Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 53
Atvinnuauglýsingar
Tónlistarskóli Rangæinga
Gítarkennari
Tónlistarskóli Rangæinga óskar eftir að ráða
gítarkennara í fullt starf, hlutastarf kemur
einnig til greina. Skólinn starfar á þremur stöð-
um í sýslunni og er aðstaða fyrir fjölskyldufólk
hvarvetna mjög góð, starfandi grunnskólar,
íþróttahús, sundlaugar og leikskólar.
Fjöldi tónlistarnemenda er 270 og starfa 12
kennarar við skólann.
Upplýsingar fást í síma 897 7876. Senda má
fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti til
tonrang@ismennt.is.
Skólastjóri.
Sýslumaðurinn í Búðardal
óskar eftir að ráða
starfsmann
til þjónustustarfa
Starfið felst í afgreiðslu viðskiptavina, móttöku
gagna, skráningu, skjalavistun, símaþjónustu
við viðskiptavini, gjaldkerastörfum og öðrum
almennum skrifstofustörfum.
Starfið krefst lipurðar í samskiptum, nákvæmni
í vinnubrögðum, sveigjanleika og frumkvæðis.
Leitað er að atorkusömum einstaklingi sem
á gott með að umgangast aðra. Æskilegt er
að viðkomandi hafi lokið stúdentsprófi, eða
hafi aðra sambærilega menntun eða hafi
reynslu af skrifstofustörfum og vinnu á tölvu.
Um er að ræða hálft starf og er vinnutími frá
kl. 12:00 til kl. 16:00. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst. Laun taka mið af kjara-
samningi ríkisins og SFR, stéttarfélags í al-
mannaþjónustu.
Umsókn, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist sýslumanninum í Búðar-
dal, Miðbraut 11, Búðardal, eigi síðar en
24. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un hefur verið tekin um ráðningu.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Þórarinsdóttir
sýslumaður í síma 433 2700.
Sýslumaðurinn í Búðardal, 5. apríl 2006.
Rafvirkjar
Óskum eftir að ráða rafvirkja til starfa sem
fyrst. Mikil verkefni framundan.
Upplýsingar í síma 664 0201 og 664 0200.
Umsóknir sendist á rlt@rlt.is
Raflagnatækni ehf.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álfaskeið 94, 0401, (207-3074), ehl. gþ. Hafnarfirði, þingl. eig. Tómas
Kristinn Sigurðsson, gerðarbeiðandi Sparisjóðurinn í Keflavík, mið-
vikudaginn 12. apríl 2006 kl. 14:00.
Stapahraun 2, (207-9283), Hafnarfirði , þingl. eig. Fish4u ehf., gerðar-
beiðandi Hafnarfjarðarbær, miðvikudaginn 12. apríl 2006 kl. 10:30.
Vallarbarð 1, 0201, (208-0345), Hafnarfirði, þingl. eig. Guðlaugur
Árni Oddsson, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarbær og Vallarbarð
1, húsfélag, miðvikudaginn 12. apríl 2006 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
7. apríl 2006.
Félagslíf
Páskar í Landmannalaugum –
skálaverðir – dagsgöngur
Gönguferðir í Þórsmörk um
páskana – dagsgöngur.
Göngugleði á sunnudögum –
allir velkomnir.
Morgungöngur í maí
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum –
gönguferðir í maí og júní.
Næsta myndakvöld 26. apríl
Sumarleyfisferð-
ir: Laugavegurinn, Hornstrandir,
Héðinsfjörður, Fjörður, Lónsör-
æfi, Kjölur, Sprengisandur og
margt fleira.
Dagsferðir í Þjórsárver og
Langasjó.
Árbók FÍ 2006 um Mývatns-
sveit kemur út á vordögum.
Vertu með í Ferðafélaginu –
ævintýrin gerast á fjöllum.
9.4. Lágaskarðsleið. Brottför
frá BSÍ kl. 10:30. Fararstj. Steinar
Frímannsson. V. 2.300/2.700 kr.
13.-17.4. Fimmvörðuháls
- Mýrdalsjökull - Strútur
- Gönguskíðaferð. Brottför kl.
8:30. 0604HF02. Fararst. Reynir
Þór Sigurðsson. Verð 16.600/
18.400 kr.
13.-17.4. Bækistöðvarferð í
Strút - Gönguskíðaferð. Brott-
för kl. 8:30. 0604HF01. Fararstj.
Ingibjörg Eiríksdóttir.
Verð 17.600/19.400 kr.
15.-17.4. Páskar í Básum.
Brottför frá BSÍ kl. 8:30.
0604HF03. V. 12.600/14.400 kr.
Sjá nánar á www.utivist.is.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
FRAMBOÐSLISTI Samfylkingar og óháðra við sveitarstjórnarkosningarn-
ar 27. maí nk. í Sveitarfélaginu Ölfusi var samþykktur einróma á félagsfundi
3. apríl sl. Listann skipa:
1. Dagbjört Hannesdóttir viðskiptafræðingur
2. Hróðmar Bjarnason framkvæmdastjóri
3. Elín Björg Jónsdóttir, formaður FOSS
4. Sigurður Grétar Guðmundsson pípulagningameistari
5. Magnþóra Kristjánsdóttir, starfsmaður á leikskóla
6. Guðmundur Oddgeirsson framkvæmdastjóri
7. Katrín Sif Sigurgeirsdóttir læknaritari
8. Einar Ármannsson stýrimaður
9. Kristrún Elsa Harðardóttir háskólanemi
10. Sigurður Örn Jakobsson fiskeldisfræðingur
11. Guðrún Sigriks Sigurðardóttir grunnskólakennari
12. Ásberg Lárentsínusson, fv. verkstjóri
13. Elsa Unnarsdóttir, fv. verkakona
14. María Sigurðardóttir bæjarfulltrúi
Listi Samfylkingar
og óháðra í Ölfusi
TILLAGA uppstillingarnefndar að L-lista, framboðslista Samtaka fé-
lagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði – Héraðslisti, var samþykktur samhljóða
á félagsfundi 4. apríl sl. Listann skipa:
1. Baldur Pálsson slökkviliðsstjóri
2. Jónína Rós Guðmundsdóttir menntaskólakennari
3. Katrín Ásgeirsdóttir húsmóðir
4. Árni Ólason íþróttakennari
5. Þorsteinn Bergsson bóndi
6. Guðný Drífa Snæland, leiðbeinandi í leikskóla
7. Ásmundur Þórarinsson skógarbóndi
8. Margrét Hákonardóttir leikskólastjóri
9. Þorbjörn Rúnarsson áfangastjóri
10. Ireneusz Kolodziejczyk rafvirki
11. Edda E. Egilsdóttir þjónustufulltrúi
12. Sigfús Ingi Víkingsson trésmiður
13. Lára Vilbergsdóttir framhaldsskólakennari
14. Anna Guðný Árnadóttir hjúkrunarfræðingur
Listi félagshyggjufólks
á Fljótsdalshéraði
FRAMBOÐSLISTI Álftaneshreyfingarinnar var kynntur á fundi 4. apríl sl.
Listann skipa:
1. Sigurður Magnússon bæjarfulltrúi, myndlistarmaður og framkvæmda-
stjóri
2. Margrét Jónsdóttir viðskiptafræðingur
3. Kristján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi og lögg. rafverktaki
4. Kristín Fjóla Bergþórsdóttir kennari
5. Sigurbjörn Úlfarsson, bæjarfulltrúi og sölufulltrúi
6. Steinunn Helgadóttir leirkerasmiður
7. Kristinn Guðmundsson líffræðingur
8. Ásdís Bragadóttir talmeinafræðingur
9. Björn Árni Ólafsson háskólanemi
10. Hrefna Guðmundsdóttir læknir
11. Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður
12. Kristín María Dýrfjörð, sölufulltrúi og vefstjóri
13. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands
14. Guðfinna Sigurbjörnsdóttir, starfsmaður Frístundar
Listi Álftanes-
hreyfingarinnar
FÉLAG sjálfstæðismanna í
Nes- og Melahverfi efnir til ár-
legrar páskaeggjaleitar á
pálmasunnudag 9. apríl kl. 14, á
Ægisíðunni við grásleppu-
skúrana.
Leitað verður að skreyttum
eggjum. Börnin fá súkkulaðiegg
frá Nóa- Síríus, einnig verða
leiktæki og hoppkastali á staðn-
um. Keppt verður í húllakeppni
og boðið upp á andlitsmálun.
Páskaeggjaleit á Ægisíðunni
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð beinir þeim eindregnu til-
mælum til ríkisstjórnarinnar að
veita þegar í stað fjármagn til
hjúkrunarheimila og dvalarheimila
aldraðra svo bæta megi kjör lægst
launaða starfsfólksins.
„Fyrirsjáanleg er mjög alvarleg
mannekla á þessum stofnunum því
hvorki fæst fólk þar til starfa, né
helst fólk við í starfi, vegna bágra
launakjara.
Umönnun og þjónusta við aldr-
aða er ábyrgðarfullt og krefjandi
starf. Ör starfsmannavelta eykur
vanlíðan og dregur úr lífsgæðum
þeirra sem verða að treysta á þjón-
ustu öldrunarheimila eða heima-
þjónustu sveitarfélaga. Störf á
hjúkrunarheimilum eru þjóðfélag-
inu mikilvæg og brýnt að því fólki
sem þar ræðst til starfa, hvort
heldur í umönnunar- og aðhlynn-
ingarstörf á stofnunum eða í
heimaþjónustu, verði tryggð góð
kjör. Vinstrihreyfingin – grænt
framboð hvetur fjármálaráðherra
til þess að efna þegar í stað til
fundar með forsvarsmönnum
þeirra stofnana sem í hlut eiga um
þann vanda sem nú blasir við.
Hann er fyrst og fremst fjárhags-
legs eðlis og ábyrgðin er hjá rík-
isstjórninni.“
Meira fjármagn til
stofnana aldraðra
EIÐAFÓLK kemur saman í Stang-
arhyl 4 síðasta vetrardag, 19. apríl,
kl. 20 og rifjar upp gömul kynni.
Spjallað verður og boðið upp á
kaffiveitingar. Fólk sem var á Eið-
um 1945–1953 og fleiri velkomnir.
Tilkynna þarf þátttöku hjá eft-
irtöldum: Guðmundur Vilhjálms-
son, Gyða Ragnarsdóttir, Heiðrún
Sigurbjörnsdóttir, Heimir Þór
Gíslason, Hjördís Guðlaugsdóttir,
María Frímannsdóttir, Ólafur Ein-
arsson, Rannveig Haraldsdóttir og
Helgi Seljan.
Eiðafólk kemur
saman í
Stangarhyl
FINNUR Ingólfsson,
forstjóri VÍS, hefur af-
hent Sjónstöð Íslands
bréf til staðfestingar því
að félagið færir henni að
gjöf að verðmæti hátt í
fjórar milljónir króna;
tæki og búnað sem valda
straumhvörfum í þjón-
ustu við börn sem þurfa
mjög sterk gleraugu eða
snertilinsur til að bæta
sér upp missi augasteina
skömmu eftir fæðingu.
Guðmundur Viggós-
son yfirlæknir og Kristín Gunnars-
dóttir sjóntækjafræðingur veittu
gjöfinni viðtöku og létu þess getið að
tækin myndu gjörbreyta tilveru
margra skjólstæðinga þeirra til
batnaðar og í raun gagnast flestu
blindu og sjónskertu fólki sem Sjón-
stöðin þjónar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á myndinni má sjá Jón Þorberg
Óttarsson, 8 ára Kópavogsbúa, sem
fékk fjórtándu og (vonandi) síðustu
gleraugun sín afhent hjá Kristínu
Gunnarsdóttur, sjóntækjafræðingi á
Sjónstöð Íslands. Hann fæddist með
gallaða augasteina. Þeir voru fjar-
lægðir þegar hann var þriggja mán-
aða og þá fékk hann fyrstu gleraug-
un sín, sterk og þykk. Nú blasir við
að hann fái linsur innan tíðar, þökk
sé VÍS. Auk Jóns Þorbergs og Krist-
ínar eru á myndinni Finnur Ingólfs-
son, forstjóri VÍS, og Anna Kristín
Hauksdóttir, móðir Jóns Þorbergs.
VÍS styrkir
Sjónstöð Íslands