Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 47
MINNINGAR
Enginn má sköpum
renna. Látin er elskuleg bekkjar-
systir og frænka. Hugurinn leitar til
baka til námsáranna í MR. Við fylgd-
umst að í sex ár, frá því í 1. bekk til
stúdentsprófs, sem er þó nokkur
tími.
ELÍSABET MARÍA
KVARAN
✝ Elísabet MaríaKvaran fæddist
á Borðeyri við
Hrútafjörð hinn 29.
mars 1928. Hún lést
á gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut að
kvöldi síðasta vetr-
ardags hinn 19. apr-
íl síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Dómkirkjunni
28. apríl.
Beta var góður
námsmaður og stóð sig
alltaf með prýði. Þá
kusum við hana sem
umsjónarmann bekkj-
arins, en bekkurinn
var kvennabekkur, og
var hún í bekkjarráði.
Tíminn líður, en stend-
ur ekki kyrr. Fyrir
nokkuð mörgum árum
tókum við bekkjar-
systur frá því í 1. bekk
upp á því að hittast
einu sinni í mánuði og
borða saman hádegis-
verð. Við vorum sex sem þetta gerð-
um. Nutum við þessara stunda og
bar alltaf margt á góma. Þessar
stundir voru sérstakar og eru okkur
dýrmæt eign þegar árin líða. Beta
blessunin er sú af okkur sem kveður.
Ég minnist 50 ára stúdentsafmælis
okkar í Stykkishólmi 16. júní 1998.
Bekkjarráðið skipulagði þá ferð og
átti Beta drjúgan þátt í þeim und-
irbúningi. Dýrðardagar í Stykkis-
hólmi verða ógleymanlegir og sigl-
ingin út í Flatey þá ekki síst það sem
lifir í minningunni.
Það er margt sem leitar á hugann
þegar komið er að kveðjustund, sem
svo skyndilega bar að. Enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Hugur minn leitar til eiginmanns
hennar Þorvaldar Garðars, Ebbu
dóttur þeirra og yngri Þorvaldar
Garðars sem svo mikið hafa misst.
En sagt er að Drottinn leggi líkn með
þraut og megi svo verða. Ég sendi
þeim innilegar samúðarkveðjur frá
mér og mínu fólki. Megi tíminn draga
úr sársaukanum. Gott er að minnast
góðra.
Elskulegri frænku minni og bekkj-
arsystur óska ég góðrar ferðar til
lands lifenda. Megi hún njóta hvíldar
og næðis þar. Blessun Guðs sé með
henni.
Ingibjörg Ólafsdóttir.
Með söknuði sest ég
niður til þess að kveðja
góða vinkonu mína
hana Ragnheiði, sem lést föstudag-
inn 7. apríl langt fyrir aldur fram.
Ragnheiði eða Gógó eins og hún var
alltaf kölluð kynntist ég á Spáni þeg-
ar við hjónin keyptum okkur hús á
La Marina. En Gógó og Skarphéðinn
voru þá búin að kaupa sér hús þar, og
voru þar í öllum sínum fríum.
Gógó var glæsileg kona sem heill-
aði alla með fallegri framkomu og
notalegri nærveru. Gógó var ekki
allra en við Birgir vorum svo heppin
RAGNHEIÐUR LÍNDAL
HINRIKSDÓTTIR (GÓGÓ)
✝ Ragnheiður Lín-dal Hinriksdótt-
ir (Gógó) fæddist í
Geirmundarbæ á
Akranesi 18. júlí
1936. Hún lést í
Landspítalanum við
Hringbraut 7. apríl
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Grafarvogs-
kirkju 21. apríl.
að eignast hana að vini.
Og þegar við vorum á
sama tíma úti reynd-
um við að hittast eins
oft og við gátum og t.d.
var það orðið að fastri
reglu hjá okkur að
hittast og drekka
morgun- og síðdegis-
kaffi saman á sama
stað og sátum við alltaf
við sama borðið. Og
stundum var svo mikið
skrafað að morgun- og
síðdegiskaffið runnu
nánast saman út í eitt,
nema á laugardögum, þá varð Skarp-
héðinn að fá að horfa á fótboltann.
Kynni okkar voru kannski ekki mjög
löng miðað við heila mannsævi en
tryggari vin var ekki hægt að hugsa
sér. Því komst ég að þegar Birgir
veiktist skyndilega úti á Spáni og lést
nokkrum dögum síðar. Þá voru þau
Gógó og Skarphéðinn alltaf til staðar
fyrir mig hvort sem ég þurfti á þeim
að halda á nóttu eða degi. Og fyrir
það verð ég þeim ævinlega þakklát.
Gógó var búin að berjast í þrjú ár
við sín veikindi en núna síðustu mán-
uðina hrakaði henni mjög hratt, en
þegar ég heimsótti hana á spítalann
var hún eins og ávallt full af bjartsýni
og hörð á því að hún ætlaði að sigrast
á sínum veikindum. Og talaði hún
mikið um að hún hlakkaði svo til að
komast aftur út, og við ættum eftir að
eiga þar góðar stundir saman.
Ég vildi eins og hún trúa því að
henni tækist að sigrast á veikindun-
um, en því miður varð okkur ekki að
þeirri ósk. Elsku Skarphéðinn, ég
votta þér og öðrum aðstandendum
mína dýpstu samúð.
Elsku Gógó, mig langar til þess að
kveðja þig með þessu sálmaversi sem
segir meira um þig en þúsund orð:
Hver fögur dyggð í fari manns
er fyrst af rótum kærleikans.
Af kærleik sprottin auðmýkt er,
við aðra vægð og góðvild hver
og friðsemd hrein og hógvært geð
og hjartaprýði stilling með.
(Þýð. Helgi Hálfd.)
Sigurlaug Sturlaugsdóttir.
Kveðja frá
starfsfólki
Árbæjarsafns
Nú hefur konan með roðskóna
kvatt þennan heim en öðlingskonan
Snæbjörg Ólafsdóttir var þekkt hjá
gestum Árbæjarsafns undir þess-
um titli.
Árum saman sat hún á baðstofu-
loftinu í gamla burstabænum í Ár-
bæjarsafni, saumaði roðskó og
fræddi gesti og samstarfsfólk um
liðna tíð. Börn og fullorðnir heill-
uðust af þessari gömlu konu sem
hafði svo sannarlega upplifað tím-
ana tvenna.
Snæbjörg ólst upp í torfbæ vest-
ur á fjörðum en sex ára gömul var
hún send í vist. Á þeim tíma voru
börn látin sitja yfir ánum, reka kýr
í haga og sitt hvað fleira og roð-
skór voru eina skótauið sem Snæ-
björg þekkti í æsku. Barnung
kynntist hún því vinnuhörku og fá-
tækt en þrátt fyrir harðræði og
erfiðleika var lundin ætíð létt og
húmorinn óborganlegur.
SNÆBJÖRG
ÓLAFSDÓTTIR
✝ Snæbjörg Ólafs-dóttir fæddist á
Vindheimum í
Tálknafirði 13.
október 1914. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 1.
mars síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Árbæjar-
kirkju 24. mars.
Snæbjörg var ein
af þessum hvers-
dagshetjum sem lét
ekki bugast við mót-
læti og reyndi ætíð
að draga fram
spaugilegar hliðar
hversdagsins.
Ekki hafði hana
órað fyrir því að roð-
skór ættu eftir að
færa henni nýtt hlut-
verk á efri árum og
mikið var hún stolt
þegar hún frétti að
roðskórnir hennar
væru komnir á safn í Japan.
„Ævintýri lífs míns,“ sagði hún
með blik í augum, „það hefur verið
ævintýri lífs míns að fá að vera á
Árbæjarsafni,“ en það var ekki síð-
ur ómetanlegt fyrir safnið að fá að
hafa hana Snæbjörgu því hún
kunni þá list að gefa af sjálfri sér
og deila æskuminningum sínum
með okkur starfsfólkinu og gestum
safnsins.
Baðstofan í Árbæ lifnaði við og
fortíðin varð áþreifanleg og nálæg
þegar Snæbjörg Ólafsdóttir sat á
rúminu sínu, saumaði roðskó og
fræddi börn og fullorðna um veröld
sem var.
Starfsfólk Árbæjarsafns þakkar
Snæbjörgu Ólafsdóttur innilega
fyrir ánægjulegar samverustundir
og vottar fjölskyldu hennar samúð.
Minningin um merka konu mun lifa
í hug og hjarta allra þeirra fjöl-
mörgu sem fengu að kynnast kon-
unni með roðskóna.
Gerður Róbertsdóttir.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Hjartans þakkir færum við þeim fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
HREGGVIÐS HERMANNSSONAR
læknis,
Nónvörðu 14,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-7, Landspítala Fossvogi, fyrir
góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Guð blessi ykkur öll.
Lilja Jóhannsdóttir,
Margrét Hreggviðsdóttir, Bjarni Guðjónsson,
Hermann Torfi Hreggviðsson, Ágústa Hildur Gizurardóttir,
Elín Kristín Hreggviðsdóttir, Júlíus Sigurðsson,
Guðmundur Páll Hreggviðsson, Sólveig Silfá Karlsdóttir,
Björn Blöndal,
Gísli Blöndal, Sólveig Leifsdóttir,
James William Sandridge,
Jóhann Dalberg, Kristín Ruth Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju
við andlát eiginmanns míns, föður okkar, sonar,
bróður og tengdasonar,
KARLS PETERSEN
tónlistarmanns,
Löngumýri 24,
Akureyri.
Ragnheiður Sigurðardóttir,
Hólmfríður Kristín, Aniina Ragna,
Sigurður Óli, Kristjana Katla,
Martin Petersen, Kristín Sigurðardóttir,
Ragnar Petersen, Kristín Petersen,
Hólmfríður Kristjánsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug
og vináttu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langalanga-
ömmu,
HULDU SALÓME GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Úlfsá.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á þjónustudeild
Hlífar og öldrunardeildar Fjórðungssjúkrahússins
á Ísafirði fyrir frábæra umönnun og vináttu.
Gunnar Veturliðason, Valdís Friðriksdóttir,
Valdís Veturliðadóttir, Steinþór Steinþórsson,
Sveinfríður Hávarðardóttir,
Ólöf Veturliðadóttir, Guðmundur Einarsson,
Guðmunda Veturliðadóttir, Þórir Sturla Kristjánsson,
Stefán Veturliðason, Helga Kristjánsdóttir,
Jón Veturliðason, Ásta Svana Ingadóttir,
Magni Veturliðason, Harriet Andreassen,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu okku samúð og hlýhug við andlát
og útför bróður okkar,
PÁLMA REYNIS VALDIMARSSONAR,
Meyjarhóli, Svalbarðsströnd.
Anna Valdimarsdóttir,
Aðalheiður Valdimarsdóttir,
Steingrímur Valdimarsson.