Morgunblaðið - 29.04.2006, Side 51

Morgunblaðið - 29.04.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 51 KIRKJUSTARF Ragnheiður Gröndal syngur í hjóna- og sambúðarmessu MIKILVÆGUSTU undirstöðurnar í sambúð og hjónabandi eru ástin, trúfestin og virðingin. Allar þessar þrjár stoðir þarf rækta. Það er mik- ilvægt að kirkjan komi með tilboð um þjónustu sem hjálpar hjóna- og sambúðarfólki að rækta þessar undirstöður. Þess vegna er boðið til hjóna- og sambúðarmessu í Bessa- staðakirkju, sunnudaginn 30. apríl kl. 20. Þetta er þriðja svona kvöldmess- an á árinu 2006, en þetta nýja helgi- hald er samstarfsverkefni Bessa- staða- og Garðasóknar. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Friðrik J. Hjartar þjóna fyrir altari, en Sæ- mundur Hafsteinsson sálfræðingur er ræðumaður kvöldsins. Sæmund- ur hefur verið sjálfstætt starfandi sálfræðingur til margra ára og hef- ur af mikilli reynslu að miðla. Tón- listin er í höndum Ómars Guðjóns- sonar gítarleikara en Ragnheiður Gröndal syngur og Eyþór Gunn- arsson leikur undir á hljómborð. Það er mikilvægt að gefa sér tíma til að rækta ástina. Sjá www.gardasokn.is. Allir velkomnir óháð aldri og kynhneigð. Tónlistarmessa í Hjallakirkju TÓNLISTARMESSA verður í Hjallakirkju sunnudaginn 30. apríl kl. 11. Flutt verður Messa fyrir sópran, flautu og orgel eftir norska tónskáldið Kjell Mørk Karlsen sem hann byggir á gregorísku ívafi með sjálfstæðri íhugun flautunnar. Einnig verður m.a. flutt Drottinn er minn hirðir eftir Antonin Dvorák og sónata fyrir tvær þverflautur eftir þýska tónskáldið G. F. Telemann. Flytjendur tónlistar eru flautu- leikararnir Guðrún S. Birgisdóttir og Martial Nardeau, Kristín R. Sig- urðardóttir sópran, Félagar úr Kór Hjallakirkju ásamt organista kirkj- unnar, Jóni Ólafi Sigurðssyni. Séra Sigfús Kristjánsson þjónar og Þor- gils Hlynur Þorbergsson guðfræð- ingur prédikar. Sjá nánar á www.hjallakirkja.is. Seljakirkja um helgina VORFERÐALAG barnastarfsins laugardag kl. 11. Farið frá Selja- kirkju að Lágafelli. Pylsuveisla þegar komið er til baka. Ferming- arguðsþjónusta kl. 14 á sunnudag. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Aðalfundur Seljasafnaðar strax að lokinni guðsþjónustu. Verið vel- komin. „Kærleikurinn í kvikmyndum“ Í DAG, laugardaginn 29. apríl, verður dagskrá í Seltjarnar- neskirkju á vegum rannsókn- arhópsins Deus ex cinema þar sem fjallað verður um nokkrar kvik- myndir í máli og myndum þar sem Óður Páls postula (1. Korintubréf 13) til kærleikans kemur við sögu. Dr. Pétur Pétursson guðfræði- prófessor og Árni Svanur Daníels- son doktorsnemi í guðfræði flytja erindi. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson guðfræðiprófessor kynnir og stýrir umræðum. Dagskráin hefst kl. 15 í Seltjarnarneskirkju og er liður í Listahátíð kirkjunnar sem að þessu sinni er haldin undir yfirskriftinni „Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.“ Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Kaffisala 1. maí HIN árlega kaffisala Kristniboðs- félags kvenna verður í Kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58-60, mánudaginn 1. maí, kl. 14–17. Þar verða að vanda ljúfar kræsingar á boðstólum sem gott er að renna nið- ur með kaffisopanum. Kristniboðsfélag kvenna er elsta kristniboðsfélag á landinu, stofnað 1904. Félagið hefur stutt starfið í Eþíópíu og Kenýa dyggilega. Ein af fjáröflunarleiðum þess er hin ár- lega kaffisala. Starf kristniboðsins er í stöðugum vexti og verkefnin óþrjótandi hvort sem það er við boðun Guðs orðs, neyðarhjálp eða ýmis þróunarverkefni. Kolaportsmessa KOLAPORTSMESSA verður sunnudaginn 30. apríl kl. 14 í „Kaffi Porti“ innst í Kolaportinu. Frá kl. 13.30 syngur og spilar Þorvaldur Halldórsson ýmis þekkt lög bæði eigin og annarra. Hann annast einnig tónlistina í helgihaldinu. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir helgihaldið, sr. Jóna Hrönn Bolla- dóttir prédikar. Þá annast Sr. Sig- rún Óskarsdóttir og Guðbjörg Ólöf Björnsdóttir bænahald og ganga um og taka á móti fyrirbæn- arefnum. Í gegnum tíðina hefur skapast andrúmsloft tilbeiðslu í þessu óvenjulega guðshúsi. Þó margt sé um að vera í Kolaportinu eru ávallt margir þátttakendur sem gjarnan fá sér kaffisopa, syngja, biðja og hlusta. Í lok stundarinnar er gengið um með olíu og krossmark teiknað í lófa þeirra sem vilja. Um leið eru flutt blessunarorðin: „Drottinn blessi þig og varðveiti þig“. Að sjálfsögðu eru allir velkomn- ir. Lögreglan í Neskirkju LÖGREGLUMENN fást við lög eins og lög gera ráð fyrir. Hópur lög- reglumanna sem heimsækir Nes- kirkju gerir enn betur. Hann syng- ur lögin sín. Lögreglukór Reykjavíkur mun syngja við messu í Neskirkju kl. 11 á sunnudag. Sálmarnir og messusöngurinn kem- ur úr lagasafni kirkjunnar sem er á allt öðrum nótum en það lagasafn sem þessir mikilvægu verkamenn í víngarði Drottins styðjast við í dag- legum störfum sínum. Söfnuðurinn fagnar þessum góðu gestum ásamt stjórnanda sínum Guðlaugi Vikt- orssyni. Með þeim í för verður einnig séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sjúkrahús- og lögregluprestur. Lögreglumenn annast ritning- arlestra og taka þátt í bænagjörð. Að messu lokinni verður boðið upp á kaffi að venju á kirkjutorginu og gott betur því kórinn og kon- urnar sem standa við bakið á hon- um koma með veitingar með sér til að gleðja safnaðarfólk. Nes- kirkjufólk og allir sem áhuga hafa eru hvattir til að fagna þessum góðu gestum á nýbyrjuðu sumri. Organisti við messuna verður Steingrímur Þórhallsson en séra Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Kjartani Erni. Síðasta Tómasar- messan að sinni ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar Tómasarmessur efnir til síðustu messunnar á þessu vori í Breið- holtskirkju í Mjódd sunnudags- kvöldið 30. apríl, kl. 20. Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu átta árin. Fram- kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guð- fræðinema og hópur presta og djákna. Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyrir- bænaþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undir- búningi og framkvæmd Tóm- asarmessunnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar. Júdasarguðspjall í Hafnarfjarðarkirkju VIÐ guðsþjónustu í Hafnarfjarð- arkirkju næstkomandi sunnudag verður í predikun dagsins sér- staklega fjallað um hið svokallaða Júdasarguðspjall. Júdasarguðspjall hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu meðal annars í fjölmiðlum. Fjallað verður um aldur og innihald þessa guðspjalls og hvers vegna það var ekki tekið með í Nýja testamentið þegar það var í mótun. Einnig verður vikið að öðrum guðspjöllum sem ekki eru með í Nýja testamentinu eins og guðspjall Maríu Magdalenu. Ýmsir hafa hald- ið því fram að þessir textar koll- varpi sögu kristninnar. Er það rétt eða skipta þeir litlu máli fyrir trú manna? Og hver var það eiginlega sem ákvað hvaða rit ættu að vera í Nýja testamentinu og hvernig var það ákveðið? Prestur er sr. Þórhallur Heim- isson, organisti Antonia Hevesi og kór kirkjunnar leiðir söng. Guðs- þjónustan hefst kl. 11. „Við og Guð erum vinir“ BÖRN, sem koma í Hallgrímskirkju á sunnudaginn munu áreiðanlega fá að heyra eitthvað við sitt hæfi. Eins og jafnan taka börnin þátt í fyrri hluta messunnar. Á sunnudaginn munu Barna- og unglingakórar Hallgrímskirkju og Austurbæjarskóla ásamt Drengja- kór Reykjavíkur syngja undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Síðan fara börnin með leiðtoga barnastarfsins, Magneu Sverr- isdóttur og aðstoðarfólki hennar, inn í hliðarsal kirkjunnar, þar sem „Við erum vinir Guðs“, eftir Karin Vinje, verður flutt af leikhópnum Stopp. Má búast við miklu fjöri und- ir þeim flutningi. Foreldrar eru hvattir til að taka börnin með sér til kirkjunnar á sunnudaginn og leyfa þeim að njóta þar góðrar stundar. Eins er upplagt að börnin bjóði með sér félögum sínum. Organisti við messuna er Hörður Áskelsson. Sr. Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Eftir messu verður haldinn að- alsafnaðarfundur Hallgímssóknar. Barnastarfið í Grafarvogi SÍÐUSTU barnamessur á þessu voru verða nk. sunnudag 30. apríl kl. 11 í kirkjunni og á sama tíma kl. 11 í Borgarholtsskóla. Barnastarfinu lýkur síðan þegar farið verður í barnamessuferð laugardaginn 6. maí. Lagt verður af stað frá Graf- arvogskirkju kl. 10 og komið til baka um kl. 15. Farið verður til Eyrarbakka. Barnakórinn og krakkakórinn verða með í för, ásamt prestum og barnastarfsfólk- inu. Allir velkomnir. Sunnudaginn 30. apríl nk. er al- menn guðsþjónusta í kirkjunni kl. 11 þar sem séra Lena Rós Matthías- dóttir prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Grafarvogskirkja. Ólsarar í Vídalínskirkju GÓÐIR gestir verða á ferð í Vídalínskirkju kl. 14 sunnudaginn 30. apríl. Þá munu sóknarprest- urinn í Ólafsvík, sr. Magnús Magn- ússon, ásamt kór Ólafsvíkurkirkju, söngstjóranum Veronicu Oster- hammer og organistanum Elenu Makeeva annast guðsþjónustu í Vídalínskirkju. Sr. Magnús mun prédika og þjóna fyrir altari, en kór Vídalínskirkju mun einnig syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar með gestunum. Með í för verða sóknarnefnd- arfólk og makar, sem munu kynna sér kirkjulíf í Garðaprestakalli. Kirkjukaffi verður í safn- aðarheimilinu að lokinni guðsþjón- ustu og eru burtfluttir Ólsarar og sóknarbörn Garðasóknar hvött til að mæta. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir. Friðrik J. Hjartar. Morgunblaðið/Ómar Bessastaðir Frönskunámskeið hefjast 2. maí Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Taltímar og einkatímar. Viðskiptafranska og lagafranska. Námskeið fyrir börn. Kennum í fyrirtækjum. Tryggvagata 8, 101 Reykjavík, fax 562 3820. Veffang: www.af.is Netfang: alliance@af.is Innritun í síma 552 3870 18.-29. apríl 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.