Hilmar, f. 13. febrúar 1946, sambýliskona Jóhanna Guðmundsdóttir. 2) Jón Sigur- geir, f. 14. febrúar 1946, kvænt- ur Hólmfríði Traustadóttur. Þau eiga fjögur börn og sex barna- börn. 3) Guðni Gunnar, f. 6. maí 1947, kvæntur Jónu Sigjónsdóttur. Þau eiga tvö börn og fimm barnabörn. 4) Einar Bjarni, f. 3. júní 1949, kvæntur Guðbjörgu Hall- dóru Ingólfsdóttur. Þau eiga þrjú börn og fimm barna- börn. 5) Jóhanna Sig- urborg, f. 20. apríl 1956, d. 3. janúar 1957. 6) Sigurbjörn Jó- hann, f. 29. júlí 1957, kvæntur Laufeyju Helgadóttur. Þau eiga fimm börn. 7) Ingibjörg, f. 31. janúar 1961, gift Sigurði Eyþóri Bene- diktssyni. Þau eiga eina dóttur. 8) Haukur, f. 16. september 1967, kvæntur Hafeyju Lind Ein- arsdóttur. Þau eiga tvö börn. Útför Karls verður gerð frá Kálfafellsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Flest sem fagurt var frægð og heiður bar farið er úr sínum skorðum. Sókn er sigur eins sýnist ei til neins að sigurlaunum tómið eitt. Breytt er allt sem er. Ekkert lengur ber alveg sama lit og forðum. Leitar hugur minn lítið þó ég finn sem líkist því sem áður var. (Jónas Friðrik.) Þetta ljóðabrot kemur upp í huga minn sem minning mín um góðan tengdaföður. Sagt er að sumir fæðist með silfurskeið í munni, en það gerð- ir þú svo sannarlega ekki. Heldur hamraðir sjálfur silfrið og mótaðir af stakri prýði og elju. Og þér tókst það vel. Þú fannst þér frábæra eigin- konu. Keyptir jörð, ræktaðir hana svo fagra að eftir var tekið. Þú varst bóndi í fagurri sveit og þar leið ykk- ur best. Börnin urðu átta svo stund- um hefur nú verið fjör í starfi og leik á þínu heimili. Frá því ég kom í fjöl- skylduna þína hefur þú gefið mér mörg heilræði, gjarnan með samlík- ingu frá þínum uppvaxtarárum eins og þetta með skrítnu tærnar sem urðu svona vegna þess að skórnir voru orðnir alltof litlir, samt var manni troðið í þá. Góðu ráðin frá þér þegar ég þurfti svo sannarlega á þeim að halda, „…en þetta er bara okkar á milli“ og ég kinkaði kolli og undraðist ró þína. Þú varst glæsileg- ur, góðlyndur, gamansamur, gáfaður og gull af manni. Takk fyrir merkið sem ég fékk frá þér. Það er mér ógleymanlegt og ég legg minn skilning í það. Sem í raun er hægt að gera á svo margan hátt. Það er alltaf sárt að sjá á eftir besta fólkinu sínu. Ég kveð þig með sökn- uði við blik þeirrar sólar sem alltaf skín í Suðursveitinni. Hólmfríður Traustadóttir. Það er mér ljúft að minnast hans Karls Ágústs Bjarnasonar, eða Kalla eins og hann var kallaður í daglegu tali. Þegar ég kom fyrst á heimili hans með næstyngsta syni hans, var mér vel tekið og ekki síður þegar við sett- umst þar að 3 árum síðar. Kalli var höfðingi heim að sækja og margir komu á heimili þeirra hjóna, enda ekki komið að tómu borðinu hjá henni Dóru. Alltaf fullt borð matar hvenær sem einhver kom í heimsókn. Kalli var skrafhreifinn við gesti sína og gerði aldrei manna- mun. Hann taldi aldrei eftir sér ef hann gat rétt einhverjum hjálpar- hönd. Kalli var hár, grannur með svart hár fram á síðasta ár. Hann var létt- ur á fót og léttur í lund. Hann var ákaflega iðjusamur maður, féll aldrei verk úr hendi, þeg- ar árin færðust yfir og hann hætti að mjólka og hugsa um kýrnar sínar, var hann einatt að dunda við eitthvað hér í kring, fann sér alltaf einhver verkefni til að vinna við. Kalli var vel nýtinn og hirðusamur. Hann útbjó sér það starf nokkra vetur að hirða allt band af heyrúllunum og rúlla því upp aftur, svo var það notað aftur og aftur. Kalli bjó með kýr og kindur og var mikill ræktunarmaður, og hugsaði vel um bústofninn sinn. Í seinni tíð hafði hann gaman af og var vel nat- inn að hugsa um gæsirnar og hæn- urnar sínar. Hann var mikill gleði- og dans- maður og naut þess að skemmta sér með sveitungum sínum. Hann fylgdist vel með afkomend- um sínum sem eru margir. Hann hlustaði alltaf á fréttir bæði í útvarpi og sjónvarpi og fylgdist með fram á síðasta dag. Allir sem þekktu Kalla eru ríkari í hjarta sínu, hann hafði úr miklu að miðla og lagði engum manni illt orð. Hann var fylginn sér í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, og vildi klára hlutina strax ekki að láta það bíða til morguns. Við áttum nokkrar ferðir til Reykjavíkur saman og er mér ljúft að minnast þeirra stunda þegar Kalli rifjaði upp veruna sína og Dóru í Reykjavík. En leið þeirra lá austur aftur fyrir tilviljun og hann settist að hér á Smyrlabjörgum. Margs er að minn- ast, Kalli minn, og margs er að sakna og það er mér ljúft. Samfylgdina þakka ég þér í þessi rúm 25 ár og takk fyrir alla hlýjuna og alúðina sem þú veittir mér og fjöl- skyldu minni. Afabörnin hafa margs að minnast og sakna, og það veitir þeim huggun í sorg þeirra. Halldóru og fjölskyldu votta ég samúð mína. Farðu í Guðs friði. Laufey. Nú er hann afi okkar dáinn. Það er óhætt að segja að við systkinin bár- um ótakmarkaða virðingu fyrir hon- um afa. Hann var rólegur maður með góða nærveru og honum féll aldrei verk úr hendi. Hins vegar kynntumst við honum ekki fyrir al- vöru fyrr en við vorum orðin full- orðin og höfðum vit og þroska til að setjast með honum og spjalla. Þá var rætt um allt á milli himins og jarðar. Afi sagði sögur úr sveitinni í bland við þjóðmálin og aldrei gleymdist að ræða um veðrið. Með söknuði kveðj- um við hann afa okkar og geymum góðar minningar í hjörtum okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Ingólfur Guðni, Ragnhildur og Þórhildur. Elsku Kalli afi. Okkur langar í fátæklegum orðum að þakka þér allt sem þú hefur gefið okkur af þér í gegnum árin okkar saman. Við hefðum ekki getað átt betri afa, betri fyrirmynd er ekki hægt að hugsa sér. Elsku afi, takk fyrir alla þolinmæðina, allar sögurn- ar og allar lífsreglurnar sem þú óbeint lagðir okkur. Þessi brot úr Heilræðavísum Hall- gríms Péturssonar gætu svo auð- veldlega verið þín orð, afi. Vertu dyggur, trúr og tryggur, tungu geymdu þína. Við engan styggur né í orðum hryggur, athuga ræðu mína. Lítillátur, ljúfur og kátur, leik þér ei úr máta. Varast spjátur, hæðni, hlátur; heimskir menn sig státa. Víst ávallt þeim vana halt: Vinna, lesa iðja, umfram allt þó ætíð skalt elska guð og biðja. Guð geymi þig. Jón Karl, Jakobína, Halldóra og Kristín. Mig langar að kveðja Karl Ágúst Bjarnason eða Kalla frænda með nokkrum góðum minningum sem flugu í gegnum hugann þegar mér barst sú sorgarfregn að hann væri fallinn frá. Það er þó kannski blessun fyrir hann eftir langa og erfiða sjúk- dómslegu. Ég varð þeirrar gæfu að- njótandi að vera í sveit hjá þeim hjónum á Smyrlabjörgum nokkur sumur ævi minnar, fyrir rúmlega 50 árum. Allan þann tíma leið ekki sú mínúta að ekki væri eitthvað að ger- ast eða fást við og aldrei leiddist ung- um dreng úr höfuðborginni. Kalli var ekki að skammast eða ergja sig yfir smámunum eins og þegar ég velti hestakerru með hey- fengnum í Uppsalaá eða þegar við stálumst til að keyra traktorinn þeg- ar heimilisfólkið var við jarðarför. Löngu seinna sagði hann mér að sér hefði nú ekki staðið alveg á sama um sum af uppátækjum okkar félag- anna. En eftir á var hægt að hafa gaman af þeim. Kalli sá alltaf björtu hliðarnar á hlutunum og alltaf var stutt í gamansemina. Kalli var ag- aður og styggðaryrði heyrðust aldrei af hans vörum. Í mínum huga var Kalli heljar- menni, orfið hans var stærra og þyngra en önnur sem ég hafði áður séð og mér fannst hann slá á við marga á engjum þar sem vélum varð ekki við komið. Með elju, dugnaði og samheldni lögðu Kalli og Dóra grunninn að góðu búi að Smyrla- björgum þar sem þau bjuggu mestan hluta ævi sinnar. Í haust þegar ég heimsótti Kalla á Borgarspítalann og við spjölluðum lítillega saman sagði hann mér með söknuði að hann ætti ekki eftir að koma aftur í Lækjarhúsin. Hann reyndist sannspár. Ég þakka Kalla og Dóru sumrin sem ég átti hjá þeim. Góðar minn- ingar frá þessum tíma hafa alltaf fylgt mér. Kæra Dóra og fjölskylda, ég og fjölskylda mín sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Baldur. Það er okkur öllum mikill missir að sjá á eftir vini okkar og gæfusmiði Karli Bjarnasyni á Smyrlabjörgum. Það er fyrst og fremst hans þægilega nærvera sem fyllti umhverfið þegar maður heimsótti Kalla og Dóru í Lækjarhúsin, alltaf dregið upp það nýjasta úr búrskápnum og dægur- málunum og ekki hikað við að draga skýrar línur af mönnum og málefn- um með breiðu glotti. Önnur mynd sem kemur í hugann er úr æsku, þegar þessi stóri maður með hnýttar hendur rölti álútur með skepnum, svona í hálfgerðum hálf- kæringi eins og hann væri í góðra vina hópi. Hjá þessu fólki fékk mað- ur að upplifa upphaf lífs og enda sem fyrir bændur getur verið daglegt brauð en mikil upplifun vesalingum úr borginni að verða vitni að þessum gangi lífsins í návígi. Lífsspeki mannfólksins í sveitum landsins er líka allt önnur en við malbiksfólkið eigum að venjast. Fólk sem lifir í ná- vígi við dýr og verður stundum vitni að harðri lífsbaráttu þeirra, þekkir sumar skepnurnar með nafni í kíló- metra fjarlægð og man ættartölu þeirra, hefur eðlilega annað viðmót gagnvart lífinu, hvert öðru og um- hverfisins. Myndarskapurinn á Smyrlabjörg- um er löngu frægur, ekki bara fyrir sérstaklega gestrisið fólk, heldur landsfrægu orðspori Smyrlabjarga sem uppsprettu eins frjósamasta ær- stofns landsins og á síðustu árum mikillar uppbyggingar ferðaþjón- ustu. Auk þess kemur fjöldinn allur af myndarfólki, afkomenda þeirra hjóna, sem bera góðu fólki gott vitni og ég vona að góð minning um þenn- an gæfuríka ættföður hjálpi þeim á sorgarstundu. Páll Ólafsson. KARL ÁGÚST BJARNASON Elsku langafi, við kveðjum þig með litlu bæninni okkar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Ottó Marvin, Róbert Marvin, Ísold, Hólmfríður, Viktor Freyr og Saga. HINSTA KVEÐJA Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, dóttir og amma, RUT GUNNARSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mið- vikudaginn 5. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helgi Valur Einarsson, Þórunn Gunnarsdóttir, Gunnar Svanur Einarsson, Áslaug Björnsdóttir, Rúna Einarsdóttir, Þorsteinn Ingi Ómarsson og barnabörn. Elsku mamma, tengdamamma og amma, ANNA J. JÓNSDÓTTIR, Sóltúni 2, Reykjavík, áður Skipagötu 2, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 5. apríl. Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. apríl kl. 11.00. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigrún Pálsdóttir, Sveinn Gíslason, Sigurbjörg Pálsdóttir, Finnur Birgisson, Anna Pála Pálsdóttir, Helena Pálsdóttir, Sverrir Þórisson, Páll Tómasson, Sigríður Agnarsdóttir og ömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.