Morgunblaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 21 DAGLEGT LÍF Í MAÍ KAUPUM OG SELJUM ANTIKBÚÐIN Bæjarhrauni 10B Hafnarfirði (bak við Hraunhamar), sími 588 9595 30-50% af öllum vörum Antiksprengja Lokum í Hafnarfirði 24. maí, eftir 20 daga. ALLT á að seljast Einstakt tækifæri 250 fm troðfull antikbúð ALLT á að seljast Höfum opnað nýja antikbúð á Laugavegi 118 (neðri hæð bókabúðar) Verið velkomin Antikbúðin Hlemmi Laugavegi 118 Sími 552 8222 Opið laugardag og sunnudag Fituminna álegg Sláturfélag Suðurlands hefur sett á markað tvær nýjar fituminni áleggstegundir, spægipylsu með 65% minni fitu og pepperoni með 55% minni fitu. Í fréttatilkynningu frá Sláturfélaginu kemur fram að vör- urnar eru með hefðbundnu bragði og útliti en inni- halda jurtaost í stað fitu. Vörurnar fást í flestum matvöruverslunum. Nýr Höfðingi Osta- og Smjörsalan hefur sett á markað nýjan Höfðingja sem er mjúkur hvít- og blámyglu- ostur. Osturinn er mildur des- ertostur og gjarnan borð- aður með brauði, kexi, ávöxtum eða grænmeti. Hann bráðnar einnig ágætlega og hentar því vel í mat- argerð. Maltbrauð og normalbrauð Gæðabakstur hefur nú sett á markað tvær nýjar tegundir af nið- ursneiddu brauði, normalbrauð og maltbrauð en fyr- ir var hægt að fá í sams konar pakkningum sól- kjarnarúgbrauð og speltrúgbrauð. Gæðabakstur framleiðir einnig rúgbrauð og orkukubba og ýmsar aðrar tegundir af bakkelsi og brauði.  NÝTT B-VÍTAMÍN veitir ekki vörn gegn hjartaáfalli, að því er þrjár nýlegar rannsóknir benda til og greint er frá í Svenska Dagbladet. Undanfarinn áratug hafa ýmsar kenningar verið á lofti um gagn- semi B-vítamíns í þessu sambandi og þá sérstaklega í sambandi við efnið homocystein. Talið var að of mikið af því í blóðinu yki hættuna á hjartaáfalli en að fólínsýra, ein teg- und B-vítamíns, gæti lækkað gildi þess. Þrjár stórar rannsóknir, sem samanlagt 13 þúsund sjúklingar tóku þátt í, hafa nú leitt í ljós að hættan á hjartaáfalli minnkaði ekki við inntöku B-vítamíns, eins og SvD hefur eftir New England Journal of Medicine. Gildi homocy- steins í blóðinu lækkaði vissulega við inntöku vítamínsins en ekki var hægt að sýna fram á samband þess við líkur á hjartaáfalli.  HEILSA B-vítamínið veitir ekki vörn gegn hjartaáfalli LESANDI hafði samband og falaðist eftir súpuuppskrift frá Reykjavík pizza company en þangað hafði hann lagt leið sína nýverið. „Við opnuðum staðinn um áramótin og bjóð- um m.a. upp á pítsur, beyglur, súpur og vefj- ur,“ segir Þorleifur Jónsson, eigandi Reykja- vík pizza company á Laugaveginum. Þorleifur rekur líka Eldsmiðjuna en segir hana vera uppvaxna og hann hafi viljað opna nýjan stað sem væri aðeins öðruvísi. „Ég er aðallega með bakaðar pítsur og býð þar upp á allt stafrófið eins og það leggur sig. En ég merki allar píts- urnar mínar eftir stafrófinu, svo hér er hægt að fá pítsur frá a til ö eða jafn margar tegundir og stafirnir í stafrófinu eru. Við bjóðum líka upp á speltpítsur og pítsur með jurtaosti fyrir þá sem eru með mjólkurofnæmi.“ Þorleifur segir umferðina hafa byrjaði ró- lega en straumurinn af fólki sé alltaf að aukast og það sé orðið fullt að gera hjá þeim í öllum matmálstímum. „Við byrjuðum með fjóra starfsmenn en við erum núna orðin fimmtán. Ég er m.a. með franska smurbrauðskonu, hana Beatrice, sem sér um súpurnar og beyglurnar,“ segir Þorleif- ur sem fékk Beatrice til að gefa lesendum upp- skrift að súpu sem er vinsæl hjá viðskiptavin- um Reykjavík pizza company. Grænmetissúpa (fyrir 4–6) 1 miðlungsstór laukur 2 miðlungsstór púrrulaukar 5–6 stórar gulrætur 3 sellerístönglar 1 miðlungsstór rófa 1 msk. kjötkraftur Provence-krydd eftir smekk Steikið laukinn í ólífuolíu, grænmeti skal skorið í litla bita og bætt út í laukinn, setjið vatn yfir grænmetið, nóg svo það fljóti yfir það, og bætið kjötkraftinum og kryddinu við. Mauksjóðið súpuna og setjið síðan í bland- ara og berið fram. Þetta er heil máltíð – og holl í þokkabót.  UPPÁHALDSRÉTTUR Pítsur frá A til Ö Morgunblaið/RAX Beatrice, kokkur á Reykjavík pizza company.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.