Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
Ítalski tískukóngurinn GeorgioArmani hannar ýmislegt ann-að en föt, sem hann hefur tilþessa verið hvað þekktastur
fyrir eins og hjónin Hanna Birna Jó-
hannesdóttir og Ingi Þór Jakobsson
eigendur húsgagnaverslunarinnar
Exó komust að raun um á ferð sinni í
höfuðstöðvar Armani í Mílanó.
„Ég hef alltaf verið hrifin af fal-
legri hönnun og hef lengi fylgst með
nýjungum á heimasíðu Armani,“
segir Hanna Birna. „Og þegar ég sá
að hann var farinn að hanna hús-
gögn, gjafavöru og annan húsbúnað
heillaðist ég alveg og við hjónin
ákváðum að kanna möguleikana á að
fá umboð fyrir vörunum á Íslandi.“
Eftir að hafa gengið um helstu
verslunargötur Mílanó blasti
Emporio Armani við þeim á torgi við
Alessandro Mamzoni.
„Við byrjuðum á að fá okkur kaffi
á Armani Café en þar kostar kaffi-
bollinn um 400 krónur og honum
fylgir hlaðborð með ýmsum smárétt-
um að eigin vali og eins mikið og
hver og einn getur í sig látið,“ segir
Hanna Birna. „Í Kaffihúsinu er létt
yfir innréttingunum og öllu and-
rúmslofti og er staðurinn greinilega
mjög vinsæll.“
Með samþykki Armani
Verslunarmiðstöðin er á nokkrum
hæðum með mörgum sérdeildum og
verslunum. Fyrir utan karl-
mannafatadeild er kvenfatadeild og
sér deild með barnaföt, sérstök búð
með gallabuxum, önnur með snyrti-
vörum en það er nýleg framleiðsla
hjá fyrirtækinu, ilmvötn eru í sér-
stakri búð og ekki má gleyma gler-
augunum eða blómunum, lifandi og
þurrkuðum eða konfektbúðinni sem
selur súkkulaðimola í sérstökum
gjafaöskjum. Að sjálfsögðu er allt
hannað af Armani eða með sam-
þykki hans.
„Hann býr á efstu hæðinni í skrif-
stofubyggingunni og var okkur sagt
að hann fylgdist mjög vel með öllu
sem fram fer innan fyrirtækisins,“
sagði Hanna Birna. „Hann gengur
daglega um allar deildir og ekkert
fer úr húsi í framleiðslu nema með
hans samþykki. Ég var að vonast til
að sjá honum bregða fyrir en því
miður var svo ekki í þetta sinn en ég
sá niður í garðinn hans.“
Sérkennilegt andrúmsloft
Á neðstu hæð Emporio Armani er
verslunin Armani Casa, þar sem
seld eru húsgögn, húsbúnaður, fylgi-
hlutir og gjafavara. „Andrúmsloftið
er afar sérkennilegt í öllu húsinu,“
segir hún. „Allir veggir og gólf eru
máluð svört en sérstök áhersla er
lögð á alla lýsingu. Það er stórkost-
leg upplifun að ganga þarna um og
skoða vörurnar. Hver og einn hlutur
er látinn njóta sín sem best og þegar
við innréttuðum okkar litlu deild
með vörum þaðan þá var gerð krafa
um að hún yrði líka dökk með svart
málaða veggi. Þótt rýmið sé ekki
stórt hjá okkur verðum við með eitt-
hvað af húsgögnum, borðbúnaði og
gjafavöru en við getum líka pantað
inn ef þess er óskað.“
Eftir að hafa skoðað allt húsið lá
leiðin á Nobu en það er veitinga-
staður á tveimur hæðum. Á neðri
hæð er stór bar. „Þar er hugsunin
svipuð og á kaffihúsinu,“ segir
Hanna Birna. „Með einum drykk
fylgja nokkrir smáréttir. Sumir eyða
góðri stund á barnum en fara svo
upp á veitingastaðinn á hæðinni fyr-
ir ofan. Þetta er frægur japanskur
staður og mikil upplifun að borða
þarna. Gestirnir sitja við barborð og
horfa á kokkana útbúa sushi. Ég er
mikið fyrir sushi og þarna var boðið
upp á það besta sushi, sem ég hef
fengið hingað til. Við pöntuðum
nokkra bita í einu og nutum þeirra
lengi áður en við báðum um meira.
Allt viðmót á staðnum er afar per-
sónulegt og um leið mjög faglegt
eins og reyndar allt húsið, sem
myndar eina heild, eða lífsstíl.“
ÍTALÍA | Skoðuðu höfuðstöðvar Armani í Mílanó og heilluðust alveg
Hannar meira að
segja súkkulaðið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hanna Birna Jóhannesdóttir og Ingi Þór Jakobsson, eigendur Exó.
Glampandi silfurvasar frá Armani.
www.armani.com
www.exo.is
OPNAÐUR hefur verið vefurinn
rent.is þar sem boðið er upp á að
aðstoða ferðamenn við útvegun
leiguhúsnæðis. Í fréttatilkynn-
ingu segir m.a.: „Rent.is er sér-
hannaður og aðgengilegur vefur
sem heldur utan um leiguhúsnæði
og er milliliður leigusala og leigu-
taka, hvort sem um er að ræða ís-
lenska eða erlenda ferðamenn.
Rent.is á sér fyrirmynd víða er-
lendis þar sem svipaðar gistimiðl-
anir hafa verið starfræktar til
fjölda ára með góðum árangri.“
Jafnframt kemur fram að
markaðssetning sé hafin, hér-
lendis sem erlendis.
„Rent.is býður viðskiptavinum
að auglýsa húsnæði sitt á vefnum
www.rent.is sér að kostn-
aðarlausu. Komi til leigu í gegn-
um rent.is er tekin þóknun af
leiguverði.“
Boðið er upp á …
að auglýsa húsnæði/sumarhús
sitt á síðu www.rent.is sér að
kostnaðarlausu
ráðgjöf, aðstoð við myndatöku
og verðlagningu gegn vægu
verði
að sjá um allt utanumhald
varðandi eignina, s.s. sím-
svörun, bókanir, afhendingu
lykla og þrif (aðeins í boði á
höfuðborgarsvæðinu og Suð-
urnesjum eins og er)
Kostir samstarfs við rent.is
frí markaðssetning.
þóknun eingöngu greidd komi
til leigu í gegnum rent.is.
staðfestingargjaldið er trygg-
ing fyrir því að leigutaki mæti
á tilsettum tíma.
sólarhringur greiddur ef leigu-
taki afpantar ekki með 48 tíma
fyrirvara.
leigugjald greitt beint til leigu-
taka við upphaf leigu.
betri nýting á leiguhúsnæði
Starfsfólk Rent.is hefur ára-
langa reynslu af ferðaþjónustu
sem og starfsleyfi til leigumiðl-
unar.
Leigumiðlun rent.is
FERÐALÖG
www.rent.is
rent@rent.is
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa