Morgunblaðið - 08.04.2006, Page 63
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
2 fyrir 1
fyrir viðskiptavini
Gullvild Glitnis
eee
L.I.B. - Topp5.is
eee
S.K. - Dv
walk
the line
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 3, 6, 8 og 10
Lucky Number Slevin kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
The Producers kl. 8 og 10.45
Walk the Line kl. 2.40, 5.15, 8 og 10.45
Rent kl. 2.40 og 5.20 B.i. 14 ára
Páskamyndin í ár
ÞÉR MUN STANDA
AF HLÁTRI!
Sýnd kl. 8 og 10 b.i. 14
-bara lúxus
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 b.i. 16 ára Sýnd kl. 2, 4 og 6 ÍSLENSKT TAL
kl. 8 og 10.20 b.i. 14 ára
Páskamyndin í ár
Ein stærsta opnun
allra tíma í USA !
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
„FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN...
OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM
eee
LIB, Topp5.is
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 2 og 4
www.xy.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6
200 kr. afsláttur
fyrir XY félaga
eee
V.J.V Topp5.is
eee
V.J.V Topp5.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 63
BARÐI Jóhannsson, oftast kenndur við Bang Gang,
mun í kvöld þeyta skífum ásamt franska plötusnúðnum
Cosmo Vitelli á skemmtistaðnum Café Oliver við Lauga-
veg. Um er að ræða fyrsta kvöldið af þremur þar sem
franskir plötusnúðar og hljómlistarmenn þeyta skífum
ásamt Barða, en kvöldin eru haldin í samvinnu við
franska sendiráðið. Segir í fréttatilkynningu að tilgang-
urinn með þessum kvöldum sé meðal annars að efla
menningarleg samskipti Frakka og Íslendinga. Næsta
uppákoma verður föstudagskvöldið 28. apríl en þá mun
Barði spila ásamt M83. Þriðja og síðasta uppákoman fer
svo fram laugardagskvöldið 3. júní þegar Barði mun
spila ásamt Keren Ann, en saman kalla þau sig Lady &
Bird.
Frá Tókýó til London
Cosmo Vitelli hefur endurhljóðblandað og útsett tón-
list þekktra flytjenda á borð við Daft Punk, Cassius,
Super Discount, Benjamin Diamond og Scratch Massive.
Síðastliðin ár hefur hann starfað sem plötusnúður víðs
vegar um heiminn og hefur hann meðal annars spilað í
Tókýó og London. Þá hefur hann verið tíður gestur á Le
Nouveau og Le Pulp sem eru á meðal vinsælustu
skemmtistaða í París. Á síðasta ári stofnaði Vitelli sitt
eigið útgáfufyrirtæki sem ber nafnið I’m a Cliche, en
hann vinnur nú að nýrri plötu.
Tónlist | Frönsk-íslensk tónlistarveisla á Café Oliver
Morgunblaðið/Þorkell
Barði mun koma fram ásamt Keren Ann hinn 3. júní.
Barði Cosmo
Cosmo Vitelli er einn vinsælasti plötusnúðurinn í
Frakklandi um þessar mundir.
Barði Jóhannson og Cosmo Vitelli stíga á svið um mið-
nættið. Aðgangur er ókeypis.
HÆSTIRÉTTUR Bretlands sýkn-
aði Dan Brown, höfund Da Vinci-
lykilsins, í gær af ákæru um rit-
stuld. Brown sætti ákæru fyrir að
hafa nýtt sér aðalatriði í bókinni
The Holy Blood And The Holy
Grail eftir Michael Baigent og
Richard Leigh, í bók sinni sem
kom út árið 2003 og hefur selst í
meira en 30 milljónum eintaka
víða um heim.
Í yfirlýsingu frá Brown kom eft-
irfarandi fram: „Niðurstaða dóms-
ins í dag sýnir að ákæran var full-
komlega tilefnislaus. Ég er enn
mjög hissa á að þessir tveir rithöf-
undar hafi ákveðið að leggja fram
kæru yfirleitt.“ Báðar bækurnar
sem um ræðir, sem koma út hjá
sama útgáfufélaginu, Random
House, fjölluðu um þá hugmynd
að Jesús Kristur hefði gifst Maríu
Magdalenu, átt með henni börn og
að afkomendur þeirra lifðu enn í
dag.
Skriður komst á málið fyrir
dómstólum í lok febrúar, þegar
Dan Brown sagðist ekki hafa lesið
The Holy Blood and The Holy
Grail fyrr en á
síðari stigum
vinnu sinnar við
Da Vinci-lyk-
ilinn. Hann við-
urkenndi þó að
mikill hluti
rannsóknarvinn-
unnar við bók-
ina hefði verið
unnin af eig-
inkonu hans, Blythe, sem kom
ekki fyrir rétt. Lögfræðingur
sækjenda sagði að sannanir
Browns um að vera ekki sekur um
ritstuld ætti að skoða með mikilli
tortryggni.
Hefði dómurinn fallið sækj-
endum í vil, gegn Brown, hefði
það mögulega frestað frumsýn-
ingu á kvikmyndinni Da Vinci-
lykillinn í Bretlandi, sem ráðgerð
er 19. maí.
Dan Brown ekki sekur
Dan Brown