Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 62

Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÞÉR MUN STANDA AF HLÁTRI! www.xy.is Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!! Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 2, 4 og 6 Date Movie kl. 4, 8 og 10 B.i. 14 ára Big Momma´s House 2 kl. 2 N ý t t í b í ó Ice Age 2 m/ensku tali kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10 Ice Age 2 m/ensku tali í Lúxus kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 12, 2, 4, 6 og 8 Date Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára Big Momma´s House 2 kl. 1.30, 3.40, 5.45, 8 og 10.15 Pink Panther kl. 1.30, 3.50 og 10.10 Ein stærsta opnun allra tíma í USA ! RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR „FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN... OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM Sýnd með íslensku og ensku tali eee LIB, Topp5.is FRÁ ÖLLUM HANDRITS-HÖFUNDUM „SCARY MOVIE“ 2 af 6 ROKKSVEITIN Singapore Sling verður með tónleika á skemmti- staðnum Grand rokki í kvöld. Um er að ræða fyrstu tónleika sveit- arinnar eftir að plata hennar, Taste the Blood of Singapore Sling, kom út í byrjun þessa árs. Í frétta- tilkynningu segir að sveitin muni að öllum líkindum spila öll lögin af nýju plötunni utan eins, auk eldri laga. Þá mun hún flytja lagið „I hate you“ sem hljómsveitin The Monks flutti upprunalega, en út- gáfa Singapore Sling verður á væntanlegum safndiski sem gefinn verður út til heiðurs The Monks í sumar. Auk Singapore Sling leika hljóm- sveitirnar Hölt Hóra og Gavin Port- land á tónleikunum. Hölt Hóra hef- ur ekki leikið á tónleikum síðan á Iceland Airwaves-hátíðinni í októ- ber, en á tónleikunum í kvöld mun sveitin frumflytja nýtt efni í bland við eldri smelli. Gavin Portland hef- ur vakið þó nokkra athygli að und- anförnu en stutt er í að sveitin sendi frá sér nýja plötu. Tónleikar | Singapore Sling stígur á svið á Grand rokki í kvöld Morgunblaðið/Sigurjón Guðjóns Um er að ræða fyrstu tónleika Singapore Sling í nokkuð langan tíma. Rokkað á Smiðjustíg Singapore Sling, Hölt hóra og Gavin Portland á Grand rokki í kvöld. Húsið verður opnað klukkan 23. Aðgangseyrir er 500 krónur. EIRÍKUR Orri Ólafsson og félagar stigu á svið á djasstónleikum Múlans í Þjóðleikhúskjallaranum á miðvikudags- kvöldið. Þarna leiddu saman hesta sína nokkrir af fremstu djassistum yngri kynslóðarinnar. Með Eiríki Orra, sem spilar á trompet, voru Jóel Pálsson saxófónleikari, Róbert Sturla Reynisson gítarleikari, Valdimar K. Sigurjónsson kontrabassaleikari og ameríski trommuleikarinn Scott McLemore. Í jazzFréttum segir m.a. að þeir hafi vakið athygli fyrir persónulega og ný- stárlega nálgun á hinu gamalgróna djassformi. „Á meðan aðrir jazzleikarar á svipuðu reki hafa látið sér nægja að liggja umhugsunarlaust á uppþornuðum spena jazzgyðjunnar hafa þessir menn bitið og klórað, gripið í tómt en um leið skapað rými í griplitlu tóminu,“ segir þar einnig. Hafa skapað rými í griplitlu tóminu Múlinn stendur reglulega fyrir djasstónleikum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eiríkur Orri Ólafsson og Jóel Pálsson. Á Akureyri hefur verið stofnað fé-lagið Norðlenska dýrið sem ætlað er að vera einskonar akureysk útgáfa af Tónlistarþróunarmiðstöð- inni í Reykjavík. Fyrstu tónleikar félagsins verða haldnir í kvöld á Sjallanum þar sem sex norðlenskar hljómsveitir hyggjast troða upp. Þær sveitir sem fram koma í kvöld eru Thingtak (alþingi), Helgi og hljóðfæraleikararnir, Hugsýki, Infiniti, Grass og ungu nýliðarnir í Mistri. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og fyrstu 50 gestirnir fá veglegan glaðning. Búast má við hressum og fjölbreyttum rokktónleikum. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.