Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 49 MINNINGAR ✝ Kjartan Aðal-steinn Jónsson fæddist á Galta- hrygg í Heydal í Mjóafirði í Ísafjarð- ardjúpi 29. janúar 1917. Hann andað- ist á öldrunardeild Sjúkrahússins á Ísafirði aðfaranótt 27. mars síðastlið- ins. Foreldrar hans voru Guðbjörg Efemía Steinsdótt- ir, f. 20.4. 1886, d. 9.10. 1987, og Jón Ólason, f. 7.11. 1883, d. 6.4. 1930. Systkini Kjartans eru: drengur, fæddur andvana í júní 1911, Guð- mundur Þorvaldur, f. 1. júlí 1912, Valgerður, f. 11.6. 1914, d. 1.2. 1982, Kristján, f. 22.10. 1915, d. 1.6. 1996, Ingibjörg, f. 11.11. 1918, Bjarni Sigurður, f. 28.10. 1920, d. 21.3. 1922, Guðbjörg, f. 28.10. 1920, Elín Bjarney, f. 26.10. 1922, Óli Kristján, f. 21.9. 1925, d. 26.4. 2004 og Bjarni, f. 15.12. 1926. Eiginkona Kjartans er Ingi- björg Guðmundsdóttir frá Reka- vík bak Látur, f. 17.6. 1928. For- eldrar hennar voru Guðmundur Pálmason, bóndi og vitavörður í Rekavík bak Látur, f. 28.1. 1878, d. 21.2. 1951, og Bjarney Andr- ésdóttir, húsfreyja í Rekavík bak Látur, f. 3.11. 1890, d. 7.6. 1976. Börn Kjartans og Ingibjargar eru: 1) Hrólfur, f. 20.10. 1945, d. 2.1. 2002, maki Guðlaug Ingv- arsdóttir, f. 19.12. 1946. Börn þeirra eru Inga Dóra, f. 28.5. 1968, Heiða, f. 21.8. 1973 og Rannveig, f. 3.2. 1983. 2) Jóna Guðbjörg Kjartansdóttir McCarthy, Chicago Bandaríkjun- um, f. 11.5. 1947, maki Jóseph Sonur þeirra Aðalsteinn Kjartan, f. 29.1. 1997. Kjartan var í foreldrahúsum þar til hann var 9 eða 10 ára en fór þá í fóstur að Eyri í Mjóafirði, en þá var þar einnig fyrir í fóstri systir hans Ingibjörg. Um 15 eða 16 ára aldur frá Eyri og fer að vinna fyrir sér, m.a. í Reykjanesi, Vatnsfirði, og Reykjafirði og víð- ar við Djúp. Hann fékk þá skóla- göngu sem tíðkaðist á þeim tíma sem var farkennsla, en þegar hann var 23 ára fór hann í bændaskólann á Hvanneyri í Borgarfirði og lauk þaðan prófi sem búfræðingur vorið 1942. Um sumarið á milli vann hann á Hvanneyrarbúinu. Að loknu námi á Hvanneyri gerðist hann ráðs- maður á bænum Bakka í Hnífs- dal. Þar kynntist hann eiginkonu sinni Ingibjörgu Guðmundsdóttir, frá Rekavík bak Látur í Sléttu- hreppi, og giftu þau sig 1946. Meðan þau voru á Bakka, fæddist þeim fyrsta barn þeirra, Hrólfur. Að lokinni dvölinni á Bakka réðu þau sig bæði til Gríms Jónssonar, bónda og kaupmanns í Súðavík, Kjartan sem ráðsmaður og Ingi- björg sem kaupakona. Þau voru þar til vors 1947 er þau fengu leigða jörðina Eyrardal í Súða- víkurhreppi og hófu þar búskap. Eftir nokkur ár keyptu þau jörð- ina og bjuggu þar til 1997. 1993 selja þau síðan Súðavíkurhreppi jörðina en höfðu áfram ábúðar- og afnotarétt af henni. 1997 fluttu þau svo úr Eyrardalsbæn- um og í lítið einbýlishús í „hinni nýju Súðavík“ sem þau höfðu keypt. Hús þetta var upphaflega byggt á heimaslóðum Ingibjargar í Rekavík bak Látur, en hafði verið tekið niður og endurreist í „gömlu Súðavík“ 1951 og svo aft- ur flutt þaðan og í „nýju Súða- vík“ árið 1996. Þar dvöldu þau á meðan heilsan leyfði eða þar til árið 2001 að þau fóru á öldr- unardeild Sjúkrahússins á Ísa- firði. Útför Kjartans verður gerð frá Súðavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. McCarthy, f. 20.8. 1939. Sonur þeirra Sean McCarthy, f. 22.3. 1969. 3) Bjarni Dýrfjörð, f. 3.8. 1948, maki Guðrún Egilsdóttir, f. 25.6. 1948, þau skildu. Synir þeirra eru Kjartan, f. 2.2. 1972 og Lúðvík, f. 2.10. 1980. Sambýliskona Guðmundína Sturlu- dóttir. 4) Steinn Ingi, f. 1.12. 1949, maki Helen D. Hjaltadóttir, f. 18.6. 1950, d. 1.10. 2000. Börn þeirra eru Davíð Pét- ur, f. 4.4. 1969, Snorri Gunnar, f. 11.11. 1970, Erna Rut, f. 6.4. 1979, og Arnar Reyr, f. 22.5. 1981. Sambýliskona Rósa Ólafs- dóttur. 5) Guðmundur Svavar, f. 7.8. 1952, maki Guðrún Jóhanns- dóttir, f. 17.5. 1957, þau skildu. Börn þeirra eru Jóhann Pétur, f. 16.3. 1977, og Bjarki, f. 10.1. 1979. Sambýliskona Guðrún Ei- ríksdóttir. 6) Guðjón Marteinn, f. 21.4. 1954, maki Dagbjört Sigrún Hjaltadóttir, f. 18.4. 1955. Börn þeirra eru Ester Ösp, f. 17.8. 1981 og Sölvi Mar, f. 3.10. 1984 7) Kristín Lilja , f. 16.3. 1957, maki Esra J. Esrason, f. 26.6. 1957, þau skildu. Dætur þeirra eru Rúna, f. 21.10. 1977, og Ásta Ýr, f. 17.10. 1979. Sambýlismaður Þorsteinn Haukur Þorsteinsson. 8) Bjarney Stella, f. 13.3. 1962, maki Einar Vilhjálmur Hálfdán- arson, f. 4.6. 1962. Börn þeirra eru Bjarney, f. 14.7. 1988, og Lilja, f. 7.9. 1994. 9) Daði Kjart- ansson, f. 4.10. 1963. 10) Stefán Haukur, f. 23.11. 1968, sambýlis- kona Hildur Jónína Þórisdóttir, f. 20.12. 1971. Þau slitu samvistum. Elsku afi minn, nú ert þú búinn að fá hvíldina. Ég man hvað það var alltaf gaman að koma upp í Eyrardal til afa og ömmu þegar ég var yngri, þar sem þið bjugguð mest allan ykkar búskap, þar hittum við bræðurnir yfirleitt frænd- systkin okkar úr Súðavík, þá var gam- an og mikið leikið sér. Svo fór ég oft inní fjárhús með afa og spjallaði við kindurnar með honum. Það var sá staður þar sem þú undir þér best, þarna gast þú verið tímunum saman. Ég man að þú sagðir mér hvað þér þætti skrítið að það ætti að rísa heilt þorp á túnunum þínum en þér fannst það mjög ánægjulegt. Eitt af seinustu skiptunum sem ég hitti þig var á afmælisdaginn þinn, þegar þú fórst til Súðavíkur á seinasta skiptið. Steini kom og sótti þig og við hittumst heima hjá honum. Þar fékkstu einn af þínum uppáhalds rétt- um, súra hrútspunga, þú smjattaðir á þessu eins og smástrákur á súkku- laðistykki. En nú er komið að kveðjustund. Mig langar að þakka þér fyrir þann tíma sem ég hef átt með þér. Nú færðu loks að hitta hann Hrólf þinn og Helen tengdadóttur þína. Svo sjáum við í maí hvort þú hafðir rétt fyrir þér þegar barnið mitt kemur í heiminn. Guð veri með þér. Jóhann Pétur Guðmundsson. Haustið 1999 hitti ég þig fyrst. Að hitta ömmu og afa kærastans í fyrsta skipti var frekar stressandi, en sú til- finning entist stutt eftir að inn til ykk- ar var komið, þið tókuð mér opnum örmum. Árin síðan höfum ég og Jóhann Pétur deilt með þér því sem hefur verið að gerast í lífi okkar, og þú hefur samglaðst okkur svo innilega. Ég var farin að hlakka svo til að koma í heim- sókn að sýna þér langafabarnið þitt sem á að koma í heiminn í maí. En úr því verður víst ekki, en ég veit að þú fylgist samt með því frá himnum, og kannski förum við að þínum ráðum og prófum bara tvíbura næst. Ég vona að hvíldin verðskuldaða sé ljúf og ég veit að þú ert með Hrólfi þínum og Helen. Fjölskyldu og aðstandendum votta ég samúð mína. Ástarþakkir fyrir mig, elsku Kjartan. Sigurbjörg Magnúsdóttir. KJARTAN AÐALSTEINN JÓNSSON ✝ Freyr Stein-grímsson fædd- ist á Djúpavogi 3. desember 1949. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 1. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Kristín Ása Engilbertsdóttir, f. 11. október 1925 og Steingrímur Ingi- mundarson, f. 4. júní 1925. Systkini Freys eru Ingimundur, f. 16.11. 1948, Óskar, f. 15.1. 1951, Hafsteinn, f. 5.6. 1962 og Ragnhildur, f. 9.3. 1964. Freyr kvæntist 25.12. 1976 Drífu Antoníu Ragnarsdóttur, f. 30.1. 1953. Dætur þeirra eru Rán, f. 28.5. 1975, Dröfn, f. 19.6. 1977 og Alfa, f. 21.1. 1982. Dóttir Drafnar er Íris Ant- onía Ólafsdóttir, f. 29.11. 2003. Freyr stundaði alla tíð sjómennsku, á togurum, vertíð- arbátum og var síð- ar með eigin smá- bátaútgerð. Útför Freys verður gerð frá Djúpavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Kæri Freyr minn. Það er margt í þessu lífi sem maður á erfitt með að skilja. Skap- arinn gerir heldur ekki ráð fyrir því að við eigum að skilja allt. Ákvarð- anir hans eru oft mjög ranglátar að okkar mati, en hann hefur valdið. Þú varst kallaður frá okkur í blóma lífsins og mér finnst það ósann- gjarnt, en lífið á ekki alltaf að vera auðvelt að hans mati og við verðum að kyngja því. Ég var ekki gamall þegar við kynntumst, enda líklega mörg sömu áhugamálin, þótt aldursmunurinn væri nokkur. Í samfélagi eins og á Djúpavogi verður aldursmunur af- stæður þegar áhugamálin eru þau sömu. Fyrstu minningar mínar um þig var vera mín hjá þér og elsta bróð- ur mínum á reiðhjólaverkstæðinu undir tröppunum í Grýtu. Þar lærði maður handbragðið við reiðhjólavið- gerðir, enda voruð þið ólatir við að kenna mér ýmis leyndarmál í þeirri grein. Sérstaklega kom það sér vel ef ég lofaði að hanga ekki á eftir ykkur þegar þið ákváðuð að líta á lífið úti í bæ eftir kvöldmat. Þetta skildi ég illa en ákvað frekar að læra tæknina við að setja saman verk í afturgjörð á reiðhjóli og fórna þá samverustundum með ykk- ur í staðinn. Það var líf og fjör á reiðhjóla- verkstæðinu og margir komu þar við. Þegar sú starfsemi lagðist af tók við annað áhugamál hjá þér sem var Rolling Stones. Ég held að næstum allt þorpið hafi notið góðs af því áhugamáli. Tónlistin hljómaði á móti manni úr kjallaranum í Grýtu þegar komið var upp á Hót- elshæðina og barst upp allan Aur- inn. Fróðir menn segja að heyrnin hjá þér hafi skerst verulega á þess- um árum. En við áttum eftir að sjá meistarann á sviði og það var skemmtileg upplifun hjá okkur í London fyrir tæpum þremur árum. Leiðir okkar lágu einnig saman á sjónum, fyrst á Skálavíkinni, síðan á Hólsnesi og svo á togaranum Sunnutindi. Þú fórst aldrei hratt yf- ir og kipptir þér ekki upp við hama- ganginn sem var á stundum í okkur hinum. En það var gaman að fylgj- ast með handbragðinu og þú skil- aðir alltaf mestum afköstum þegar upp var staðið. Þetta fylgdi þér yfir í trilluút- gerðina. Þar var byrjað smátt og í lokin stóðstu upp með góðan bát og nægar aflaheimildir. Í trilluútgerð- inni kom vel fram þinn hæfileiki, ró- legheit og vinnusemi. Þú rerir dag eftir dag, þegar aðrir lágu jafnvel í landi og oft yfir litlu, enda var við- kvæðið hjá þér þegar aflinn var lítill „þetta er betra en heima setið“. Kæri vinur og mágur, þín sér- staka góða lund, nærgætni og um- hyggja fyrir fjölskyldu og vinum setur þig á sérstakan stall í minn- ingunni. Við fjölskyldan frá Kambs- túni eigum dásamlegar minningar um góðan dreng og yndislega fjöl- skyldu í Hvoli. Fjölskyldu sem ávallt var til staðar til að aðstoða við hinar ýmsu aðstæður. Nú er höggvið skarð í fjölskyld- una og við sem eftir stöndum erum harmi slegin. Elsku Drífa systir, Rán, Dröfn, Alfa og litla Íris Ant- onía, megi Guð vera með ykkur og leiðbeina ykkur í gegnum sorgina og missinn á eiginmanni, föður og afa. Ólafur Áki Ragnarsson. Elsku Freyr. Við systurnar frá Kambstúni eig- um margar góðar minningar um þig. Frá því að við munum eftir okkur vorum við að læða okkur inn í Hvol til þín þar sem við vissum að þú bauðst alltaf upp á gott í gogg- inn. Það voru ekki aðeins við sem höfðum þessa ofurmatarást á þér heldur kisinn okkar, Halti Hjalti, lagði á sig ómælt erfiði til að kom- ast til þín enda naut hann svo sann- arlega uppskeru erfiðisins með góðu atlæti. Seinna meir fluttum við burt en komum reglulega í Hvol til að heim- sækja ykkur fjölskylduna, sem hef- ur alltaf verið okkur svo kær. Þá var það oftar en ekki að þú stóðst við eldhúsgluggann, hallaðir þér fram á eldhúsbekkinn og virtir fyrir þér útsýnið. Um leið og við gengum upp stig- ann snerir þú þér við til að bjóða okkur velkomnar og gefa okkur hlý- legt faðmlag. Þú varst ekki maður margra orða en áttir þó mörg gullkorn sem dæt- ur þínar rifja stundum upp með okkur og kalla alltaf fram bros. Ein af okkur systrum varð þeirr- ar ánægju aðnjótandi að fara með þér á tónleika með Rolling Stones fyrir nokkrum árum. Hún mun seint gleyma hve ánægður þú varst að sjá loksins Mick Jagger og fé- laga spila uppáhaldslögin þín. Við eigum svo góðar minningar sem við munum geyma með okkur alla ævi. Ef á mínum ævivegi ástvinum ég sviptur er, Guðs son mælir: „Grát þú eigi, geymdir eru þeir hjá mér. Aftur gefa þér skal þá, þar sem hel ei granda má.“ (Helgi Hálfdánarson.) Elsku Drífa, Rán, Dröfn, Alfa og Íris Antonía þið eigið hug okkar all- an. Freyja, Regína, Ragna og Halla. FREYR STEINGRÍMSSON Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Okkar elskulegi bróðir og vinur, SIGURÐUR DEMETZ FRANZSON, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni að morgni föstudagsins 7. apríl. Útförin verður auglýst síðar. F.h. systkina, annarra aðstandenda og vina, Eygló Friðriksdóttir, Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Magnús Ólafsson, Walter Jónsson. UNNUR PÁLSDÓTTIR, Fróðastöðum, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 5. apríl. Dætur hinnar látnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.