Morgunblaðið - 08.04.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 57
DAGBÓK
Frá hausti 2005 hefur félagsvísindadeildHáskóla Íslands með stuðningi Þróun-arsamvinnustofnunar Íslands boðið uppá MA- og diplómanám í þróunarfræðum.
Jónína Einarsdóttir, dósent í mannfræði, er
ábyrgðarmaður framhaldsnámsins: „Stuðningur
Þróunarsamvinnustofnunar hefur gert okkur kleift
að fjármagna stöðu til að starfrækja þessa náms-
leið. Annars vegar er hægt að stunda 60 eininga
meistaranám, en í því námi vinna nemendur rann-
sóknarverkefni og eru þannig undirbúnir bæði
undir vinnu að þróunarverkefnum og þjálfaðir í
rannsóknarvinnu. Nemendur geta valið rannsókn-
arefni sitt úr breiðu sviði en einnig veitir Þróunar-
samvinnustofnun aðgang að sínum þróunarverk-
efnum,“ segir Jónína. Ýmsir styrkir standa til boða
og hefur Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýst
námsstyrki fyrir framhaldsnemendur í þróunar-
fræðum og einnig nefnir Jónína að Afríkustofnunin
í Uppsala veiti styrki til rannsóknarverkefna í Afr-
íku, svo dæmi séu nefnd.
„Hins vegar er diplómanámið, sem er mun
styttra, eða aðeins 15 einingar. Þar er fyrst og
fremst farið yfir kenningar um þróun samfélaga og
mismunandi leiðir til þróunaraðstoðar auk val-
náms eftir áhugasviði.“
Þróunarfræði (e. development studies) fjalla um
þróun samfélaga og samfélagsbreytinga. Sérstök
áhersla er á lönd þriðja heimsins, en þó ekki fjallað
um þau eingöngu, og bendir Jónína á að mörg
áhugaverð þróunarverkefni megi finna á norður-
slóðum.
„Með náminu á fólk að verða betur í stakk búið
að vinna að þróunarverkefnum. Á það jafnt við um
fólk sem vinnur við fræðslu, starfsmenn og sendi-
fulltrúa frjálsra félagasamtaka og ríkis, kirkju eða
alþjóðastofnana.“
Þá nefnir Jónína að fólk yngra en 32 ára geti sótt
um starfsþjálfun við þróunarsamvinnuverkefni hjá
utanríkisráðuneytinu og Þróunarsamvinnustofn-
un. Auglýstar hafa verið stöður í Malaví, Mósamb-
ík, Namibíu, Níkaragúa, Sri Lanka og Úganda, og
á vegum SÞ í Barbados, Indlandi og Kenía.
Nám í þróunarfræðum er opið umsækjendum
frá öllum námsbrautum háskólanáms sem lokið
hafa grunngráðu. Námið er þverfaglegt og hentar
námsmönnum með margs konar bakgrunn, allt frá
sviði menntunar og heilbrigðisþjónustu til stjórn-
sýslu og félagsvísinda. Auk MA og diplómanáms í
þróunarfræðum stendur MA-nemum í mannfræði
nú til boða að taka mannfræði þróunar sem sér-
svið.
Umsóknarfrestur fyrir meistaranám í þróun-
arfræðum er 18. apríl en 6. júní fyrir diplómanám.
Nánari upplýsingar má finna á slóðinni http://
felags.hi.is/page/mannfraedi.
Menntun | Nýtt þverfaglegt nám undirbýr fólk undir störf við þróunarverkefni
Þróunarfræðinám við HÍ
Jónína Einarsdóttir
fæddist í Reykjavík
1945. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum á Laugavatni
1974, BS í efnafræði
1978 og hlaut kennslu-
réttindi frá HÍ 1980.
Jónína lauk námi í mál-
efnum þróunarlanda frá
Uppsalaháskóla 1987,
BA 1988 og doktors-
prófi í mannfræði 2000 frá Stokkhólmshá-
skóla. Jónína hefur starfað sem kennari á Ís-
landi og Gíneu-Bissau. Hún vann á Rann-
sóknarstofu um þróunarmál við mannfræði-
deild Stokkhólmsháskóla og stundaði
vettvangsrannsóknir í Gíneu-Bissá og á Ís-
landi. Jónína er dósent í mannfræði við mann-
fræðiskor HÍ. Hún er gift Geir Gunnlaugssyni
barnalækni og eiga þau þrjá syni.
Upplýsum fermingarbarnið
Í ALLAR þessar fermingarveislur
sem nú eru haldnar er boðið gömlum
frændum og frænkum sem ferming-
arbarnið kann engin deili á. Ég fór í
fermingarveislu sl. sunnudag. Áður
en ég fór fór ég inn í islendingabók.is,
prentaði út skyldleika minn við ferm-
ingarbarnið, setti það inn í ferming-
arkortið og skrifaði svo á kortið. Mig
langar að koma þessari hugmynd
áfram og held að það sé sniðugt fyrir
fermingarbarnið að vita hver þessi
frænka sé.
Hulda Guðmundsdóttir.
Spurning
TIL hvers að reisa húsnæði fyrir
eldri borgara ef enginn er til að þjón-
usta þá?
Gamalmenni.
Þakkir
HJARTANS þakklæti, Jónas og
Diddú, fyrir tilveru ykkar í Græna
herberginu.
Unnandi.
„Er ekki allt í lagi?“
VIÐ vinkonurnar erum mjög tryggir
áhorfendur þáttarins „Glæstar vonir“
og við erum ekki sammála Sig-
urbjörgu sem kvartar undan því að
Stöð 2 hoppi fram um tvö ár með
þáttinn.
Teljum við að þessi ákvörðun hafi
verið mjög sniðug hjá þeim þar sem
við vorum mörgum árum á eftir þeim
þáttum sem nú eru sýndir í Banda-
ríkjunum. Við verðum ekki hissa á því
að Brooke sé búin að eignast barn né
hissa á því að Ridge og Brooke giftist
í þriðja sinn, þar sem hægt er að lesa
um allt það sem hefur gerst á þessum
tveimur árum á heimasíðu Stöðvar 2.
Frábært framtak hjá Stöð 2!
Tvær stúdínur í Vesturbænum.
Ronja er komin heim
RONJA, kisan sem auglýst var eftir í
Velvakanda fyrir nokkrum dögum, er
komin í leitirnar eftir u.þ.b. 8 daga
volk. Að vonum eru allir á heimilinu
mjög glaðir með lyktir málsins því
það er búið að fara margar árangurs-
lausar leitarferðir.
Nokkrir árvökulir lesendur Vel-
vakanda hafa hringt (sem sagt verið
vaknaðir) og talið sig jafnvel hafa séð
Ronju (t.d. á Selfossi) og við höfum
haft samband við ýmsa aðila sem of
langt mál væri upp að telja. Þeim að-
ilum eru færðar bestu þakkir fyrir
sínar ábendingar og aðstoð.
En Ronja leysti úr málunum með
því að skila sér heim þriðjudaginn 4.
apríl og hefur lofað að gera svona lag-
að aldrei aftur.
Hún dvelst nú til hressingar og
endurhæfingar á heimili sínu og hef-
ur aldrei verið glaðari á sinni 9 mán-
aða ævi.
Með kærri þökk fyrir birtinguna,
Sigmar Þór Óttarsson,
Laugavegi 128, Rvk.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Bc4 b5 7. Bb3 e6 8. Be3
Rbd7 9. f4 Bb7 10. f5 e5 11. Rf3 Be7 12.
Rd2 Hc8 13. O-O O-O 14. a3 Rb6 15.
Kh1 Dc7 16. De2 Hfd8 17. Had1 d5 18.
Bxb6 Dxb6 19. exd5 Bxa3 20. Rde4
Bxb2 21. Rxf6+ Dxf6 22. Re4 Db6 23. f6
g6 24. Dd2 Ba3
Staðan kom upp á opna alþjóðlega
Reykjavíkurmótinu sem lauk fyrir
skömmu í skákmiðstöðinni í Faxafeni
12. Mohammed Tissir (2444) hafði svart
gegn Halldóri Brynjari Halldórssyni
(2226). 25. d6! og svartur gafst upp þar
sem hann yrði óverjandi mát eftir 25...
Bxe4 26. Dh6 og 25...Bxd6 26. Rxd6
hefði í för með sér mannstap.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Eitt lítið grand.
Norður
♠D96
♥K843
♦G92
♣G83
Suður
♠Á54
♥D62
♦ÁD3
♣Á1042
Suður opnar á 15–17 punkta grandi
og þar enda sagnir. Út kemur lítill tíg-
ull – nían úr borði, tían og drottning.
Það er álitamál hvar eigi að leggja til
atlögu, en einhvers staðar verður að
byrja og það er ekki verra en hvað ann-
að að spila litlu hjarta á kónginn.
Vestur lætur gosann og kóngurinn á
slaginn.
Hvað svo?
Norður
♠D96
♥K843
♦G92
♣G83
Vestur Austur
♠KG102 ♠873
♥G ♥Á10975
♦K8654 ♦107
♣965 ♣KD7
Suður
♠Á54
♥D62
♦ÁD3
♣Á1042
Michael Rosenberg var í austur og
fann þá hárfínu vörn að dúkka hjarta-
kónginn fumlaust. Sagnhafi gerði sér
vonir um að vestur hefði byrjað með
ÁG tvíspil og spilaði næst litlu hjarta
úr borði – sjöan frá Rosenberg, sexan
frá suðri og … lauf!
Rosenberg tók þrjá slagi í viðbót í
hjarta, spilaði svo tígli og sagnhafi end-
aði tvo niður. Á hinu borðinu fór sveit-
arfélagi Rosenbergs einn niður á
þremur gröndum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hlutavelta | Þær
Dagbjört Andr-
ésdóttir og Hulda
Margrét söfnuðu
3.500 kr. sem þær
afhentu Rauða
krossi Íslands til
styrktar bág-
stöddum börnum.
Fréttir
í tölvupósti