Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 23
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | „Þarna verða aðilar sam-
an sem alltaf er gert ráð fyrir að
starfi saman, einkum og sér í lagi
þegar upp kemur stórt verkefni,“
sagði Ingvar Guðmundsson, lög-
reglumaður og formaður Björg-
unarfélags Árborgar, en tekin var
fyrsta skóflustunga að nýju 1.450
fermetra húsi við Árveg á Selfossi,
gegnt lögreglustöðinni þar sem
verður ný björgunarmiðstöð. Í hús-
inu verða aðalstöðvar Björg-
unarfélagsins, miðstöð sjúkraflutn-
inga Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands og slökkvistöð Bruna-
varna Árnesinga.
Björgunarfélagið stofnaði einka-
hlutafélag um húsið og leigir það
síðan út til þeirra aðila sem nýta
það. Ingvar segir hugmyndina um
nýja húsið hafa komið upp á góðum
tíma þegar þessir aðilar allir þurftu
á meira húsnæði að halda.
Starfið er krefjandi
„Það eru 60 misvirkir félagar í
Björgunarfélagi Árborgar og þar af
um 30 manns, piltar og stúlkur, sem
eru virkir í útköll. Síðan erum við
með um 500 manns sem greiða ár-
gjald til félagsins og eru virkir á
þann hátt með því að styðja starf-
semina í gegnum félagsgjöldin,“
sagði Ingvar sem er á sjöunda ári
sínu sem formaður félagsins.
„Þetta er krefjandi verkefni og
heilmikil vinna að starfa af fullum
krafti í svona félagi en það er um-
fram allt skemmtilegt. Ég hef gam-
an af því að reyna á mig og takast á
við krefjandi störf. Það er margt
sem við fáumst við og svo sækjum
við námskeið sem nauðsynleg eru til
að viðhalda kunnáttu og gera okkur
mögulegt að fylgjast með nýj-
ungum. Í kringum þetta allt saman
eru mikil og skemmtileg mannleg
samskipti sem eru eftirsóknarverð.
Mín áhugamál eru útivist og ferða-
lög og Björgunarfélagið nær yfir
það,“ sagði Ingvar en hann byrjaði
sem skáti en færði sig síðan yfir í
björgunarsveitina, eins og svo
margir hafa gert.
Mikil vinna við fjáröflun
„Félagsmenn í Björgunarfélaginu
leggja mikla vinnu á sig í fjáröflun
til þess að við getum haldið úti
starfsemi félagsins. Í því efni er um
ýmis verkefni að ræða sem menn
vinna saman í hópum og við höfum
mjög gaman af að vinna saman og
hittast, þetta er hressilegur hópur
þar sem traust ríkir milli fólks. Svo
er þetta heilmikið nám því björg-
unarmaður þarf að leggja að baki
100 tíma námskeið áður en hann
kemst í útkallshóp til að takast á
viðkrefjandi verkefni. Síðan taka við
ýmis framhaldsnámskeið. Annars
má segja að allir geti fundið sér
eitthvað að gera í björgunarsveit.
Æfingarnar eru skemmtilegar og
bjóða upp á mikla útivist. Við erum
auðvitað í þessu af því að það er
gaman. Að geta síðan sinnt beinum
björgunarstörfum gefur þessu öllu
saman ákveðið gildi. Það er mjög
gefandi að hjálpa fólki og maður
finnur fyrir því að samfélagið er
þakklátt fyrir það sem gert er. Það
er alltaf gott þegar björgunar-
aðgerð endar vel en erfiðu endalok-
in eru líka til og þegar staðan er
þannig þá er gott að hafa tekið þátt
í að fá lyktir í málin og eyða óvissu
þó björgun hafi ekki orðið,“ sagði
Ingvar Guðmundsson sem segir
starfið í kringum Björgunarfélagið
taka allan frítíma. Þó fjölskyldan sé
alltaf númer eitt þá hafi björg-
unarstörfin forgang þegar þau
koma upp.
Framkvæmdir hafnar við nýja björgunarmiðstöð á Selfossi
Allir geta fundið sér eitthvað
að gera í björgunarsveit
Eftir Sigurð Jónsson
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Formaðurinn Ingvar Guðmundsson, formaður Björgunarfélags Árborgar.
Selfoss | Söfnun til kaupa á hundi
fyrir lögregluembættið á Selfossi
hófst formlega á skrifstofu sýslu-
mannsins á Selfossi 25. apríl síðastlið-
inn. hundurinn kostar fullþjálfaður 1-
1,5 m. kr. Eyþór Arnalds fram-
kvæmdastjóri reið á vaðið með því að
opna söfnunarreikninginn með 50
þúsund króna framlagi sem hann af-
henti Ólafi Helga Kjartanssyni sýslu-
manni.
„Hann lét það fylgja sögunni að
tíðkast hefði í fjölskyldu sinni að heita
á Strandarkirkju, en að þessu sinni
hefði hann heitið á þennan málstað og
hundinn, sem við enn ekki vitum hver
verður, að gengi sér vel í því sem
hann var að fást við, rynni þessi fjár-
hæð til þess að afla nýs hunds í stað
Fenris,“ sagði Ólafur Helgi. Stofnað-
ur hefur verið nýr reikningur í Glitni
á Selfossi, 586-14-101420 og kennital-
an er 440996-2139. Vörsluaðili hans
er Rotaryklúbbur Selfoss.
Hundurinn er mikilvægur
Fíkniefnahundurinn Fenrir drapst
síðla árs í fyrra og lögreglan í Árnes-
sýslu hefur síðan verið án eigin fíkni-
efnahunds. Það er bagalegt, þótt ekki
hafi komið verulega að sök enda hef-
ur lögreglan getað fengið afnot af
hundum lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu og tollgæzlu.
Að mati lögreglunnar er það hafið
yfir allan vafa að fíkniefnahundur sé
ómetanleg aðstoð við leit að fíkniefn-
um, bæði í bifreiðum og húsnæði og
reyndar hvar sem er. „Mér er það
persónulegt ánægjuefni bæði fyrir
mína hönd og lögreglunnar að finna
þennan hlýhug og hef á því skilning
að sumir vilji gera þetta í hljóði og
fagna þeirra framlagi jafnt og þeirra
sem kjósa að koma fram undir nafni.
Það er hugurinn sem skiptir máli.
Fíkniefni og neyzla þeirra verður æ
erfiðara vandamál í samfélaginu og
sorg þeirra sem horfa á eftir nánum
ættingjum í fíkniefnaneyzlu, ekki sízt
þegar um börn og ungmenni er að
ræða, er afar mikil. Því trúir enginn
til fulls nema þeir sem hafa kynnzt því
hve allt breytist í lífi fólks.
Við erum Eyþóri þakklátir fyrir
frumkvæðið og stuðninginn sem við
metum mikils og vonum að hann verði
öðrum fordæmi. Jafnframt er mikil-
vægt að finna fyrir stuðningi vænt-
anlegs sveitarstjórnamanns í þessum
efnum, sem leggst á árarnar með
þeim sveitarstjórnarmönnum sem átt
hafa gott samstarf við lögregluna.
Það er góðs viti að þeir sýni hug sinn í
verki,“ sagði Ólafur Helgi.
Nýr hundur mun væntanlega koma
fullþjálfaður frá Noregi. Verð hans
gæti legið á bilinu 1 til 2 milljónir
króna. „Þess má geta að í umdæmi
lögreglunnar í Árnessýslu er fangels-
ið að Litla Hrauni og hefur lögreglan
skyldum að gæta varðandi eftirlit með
fíkniefnum þar. Að auki má geta þess
að nærri 5500 sumarbústaðir eru í Ár-
nessýslu og eykst íbúfjöldinn um ná-
lægt 9000 manns frá því í maíbyrjun
og til loka september. Undantekning-
arlítið eru sumargestir vænsta fólk og
löghlýðið, en of margir virðast telja að
þeir geti skotist austur yfir fjall til
þess að sinna fíkniefnaneyzlu sinni.
Við því reynir lögregla að sporna með
öllum ráðum og fíkniefnahundur hef-
ur reynzt okkur vel í þeim efnum,“
sagði sýslumaður.
Söfnun til kaupa
á fíkniefnahundi
Ljósmynd/Egill Bjarnason
Framlag Ólafur Helgi Kjartansson
tekur við fyrsta söfnunarframlag-
inu úr hendi Eyþórs Arnalds.
Selfoss | Bæjarstjórn Árborgar
samþykkti á fundi sínum 26. apríl
síðastliðinn að lækka álagningu fast-
eignaskatts á íbúðarhúsnæði. Lækk-
unin tekur þegar gildi og hefur áhrif
á álagningu fasteignaskatts í ár.
Álagningarprósenta verður lækk-
uð úr 0,37 í 0,30 af fasteignamati eða
um 18,92 %. Áður hefur bæjarstjórn
lækkað fasteignaskatt af íbúðar-
húsnæði um 7,5% og er því heild-
arlækkun um 26,5%. Kostnaður við
þessa aðgerð er áætlaður um 33
milljónir króna.
„Ákvörðun þessi er tekin í ljósi
góðrar afkomu af rekstri sveitarfé-
lagsins á nýliðnu ári og birtist í árs-
reikningi,“ segir í tilkynningu.
Fasteignaskattur
lækkaður í Árborg
Selfoss | Bæjarráð Árborgar ræddi
á fundi sínum 27. apríl úrskurð um-
hverfisstofnunar varðandi náma-
vinnslu í Ingólfsfjalli. Vill bæjarráð
að bæjarstjórn Ölfuss afgreiði fram-
kvæmdaleyfi fyrir frekari námu-
vinnslu í Ingólfsfjalli og mun óska
eftir fundi með bæjarstjórn Ölfuss.
„Úrskurðurinn lagður fram á
fundinum. Vinnsla jarðefna í Ing-
ólfsfjalli er mjög mikilvæg fyrir upp-
byggingu í Sveitarfélaginu Árborg
og nágrannabyggðum. Bæjarráð tel-
ur mikilvægt að gefið verði fram-
kvæmdaleyfi á áframhaldandi efn-
istöku úr Ingólfsfjalli. Bæjarráð
vísar til umsagnar um málið frá
02.02.06 og leggur áherslu á að rösk-
un lands við efnisvinnslu verði lág-
mörkuð,“ segir í samþykkt bæj-
arráðs.
Árborg vill halda
áfram efnistöku úr
námum í Ingólfsfjalli
Stórhöfði 31 • 110 Reykjavík
Sími: 580 5200 • Fax 580 5230
www. lifidn.is
Ársfundur Lífeyrissjóðsins Lífiðnar 2006
verður haldinn mánudaginn 8 maí, kl. 16:30
á Grand Hotel Reykjavík, Sigtúni.
Aðildarfélögum sjóðsins hafa verið send fundarboð og eru þau
beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir 4. maí n.k. hverjir verða
fulltrúar þeirra á fundinum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu
á fundinum með tillögu- og málfrelsi.
Reykjavík, 7. apríl 2006, stjórn Lífeyrissjóðsins Lífiðnar.
N
æ
st
2006Ársfundur Lífiðnar
Dagskrá
Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt
samþykktum sjóðsins
1
Atkvæðagreiðsla um samrunasamning2
Önnur mál löglega upp borin3