Morgunblaðið - 29.04.2006, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Félagar
úr kór Áskirkju syngja, organisti Kári Þor-
mar. Margrét Svavarsdóttir djákni les ritn-
ingarorð. Prestur sr. Þórhildur Ólafs.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11.00. Guðsþjónustan
verður að þessu sinni í safnaðarsal kirkj-
unnar á neðri hæð vegna framkvæmda í
kirkjunni. Athugið að almennar guðsþjón-
ustur falla inn í barnaguðsþjónustuna kl.
11.00 meðan á framkvæmdum stendur.
Sr. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr. Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson predikar. Dómkór-
inn syngur og Marteinn Friðriksson leikur
á orgel. Börnin fara út í buskann að skoða
vorið í fylgd æskulýðsleiðtoganna.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur (Lellu)
og unglinga úr kirkjustarfinu. Guðsþjón-
usta kl. 11. Samskot til UNICEF. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Molasopi að lokinni guðs-
þjónustu. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11.00. Barna- og unglingakórar
Hallgrímskirkju og Austurbæjarskóla
ásamt Drengjakór Reykjavíkur syngja und-
ir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Org-
anisti er Hörður Áskelsson. Sr. Birgir Ás-
geirsson predikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Magnea Sverr-
isdóttir djákni leiðir barnastarfið. Þar mun
Stopp leikhópurinn flytja leikritið „Við Guð
erum vinir“ eftir Karin Vinje. Eftir messu
verður haldinn aðalsafnaðarfundur Hall-
grímssóknar.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Umsjón með barna-
guðsþjónustu: Erla Guðrún Arnmund-
ardóttir, Þóra Marteinsdóttir og Annika
Neumann. Organisti Douglas A. Brotchie.
Léttar veitingar eftir messu. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Guðsþjónusta kl. 10.30 á Landspítala í
Fossvogi. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson,
organisti Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Kór
Kórskóla Langholtskirkju syngur. Séra
María Ágústsdóttir messar. Organisti Jón
Stefánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni
en síðan fara börnin inn í safnaðarheimilið
með Rut, Steinunni og Arnóri. Kaffisopi.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Friðriks Stefánssonar
organista. Sr. Hans Markús Hafsteinsson
þjónar ásamt Ragnari Hilmarssyni með-
hjálpara og fulltrúum lesarahóps sem
flytja texta dagsins. Sunnudagaskólann
annast að þessu sinni sóknarpresturinn
Bjarni Karlsson og Þorvaldur Þorvaldsson
söngvari. Messukaffi. Kl. 12.30–15.30:
Málþing um málefni geðsjúkra á Íslandi –
Búseta og þjónusta. Aðstandendur þings-
ins eru Geðhjálp, Vin – athvarf Rauða
kross Íslands fyrir geðfatlaða, Laug-
arneskirkja, þjónustumiðstöð Laugardals
og Háaleitis, Heilsugæslan í Bolholti 4,
Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra og
LSH Geðsvið. Ráðherra félagsmála, Jón
Kristjánsson, setur þingið (sjá frétta-
tilkynningu).
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Lögreglukór Reykjavíkur syngur. Stjórn-
andi Guðlaugur Viktorsson. Lögreglumenn
annast ritningarlestra og taka þátt í bæna-
gjörð. Organisti Steingrímur Þórhallsson.
Sr. Örn Bárður Jónsson predikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Kjartani Erni Sig-
urbjörnssyni, sjúkrahús- og lögreglupresti.
Börnin byrja í messunni en fara síðan í
safnaðarheimilið. Að lokinni messu er
kaffi og veitingar í boði Lögreglukórsins á
Torginu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Sigurður
Grétar Helgason. Sunnudagaskólinn á
sama tíma. Eftir messu verður aðalsafn-
aðarfundur haldinn í safnaðarheimili kirkj-
unnar, öllum opinn.Við viljum vekja athygli
á að laugardaginn 29. apríl kl. 15 verður
dagskrá í Seltjarnarneskirkju á vegum
rannsóknarhópsins Deus ex cinema þar
sem fjallað verður um nokkrar kvikmyndir í
máli og myndum. Óður Páls postula (1.
Korintubréf 13) til kærleikans kemur þar
við sögu. Dagskráin er liður í Listahátíð
kirkjunnar. Allir velkomnir og aðgangur
ókeypis.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fermingar- og
skírnarmessa kl. 14. Almennan safn-
aðarsöng leiða þau Svava Kristín Ingólfs-
dóttir og Carl Möller ásamt Fríkirkjukórn-
um. Messan er í umsjá Hjartar Magna
Jóhannssonar og Ásu Bjarkar Ólafsdóttur.
Altarisganga. Að venju er almenn söng-
æfing klukkustund fyrir messuna, þar
sem sálmar dagsins eru æfðir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safn-
aðarheimilinu. Kaffi eftir messu.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 í umsjá Jóhanns, Sólveigar og
Þóru Jennyjar. Vöfflukaffi barnakórsins
eftir messuna. Prestur sr. Bryndís Malla
Elídóttir. Tómasarmessa kl. 20. Kökubas-
ar barnakórsins að lokinni messu.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju,
A-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu á neðri hæð. Súpa í safnaðarsal
eftir messu. (www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Uppskeruhátíð
barnastarfsins í Fella- og Hólakirkju. Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Prestar sr. Guð-
mundur K. Ágústsson og sr. Svavar Stef-
ánsson. Börn úr barnastarfinu syngja og
spila á hristurnar sínar sem þau bjuggu til.
Herra Hókus Pókus og fröken Fix koma í
heimsókn. Mikill söngur og frábær
skemmtun. Boðið er upp á pylsur eftir
messuna.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Lena Rós Matthíasdóttir predik-
ar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti Hörður Bragason.
Barnaguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl.
11. Prestur séra Elínborg Gísladóttir. Um-
sjón: Hjörtur og Rúna. Undirleikari Stefán
Birkisson. Barnaguðsþjónusta í Borg-
arholtsskóla kl. 11. Prestur séra Anna
Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Ingólfur,
Gummi og Tinna. Undirleikari Guðlaugur
Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Tónlistarmessa kl. 11.
Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Þorgils
Hlynur Þorbergsson guðfræðingur predik-
ar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng. Einsöngvari Kristín R.
Sigurðardóttir. Flautuleikarar Guðrún S.
Birgisdóttir og Martial Nardeau. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Við minnum á
bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18
og opið hús á fimmtudag kl. 12 (sjá einnig
á www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson predikar og
þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogs-
kirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Þóra Vigdís Guðmundsdóttir. Barna-
starf í kirkjunni kl. 12.30 í umsjón Önnu
Kristínar, Péturs Þórs og Sigríðar. Bæna-
og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12.10.
SELJAKIRKJA: Fermingarguðsþjónusta kl.
14. Sr. Valgeir Ástráðsson predikar.
Kirkjukór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng
og organisti er Jón Bjarnason. Fermdur
verður Benedikt Árni Þórarinsson. Strax
að lokinni guðsþjónustu verður aðalfundur
safnaðarins haldinn.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgun-
guðsþjónusta kl. 11.00. Edda M. Swan
kennir. Sunnudagskóli fyrir 3–6 ára og
krakkakirkja fyrir 7–13 ára. Samkoma kl.
20 með mikilli lofgjörð, vitnisburði og fyr-
irbænum. Friðrik Schram predikar. Þáttur
kirkjunnar, „Um trúna og tilveruna“, er
sýndur á Ómega kl. 14. Samkoma á Eyj-
ólfsstöðum á Héraði kl. 17.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11.00.
Bænastund alla miðvikudaga kl. 20.00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun, FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma á sunnudag kl. 20.30. Kaffi á eftir.
Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkoma á
sunnudag kl. 11. Kommandörarnir
Gudrun og Carl Lydholm tala. Lofgjörð-
arsamkoma kl. 20.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Sam-
koma kl. 14. Sigrún Einarsdóttir talar orð
guðs. Lofgjörð og fyrirbænir. Barnastarf á
samkomutíma og kaffisala á eftir. Allir vel-
komnir.
KFUM og KFUK við Holtaveg: Samkoma
kl. 17. Ræðumaður er Keith Reed og talar
hann um efnið „Frá trú til samfélags …
hvað kom fyrir Nick“. Lofgjörð og sam-
félag. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Gosp-
elkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í
lok samkomu. Allir velkomnir. Barnakirkja
á meðan á samkomu stendur, öll börn frá
1–12 ára velkomin. Hægt er að hlusta á
beina útsendingu á Lindinni, FM 102,9,
eða horfa á www.gospel.is. Á Omega er
sýnd samkoma í Fíladelfíu kl. 20.
KROSSINN: Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11 á
sunnudögum. Einnig samkomur kl. 19.30
á föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdegis
á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla
virka daga: messa kl. 18.00. Tilbeiðslu-
stund er haldin í Kristskirkju á hverju
fimmtudagskvöldi að messu lokinni, þ.e.
frá kl. 18.30 til 19.15. Sunnudaginn 30.
apríl kl. 10.30: biskupsmessa í tilefni
fermingar 12 unglinga. Maímánuður er allt
frá fornu fari settur sérstaklega undir
vernd heilagrar Maríu meyjar og tileink-
aður henni. Haldin er bænastund á hverj-
um mánudegi og miðvikudegi að kvöld-
messu lokinni og tekur hún ekki meira en
15 mínútur. Fyrsta bænastund er 1. maí.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga: messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund á
mánudögum frá kl. 19.00 til 20.00.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: messa kl.
16.00. Miðvikudaga kl. 20.00. Hafn-
arfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga:
messa kl. 10.30. Alla virka daga: messa
kl. 18.30. Tilbeiðslustund á hverjum degi
kl. 17.15. Karmelklaustur: Sunnudaga:
messa kl. 08.30. Virka daga: messa kl.
8.00. Keflavík, Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudaga: messa kl. 14.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: messa kl. 18.30. Sunnudaga:
messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga:
messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga:
messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnu-
daga: messa kl. 16.00. Suðureyri: Sunnu-
daga: messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþ-
ólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: messa
kl. 18.00. Sunnudaga: messa kl. 11.00.
Tilbeiðslustund á hverjum föstudegi kl.
17.00 og messa kl. 18.00.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Aðventkirkjan í Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10.00. Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Ræða: Suðurhlíðarskóli.
Loftsalurinn í Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11.00.
Ræðumaður: Gavin Anthony. Safn-
aðarheimili aðventista á Gagnheiði 40,
Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10.00. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Ræðumenn: ung-
menni. Safnaðarheimili aðventista á
Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15. Guðsþjónusta kl. 11.00. Ræðu-
maður: Osi Carvalho. Aðventkirkjan á
Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíu-
fræðsla kl. 10.00. Guðsþjónusta kl.
11.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Sunnudagur 30. apríl 2006. Kl. 12.00:
fjölskylduguðsþjónusta og vorhátíð. At-
hugið breyttan tíma guðsþjónustunnar og
að um er að ræða einu guðsþjónustu
dagsins. Kór Flúðaskóla mun syngja
ásamt Litlum lærisveinum, Stúlknakór
Landakirkju og krökkum úr æskulýðsstarfi
fatlaðra. Við heyrum frásögu úr ritning-
unni, syngjum saman og biðjum. Án efa
fáum við skemmtilega heimsókn. Við
munum eiga gleðilega stund í hátíðlegri al-
vöru. Prestar og barnafræðarar leiða
stundina. Vorhátíð barna- og æskulýðs-
starfs Landakirkju tekur síðan við á kirkju-
torgi að athöfn lokinni. Krakkar og leiðtog-
ar í TTT, Æskulýðsfélagi Landakirkju og
KFUM&K munu halda utan um leiki, and-
litsmálun og skemmtun, ásamt því að
grilla pylsur. Allir sem hafa tekið á einn
eða annan hátt þátt í kirkjustarfi vetrarins
eru sérstaklega velkomnir. Vonast er eftir
þátttöku leikskólabarna og foreldra, ferm-
ingarbarna og fjölskyldna þeirra, kirkju-
prakkara, TTT-krakka og allra ungra sem
aldinna sem trúa á Jesú Krist. Kirkjan er
staðurinn þar sem söfnuðurinn safnast
saman um Guðs orð og borð. Við skulum
taka þátt og upplifa hversu dýrmætt er að
eiga kirkjuna sem griðarstað og gleðistað
og ljúka á eftirminnilegan hátt góðu og öfl-
ugu vetrarstarfi barna og unglinga.
MOSFELLSPRESTAKALL: Fermingarguðs-
þjónustur í Lágafellskirkju kl. 10.30 og í
Mosfellskirkju kl. 13.30. Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðuefni: Júdasarguðspjall. Prest-
ur sr. Þórhallur Heimisson. Organisti Ant-
onia Hevesi. Kór kirkjunnar leiðir söng.
Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma í
safnaðarheimilinu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyr-
ir börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 13.
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Úlriks Ólasonar.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa
Edda, Hera og Örn. Góð stund fyrir alla
fjölskylduna. Sagt verður frá væntanlegri
fjölskylduhátíð í Kaldárseli.
GARÐAKIRKJA: Fermingarmessa kl.
10.30. Kór Vídalínskirkju leiðir sönginn.
Organisti Jóhann Baldvinsson. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir og sr. Friðrik J. Hjartar
þjóna. Verið velkomin!
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.00. Heimsókn frá Ólafsvík. Sr. Magn-
ús Magnússon predikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kór Ólafsvíkurkirkju syngur undir
stjórn Veronicu Osterhammer. Organisti
Elena Makeeva. Kór Vídalínskirkju og Jó-
hann Baldvinsson taka einnig þátt í guðs-
þjónustunni. Kirkjukaffi á eftir í safn-
aðarheimilinu. Brottfluttir Ólafsvíkingar
hvattir til að mæta. Allir ávallt velkomnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Sunnudaginn 30.
apríl kl. 20 verður hjóna-og sambúðar-
messu í Bessastaðakirkju. Prestarnir
Jóna Hrönn Bolladóttir og Friðrik J. Hjartar
þjóna fyrir altari, en Sæmundur Haf-
steinsson sálfræðingur er ræðumaður
kvöldsins. Tónlistin er í höndum Ómars
Guðjónssonar gítarleikara en Ragnheiður
Gröndal syngur og Eyþór Gunnarsson leik-
ur undir á hljómborð. Sjá www.gardasokn-
.is. Allir velkomnir óháð aldri og kyn-
hneigð.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Prestur sr. Sigfús Baldvin
Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng.
Stjórnandi Hákon Leifsson.
BORGARNESKIRKJA: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
HÓLSKIRKJA í Bolungarvík: Ferming á
sunnudag kl. 11.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta og
ferming á sunnudag kl. 14.
AKUREYRARKIRKJA: Laugardagur 29.
apríl: fermingarmessa kl. 10.30. Sr. Ósk-
ar Hafsteinn Óskarsson og sr. Svavar A.
Jónsson. Félegar úr Kór Akureyrarkirkju
syngja. Organisti: Björn Steinar Sólbergs-
son. Sunnudagur 30. apríl: fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Óskar Hafsteinn
Óskarsson. Lokahátíð sunnudagaskól-
ans. Barnakór Akureyrarkirkju syngur und-
ir stjórn Arnórs B. Vilbergssonar. Æðru-
leysismessa kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir og sr. Óskar Hafsteinn
Óskarsson. Mikil tónlist og almennur
söngur. Kaffi í safnaðarheimili á eftir.
GLERÁRKIRKJA: Fermingarmessa kl.
10.30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr.
Arnaldur Bárðarson þjóna. Félagar úr Kór
Glerárkirkju syngja. Organisti Hjörtur
Steinbergsson. Fermingarmessa kl.
13.30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr.
Arnaldur Bárðarson þjóna. Félagar úr Kór
Glerárkirkju syngja. Organisti Hjörtur
Steinbergsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Almenn samkoma kl.
20. Ath. breyttan tíma. Heimsókn komm-
andöranna Carls og Gudrunar Lyndholm
frá Noregi. Allir velkomnir.
ODDAKIKRJA: Messa kl. 11. Ferming.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum: Ferming
á sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa á
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
BRÆÐRATUNGUKIRKJA: Guðsþjónusta á
sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Fermingarmessa kl.
11. Sr. Gunnar Björnsson.
SÓLHEIMAKIRKJA: Guðsþjónusta á
sunnudag kl. 11. Ath. breyttan messu-
tíma. Sr. Gylfi Jónsson predikar. Sr. Birgir
Thomsen þjónar fyrir altari. Organisti er
Ester Ólafsdóttir. Ritningarlestra les Val-
geir F. Backman. Lokabæn flytur Úlfhildur
Stefánsdóttir.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa á sunnudag
kl. 14. Ferming. Benedikt Kristjánsson
syngur einsöng. Organisti Guðmundur Vil-
hjálmsson. Prestur Kristján Valur Ingólfs-
son.
Guðspjall dagsins:
Ég er góði hirðirinn.
(Jóh. 10.)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Valþjófsstaðarkirkja