Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 115. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Skapandi nám barna Í leik og tækni er hægt að efla námsmöguleika barna | Miðopna Lesbók, M-ið, Börn, Íþróttir og Enski TRAUSTAR vísbendingar eru um að Írönum hafi tekist að auðga úran og teikningar af kjarnorku- vopnum, sem þeir hafa komist yfir, benda til þess að þeir vinni með leynd að þróun kjarnorkuvopna. Þetta kom fram hjá Mohamed ElBaradei, yfir- manni Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær er hann kynnti nýja skýrslu um málið. Forseti Ír- ans, Mahmoud Ahmadinejad, segir að ekkert geti stöðvað kjarnorkutilraunir landsmanna og Íran hafi burði til að verða senn nýtt risaveldi. Mánaðarlangur frestur, sem öryggisráðið hafði veitt Írönum til að stöðva tilraunirnar, rann út í gær. Talsmenn Vesturveldanna sögðu óviðunandi að Íranar hunsuðu áfram kröfur SÞ um að þeir hættu tilraununum. En Vesturveldin lögðu sam- tímis áherslu á að reynt yrði til þrautar að finna friðsamlega lausn á deilunni sem staðið hefur í fjögur ár. Íranar eru aðilar að alþjóðasamningi um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna og segjast ein- göngu stunda tilraunir með nýtingu kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. En eftirlitsmenn IAEA kvarta mjög undan skorti á samstarfsvilja stjórn- valda í Teheran sem neiti að veita þeim mikilvæg- ar upplýsingar og óheftan aðgang að tilrauna- stöðvum. Þykir það benda til að Íranar hafi óhreint mjöl í pokahorninu og vinni að vopnasmíði. „Eftir rúmlega þriggja ára tilraunir stofnunar- innar til að fá yfirsýn yfir allar hliðar kjarnorku- áætlunar Írana er skorturinn á upplýsingum enn áhyggjuefni,“ segir m.a. í skýrslunni. Ahmadinejad Íransforseti var sem fyrr skor- inorður í gær um ályktanir SÞ. „Írönsku þjóðinni er fjandans sama um svona gagnslausar álykt- anir,“ sagði hann á fundi í borginni Khorramd- areh. „Þeir sem grípa til þess að hóta þvingunum skulu vita að þjóð okkar krefst kjarnorku og fyrir náð Guðs er Íran nú kjarnorkuveldi.“ Bætti hann því við að Íran hefði getu til að verða mjög fljót- lega „risaveldi“, orð sem gjarnan er notað til að lýsa hernaðarmætti Bandaríkjanna og Rússlands. Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, John Bolton, sagði í gær að lögð yrði fram tillaga um ályktun í öryggisráðinu sem kvæði á um refsiaðgerðir. Reynt verður í næstu viku að ná samstöðu en bæði Rússar og Kínverjar hafa lagst gegn harkalegum aðgerðum af hálfu öryggisráðsins. Hunsa kröfur öryggisráðs SÞ Reuters Íranar í Teheran hrópa slagorð til stuðnings kjarnorkutilraunum landsmanna við bænir í gær. Ahmadinejad segir Íran hafa alla burði til að verða senn „risaveldi“ Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is LITLA hafmeyjan gerir ímynd Dana nú meira tjón en gagn og menn eiga að leggja frekar áherslu á að Danmörk sé land nútímalegra lífshátta, minna á uppfinningar, vindmyllur og danska hönnun. Þetta kemur fram í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Advice gerði fyrir danska utanríkisráðuneytið og sagt var frá í blaðinu Berlingske Tidende í gær. Einnig er lagt til að minnt sé á fé- lagslega ábyrgðartilfinningu Dana, umhverfisverndarstefnuna, hefð fyrir því að ræða samfélagsmál í þaula og gera tilraunir. Hafmeyjan, hirðin og vinalega bóndabýlið eigi að víkja fyrir Kristjaníu, Lars von Trier og nýtísku vindmyllum sem Danir framleiða geysimikið af. Ráðuneytið lét gera skýrsluna eftir deilurnar um skopteikning- arnar af Múhameð spámanni. Sagt er að útlendingar hafi áður séð fyrir sér gömul hús, konungsfjölskyldu, litlu hafmeyjuna og kát börn sem hámuðu í sig rauðgraut með rjóma þegar minnst var á Danmörku. Eft- ir deilurnar hafi þessi gamla ímynd fremur valdið tjóni en gagni. „Hún undirstrikar að við séum upptekin af okkur sjálfum, feit og vel alin þjóð og það er ekki heppi- legt nú þegar fólk dregur í efa að við kunnum að haga okkur eins og heimsborgarar sem sýni menningu og hefðum annarra þjóða virðingu,“ segir Jesper Højberg sem starfar hjá Advice. Morgunblaðið/Ómar Hafmeyjan orðin púkó? Á SÍÐASTA ári létust 42 einstak- lingar á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi (LSH) á meðan þeir biðu eftir hjúkrunarrými. Sumir höfðu beðið í marga mánuði. „Eðlilegt hefði verið að þessir einstaklingar nytu forgangs að hjúkrunarrými á ævikvöldinu,“ segir í árskýrslu LSH, þar sem fjallað er um útskriftar- vanda í þjónustu við aldraða. Á síðasta ári biðu að jafnaði 60–80 aldraðir sjúklingar á LSH eftir var- anlegri vistun. Tveir af hverjum þremur voru á öldrunarsviði. Því seinkar innlögnum þar og aukinn þrýstingur myndast á innlögn á aðr- ar deildir sjúkrahússins. Gangalagn- ir verða þá oft eina úrræðið til að taka við veiku fólki. Á árinu 2005 biðu jafnan 200–250 manns eftir inn- lögn á deildir öldrunarsviðs, heima eða á öðrum deildum LSH. Um það bil 1.700 legudagar á spítalanum voru skráðir í slíkri bið, einkum á lyf- og skurðlækningasviði. Í árskýrslu LSH segir að skjól- stæðingum sjúkrahússins hafi á und- anförnum árum verið úthlutað sem nemur um þriðjungi þeirra 400 rýma sem losna árlega á hjúkrunar- og dvalarheimilum á höfuðborgarsvæð- inu miðað við þriggja ára meðallegu- tíma þar. „Það er hvergi nærri nóg,“ segir í skýrslu spítalans. „Það hefði jákvæð áhrif á öllu sjúkrahúsinu ef aldraðir og geðsjúk- ir sjúklingar fengju tímanlega vist á viðeigandi stofnun eða úrræði varð- andi búsetu. Sjúklingar legðust þá inn á viðeigandi deild og tilfærslur milli deilda yrðu skilvirkari. Hagur þeirra sem bíða varanlegrar vistunar myndi batna, líka annarra sjúklinga sem þurfa að leggjast inn og í þriðja lagi hagur starfsfólksins sem oft vinnur við erfiðar aðstæður og undir miklu álagi.“ 42 létust meðan þeir biðu eftir hjúkrunarrými Um 60–80 aldraðir sjúklingar á LSH bíða að jafnaði eftir hjúkrunarrými Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is BRESKU hljómsveitirnar Motörhead, The Darkness og David Gray munu ásamt Ham, Ampop, Mínus og Trabant stíga á svið Laug- ardalshallarinnar á tónlistarhátíðinni Reykjavík rokkar sem haldin verður dagana 29. júní til 1. júlí næstkomandi. Tónlistarhá- tíðin sem ber nú undirtitilinn Tónlistarhátíð alþýðunnar, er haldin í annað sinn en í fyrra voru það stórsveitirnar Duran Duran, Foo Fighters og Queens of the Stone Age sem léku fyrir samtals 20 þúsund há- tíðargesti. Kári Sturluson, skipuleggjandi hátíðarinnar, sagði á blaða- mannafundi, að héðan í frá yrði íslenskum hljómsveitum gert hærra undir höfði og þeim boðið upp á alvöru umgjörð og tónleika í fullri lengd. | 62 Reykjavík rokkar aftur David GrayEITT af merkjum þess að það er komið vor er að framhalds- skólanemar sem eru að útskrifast birtast í undarlegum búningum og skemmta sér. Hópur nemenda var áberandi í miðborg Reykjavíkur í gær og skemmti sér og öðrum. Allt fór þetta vel fram, en þeim sem leið áttu um Austurvöll í gær fannst þó umgengni ekki til fyrirmyndar. Morgunblaðið/Ómar Útskriftarnemar gleðjast í miðborginni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.