Morgunblaðið - 29.04.2006, Síða 43

Morgunblaðið - 29.04.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 43 MINNINGAR Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Ég þakka þér elsku Númi minn fyrir öll árin sem við áttum saman, þú varst alltaf svo skilningsríkur og góð- ur. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér. Guð geymi þig. Þín elskandi eiginkona, Ásta Sigrún. Elsku hjartans afi minn. Með sökn- uð í hjarta kveð ég þig. Nú hefur þú fengið friðinn eftir erfið og löng veik- indi. Þú valdir fallegan og bjartan dag fyrir svefninn langa. Þú sofnaðir inn í sumarið og trúi ég því að hjá þér sé eilíft sumar. Loksins ertu kominn til mömmu þinnar og pabba, sem þú misstir ung- ur. Og veit ég að þau hafa tekið vel á móti þér. Margar minningarnar streyma um hugann þessa dagana. Ég var svo heppin að kynnast þér vel og vera mikið í kringum þig. Þú varst ynd- islegur afi, hlýr, hjartagóður, skemmtilegur, hugulsamur og hjálp- samur. Það er margt sem þú skilur eftir þig, fullan fjársjóðskistil af minning- um, yndislegum minningum sem ylja hjartarætur á erfiðum sem og góðum tímum. Elsku afi minn, ég vil þakka þér fyrir að hafa fengið að kynnast þér og vera þér svona náin eins og ég var. Mig langar að kveðja þig með þessu ljóði sem ég samdi til þín: Hlý hafgolan leikur um hárið þitt fagra um leið og þú gengur framhjá blómagarðinum. Blómagarðinum sem eitt sinn var auðnin. Auðnin sem þú tókst að þér og sáðir þínum fræjum. Fræjum sem dafna og blómstra fallegum, litríkum blómum. Þú gengur framhjá, hverfur í hafið, um leið og þú horfir á mig, með tindrandi bláu augunum þínum, sem hafa hreiðrað um sig á himninum og vaka yfir okkur að kvöldlagi. Takk, elsku afi minn, fyrir allt. Við verðum hérna og pössum hana ömmu fyrir þig. Þetta er erfitt fyrir hana en hún er svo dugleg og sterk. Elsku amma, guð veri með þér og veiti þér styrk í þessari raun. Þín Sigrún Ósk. NÚMI ÓLAFSSON FJELDSTED ✝ Númi ÓlafssonFjeldsted fædd- ist í Reykjavík 16. febrúar 1933. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni 20. apríl. Útför hans verður gerð frá Stykkishólmskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. „Hverra manna ert þú, góði minn? Hvað heita foreldrar þínir? Ertu Vesturbæingur eða hvaðan ert þú?“ Þegar ég kynntist Núma tengdaföður mínum var ég spurður í þessa veru. Það var auðvelt að kynnast honum, hann gekk hreint til verks og spurði beint út. Feimni var ekki til í hans orða- bók. Til marks um það er að þegar hann fór í gönguferð með barnabörnunum og mætti fólki á förnum vegi, spurði hann um ættir þess en börnin blóð- roðnuðu og hneyksluðust á afa sínum fyrir þessa framhleypni. Núma var léttleiki í blóð borinn, hann var mikill húmoristi, stríðinn og svolítill prakk- ari í honum. Númi sagði alltaf að hann væri Vesturbæingur og KR- ingur. Einnig æfði hann hnefaleika. Stundvísi var honum í blóð borin, vissi ekki verri löst á nokkrum manni en að mæta of seint. Ef átti að mæta klukkan átta þá var hann hálfátta. Þegar þau hjónin komu í sveitina kom hann aldrei tómhentur. Hann varð alltaf að gefa börnunum eitthvað þeg- ar hann kom og skildi engan útundan. Ég man eftir einu skipti, þá var eitt auka barn hérna sem hann vissi ekki um og hann varð alveg eyðilagður og var ekki í rónni fyrr en búið var að bæta úr því. Hann ólst ekki upp við ríkidæmi en það sem honum var gef- ið, gladdi lítið barnshjarta. Þess vegna gladdi það hann mikið að sjá gleði barnanna þegar hann kom og ekki þótti honum verra að fá einn koss, því hann benti alltaf með fingri á kinnina og sagði: „Fæ ég koss?“og brosti blítt. Núma var margt til lista lagt. Þeg- ar hann varð að hætta vinnu, fór hann á útskurðarnámskeið og hann hefði náð langt, ef hann hefði fundið sig í því, það má sjá á þeim munum sem hann gerði. Að missa vinnuna var oft erfitt. Það sem ég minnist helst í fari Núma er hvað hann var léttur á sér og stundum um of. Þegar hann kom á sumrin þá var það alltaf hans fyrsta verk að fá eitthvað að gera. Það var gripið í málningu því hann var lista- góður málari enda lærði hann að mála. Hann brá sér upp á þak en var heldur fljótfær og húrraði niður en var fljótur upp aftur. Hann var mjög vandvirkur við það sem hann gerði. Ég man hvað þú varðst leiður þegar þú ætlaðir að mála gluggana í íbúð- inni ykkar og þú fannst að þú gast ekki skorið því þú varst svo skjálf- hentur og þú hættir við það, en svona varst þú, ef þú gast ekki gert það al- mennilega, þá var betra að sleppa því. Það var líka gott að eiga Núma að, því ef okkur í sveitinni vantaði eitt- hvað, þá var alltaf hringt í hann og stóð ekki á að redda því, helst áður en búið var að bera upp erindið. Svona var Númi, bónþægur og tilbúinn að gera allt fyrir mann. Að lokum, Númi minn, vil ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og börnin. Ég veit að þú varst sáttur við allt. Þú vissir að þín tíma- klukka var búin, það var svo auðvelt að tala um dauðann við þig, það var mikill munur. En þú varst ekki einn, þú hafðir Ástu þína hjá þér. Hún sat hjá þér á hverjum degi og hélt í hönd þína þegar þú kvaddir þennan heim. Farðu í friði, Númi minn, og takk fyrir allt og allt. Elsku Ásta mín, ég votta þér mína dýpstu samúð. Megi góður guð vera með þér. Ingólfur Benediktsson. Sumardagurinn fyrsti rann upp bjartur og fagur, en þegar leið á dag- inn fékk ég þá fregn að Númi vinur minn hefði látist um morguninn. Ekki kom það þó á óvart því hann hafði barist við illvígan sjúkdóm um nokk- urt skeið. Númi tók veikindum sínum með miklu æðruleysi. Vegir okkar Núma lágu saman gegnum Frímúrararegluna. Hann var fljótur að kynnast fólki og fögn- uðu bræður honum alltaf innilega enda var hann hjartahlýr og átti auð- velt með að slá á létta strengi. Númi var mikill tónlistarunnandi og hafði fallega söngrödd og hefði trúlega náð langt á því sviði hefði hann beitt sér fyrir því og voru helstu tenórhetjur sögunnar í miklu uppáhaldi. Hann var mjög duglegur að rækta vinátt- una og hafa samband og er ég honum þakklátur fyrir það. Númi var trúaður maður og bar virðingu fyrir hinum æðsta höfuð- smið himins og jarðar. „Í upphafi var Orðið, og Orðið var hjá Guði, og Orðið var Guð; það var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir eru gjörðir fyrir það, og án þess varð ekkert til, sem til er orð- ið. Í því var líf, og lífið var ljós mann- anna; og ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið hefur ekki tekið á móti því.“ Svona hefst Jóhannesarguðspjall, en Númi hafði miklar mætur á því. Ó, dauði, taktu vel á móti vini mínum, sem vitjað hefur á þinn fund. Oft bar hann þrá til þín í huga sínum og þú gafst honum traust á banastund. Nú leggur hann það allt, sem var hans auður, sitt æviböl, sitt hjarta að fótum þér. Er slíkt ei nóg? Sá einn er ekki snauður, sem einskis hér á jörðu væntir sér. (T.G.) Ég votta Ástu og öðrum aðstand- endum samúð mína og bið þeim Guðs blessunar. Hannes. Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA HANNESDÓTTIR, Hæðargarði 33, Reykjavík, lést á öldrunarlækningadeild Landspítala, Landa- koti, miðvikudaginn 19. apríl sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hennar. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega bent á að láta líknarstofn- anir njóta þess. Hrund Jóhannsdóttir, Gunnar Jónsson, Hanna Birna Jóhannsdóttir, Árni Óli Ólafsson, Rannveig Auður Jóhannsdóttir, Sigurður Rafn Jóhannsson, Margrét Runólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. KRISTJÁN JÓNSSON frá Hlíðargerði lést á dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík fimmtu- daginn 13. apríl. Jarðsett hefur verið í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur. Okkar ástkæra HREFNA MAGNÚSDÓTTIR, Fannborg 8, áður Melgerði 16, Kópavogi, er látin. Rögnvaldur Ólafsson, Sigríður Júlíusdóttir, Lára Ingibjörg Ólafsdóttir, Fríður Ólafsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Þórður Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengda- faðir, JÓN ÓLAFSSON, Prestastíg 8, Reykjavík, áður Mávabraut 12a, Keflavík lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 28. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Erna Ósk Guðmundsdóttir Guðmundur Þór Jónsson, Guðrún Baldursdóttir, Hjörtfríður Jónsdóttir, Magnús Andri Hjaltason, Brynja Jónsdóttir, Sigurbjörn Elíasson, Ólafur Örn Jónsson, Þóranna Ólafsdóttir, Andrea Dögg Björnsdóttir, Þórólfur Gíslason. ÓLAFUR SIGURGEIRSSON hæstaréttarlögmaður, er látinn. Útför auglýst síðar. Aðstandendur. Ástkær móðir okkar, amma og langamma, INGUNN HELGADÓTTIR, til heimilis á hjúkrunarheimilinu Eir, (áður Kambsvegi 4), lést aðfaranótt föstudagsins 28. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Helga Einarsdóttir, Marteinn Jakobsson, Halldór Einarsson, Brigitte Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.