Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 22
Egilsstaðir | Veðrið lék við Austfirðinga í gær og mátti hvarvetna sjá menn brjótast úr vetrarhíðinu með bros á vör, léttklædda og tilbúna í vorverkin. Á Egilsstöðum var rúmlega 17 stiga hiti um há- degisbil í gær. Snjórinn í fjöllunum blátt áfram bráðnaði fyrir augunum á fólki og sjá mátti ísa Lagarfljótsins renna eins og smjör á pönnu í sól- arhitanum. Hlýjast var á Fáskrúðsfirði í gær, þar sem mælir á Kollaleiru sýndi 19,2 stig sem er hita- met þar á þessum árstíma. Rokkaði hitinn annars á milli 15 - 18 gráða víðast um fjórðunginn fram eftir degi. Englendingurinn Sandy Miles, tónlistarskóla- kennari í Neskaupstað, sat utan við kaffihús á Eg- ilsstöðum með teið sitt og ameríska skáldsögu í góða veðrinu. Sagðist hafa skroppið upp í Hérað til að versla hitt og annað og þurft sitt te í miðdeg- ismál. Spáð er nokkrum hlýindum áfram en rigningu á morgun Austanlands. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Ísar Lagarfljóts bráðna eins og smjör Blíðviðri Árborg | Akureyri | Suðurnes Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Vorið er komið þrátt fyrir að undanfarna morgna hafi jörðin verið hvít. Fuglarnir eru komnir og syngja við vorverkin, nema krían sem skrækir. En sem betur fer virðist ein tegund úr dýraríkinu ekki vera komin á kreik ennþá. Ég er að tala um hunangs- fluguhlussurnar sem undanfarin ár hafa verið í fullu fjöri um miðjan apríl. Megi þær sofa áfram sem lengst.    Enn er talað um sinubrunann á Mýrum. Heyrst hefur að slökkviliðsstjórinn hafi misst röddina eftir að slökkvistörfum lauk, og þegar hann þurfti síðar á fundi að segja frá ferlinu, kaus hann að hvísla í eyrun á konunni sinni sem ljáði orðum hans rödd. Góð samvinna hjóna, er góðra gjalda verð! Um sinubrunann gerði Óskar Þór Óskars- son heimildarmynd sem sýnir mátt eldsins og störf slökkviliðsmanna.    Hér halda áfram framkvæmdir og flutn- ingar. Bráðlega flytja bæjarskrifstofur Borgarbyggðar yfir götuna í húsið sem áð- ur hýsti Sparisjóð Mýrasýslu. Húsnæði bæjarskrifstofunnar verður gert að íbúðum fyrir erlenda starfsmenn Loftorku. KB banki flutti nýlega í nýtt húsnæði og á gamla staðnum er verið að rífa allt út og endurnýja áður en Intrum mætir á svæðið með sína starfsemi.    Ekki eru allir sáttir við háhýsið sem áform eru um að byggja á gamla Esso-planinu. Þykir mörgum það vera of hátt, auka um of umferð inn á Kjartansgötu, og skyggja á nærliggjandi einbýlishús. Framkvæmdir hafa ekki hafist enn vegna formgalla á skipulagsmálum. Skipulagsstofnun hefur mælt með því að bæjarstjórn láti vinna heildstætt deiliskipulag fyrir þennan mið- bæjarreit í samráði við hagsmunaaðila.    Í umræðu er að færa Ólafsvíkurveg, þann- ig að hann liggi ekki í gegnum atvinnusvæði Loftorku eins og nú er. Mun vegurinn þá væntanlega koma neðar í mýrina, og verða til samgönguhagsbóta auk bætts öryggis starfsfólks og vegfarenda. Úr bæjar- lífinu BORGARNES EFTIR GUÐRÚNU VÖLU ELÍSDÓTTUR Álftanesskóla þar sem kvenfélagið bauð í af- mælisboð. Á göngum nýja skól- ans var opið hús með götumarkaðsstemmn- ingu þar sem öllum kon- um á Nesinu hafði verið boðið að sýna, kynna eða bjóða til sölu það sem þær eru að fást við og kenndi þar margra grasa og voru lista- og Kvenfélag Álfta-ness hélt upp á80 ára afmæli fé- lagsins á dögunum en félagið var stofnað á Bessastöðum fyrsta sunnudag í sumri árið 1926. Kvenfélagið, sem hefur látið málefni sam- félagsins til sín taka, hafði ákveðið að færa Álftnesingum að gjöf skilti með fróðleik um álfa- og álagasteininn Grástein sem stendur rétt við veginn gegnt Bessastöðum og þar áttu hátíðarhöldin að hefjast. Það var bíll af tegund- inni Austin árgerð 1926, jafnaldri afmælisbarns- ins, sem var fararskjóti formanns félagsins, Mar- íu B. Sveinsdóttur, á há- tíðarhöldin. Þegar skilt- ið hafði verið afhjúpað og Guðmundur G. Gunn- arsson bæjarstjóri tekið við því fyrir hönd bæj- arbúa var marsérað að hagleikskonur þar á meðal. Í hátíðarsal skól- ans voru flutt ávörp og tónlistaratriði og töfra- maður skemmti börn- unum. Þá var boðið var upp á kaffi og kökur í afmælisboðinu. Einnig var Félag eldri borgara á Álftanesi með hand- verkssýningu í eldri hluta skólans og Bóka- safnið var með opið hús. Kvenfélagskonur við skiltið um Grástein. Álagasteinninn Grásteinn merktur Guðni Ágústsson vargagnrýndur fyrirað fórna hags- munum garðplönturækt- enda til að flytja mætti landbúnaðarafurðir til og frá landinu. Voru 15 tonn af rjúpum nefnd, sem varð Davíð Hjálmari Har- aldssyni yrkisefni: Guðni fórnar grátbólginn garðplöntum og stjúpum. Fyrir þetta flytur inn 15 tonn af rjúpum. Rúnar Kristjánsson hlustaði á fréttir: Góðir siðir göfga menn, gefa besta keiminn. Látum ekki öfgamenn eyðileggja heiminn. Og Rúnar veltir upp til umhugsunar: Þjóðskáldið með sanni sagði, sálarkraft í orð sín lagði: „Hvað er list og lærdóms- þvaður lærirðu ei að vera maður?“ Að lokum yrkir Rúnar: Margt setur Valgerði í vörn, – ekki virðist hún framsókn- argjörn. Hennar stjórnunarstíll er sem stirðgengur bíll á leið framhjá Lómatjörn! Af góðum siðum pebl@mbl.is Þorlákshöfn | Sveitarfélagið Ölfus og Orku- veita Reykjavíkur hafa gert með sér sam- komulag um víðtækt samstarf. Í því felst meðal annars lýsing Þrengslavegar, sam- starf við uppgræðslu og umhverfisvernd, framkvæmdir Orkuveitunnar í sveitarfé- laginu og ljósleiðaravæðingu í sveitarfé- laginu. Það er mikið kappsmál sveitarfélagsins að Þrengslavegur verði lýstur og hefur Orkuveitan gert sveitarfélaginu tilboð um lýsingu vegarins. Orkuveita Reykjavíkur er með umfangs- miklar framkvæmdir í Sveitarfélaginu Ölf- usi. Í fyrsta lagi rekur Orkuveitan þrjár hitaveitur í sveitarfélaginu, í öðru lagi hefur Orkuveitan tekið þátt í umfangsmikilli ný- sköpun í sveitarfélaginu svo sem rækjueldi og Feygingu og í þriðja lagi eru framtíð- arvirkjunarsvæði Orkuveitunnar í Ölfuss, svo sem Hellisheiðarvirkjun og virkjun við Hverahlíð. Í samræmi við umhverfisstefnu Orkuveit- unnar, tekur fyrirtækið að sér að bæta það rask sem óumflýjanlega verður við fram- kvæmdirnar auk þess að starfa með heima- mönnum og öðrum áhugasömum aðilum að almennri uppgræðslu á svæðinu. Orkuveit- an skuldbindur sig til að veita til þess 12,5 milljónir kr. árlega næstu sex ár. Samkomu- lagið lýtur einnig að meðferð skipulags- og leyfismála vegna virkjunarinnar. „Með þessu samkomulagi við heimamenn í Sveitarfélaginu Ölfusi er Orkuveitan tilbú- in að takast á við frekari umhverfisvæna og arðbæra orkuöflun fyrir atvinnulífið í land- inu,“ segir Guðmundur Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitunnar. Hann bætir við að með samkomulaginu sé lagður grunnur að góðu samstarfi þar sem heimamenn kapp- kosti að nýta framkvæmdirnar til eflingar atvinnulífi og mannlífi í sveitarfélaginu. Ölfus ljósleiðaravætt Í samkomulaginu felst ennfremur vilja- yfirlýsing um gerð sérstaks samnings þar sem Sveitarfélagið Ölfus bætist í hóp Reykjavíkur, Seltjarnarness og Hvera- gerðis, sem eitt þeirra sveitarfélaga sem samið hafa við Orkuveituna um ljósleiðara- tengingu heimila. Samningarnir voru undirritaðir í Versöl- um, Ráðhúsi Ölfuss og við það tækifæri sagði Alfreð Þorsteinsson að samstarf og samvinna við Sveitarfélagið Ölfus hefði gengið frábærlega vel og það væri ekki síst Ölfusingum að þakka hve vel hefur gengið með virkjunarframkvæmdir á Hellisheið- inni og því væri Orkuveitunni og honum ljúft og skylt að þakka samstarfið. Orkuveitan lýsir upp Þrengslaveg Vikuferð þar sem flogið er til Mílanó, ekið til Portoroz þar sem gist er í 6 nætur og síðan í 1 nótt í Mílanó. Margar skemmtilegar skoðunarferðir, siglingar, dropasteinshellir, vínbóndi heimsóttur og tími til að slappa af. Fararstjóri: Hófý Verð: 94.200 kr. Sumar 1 Slóvenía - Króatía s: 570 2790 www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R 27. maí - 3. júní Okkar klassíska ferð til Slóveníu og Króatíu sem hefur verið svo vinsæl í gegnum árin. Flogið til München og alltaf gist í nokkrar nætur á hverjum stað. Fararstjóri: Svavar Lárusson Verð: 147.500 kr. örfá sæti laus Portoroz - Króatía - Austurríki Sumar 3 12. - 27. júní Sp ör - R ag nh ei ðu r In gu nn Á gú st sd ót tir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.