Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 57 DAGBÓK Til sölu nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir í grónu hverfi 2ja, 4ra og 5 herbergja • Tveggja herbergja 80 m² • Fjögurra herbergja 135 m² • Fimm herbergja 143 m² Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum. Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum. Stofurnar eru 30-40 m². Á gólfum eru flísar og gott eikarparket. Stórar svalir á móti suðri og sérstaklega fallegt útsýni. Stutt í golfvöll. Hrauntún ehf. byggir Uppl. gefur Örn Ísebarn, byggingameistari, í símum 896 1606 og 557 7060. Dæmi um 2ja herbergja íbúð Ámorgun, sunnudaginn 30. apríl, verðurhaldið í safnaðarheimili Laugarnes-kirkju málþing um málefni geðsjúkra áÍslandi, málþingið stendur milli klukk- an 12.30 og 15.30. „Markmiðið með þessu málþingi er að varpa ljósi á þá þjónustu sem við erum að veita í dag og hver gæði hennar eru. Sem og er ætlunin að ræða um stefnumótun næstu ára, einkum í tengslum við búsetu og þjónustu við geðsjúka og aðstandendur þeirra,“ segir Auður Axelsdóttir forstöðumaður Geðheilsu-eftirfylgni/iðjuþálfunar. „Þeir sem standa að málþinginu eru Geðhjálp, Vin-athvar Rauða kross Íslands fyrir geðfatlaða, Laugarneskirkja, Þjónustumiðstöð Laugardal og Háaleitis, Heilsugæslan Bolholti 4, Svæðis- skrifstofa um málefni fatlaðra og LSH geðsvið. Ráðherra félagsmála, Jón Kristjánsson, setur þingið.“ Hvar eru mestu þröskuldarnir í kerfinu okkar? „Það sem ég held að þurfi að efla fyrst og fremst er þjónusta við geðfatlaða úti í samfélagi og veita þeim aðstoð við daglegt líf, efla hlutverk og lífsgæði og hluti af því er að eiga fasta búsetu og lífsgæðin séu mannsæmandi og ekki síst að vinnumarkaðurinn opni sig og efli sveigjanleika.“ Á geðfatlað fólk erfitt með að fá húsnæði? „Staðreyndin er sú að það eru langir biðlistar. Það vantar húsnæði og það vantar fjölbreyttan stuðning við búsetu. Okkur hættir til við aðstæður sem þessar að byggja og byggja og halda að það sé nóg, en við þurfum ekki síður að huga að þjón- ustuforminu með það fyrir augum að mæta hverj- um og einum á hans forsendum, fólk hefur ólíkar þarfir, við þurfum að hlusta eftir hver þörfin er. Að vísu eru byggingarframkvæmdir ekki hafnar en það er hluti af því sem er í farvatninu hvað snertir aukna þjónustu.“ Eru kjör hinna geðfötluðu almennt slæm? „Já, þau eru slæm og kerfið okkar er byggt upp þannig nú að fólk „festist í örorkugildrunni“, en hefði í raun oft fremur þörf á sveigjanlegri örorku sem miðast við að geta nýtt góð tímabil til vinnu en fengið örorkubætur þegar á þarf að halda. Þessu þarf að breyta. Markmið málþingsins er ekki síst að safna upp- lýsingum um þau þjónustuúrræði sem fyrir hendi eru í samfélagi okkar í þágu geðsjúkra, ástæða er til að skoða vel hvaða úrræði eru þegar fyrir hendi og hvernig þau megi sem best nýtast. Um leið þarf að leitast við að þoka áfram hagsmunamálum þessa hóps á Íslandi. Þegar byggt er upp nýtt þjónustuform þarf í raun að klæðskerasauma það að hverjum og ein- um einstaklingi, það er ekki hægt að ganga út frá að allir séu með sömu þarfir sem greinst hafa með geðsjúkdóm. Þingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Geðheilsa | Málþing um málefni geðsjúkra Búseta og þjónusta  Auður Axelsdóttir fæddist í Reykjavík 1963. Hún er menntað- ur iðjuþjálfi og er nú forstöðumaður mið- stöðvar innan heilsu- gæslu höfuðborg- arsvæðisins: Geðheilsa-eftirfylgd/ iðjuþjálfun í Bolholti 4. Auður er gift og á þrjú börn. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 50 ÁRA afmæli. 1. maí nk. verðurfimmtug Erla Hrund Frið- finnsdóttir, Grenivöllum 32, Ak- ureyri. Hún og eiginmaður hennar, Páll Baldursson, taka á móti ætt- ingjum og vinum á afmælisdaginn, í Oddfellowhúsinu, Sjafnarstíg 3, kl. 15–19. Bóklestur barna og unglinga ÞEGAR ég var barn að aldri, las ég mikið, eða eins og tök voru á. Ekki voru þó bækur keyptar að marki á mínu heimili, til þess skorti fé. En sem betur fór, var leitað til tveggja lestrarfélaga, og þurfti þó yfir fjall- garð að halda, til að komast í annað bókasafnið. Annars las ég mest bæk- ur fyrir fullorðna, allt frá ferming- araldri. En hvers vegna fer bóklestri barna hrakandi, eins og sagt er í fjöl- miðlum? Þrennt kemur þarna til, að því er ætla má. 1. Barnabókum fer heldur fækkandi. Færri rithöfundar skrifa fyrir börn og unglinga en fyrrum, hvað sem veldur. 2. Notkun rafrænna miðla, eins og tölva og sjónvarps, fer vaxandi. Lesa má mikið á vefnum og skján- um, sem reynir minna á lesand- ann en bóklestur. 3. Eru samdar jafn skemmtilegar og áhugaverðar barna- og unglinga- bækur og áður var? Ég bara spyr, og í framhaldi af því kom mér í hug staka: Börnunum leiðast bækurnar og bækur lesa tregar. Það er af, sem áður var. En eru þær læsilegar? Þetta verður ekki lengra. Ég sé enga ástæðu til að teygja lopann lengur um þetta. Bið lesendur að íhuga málið. Auðunn Bragi Sveinsson. Þakkir fyrir skilvísi ÉG, Þorbjörg, bið fyrir kærleiksríkt þakklæti til þess sem fann veskið mitt og kom því til skila sem ég tap- aði 11. apríl. Allt var í veskinu sem átti að vera. Ég bið guð og ljósið helga að blessa og vernda þann sem fann veskið. Hugljúf kveðja, Þorbjörg. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. d4 c5 2. d5 e5 3. Rc3 d6 4. e4 Be7 5. Rf3 Rf6 6. Be2 0–0 7. 0–0 Re8 8. Rd2 g6 9. Rc4 f5 10. f4 exf4 11. Bxf4 g5 12. Bd2 f4 13. g3 Bh3 14. Hf3 Bg4 15. Hf2 Bd7 16. a4 fxg3 17. Hxf8+ Bxf8 18. hxg3 Df6 19. e5 dxe5 20. Re4 Dg6 21. Bd3 Bg7 22. Df3 g4 23. Dh1 Bf5 24. Hf1 Rd7 25. Re3 Bxe4 26. Bxe4 Dh6 27. Rxg4 Dxh1+ 28. Bxh1 Rd6 29. Rh6+ Bxh6 30. Bxh6 c4 31. Bg2 Rf7 32. Be3 Kg7 33. d6 Rf6 34. a5 Rxd6 35. a6 Rde4 36. axb7 Hb8 Staðan kom upp á Evrópumeist- aramóti einstaklinga sem lauk fyrir skömmu í strandbænum Kusadasi í Tyrklandi. Alþjóðlegi meistarinn Héð- inn Steingrímsson (2.447) hafði hvítt gegn Azeranum Faik Aleskerov (2.325). 37. Hxf6! Rxf6 38. Bxa7 Rd7 39. Bxb8 Rxb8 40. c3 og svartur gafst upp enda taflið gjörtapað. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.