Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
TVEGGJA sólarhringa setuverk-
falli ófaglærðs starfsfólks á tíu
hjúkrunar- og dvalarheimilum lauk
á miðnætti. Starfsmenn eru hóflega
bjartsýnir á árangur af þessum að-
gerðum, og ætla að hittast á mánu-
dag til að ræða frekari aðgerðir,
þar á meðal uppsagnir.
„Okkur sýnist stjórnvöld ætla að
bíða eftir hinu versta, og við erum
algerlega hundsaðar,“ segir Þóra
Jones, einn trúnaðarmanna ófag-
lærðs starfsfólks á hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ. „Ófaglærðir starfs-
menn eru virkilega stór hlekkur í
því að hjúkrunarheimili gangi sem
skyldi. Okkar starf er gróflega van-
metið í samfélaginu, og jafnvel
finnur maður fyrir því að það sé lit-
ið niður á þetta starf. Þetta end-
urspeglast í laununum.“
Aðstandendur reyndu margir
hverjir að hafa hönd í bagga með
að vistmenn á hjúkrunarheimilun-
um gætu komist fram úr rúmi.
Þóra Þorleifsdóttir var að aðstoða
eiginmann sinn, sem dvelur á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
þegar Morgunblaðið leit í heimsókn
í gær.
Mikilvægt starf
en launin hneyksli
„Mér finnst launin hjá þessu fólki
algert hneyksli, eins og þetta er
mikilvægt starf í samfélaginu. Ég
veit ekki hvort ráðamenn geri sér
grein fyrir mikilvæginu,“ sagði
Þóra.
Hún sagðist vonast til þess að
ráðamenn hugsi sinn gang og reyni
að koma til móts við kröfur starfs-
fólksins. Óskiljanlegt sé hvernig
hægt sé að byggja upp fleiri hjúkr-
unarheimili þegar ekki sé hægt að
manna þau, og pláss sem losni á
þeim hjúkrunarheimilum sem fyrir
eru nýtist ekki þar sem skortur sé
á starfsfólki.
Þóra segir miður að athygli fjöl-
miðla hafi frekar beinst að því sem
sé að gerast í Kauphöllinni en því
sem sé að gerast á hjúkrunarheim-
ilunum, lítið hafi verið fjallað um
launadeilu ófaglærða starfsfólksins,
og yfirleitt fái fréttir af peningum
meira vægi en fréttir af fólki.
Setuverkfalli ófaglærðs starfsfólks á hjúkrunarheimilum lokið
Uppsagnir verða rædd-
ar á fundi eftir helgi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þóra Þorleifsdóttir hefur haft í nógu að snúast við að aðstoða mann sinn vegna setuverkfallsins.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Kemur til greina | 11
KVENNALIÐ Hauka varð í gær-
kvöld Íslandsmeistari í körfuknatt-
leik í fyrsta sinn með sigri á Kefla-
vík, Íslandsmeisturum síðasta árs,
81:77, á Ásvöllum í gær. Lið Hauka
bar höfuð og herðar yfir önnur lið á
Íslandsmótinu á þessu keppnistíma-
bili og varð deildabikarmeistari,
deildarmeistari og vann fimm af sex
viðureignum sínum í úrslitakeppn-
inni. „Í fyrsta lagi er ég með frábær-
an hóp sem er tilbúinn að vaða eld
og brennistein til að vinna og mætir
oft tvisvar á dag á æfingar. Svo er
frábær stjórn hjá deildinni sem hef-
ur gaman af sínu starfi,“ sagði
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Íslands-
meistaranna. | Íþróttir
Morgunblaðið/Sverrir
Íslandsbik-
arinn til Hauka
í fyrsta sinn
ÞORLÁKSTÍÐIR koma úr tónlist-
arhandriti frá því um 1400 og er
nokkurs konar óður til dýrlingsins
Þorláks Þórhallssonar sem var bisk-
up í Skálholti á 12. öld.
Sönghópurinn Voces Thules hefur
síðustu tólf ár skoðað handrit Þor-
lákstíða og afrakstur þeirrar vinnu
var að koma út á þremur geisladisk-
um, einum mynddiski og listbók og
mun sönghópurinn halda útgáfutón-
leika í kvöld þar sem þeir syngja
brot úr verkinu. Sverrir Guðjónsson,
einn meðlimur Voces Thules, segir
Þorlákstíðir vera íhugunartónlist
klaustranna og byggjast á flæði. | 28
Voces Thules
syngja
Þorlákstíðir
♦♦♦
VERULEGA hefur dregið úr fjölgun
innan sjúkraliðastéttarinnar og mun
leiða til þess að skortur á sjúkraliðum
mun aukast mikið á næstu tíu til
fimmtán árum, segir í skýrslu Hörpu
Guðnadóttur og Sólveigar Jóhanns-
dóttur, sérfræðinga hjá Hagfræði-
stofnun, þar sem tekin er fyrir staða
og spár um þróun mannafla í fjórum
heilbrigðisstéttum. Skýrslan var
kynnt á morgunverðarfundi, sem
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið efndi til í tilefni Alþjóðaheil-
brigðisdagsins, í gær.
Í skýrslunni kemur fram að á ár-
unum 1968 til 1985 hafi árleg fjölgun í
sjúkraliðastéttinni að jafnaði verið
um 15%, en á árunum eftir það hafi
fjölgunin ekki verið nema 2%. Sjúkra-
liðafélag Íslands metur það svo að
skortur á sjúkraliðum í dag sé um
16% og ljóst að sú prósenta mun
hækka mikið á næstu árum því mikil
skekkja er í aldursdreifingu stéttar-
innar. Flestir sjúkraliðar eru á aldr-
inum 43 til 56 ára og vegna mjög lé-
legrar nýliðunar inn í stéttina er við
því að búast að stórt vandamál skap-
ist innan fárra ára, þegar stór hópur
sjúkraliða dettur út af vinnumarkaði
sökum aldurs.
Framtíðarhorfur ekki góðar
Horfurnar eru ekki aðeins slæmar
hjá sjúkraliðum því einnig má búast
við vandamálum meðal hjúkrunar-
fræðinga. Þar eru flestir á aldurs-
bilinu 40 til 50 ára og ef ekkert verður
að gert stefnir jafnvel í óefni hjá
hjúkrunarfræðingum. Ekki liggur
fyrir hversu stór hópur hjúkrunar-
fræðinga á rétt á eftirlaunum um sex-
tugt samkvæmt 95 ára reglunni en
þróunin gæti hugsanlega orðið alvar-
legri eftir stærð þess hóps. Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga metur
skortinn í dag vera um 14% en í ljósi
atburða síðustu daga hjá hjúkrunar-
fræðingum má ætla að framtíðarhorf-
urnar séu ekki góðar.
Meðal lækna og sjúkraþjálfara eru
horfurnar betri en vöxtur lækna er að
jafnaði 3,4% á ári og hjá sjúkraþjálf-
urum um 8% að jafnaði á ári og að
mati skýrsluhöfunda er ekki hætt á
skorti innan þeirra stétta.
Skýrslan er unnin fyrir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið og áætla
skýrsluhöfundar að hún verði fullbúin
eftir hálfan mánuð.
Skortur á sjúkraliðum mun aukast mikið á næstu árum
Nýliðun ekki nægi-
leg og stefnir í óefni
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Flestir sjúkraliðar eru á aldrinum 43–56 ára og vöxtur í stéttinni er ónógur.
UM fimmtán ný störf gætu
skapast í fiskvinnslu á Bíldudal
á næstu mánuðum en fundað
var um framtíð hennar í bæn-
um í gær. Fyrirtækið Bílddæl-
ingur hf. lagði niður fiskvinnslu
á Bíldudal og sagði upp öllu
starfsfólki sínu í byrjun júní á
síðasta ári.
„Fundurinn vakti vonir til
þess að það gæti farið að gerast
eitthvað í þessu máli,“ segir
Guðmundur Guðlaugsson, bæj-
arstjóri Vesturbyggðar. „Menn
hafa verið að skoða undanfarna
mánuði vinnslu fersks fisks til
útflutnings og fiskeldi í
tengslum við rannsókn hjá Haf-
rannsóknastofnun. Það er ým-
islegt að gerjast sem við teljum
mikla möguleika í. Ég vænti
þess að það gerist eitthvað í
þessu á næstu mánuðum.“
Guðmundur segir útfærslu-
atriði sem enn eigi eftir að
ganga frá hvaða fjárfestar komi
að uppbyggingunni.
„Það koma ýmsir að þessu,“
segir hann. „Ég vænti þess að
um fimmtán ný störf gætu
skapast og er mjög ánægður
með þennan fund.“
Bjartari
horfur í
fiskvinnslu
á Bíldudal