Morgunblaðið - 04.05.2006, Side 32

Morgunblaðið - 04.05.2006, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Skúli Gíslasonfæddist í Reykja- vík 6. ágúst 1940. Hann lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi við Hringbraut 21. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Einarbjörg Böðvars- dóttir, f. 23.10. 1903, d. 12.7. 1985, og Gísli Jónsson, f. 4.9. 1878, d. 9.11. 1944. Systkini Skúla eru Freysteinn, f. 21.7. 1925, Auður, f. 1.10. 1934, og Hrafnhildur, f. 25.7. 1943. Látin eru: Gísli, f. 23.4. 1924, d. 15.3. 1927, Rúnar Óskar, f. 17.2. 1927, d. 5.3. 1927, Aðalsteinn, f. 2.7. 1930, d. 3.9. 1989, og Haraldur, f. 16.4. 1932, d. 12.3. 2005. Fyrri kona Skúla var Elísabet Jóhanna Sigurbjörnsdóttir, f. 12.12. 1944, d. 27.12. 2005. Áður hafði Skúli eignast soninn Erling, f. 21.1. 1960, d. 3.2. 2006, en saman eignuðust þau synina a) Garðar, f. 12.8. 1963, kvæntur Guðrúnu Kristinsdóttur, f. 10.10. 1959, og b) Gísli, f. 15.9. 1965, kona hans er Áslaug Baldursdóttir, f. 2.11. 1974. Árið 1984 kynnt- ist Skúli síðari eigin- konu sinni, Kristínu Ólafsdóttur, mót- tökuritara á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi við Hringbraut, f. 30.4. 1944. Börn Kristínar eru: a) Lárus, f. 4.12. 1960, kvæntur Guðlaugu Helga- dóttur, f. 23.6. 1964, b) Ásthildur, f. 29.9. 1967, gift Eiríki Ingvarssyni, f. 6.1. 1959, c) Anna María, f. 29.9. 1967, gift Halldóri B. Brynjars- syni, f. 27.6. 1962, og d) Andri Þór, f. 23.6. 1971, kvæntur Unu Ósk Kristinsdóttur, f. 26.9. 1972. Skúli starfaði lengst af við versl- unar- og þjónustustörf í Reykja- vík. Útför Skúla verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku Skúli minn, það er sárt að hugsa til þess að fá ekki að sjá þig aft- ur, þú og mamma voruð eitt, þið vor- uð mjög hamingjusöm og nutuð þess að vera saman. Eins og mamma sagði varst þú besti lífsförunautur sem hægt var að hugsa sér og sárt að þið skylduð ekki fá að eyða ellinni saman. Þú varst svo rólegur og yndislegur en gast leikið á als oddi þegar eitthvað var um að vera. Og ég gleymi því aldrei þegar ég var í kringum 16 ára og fékk að skemmta mér með þér og mömmu eina fallega sumarnótt þá komu vinnufélagar þínir með þér heim og allir skemmtu sér svo vel og dönsuðu úti í garði fram á rauðanótt. Þú varst alltaf svo myndarlegur og vel klæddur. Ef þú sagðir mann flott- an þá vissi maður að maður var flott- ur, þú komst mér heldur betur á óvart einn daginn þegar þú bauðst mér að stytta ermarnar á nýja jakkanum sem ég hafði keypt mér, ég hló og sagði, þú! En já, þú varst svo mynd- arlegur og fórst nú létt með þetta eins og þú hefðir aldrei gert annað og allar myndirnar sem þú hafðir saumað, já þú kunnir ýmislegt. Ég man hvað gaman mér þótti að láta þig spá í spil en það gerðir þú nokkrum sinnum þegar þannig lá við þér og varst þá nokkuð sannspár. Þú varst mikið fyr- ir steina og allstaðar sem þú fórst leit- aði þú uppi fallega steina og sást eitt- hvað sniðugt út úr þeim og er aldeilis til steinasafn í litla fallega garðinum ykkar sem allir dáðust að. Við hitt- umst öll á jólunum og strákarnir þínir og fjölskyldur þeirra, og var þá glatt á hjalla, eyddum nokkrum áramótun- um öll saman en ykkur fannst líka yndislegt að vera bara tvö ein útaf fyrir ykkur og var þá alltaf hringt á miðnætti og við urðum að óska hvort öðru gleðilegs árs. Ykkur fannst gam- an að ferðast og komuð stundum með í sumarbústaðaferðirnar okkar en minnistætt er þegar við gistum öll í bústaðnum hjá ykkur í Húsafelli og áttum yndislega helgi við varðeld og kósíheit. Áður en ég hætti verð ég að minn- ast á að þú gerðir bestu fiskibollur í heimi og alltaf allt frá grunni, varst ótrúlega fjölhæfur og vel liðinn alls- staðar og allt svo skipulagt í kringum þig. Ég get lengi haldið áfram að rifja upp allar minningarnar okkar en þær eru okkur dýrmætar, þú varst okkur systkinunum yndislegur sem faðir og barnabörnin dáðu þig. Brynjar gleymir aldrei fjöruferðunum sem þú fórst með hann í, sem voru svo fræð- andi og skemmtilegar fyrir hann. Þú tókst veikindunum af æðru- leysi, barðist hetjulega og kvartaðir aldrei, allt fram á síðasta dag. Ég þakka fyrir að hafa fengið að styðja ykkur mömmu og fengið að vera hjá þér síðustu dagana. Við fjölskyldan vorum lánsöm að hafa átt þig að og missir okkar er mikill. Þú verður ætíð í hjörtum okkar og takk fyrir allt. Ásthildur. Elsku Skúli, það er okkur mjög erf- itt að setjast niður til að skrifa okkar hinstu kveðju til þín. Þú og mamma byrjuðuð að búa saman fyrir rúmum tuttugu árum og sást strax hvað þið elskuðuð hvort annað mikið og báruð mikla virðingu hvort fyrir öðru. Nokkrum árum seinna eignuðumst við Benni okkar fyrsta barn, hana Kristínu. Við komum oft til ykkar, þín og mömmu og Kristín fékk oft að vera hjá ykkur og varð hún mjög náin afa sínum og ömmu. Þú sagðir nú oft svona í gríni að þú hefðir alið hana upp, það ánægður varstu með hana Kristínu. Stundum þegar við komum í heimsókn fórst þú í göngutúr út á róló með Kristínu og þar sast þú í mestu rólegheitum og last blaðið þitt á með- an hún lék sér. Þeir voru ekki fáir göngutúrarnir sem Kristín fór með þér og mömmu í Grafarvoginum, það fannst henni skemmtilegt. Þú varst svo barngóður og þolinmóður að börn löðuðust strax að þér og hafðir þú al- veg einstakt lag á þeim. Það er sárt að hann Gunnar Örn afastrákurinn þinn fái ekki að njóta þín lengur, en honum fannst afi sinn svo sniðugur, sérstak- lega þegar þú sagðir honum ýmsar skrýtnar sögur sem hann vissi ekki alveg hvort hann ætti að trúa. Skúli, þú varst mikill smekkmaður, alltaf vel klæddur og myndarlegur, það var gott að geta spurt þig álits á hinu og þessu, t.d. fötum en þú hafðir unnið mikið með fatnað hér áður fyrr og ef þér leist vel á var maður ánægður með sig. Þú varst mikill náttúruunn- andi og þú og Benni spjölluðuð oft saman um rjúpnaveiði og höfðuð gaman af, því þú hafðir farið oft á veiðar hér áður fyrr. Þú varst svo fróður um margt, hina og þessa staði á landinu og nöfn á fjöllum og þess háttar, svo voru það steinarnir sem þér fannst gaman að safna. Þegar þú sást einhvern sérstakan tókstu hann heim og settir í litla fallega garðinn ykkar mömmu sem þið hélduð alltaf svo fínum. Það var svo notalegt að koma til ykkar í góðu veðri og sitja í sólinni, sötra kaffi og spjalla. Einnig áttum við góðar stundir í sumarbú- staðnum á Klaustri og í Húsafelli fyr- ir nokkrum árum. Já, það er margs að minnast og dýrmætt að eiga svona góðar minningar um þig. Við kveðjum þig með miklum sökn- uði. Þú varst góður faðir, tengdafaðir og afi. Við munum ávallt geyma þig í hjörtum okkar. Biðjum góðan guð að styrkja mömmu og fjölskylduna alla á þessum erfiða tíma. Þökkum þér fyrir allt, Guð veri með þér. Hvíldu í friði. Anna María og Halldór Benjamín. Það var föstudagskvöldið 21. apríl, sem við fjölskyldan fengum hring- ingu frá móður minni, þar sem hún sagði okkur að hann Skúli væri látinn. Við fundum ólýsanlegan sársauka inni í okkur, þegar við gerðum okkur grein fyrir að þetta var blákaldur veruleikinn. Hann Skúli var dáinn. Skúli sem hafði verið órjúfanlegur hluti af lífi okkar, verið okkur traust- ur faðir, dásamlegur tengdafaðir og börnunum okkar yndislegur afi. Skúli sem var alltaf til staðar þegar á hjálp þurfti að halda, Skúli sem var alltaf til staðar fyrir mömmu, Skúli sem var alltaf til staðar þegar barnabörnin komu í heimsókn, og tók á móti þeim sem jafningjum í sömu augnhæð og þau, með því að taka þau alltaf upp, undantekningarlaust. Það var fyrir rúmlega 20 árum, sem mamma og Skúli kynntust. Skúli var ákaflega glæsilegur maður, hár, grannur, vel klæddur og eins og kom strax í ljós, traustur og áreiðanlegur. Samband Skúla og mömmu varð mjög traust, mjög ástríkt og ein- kenndist af gagnkvæmri virðingu hvort fyrir öðru. Skúli var mikill ná- kvæmnismaður og það sást á öllu því sem hann tók sér fyrir hendur, „ann- aðhvort gerir maður þetta vel, eða sleppir því“, það var hans trú. Skúli var fróður, víðlesinn og kunni skil á hinum ýmsu málum. Bækur voru hans yndi og þaðan nam hann mikinn fróðleik. Hann hafði yndi af því að hugsa um garðinn þeirra mömmu, sem var alltaf svo snyrtilegur, vel skipulagður og fallegur. Skúli hafði ótrúlega næmt auga fyrir steinum, hann þurfti ekki annað en að fara út að ganga, og hann fann steina sem enginn annar sá nokkuð í. Ótrúlega næmt auga fyrir fallegum hlutum, fal- legri náttúru eins og kom svo oft í ljós. Mamma og Skúli höfðu gaman af því að fara í langa göngutúra. Oft voru barnabörnin í för, þau elskuðu að fara í göngutúr með afa Skúla og ömmu Kristínu. Skúli og mamma höfðu svo góð áhrif á hvort annað, að það var aðdáunarvert hvernig þau voru öðrum til eftirbreytni. Þau voru ávallt til staðar fyrir hvort annað, þegar á þurfti að halda. Alltaf var maður velkominn, alltaf mætti manni hlýja og alltaf tók Skúli á móti afa- börnunum á sinn hátt, sem jafningi þeirra. Þegar maður lítur um öxl, átt- ar maður sig skyndilega á hvað Skúli hafði mikil áhrif á líf manns. Skúli var ótrúlega jákvæður á lífið og alltaf var glettnin til staðar. Fyrir um ári veiktist Skúli og háði hetjulega baráttu við sinn sjúkdóm, en hann stóð ekki einn. Við hlið hans stóð mamma, sterk sem klettur, og fór í gegnum veikindi hans með hon- um allt til hins síðasta. Skúli skilur eftir sig stórt skarð í okkar hópi, sem verður aldrei fyllt. Það er ólýsanlegur sársauki að missa Skúla, hann var svo stór hluti af okkar lífi og barnanna okkar. Mamma, ég veit að þú ert að fara í gegnum mjög erfiða tíma, þú átt okk- ur öll að, börnin þín og barnabörnin þín, og við munum gera allt sem hægt er til að létta þér sorgina og missinn sem þú finnur til. Ástarkveðja, Lárus. Það er skrýtið þetta blessaða líf okkar og maður skilur ekki hvers vegna sumir þurfa að kveðja svona fljótt. Einhvern tilgang hlýtur þetta samt að hafa og maður verður að reyna að trúa því. Mér er það sérstaklega minnis- stætt þegar ég sá Skúla í fyrsta skipti. Ekki grunaði mig þá að hann ætti eft- ir að verða tengdapabbi minn en mik- ið rosalega leist mér vel á manninn. Hann var svo glæsilegur eins og klipptur út úr tískublaði með þennan flotta hatt og fína yfirvaraskegg. Ég er hreint ekkert hissa á því að hún Kristín hafi fallið fyrir honum. En það var ekki bara útlitið sem var fallegt, ekki síður var það per- sónuleiki hans sem heillaði mig og myndi ég þá fyrst af öllu nefna hjarta- hlýju hans og húmor. Þetta tvennt notaði hann óspart og náði að bræða alla í kringum sig og alveg fram á síð- asta andartak sama hversu veikur hann var orðinn. Honum var margt til lista lagt og allt hans handbragð ein- kenndist af vandvirkni og nákvæmni, sama hvað hann tók sér fyrir hendur, þannig var Skúli í einu og öllu. Ég má til með að minnast á fiskibollurnar hans en þar held ég bara að hann hafi slegið henni ömmu minni við og það hélt ég að ekki væri hægt í þeim efn- um, að ekki sé minnst á túnfisksalatið góða sem frægt er orðið á mörgum heimilum. Skúli var okkur afskaplega góður og alltaf var hann tilbúinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Stelpunum okkar var hann líka alveg sérlega góður afi, enda hafði hann sérstakt lag á börnum, þau hreinlega soguðust að honum. Í dag fylgjum við Skúla síðasta spölinn. það er sárt að þurfa að kveðja, en sárast og erfiðast er það fyrir elsku Kristínu að þurfa að horfa á eftir sínum góða manni. Hún stóð allaf eins og klettur við hliðina á hon- um alla tíð og í gegnum öll veikindin, var svo ótrúlega dugleg og alltaf svo jákvæð. Ég bið góðan Guð að styðja við bakið á henni núna. Elsku Skúli, takk fyrir allar ljúfu samverustundirnar. Ástarkveðja, Guðlaug. Elsku besti afi minn, mér er illt í hjartanu, ég skil ekki, af hverju? – Ég er aftur orðin lítið barn, barn sem saknar afa síns. Afi. Fyrsta minningin um þig er frá því þegar ég var lítil. Ég man alltaf eftir því hvað þú varst alltaf með flott yfirvaraskegg og hlýlegt bros. Ég var alveg viss um það, að þú værir afi í Morgunsjónvarpi barn- anna. Og svo varstu líka alltaf svo fyndinn. Þegar ég var lítil, þá varstu alltaf svo góður við mig, og vildir alltaf halda á mér og þá var ég lengst uppi í loftinu. Svo varð ég stærri. Og þú hélst áfram að vera frábær. Ég man eftir því þegar þú kenndir mér að spila kapal, og svo fékk ég að smakka kaffi hjá þér. Svo stækkaði ég meira og meira, og minningarnar urðu fleiri og fleiri. Seinasta minningin mín um þig var þegar ég kom að heimsækja þig á spítalann. Þá varstu með vel snyrt yfirvaraskeggið og þú brostir svo hlý- lega til mín. Þessar minningar ætla ég að geyma í hjartanu mínu og þá hættir mér að vera illt í því. Afi, þú ert engill. Engill sem vakir yfir litla barnabarninu sínu. Þín Hrefna Lind. Ég næ þessu ekki ennþá. Að afi sé farinn. Hann var svo frábær og yndis- legur. Þetta er ekki sanngjarnt, að Guð skuli taka þá yndislegu svona snemma. Þegar ég hugsa um afa sé ég hann alltaf fyrir mér, rosalega kát- an karl. Alltaf hress. Með litlu krökk- unum, knúsa þau og kyssa, lyfta þeim upp í loftið og hvaðeina. Svo man ég líka eftir ferðinni okkar í Kolaportið. Ég, amma og afi. Mér fannst það frá- bært. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran.) Amma, þú veist að þú átt okkur öll að, við munum standa með þér. Ég elska þig. Jóhanna. Ég sakna þín rosalega mikið. Þú varst svo góður afi. Mig langar að þakka þér fyrir samveruna. Það var rosalega gott að hafa þig. Þú varst duglegur, skemmtilegur og jákvæð- ur. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þú varst einn broskall og það var alltaf jafn gaman að koma til þín því þú tókst alltaf svo vel á móti mér. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Hafðu það alltaf gott. Þín Helga. Elsku afi Skúli, ég veit ekki hvar ég á að byrja að tala um allar góðu minn- ingarnar sem ég á um þig. Ég var ekki fædd þegar þið amma byrjuðuð að búa saman, en eftir að ég fæddist urðum við tvö mjög góðir vin- ir og ég varð strax náin þér. Ég var oft í heimsókn hjá þér og ömmu og mér fannst það alltaf svo gaman. Þegar ég var yngri spiluðum við oft saman og þú sýndir mér oft spilagaldra sem ég skildi ekkert í. Ég gleymi því ekki þegar ég kom til ykkar að gista einn veturinn og það var alveg brjálað veður, snjóaði og snjóaði. Við ákváðum að fara út að gera snjóhús í skaflinum við girð- inguna. Okkur var ískalt en við klár- uðum snjóhúsið okkar þrátt fyrir allt og fórum svo inn í hlýjuna til ömmu. Við þrjú fórum oft í göngutúra um Grafarvoginn og þá oft meðfram sjón- um og svo upp tröppurnar hjá kirkj- unni. Ég gæti haldið áfram að telja upp minningarnar en ég ætla að stoppa hér. Þú verður alltaf í hjarta mínu og hugsunum og ég vona að þér líði vel þar sem þú ert kominn nú. Elsku afi guð geymi þig, hvíldu í friði. Þín Kristín. Elsku Kristín og fjölskylda. Söknuðurinn er mikill við fráfall Skúla en góð og hlý minning um hann mun alltaf lifa með mér. Góðvinum meðan þeim endast ár þín ástúð fyrnast mun eigi en fremst þínum kæru er sorgin sár og saknaðar bitur tregi. Hve þung eru sporin þeim í dag á þínum síðasta vegi. (Steingrímur Thorsteinsson.) Ragnheiður mágkona (Systa). Það er alltaf jafnsorglegt að horfa á eftir gæðamönnum kveðja á besta aldri, sem nú á við Skúla Gíslason. Skúli var svili minn til margra ára. Ég man fyrst eftir honum fyrir nokkrum áratugum á Eiðsvallagöt- unni á Akureyri en þar bjuggu Frey- steinn bróðir hans ásamt eiginkonu sinni, Bellu. Ég var tíður gestur þar sem strákhnokki. Næst lágu leiðir okkar saman er hann var að hefja sambúð með Kristínu systur Ragn- heiðar fyrrverandi eiginkonu minnar. Á fallegu heimili þeirra í Hamrabergi hitti ég aftur fjölskyldu hans frá Akureyri sem að mestu var þá flutt til höfuðborgarinnar. Samgangur okkar jókst til muna er við öll fluttum í Grafarvoginn, Kristín og Skúli í Frostafold og við Ragnheiður í Hest- hamra. Við skiptumst oft á heimboð- um, grilluðum, fórum í heita pottinn og ræddum málin af einlægni og góð- um húmor. Skúli var afar vel lesinn og visku- brunnur í öllum málum. Við Skúli átt- um mörg sameiginleg áhugamál, m.a. málverk gömlu meistaranna, fugla- skoðun, stangaveiði og ekki síst mat- ar- og víngerðarlist. Skúli var af- bragðskokkur og ekki síðri vín- gerðarmaður. Við brugguðum í bílskúrnum hjá okkur Ragnheiði til einkanota. Svo vel tókst til með Ca- bernet Sauvignon rauðvínið okkar að einn þekktasti vínsmakkari landsins sem átti fund með mér heima um veiðimál fékk að smakka eftir að ég hafði umhellt í karöflu. Ég bað hann að blindsmakka og gefa einkunn. Hann fullyrti að þetta væri eitt al- besta Cabernet árgangsrauðvín sem kæmi eflaust frá Chile. Hann fékk aldrei að vita um „leyndarmálið“. Kristín og Skúli aðstoðuðu mig við móttöku gesta á stangaveiðisýning- um sem ég stóð fyrir. Hlýleg og falleg framkoma þeirra var til sóma. Skúli var rólyndur maður, varfærinn við aðra, glæsilegur og snyrtipinni heima og að heiman. Kæra Kristín og fjölskyldur, besta huggunin felst í trúnni og því eiga eftirfarandi ljóðlínur vel við. Þótt döpur og niðdimm sé dauðans nótt, mun dagurinn renna í austri skjótt, svo bjart verður aftur yfir. Ef greinum vér markið, sem gnæfir hæst, þá gleði í söknuði verður stærst að trúa, að látinn lifir. (Jóhann Bárðarson.) Stefán Á. Magnússon. SKÚLI GÍSLASON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.