Morgunblaðið - 04.05.2006, Side 34

Morgunblaðið - 04.05.2006, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björn Sigmars-son fæddist í Krossavík í Vopna- firði 22. nóvember 1919. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi 25. apríl síðastliðinn, af völdum slyss. For- eldrar hans voru Sigmar Jörgensson frá Krossavík og Sigríður Grímsdótt- ir frá Hvammsgerði í Selárdal í Vopna- firði. Þau eignuðust fjögur börn auk Björns, Jörgen, Ingibjörgu, Bergþóru og Gunn- ar. Auk þeirra ólst upp með systkinunum frændi þeirra, Sig- mar Björnsson. Bergþóra og Gunnar lifa bróður sinn. Björn kvæntist 26. desember 1948 Gunnþórunni Gunnlaugs- dóttur frá Felli í Vopnafirði. Þau eiga tvo syni, sem báðir eru búsettir á Vopnafirði, þeir eru: 1) Garðar, sambýliskona Guð- rún Hjartardóttir. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: a) Hjörtur, sambýlis- kona Ester Ósk Hreinsdóttir. Dóttir Hjartar úr fyrri sambúð er Bryndís Una. b) Gunnþór- unn, búsett í Sví- þjóð. 2) Sigmar Sig- urður, kvæntur Hafrúnu Róbertsdóttur, börn þeirra eru a) Eydís Þórunn, gift Agli Sand- holt, b) Björn Þór, sambýliskona Bergdís Þrastardóttir, og c) Eva Þórey, nemi í MA. Björn verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hjartans afi minn. Með söknuð í hjarta kveð ég þig að sinni en einnig með þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman. Þegar ég hugsa til þín dettur mér fyrst í hug síðasta skipti sem að ég sá þig í fullu fjöri. Þú í stóru hettuúlpunni með ullar- húfuna í stígvélunum með rjóðar kinnar og að skamma köttinn Bjálfa sem var að spígspora í kringum þig á hlaðinu í Krossavík. Ég man hlýjuna frá þér og glettnisglampann í aug- unum þegar ég kom að heilsa upp á þig. „Ég ætla alltaf að muna hann svona,“ hugsaði ég. Það var eitthvað svo mikil friðsæld yfir þér þarna úti í snjónum og sólinni. Ekki datt mér þó í hug að þetta væri í síðasta skipti sem að við ættum spjall saman. Eitt veit ég þó að við eigum örugglega eftir að hittast í annarri sveit á öðr- um tíma og klárum að ræða málin. Ég minnist þín með svo miklum hlý- hug, þú gafst þér alltaf tíma til þess að spyrja um mína hagi, og það var gaman að spá hvað þér dytti í hug að ræða um í það skiptið því að þú lást svo sannarlega ekki á skoðunum þín- um. Hreinskiptinn varstu, vel lesinn, skemmtilegur og hortugur en um- fram allt varstu mér einstaklega góður afi. Vinir mínir og kunningjar sem hittu þig höfðu á þér dálæti því ekkert virtist vera þér óviðkomandi þegar að kaffispjalli kom, hvort sem um var að ræða heimsmálin, stríðs- ástand eða nýkrýnda fegurðar- drottningu, þú varst með þetta allt á hreinu. Við dunduðum mikið í gegnum tíð- ina, ég druslaðist með þér um öll tún, oft í grænu kerrunni aftan á trak- tornum. Við dyttuðum að girðingar- staurum, þú kenndir mér að taka á móti lömbum, við gerðum við hina ótrúlegustu hluti með bláum bagga- böndum, þú gerðir mig að yfirkú- reka nokkur sumur. Við ólum upp heimalninga og kálfa sem við gáfum mjólk úr pela sem amma gerði klára fyrir okkur. Það er svo margt sem ég get verið þakklát fyrir og það eru forréttindi að hafa verið svona mikið hjá ykkur ömmu í gegnum tíðina, það var alltaf gott að koma í Krossa- vík. Söngelskur varstu og tókst ófáa slagarana á fótstigna orgelið þegar þannig lá á þér. Vænst þykir um mér að hugsa til þess þegar þú og Róbert afi tókuð dúettinn saman í brúðkaupi okkar Egils, sunguð eins og englar „svífðu blær um bláan himingeim“. Svífðu nú afi minn um bláan him- ingeim og ég mun hitta þig síðar, það veit ég. Þín Eydís. Krossavík í Vopnafirði var frá upphafi mikilvægur staður í lífi mínu. Þar bjuggu afi minn og amma, tveir móðurbræður og móðursystir ásamt fjölskyldum sínum. Þar voru kýr og kindur, traktorar og hey- skapur, þar var íslenskt sveitalíf og þar leið mér vel. Ég var þar í sveit, fyrst eitt sumar í Krossavik 2 hjá þeim hjónum Ingibjörgu og Frí- manni og síðan nokkur sumur í Krossavík 1 hjá Gunnþórunni og Birni bónda. Björn frændi minn Sigmarsson var sérvitur maður í bestu merkingu þess orðs, því hann var bæði sér- stakur og vitur. Hann hafði sinn eig- in takt, sinnti bústörfunum á ákveðnum tímum, lagði sig eftir mat og kaffi, hlustaði á útvarp og las Tímann. Þannig aflaði hann sér ótrú- legrar þekkingar á mönnum og mál- efnum. Hann velti mörgu fyrir sér, leitaði skýringa og útskýrði fyrir mér, hvernig grunnstingull mynd- ast, þegar frýs í lækjum á vetrum. Þetta hugtak hafði ég aldrei heyrt, en Birni þótti undarlegt að slík fræði væru ekki kennd í skólum landsins. Hann tók afstöðu til mála, hafði ákveðnar skoðanir og var óragur við að láta þær í ljós. Margar sögur urðu til um afstöðu hans og tilsvör og þær ganga manna í millum. Björn eign- aðist eina af fyrstu dráttarvélunum sem komu til Vopnafjarðar – en var annars ekki nýjungagjarn. Björn fylgdist rólegur með breyt- ingum á búsháttum, en breytti engu fyrr en hann var fullviss um kosti slíkra breytinga. Hann vissi hvað hann vildi, lifði í samræmi við það og fékkst ekki um hvað öðrum þótti. Af- staða og vilji annarra fannst honum oft hin mesta firra og hann átti erfitt með að sætta sig við frábrugðin sjónarhorn. Með Gunnþórunni eiginkonu Björns kom í Krossavík mesti verk- snillingur sem ég hef kynnst. Hún tók þátt í heyskap og öðrum bústörf- um utanhúss, auk þess að sinna heimilisstörfum og sonum þeirra Garðari og Sigurði. Hún gat allt og margt í einu. Þannig voru bústörf og heimilishald þeirra hjóna í föstum skorðum. Samt var alltaf tími til að taka vel á móti gestum og margir komu. Úr tvíbýlinu í Krossavík 1 varð einbýli þegar Gunnar bróðir Björns hætti búskap og fluttist í þorpið 1962, búskapur lagðist niður í Krossavík 2 eftir andlát Frímanns bónda 1974 og loks varð úr félagsbú Björns og Gunnþórunnar með syni þeirra Garðari. Árið 1998 var búskap svo hætt í Krossavík en þau hjónin bjuggu þar áfram, höfðu þó vetur- setu á elliheimilinu síðastliðna tvo vetur. Björn hélt áfram sínum takti, tók sér ýmislegt fyrir hendur á ákveðnum tímum, þess á milli hlust- aði hann á fréttir og las dagblöð. Tvisvar á dag ók hann á gamla trak- tornum sínum um landareignina og hugaði að ýmsu. Hann hafði ekið um á traktor áratugum saman og vildi halda því áfram. Hann kallaði það leikfimina sína. Fyrir nokkrum árum hóf Björn að hlaða upp vörðum við bæinn. Þar standa þær listrænt hlaðnar og fal- lega upp raðaðar ásamt fyrsta trakt- ornum, fyrsta jeppanum og nokkr- um gömlum tækjum á vel hirtum túnbletti. Margir furðuðu sig á uppá- tækinu og veltu fyrir sér tilgangin- um. Skýringin var einföld, Björn langaði að hlaða upp vörðurnar. Undanfarin sumur dvaldi ég hluta sumarleyfis ásamt fjölskyldu minni í húsbíl við bæjarlækinn í Krossavík. Við Björn ræddum mikið saman, fór- um á traktornum um landareignina og í fjöruferðir. Það var góður tími. Mér fannst ég alltaf vera velkom- inn í Krossavík og vil að lokum þakka Birni frænda mínum og Gunnþórunni fyrir það, svo og fyrir að mér hafi alltaf fundist ég eiga þar dálítið heima. Sigmar Karlsson. Skarð er fyrir skildi. Elsku Björn bóndi, frændi minn í Krossavík, lést af völdum hörmulegs slyss hinn 25. apríl sl. Minningarnar eru margar, stórar og smáar, frá því að ég og tví- burarnir, Hjalti og Flosi, vorum krakkar heima á Bökkum og fórum upp í Krossavík til þess að leika við Sigga og Garðar í útilegumannaleik uppundir Háuklöppum og svo var það fallin spýta inni í Frímannsgirð- ingu, alltaf gaman og alltaf gott veð- ur í minningunni. Mér er minnis- stætt hvað alltaf ríkti mikill friður í Krossavík, allt svo hlýlegt og nota- legt og átti Gunnþórunn ekki síst þátt í því. Mér eru einnig í minni smalamennskur í heimalandinu þeg- ar þeir bræður, Björn og Jörgen, skipuðu fyrir hægri-vinstri og allir voru að stjórna öllum, við krakkarn- ir eins og hráviði á hestunum fram og aftur, þetta var eins og villta vestrið. Svo líða árin, ég verð ung- lingur, flyt í þorpið og verð upptekin af sjálfri mér og lífinu eins og ungu fólki er tamt. Fullorðinsárin taka við. Við Óskar sonur minn flytjum til Reykjavíkur og aftur til baka eftir einhver ár og við tekur ógleyman- legur vetur á Bökkum. Ófærð, vont veður og snjór, erfitt að komast á milli en Björn frændi missti aldrei trúna á mig, var stoltur þegar ég flaut á voffanum yfir ófærurnar og lét mig óspart heyra það. Á þessum tíma var ég farin að upplifa fræði- manninn og þennan ótrúlega lesna og skemmtilega mann sem hann hafði að geyma. Síðar hef ég komið heim á Vopnafjörð á hverju sumri og þá hefur leiðin fljótlega legið upp í Krossavík að hitta Björn og Gunn- þórunni, eiga í skemmtilegum rök- ræðum og fræðast í leiðinni. Um- ræður um trúmál voru oft ofarlega á baugi og skemmtilegt hvað Björn frændi setti sig hiklaust inn í þessi fræði og hafði eldheitar skoðanir. Síðasta samverustundin var í jan- úar þegar ég skrapp á þorrablót austur og var svo heppin að ná þeim hjónum uppi í Krossavík, því þótt þau væru flutt í þorpið lögðu þau leið sína þangað svo til daglega. Við átt- um saman skemmtilega stund og spjallað var um alla heima og geima. Að leiðarlokum kveð ég frænda minn með virðingu og hlýhug og þakka allt, einnig vil ég votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Jónína Jörgensdóttir. Allt frá barnæsku á ég minningar um Björn frænda minn, allar góðar og allar tengdar Krossavík. Björn fæddist og lifði öllu sínu lífi þar og hann vildi hvergi annars staðar vera. Sem ungur maður var hann tvo vet- ur í skóla á Eiðum, sem hann minnt- ist með ánægju, en annars alltaf í Krossavík. Ein fyrsta minningin sem ég á er frændi sitjandi við orgelið spilandi eitthvert danslag glaður á svip. Þeir bræður, hann og pabbi, spiluðu báðir fyrir dansi á orgelið og síðar Gunnar á harmonikku og má segja að þeir hafi lagt drjúgan skerf til dansleikja- halds í Vopnafirði um allnokkurn tíma. Önnur minning er mér sérlega kær en það var þegar þau giftu sig Björn og Gunnþórunn um jólin 1948. Þá var ég bara 6 ára og man lítið úr því brúðkaupi, nema hvað mér fannst þau bæði ofboðslega falleg, hann með sitt ljósa liðaða hár og bláu augu og hún koldökkhærð og brúneygð. Ég hugsaði oft þegar ég varð eldri að þau væru eins og dagur og nótt og saman mynduðu þau sól- arhring sem var alveg eins og sólar- hringar áttu að vera. Alltaf síðan þegar ég hef komið í Krossavík hef ég haft þessa sömu tilfinningu. Þar mætti mér alltaf bros og þessi hæg- láta hlýja sem er svo dýrmæt. Fáa menn hef ég þekkt sem mér þóttu skemmtilegri en Björn frændi, hann hafði smitandi hlátur og hann kunni öðrum mönnum fremur að halda uppi samræðum. Einnig komst hann stundum hreint meist- aralega að orði og ef ég færi að rifja upp öll þau gullkorn sem hrutu af hans vörum, bara í minni viðurvist, væri það efni í heila bók. En hann var einnig víðlesinn og feykilega minnugur, fylgdist grannt með öllu, bæði í útvarpi og sjónvarpi, og hafði yndi af góðum söng og íslensku efni, sérstaklega ef það var nú eitthvað fræðandi. Hann hafði áhuga fyrir fólkinu sem kom fram í sjónvarpinu, vildi gjarnan vita hverra manna það væri og hvort við þekktum eitthvað til þess. Margar stundir man ég sem við sátum við eldhúsborðið í Krossa- vík og ræddum stjórnmál eða trú- mál, sem hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á, eða bara það sem hæst bar hverju sinni. Frændi minn var einnig alveg sér- stakt snyrtimenni. Hann var fyrsti maður sem ég þekkti sem alltaf gekk í samfestingi við alla útivinnu, fór úr honum þegar hann kom inn og hengdi á snaga við útidyrnar (örugg- lega alltaf sama snagann), þvoði sér um hendurnar, brá greiðu í hárið og kom svo inn í eldhús í mat eða kaffi, tandurhreinn og fínn og ekki minnsta fjósa- eða fjárhúsalykt af honum. Utandyra var allt jafn hreint og snyrtilegt hjá Birni eins og innan- dyra hjá Gunnþórunni. Þau voru samtaka með það eins og annað, hjónin í Krossavík. Þau bjuggu aldr- ei neinu stórbúi en farsælu og höfðu alltaf nóg fyrir sig og sína og reynd- ar gott betur því hvergi veit ég um annan eins gestagang eins og var í Krossavík hvert einasta sumar svo lengi sem ég man. Það voru heilu fjölskyldurnar sem dvöldu frá 2–3 nóttum upp í viku til hálfan mánuð, jafnvel lengur, svona fyrir utan alla sem komu nú bara í mat eða kaffi. Það var einfaldlega fullt hús lungann úr sumrinu. Á móti öllum var tekið með brosi á vör og af stakri gest- risni, hlaðið borð hjá Gunnþórunni og skemmtilegt spjall við gestina þar til Björn varð að fara út að sinna heyskap því þetta var jú alltaf um hábjargræðistímann. Og allir komu aftur, sumar eftir sumar og alltaf sama gestrisnin. Björn frændi minn var hamingju- maður. Það sagði hann mér sjálfur í eitt af síðustu skiptunum sem ég hitti hann. Við sátum inni í litlu stof- unni inn af eldhúsinu og horfðum út um gluggann í glaða sólskini og blíðu. Þá sagði Björn: „Sjáðu nú, frænka mín, hér hef ég nú búið alla mína tíð, á þeim stað sem mér þykir vænst um, giftur bestu og fallegustu konu í Vopnafirði, á góða og heil- brigða syni og barnabörn. Hvers er hægt að óska sér meira.“ Sennilega ekki mikils. Ég hafði á honum miklar mætur og kveð hann með söknuði. Gunnþórunni minni, Garðari, Sig- urði Sigmari (Sigga) og fjölskyldum þeirra votta ég mína dýpstu samúð. Farðu heill, frændi. Laufey Jörgensdóttir. „Vertu blessuð, heillin, og akið þið nú varlega,“ var með því allra síð- asta sem Bubbi bóndi sagði við mig. Við ókum varlega. Bubbi bóndi ók líka alltaf varlega, hvort sem hann ók gamla Landrovernum, litla jepp- anum eða dráttarvélunum sínum. Hægt og örugglega hélt hann áfram. Allt gekk þetta, þó að ekki væru nú- tímatækniundrin. Það þurfti ekki. Alltaf fórum við fjölskyldan í hey- skapinn austur í Krossavík í Vopna- fjörðinn okkar og nutum þess afar mikið. Nutum samvistanna við alla fjölskylduna. Nutum þess að vera úti að vinna. Nutum þess að fara inn og fá okkur af hlaðborðinu hennar Gunnþórunnar frænku minnar. Allt var þetta svo skemmtilegt, þó að skemmtilegast væri að moka heyinu inn í blásarann, allir kepptust við, ákafinn var mikill að koma heyinu í hlöðuna, að ljúka dagsverkinu. Þá var það Bubbi sem kom og bað mig nú að fara mér hægar, annars yrði ég óvinnufær daginn eftir. Eitt sinn voru lætin svo mikil að ég stakk hey- gafflinum í legginn á mér. Þá kom Bubbi með joðið og hreinsaði sárið. Síðan þá höfum við alltaf átt joð á mínu heimili. Björn bóndi og Gestur höfðu ákaflega gaman af því að tala saman, rökræða daginn í dag og morgundaginn og kryfja allt til mergjar. Þetta voru ákaflega skemmtilegar umræður, á mörgu tekið og ekkert látið órætt. Enda Björn bóndi fjölfróður maður, greindur og minnugur með afbrigð- um og sagði skemmtilega frá. Hon- um fannst hann ekki þurfa að fara til Reykjavíkur, hefði farið þangað um miðja síðustu öld. Hann þekkti Reykjavík og vissi hvernig hún væri, hefði bæði lesið um hana og séð í sjónvarpinu. Eins var um útlönd. Hann hafði séð þetta allt. Vissi allt um útlönd. Þó að hann hefði ekki komið á staðinn hafði hann búið sér til hugmyndir. Hann var einstakur. Eitt sinn sagði hann við mig, að ég hefði örugglega verið sveitakona í fyrra lífi. Þetta fannst mér mikið hól. Takk fyrir það, Bubbi bóndi. Þau Gunnþórunn og Bubbi voru ákaflega góð við dóttur okkar, sem átti búið sitt við lækinn, ásamt Dísu frænku. Það eru forréttindi fyrir hana að hafa notið svona leikja og svona stunda. Halla Bára og Gunni senda sínar bestu kveðjur og þakklæti. Það eru líka forréttindi fyrir okkur hjón- in að hafa þekkt og umgengist slíkan mann sem Bubba bónda í Krossavík. Elsa og Gestur Einar. Ekki man ég nákvæmlega hvenær ég hitti Björn bónda Sigmarsson í Krossavík fyrst, sennilega 1978 eða 1979, en það er því miður of seint að spyrja hann að því núna, hann væri líklegast með það á hreinu, enda með afbrigðum minnugur maður. Mínar fyrstu minningar af honum eru þó af hestamannamóti að sum- arlagi í veðri eins og það gerist best á Vopnafirði á hestamannasvæði milli Hofs og Teigs. Í útimessunni talaði prestur um að ekki væri mikið fjallað um hesta í Biblíunni og þá læddi Björn út úr sér ,,en þeim mun meira um asna“. Löngu seinna kynntist ég skoðunum hans á trúmálum og þá fyrst skildi ég brandarann. Þannig háttaði til að ég og Sigga systurdóttir hans fluttumst búferl- um eftir nám til Vopnafjarðar 1981 og hófust þá fyrir alvöru kynni okk- ar Björns. Við vorum þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera tíðir gestir hjá þeim hjónum Birni og Gunnþórunni. Hvort sem það var spjall yfir kaffi og pörtum og eða smalamennska eða heyskapur sem við tókum þátt í með þeim Birni, Sigmari heitnum Björns- syni, Garðari og öðrum ættmennum. Björn var ekki tækjaóður maður og var heyskapur í Krossavík unninn eftir gamla laginu. Sláttuvélin hans virtist vera hönnuð fyrir hraðan ann- ar gír sem var vinnuhraði Björns við sláttinn og reyndar aðra vélavinnu enda ekki verið að ana að neinu. Önnur helstu tæki voru heytætla, rakstrarvél og heyblásari sem knúin voru af dráttarvélum sem allar voru komnar til ára sinna í mínum fyrsta heyskap og voru enn í notkun er bú- skap var hætt 1998 og dugðu vel. Þetta voru þau tæki sem til voru og sá gamli lét sér nægja. Því heyi sem var í svona þokkalegu kallfæri frá hlöðunum á hjáleigunni, við fjós- ið og húsunum fram frá, var ýtt með ámoksturstækjunum á dráttarvél- inni að blásaranum og handaflið not- að við afganginn. Því sem var lengra í burtu var einfaldlega mokað saman í sátur, ýtt og dregið af nokkrum vél- um eða ekið á pallvagni að viðkom- andi hlöðu eftir því sem tími vannst til. Einfalt en virkaði. Smalamennskan frá Gljúfursá og út í Vindfell var heldur ekki flókin, Björn akandi eftir veginum gefandi skipanir og við hin hlaupandi upp og niður fyrir veg, farandi mismikið eft- ir fyrirmælum foringjans. Eitt er víst, við eigum eftir að sakna þess mikið að hitta ekki Björn á hlaðinu í Krossavík næst þegar við eigum leið um þennan yndislega stað. Ég kveð minn gamla vin með þökk fyrir allt og allt. Pétur H. Ísleifsson. BJÖRN SIGMARSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.