Morgunblaðið - 04.05.2006, Qupperneq 16
Mýrdalur | Það kom dálítið skrít-
inn svipur á Önnu Elísabetu Jón-
ínudóttur þegar hún fékk að gefa
kindunum brauð í fjárhúsunum í
Kerlingardal. Henni fannst
greinilega ein kindin heldur frek.
Jóhann og Lára eru með frek-
ar fáar kindur en þegar krakk-
arnir úr Grunnskóla Mýrdals-
hrepps komu í heimsókn var
komið eitt lamb. Það vakti mikla
lukku hjá hópnum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Grunnskólinn í heimsókn
Fjárhús
Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Sigrún Björk Jakobsdóttir, sem skipar 2.
sætið á lista sjálfstæðismanna við bæj-
arstjórnarkosningarnar, hefur reynt að
kveða niður þann draug síðustu vikur að
hún og eiginmaðurinn Jón Björnsson séu
að flytja til útlanda. „Ég hef heyrt talað
um Lúxemborg og Brüssel, en við höfum
ekki einu sinni pantað okkur helgarferð til
útlanda!“ sagði Sigrún við blaðamann.
Rekstrarstjórar beggja stóru bygginga-
vöruverslananna í bænum eru að hætta
störfum; Helgi Eyþórsson í Húsasmiðj-
unni fer utan til náms í sumar og Karel
Rafnsson í BYKO hættir eftir að fyrir-
tækið opnar nýja stórverslun í júlí. Ekki
er vitað hvað Karel tekur sér fyrir hendur
eftir það.
Úr viðskiptalífinu er það líka að frétta að
Helgi Pálsson sem stýrði skrifstofu Eim-
skipa er hættur og farinn til Intrum Jus-
titia í gömlu KEA-höllinni og Hólmgeir
Þorsteinsson hjá Tryggingamiðstöðinni
gengur senn til liðs við slökkviliðið.
Þegar L-listinn kynnti stefnuskrá sína í
gær rakst einhver á eina prentvillu í
plagginu. Víðir Benediktsson skipstjóri,
sem skipar 3. sæti listans útskýrði það á
svipstundu: „Það var miðað við 3.665 slög
þannig að við urðum að taka burtu einn
staf!“
Hannes Sigurðsson í Listasafninu gerir
það ekki endasleppt. Alþjóðlegri far-
andsýningu, HOMESICK, verður hleypt
af stokkunum í safninu á laugardaginn, en
þar eiga verk listamenn frá Tyrklandi,
Ísrael, Sviss, Spáni og Íslandi.
Sýningin er hugmynd Hannesar og unnin
í samvinnu við Kynningarmiðstöð ís-
lenskrar myndlistar. Sýningin fer til
Tyrklands í desember, Ísrael vorið 2007
og til Sviss um sumarið.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
Eftir Skapta Hallgrímsson blaðamann
BLOGG: www.skapti.blog.is
Ólafsvík og Grundarfirði.
Liðin voru fjölbreytt í
útliti og gæðum. Það var
úr mörgu að velja, liðin
glæsileg og full af krafti
og frískleika.
Á myndinni sjást kepp-
endur frá félaginu Rimar
Yfir eitt þúsundmanns sóttu Snæ-fellsnes heim um
helgina í þeim tilgangi að
taka þátt í öldungamóti í
blaki.
Keppt var í íþróttahús-
unum á Hellissandi, í
á Dalvík. Þær eru f.v.:
Helga Níelsdóttir, Hulda
Njálsdóttir, Anna Hafdís
Jóhannsdóttir, Matt-
hildur Matthíasdóttir,
Dagbjört Jónsdóttir, Lína
Ingólfsdóttir og Guðbjörg
Ragnarsdóttir.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Kraftur og frískleiki
Úrslit voru tilkynntá dögunum í ár-legri vísnakeppni
Safnahúss Skagfirðinga.
Sigurvegari keppninnar
um besta botninn varð
Hreinn Guðvarðarson á
Sauðárkróki:
Fellur gengi, falla bréf
fúna strengir ljóða.
Allt of lengi eytt ég hef
illa fengnum gróða.
Sigurvegari í keppn-
inni um bestu vísuna var
hins vegar Pétur Stef-
ánsson í Reykjavík.
Þegar vorsins vindur blæs
vetrar hörkur þegja,
flýgur helsjúk heiðargæs
hingað til að deyja.
Rúnar Kristjánsson frá
Skagaströnd yrkir:
Góðir siðir göfga menn,
gefa besta keiminn.
Látum ekki öfgamenn
eyðileggja heiminn.
Úrslit í
vísnakeppni
pebl@mbl.is
Þingeyjarsýsla | Stjórn markaðsráðs
Þingeyinga hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem harmaðar eru þær athugasemdir
sem Landvernd hefur gert og birtust í
fjölmiðlum í síðustu viku um fyrirhugaðan
Dettifossveg.
Markaðsráðið segir frá því að staðsetn-
ing Dettifossvegar vestan Jökulsár á
Fjöllum hafi verið ákveðin í fullu samráði
við íbúa og ferðaþjónustu í Þingeyjar-
sýslum. Með henni sé tryggður aðgangur
allra að þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum
og Dettifossi. Þar við bætist að Dettifoss-
vegur tryggi jafnframt að ferðafólk, inn-
lent sem erlent, geti auðveldlega ekið
Demantshringinn svokallaða á milli Mý-
vatnssveitar, Jökulsárgljúfra og Húsavík-
ur og komist í snertingu við náttúruperl-
ur sem þar eru. Landsmenn hafi í
gegnum árin farið fram á að þessir staðir
verði öllum aðgengilegir en það hafi ekki
verið raunin til þessa.
„Stjórn markaðsráðs Þingeyinga fer
góðfúslega fram á að gagnrýni ýmissa að-
ila á uppbyggingu þjónustuvega verði
hætt og íbúum gefið tækifæri til að halda
búsetu sinni í Þingeyjarsýslu. Ráðið ber
virðingu fyrir umhverfissjónarmiðum
Landverndar en óskar eftir að samtökin
reyni að skilja þarfir og afkomumöguleika
íbúa umrædds landshluta,“ segir í yfirlýs-
ingu.
Tryggir að-
gang allra að
þjóðgarðinum
Morgunblaðið/BFH
Vegurinn Svona er staðan á fjallvegi
F862, Dettifossvegi, um þessar mundir.
Óperusöngur í Keflavík | Vortónleikar
Tónlistarfélags Reykjanesbæjar verða
haldnir í Listasafni Reykjanesbæjar næst-
komandi laugardag klukkan 16. Fram
koma Bjarni Thor Kristinsson bassa-
söngvari og síberíska sópransöngkonan
Eteri Gcanzava. Meðleikari þeirra er Jón-
as Ingimundarson píanóleikari.
Yfirskrift tónleikanna er Ástir og örlög.
Fluttar verða aríur og dúettar sem tengj-
ast því efni.