Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.04.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Garður | „Báturinn hefur ótvírætt söfnunargildi en það liggur enn ekki fyrir hvort tekið verður við honum,“ segir Ásgeir Hjálmarsson, safnvörður Byggðasafnsins á Garð- skaga. Safninu stendur til boða að fá til varðveislu 40 tonna eikarbát, Hólmstein GK 20, sem lengi var gerður út frá Garðinum. Hólmsteinn var smíðaður í Hafn- arfirði og var í upphafi gerður út þaðan en síðan frá Grindavík og hét þá Hafdís GK 20. Hann var keypt- ur til Hólmsteins hf. í Garði á árinu 1958 og var síðan gerður út þaðan. Nesfiskur hf. í Garði keypti útgerð- ina fyrir nokkrum árum og nú eru ekki lengur not fyrir bátinn. Hann liggur bundinn við bryggju í Sand- gerði og bíður örlaga sinna. Ásgeir segir að Hólmsteinn sé líklega elsti bátur af þessum hefð- bundnu vertíðarbátum sem sé á floti. Honum hafi alla tíð verið vel við haldið og sé í mjög góðu ásig- komulagi. Velta fyrir sér skipulagi Í tengslum við bátinn var rekin mikil fiskvinnsla í Garðinum sem útgerðarmaðurinn Guðmundur Ei- ríksson og síðar synir hans ráku. Segir Ásgeir að mikil saga sé tengd þessum báti og útgerð í Garðinum sem mikilvægt sé að varðveita minningar um. Ásgeir hefur sagt frá því að fjórtán varir og lendingar hafi verið fyrir bátana frá Lamba- stöðum að Rafnkelsstöðum og þrjár eða fjórar til viðbótar í Leirunni. Allar gerðar með handafli. Í Byggðasafninu á Garðskaga er töluvert af sjóminjum og þar eru nokkrir bátar varðveittir, bæði utan dyra og innan. Nesfiskur hf. hefur boðið safninu að fá Hólmstein til varðveislu og áhugi er hjá byggða- safnsnefnd fyrir því. Ásgeir segir að bæjarstjórn þurfi að taka ákvarðanir um slíka hluti og að ýmsu sé að hyggja. Hann nefnir fyrst að það kosti töluvert að flytja bátinn að Garðskaga og koma hon- um þar fyrir og síðan þurfi að halda honum við. Telur Ásgeir raunar að margir væru tilbúnir að vinna við viðhaldið í sjálfboðavinnu svo það ætti ekki að íþyngja safn- Ekki er víst að Byggðasafnið á Garðskaga geti þegið boð útgerðar Hólmsteins GK um að afhenda bátinn til varðveislu Langar að bjóða gistingu í lúkar bátsins á þurru landi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Safnvörður Ásgeir Hjálmarsson lítur eftir honum Hólmsteini í Sandgerð- ishöfn. Segir að þar sé allt til fyrirmyndar enda bátnum vel við haldið. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 SUÐURNES AKUREYRI 1. útdráttur 9. maí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D A S 30 94 4 04 /2 00 6 Bílainnflytjandi Vinningar í hverri viku Taktu þátt í glæsilegu happdrætti. Kauptu miða í Happdrætti DAS og þú gætir orðið Hummer- eigandi. Happdrætti DAS er í þágu aldraðra. Hringdu núna 561 7757 Kíktu á neti› www.das.is ÞORSTEINN Sævar Kristjánsson er þrettán ára drengur á Akureyri, alveg að verða fjór- tán; vill láta kalla sig Steina. Hann vann hetju- dáð laugardagsmorguninn 15. apríl síðastlið- inn þegar kviknaði í heima hjá honum á miðhæðinni í þriggja hæða húsi, númer 18 við Fjólugötu á Eyrinni, en vill sjálfur ekki gera of mikið úr því. Móðir hans fullyrðir þó að hárrétt viðbrögð Steina og snör hafi bjargað bæði þeim mæðginum og fjórum íbúum á hæðinni fyrir ofan og slökkviliðsmenn eru sama sinnis. Segja má að sjaldan sé ein báran stök, því bruninn var ekki eina áfallið þennan dag. Móð- uramma Steina, Sólveig Hermannsdóttir, hafði lengi verið veik og lést um kvöldið og var jarðsungin síðastliðinn fimmtudag. Það var því mikið lagt á ungan dreng og fjölskyldu hans þennan örlagaríka dag. Steini fermist núna í maí og í tilefni af því hafði íbúðin að Fjólugötu 18 verið meira og minna endurnýjuð skömmu fyrir brunann. „Það er auðvitað neyðarlegt, en skiptir ekki máli fyrst allir eru heilir á húfi. Við erum tryggð, en auðvitað bætir ekkert persónulega muni,“ segir móðir hans, Jóhanna María Gunnarsdóttir, við Morgunblaðið. Umræddan morgun vaknaði Steini við að reykur læddist inn í herbergið hans, gegnt eld- húsinu. Honum varð bilt við, kallaði upp yfir sig og hljóp fram á gang til að gá hvaðan reyk- urinn kæmi. Eldurinn varð einmitt laus í eld- húsinu. „Ég man að reykurinn var þéttur og sótsvartur,“ segir Steini. Ofboðslega hreykin „Ég var í herberginu við hliðina á eldhúsinu en varð ekki vör við neitt fyrr en Steini kall- aði,“ segir móðir hans. Hún ætlaði að hringja í Neyðarlínuna úr síma á ganginum en hann virkaði ekki. „Steini skreið þá aftur inn í herbergið, undir reykinn, náði í farsímann sinn og hringdi í 112.“ Steini segist alltaf láta símann sinn vekja sig, og einmitt þegar hann skreið inn í her- bergið sitt gaf síminn hljóðmerki vegna þessa; Steini fann símann því á svipstundu, hringdi í Neyðarlínuna og tilkynnti brunann. „Hann kom svo skríðandi aftur fram úr her- berginu og reif upp hurðina fram á gang. Opn- aði hana þó ekki mikið; ég komst varla út,“ segir móðir hans. „Þegar við vorum um það bil að komast fram á gang heyrðum við spreng- ingu í eldhúsinu og eldtungur komu fram á gang.“ Hártoppurinn á Jóhönnu sviðnaði sem og önnur augabrúnin en henni varð ekki meint af. „Seinna tók ég eftir því að brunagat var á boln- um mínum en ég var ekki einu sinni með eina brunablöðru.“ Þegar þau voru komin fram á gang hljóp Jó- hanna upp á efstu hæðina til þess að vekja íbúana þar. Enginn svaraði hins vegar, þannig að hún taldi engan heima. Steini hljóp á sama tíma niður og vakti íbúa á jarðhæðinni. „Ég fékk engin viðbrögð á efstu hæðinni og hljóp því niður og út og þá voru slökkviliðs- mennirnir að koma. Mér fannst þeir ótrúlega fljótir,“ segir Jóhanna. Slökkviliðsmennirnir fóru rakleiðis upp á efstu hæðina, þar sem karlmaður og þrjú ung börn hans voru sofandi og þeim var bjargað út. „Ég er alveg ofboðslega hreykin af drengn- um mínum. Ég hef reyndar oft verið það, en aldrei eins og núna,“ segir Jóhanna. „Mér finnst enn ótrúlegt hvernig hann brást við. Ég er yfirleitt ekki stressuð en er samt viss um að ég hefði aldrei náð að bregðast svona við. Ég er alveg sannfærð um að ef við hefðum verið hálfri mínútu seinna á ferðinni hefðum við ekki komist út. Það kom rosalegur eldur úr eldhús- inu um leið og við fórum fram á gang.“ Steini segir: „Strax eftir að ég lokaði dyr- unum var kominn mikill reykur fram á gang. Hann kom undir hurðina og þess vegna vissi ég að íbúðin var orðin alveg reykmettuð vegna þess að reykurinn leitar upp. Ég hugsaði bara um að ná í skóna mína frammi á gangi áður en það yrði of seint. Ég hafði enga hugmynd um að þetta væri svona tæpt. En ég veit að koltví- sýringur, sem er efst í reyknum, er hættu- legur,“ segir Steini til útskýringar á því hvers vegna hann brást þannig við að skríða eftir gólfinu. En var hann aldrei hræddur? „Nei, ég hef nefnilega heyrt um mörg tilvik þar sem hræðslan getur orðið manni að falli og að betra sé að taka þessu öllu með rósemi, þannig að ég reyndi það eftir fremsta megni þó ég væri al- veg skíthræddur.“ Jóhanna, Kristján maður hennar og Steini búa nú í íbúð á Eyrinni, ekki langt frá Fjólu- götunni. Móðurbróðir Jóhönnu á íbúðina og þannig vildi til að hann fór í sjö vikna frí til Spánar morguninn sem eldsvoðinn varð. „Við eigum marga vini og okkur stóð margt til boða, en það var einfalt að flytja hingað,“ segir Jó- hanna. Afinn varðstjóri í slökkviliðinu Föðurafi Steina, Þorkell Eggertsson, var einn fyrsti varðstjóri í Slökkviliði Akureyrar, og gárungarnir segja að hann hafi átt þátt í björguninni laugardaginn örlagaríka. Jóhanna segir að svo virðist að minnsta kosti sem „ein- hver“ hafi hjálpað til. Fátt bjargaðist úr brunanum. Eitt af því fáa var borðstofuborð sem tengdaforeldrar Jó- hönnu (Þorkell og eiginkona hans) áttu og stól- ar við. Svo og peningaveski Jóhönnu og Krist- jáns, eiginmanns hennar, sem var farinn til vinnu þegar eldurinn kviknaði. „Þegar ég skoðaði eldhúsið eftir brunann sé ég græna flyksu á gólfinu; þar voru leifar af flísjakka sem ég átti. Hann var horfinn en vasinn úr honum lá á gólfinu og þar var veskið mitt. Veskið hans Kidda var á hillu innst í eldhúsinu, í mesta hitanum, og það var handónýtt. Öll kortin hans voru þó heil og líka fjórir fimm þúsund króna seðlar sem í því voru. Þeir voru pínulítið brunnir í hornunum en það var ekkert mál að skipta þeim í banka,“ segir Jóhanna. Sjálfsagt er að nefna að vinkonur Jóhönnu í Kvennakór Akureyrar hafa stofnað reikning til stuðnings fjölskyldunni. Númerið er 565-14- 606815. Kennitala: 050255-5445. „Hef heyrt af því að hræðslan geti orðið manni að falli“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.