Morgunblaðið - 04.05.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 45
MENNING
SELLÓKONSERT Dvoráks verð-
ur fluttur á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í kvöld.
Konsertinn var kveðjusöngur hans
til Bandaríkjanna, þar sem hann
hafði búið og starfað sem rektor
National Conservatory of Music í
New York um fjögurra ára skeið,
en Dvorák var þjakaður af
heimþrá alla Bandaríkjadvölina.
Sellókonsert Dvoráks er talinn
hafa markað spor í tónlistarsög-
una, en margir telja þetta einn
glæsilegasta einleikskonsert fyrir
selló sem saminn hefur verið. Þar
af leiðandi hefur hann verið viðmið
fyrir öll seinni tíma tónskáld sem
hafa spreytt sig á slíku verki,
hvort sem um er að ræða Elgar,
Walton eða Sjostakovítsj.
Einleikari á tónleikunum verður
Alban Gerhardt. Hann lærði hjá
Boris Pergamentsjíkov og bauðst
snemma að leika einleik með Berl-
ínarfílharmóníunni undir stjórn
Seymons Bychkovs. Í kjölfar
þeirra opnuðust honum margar
dyr enda hefur hann leikið með
fleiri en 150 hljómsveitum viðs-
vegar um heiminn, m.a. Lund-
únafílharmóníunni, Sinfón-
íuhljómsveitunum í Boston,
Birmingham, Chicago og San
Francisco, og Cleveland- og Fíla-
delfíuhljómsveitunum.
Einn af hápunktum næsta tón-
leikaárs hjá Gerhardt verður flutn-
ingur hans á sellókonsert Schu-
manns með Berlínarfílharmóníunni
undir stjórn Christian Thielem-
anns.
Gerhardt hefur yfir 45 selló-
konserta á efnisskrá sinni og hefur
stuðlað að útbreiðslu nýrra selló-
verka með því að panta og flytja
verk eftir m.a. Peteris Vasks, Jörg
Widmann og Matthias Pintscher.
Alban Gerhardt hlaut ECHO
Classic-verðlaunin fyrir hljóðrit-
anir sínar árin 1998 og 2003, og
hefur nýverið skrifað undir samn-
ing við bresku útgáfuna Hyperion.
Hljómsveitarstjóri í kvöld verður
Rumon Gamba, en auk sellókons-
ertsins er Sinfónía nr. 1 eftir Will-
iam Walton einnig á efnisskránni.
Tónlist | Alban Gerhardt leikur með Sinfóníuhljómsveitinni
Einn glæsilegasti
sellókonsert allra tíma
Alban Gerhardt, sem er meðal
bestu sellóleikara sinnar kynslóðar,
leikur einleik með Sinfóníu-
hljómsveitinni í kvöld.
ADAM Bateman opnar í dag sýningu í galleríinu Boreas, en
hún er unnin í samstarfi við Borgarbókasafnið. Þetta er
fyrsta einkasýning Batemans á Íslandi, en hann ætlar að
byggja skúlptúr er gefur bókum sem aðrir hafa hent nýtt líf.
Adam Bateman útskrifaðist frá Pratt Institute í Banda-
ríkjunum fyrir þremur árum, en konsept-list hans sýnir m.a.
hluti tengda tungumálinu í nýju ljósi fyrir tilstilli ólíkra
miðla.
Bókmenntir
verða myndlist
Eitt verka Batemans þar sem bók hefur verið
fundið nýtt hlutverk.
SÖNGSKÓLINN í Reykjavík
hefur, frá því hann var stofnaður
árið 1973, fylgt alþjóðlegu fyr-
irkomulagi tónlistarprófa á veg-
um The Associated Board of the
Royal Schools of Music
(ABRSM). Prófin eiga rætur að
rekja til ársins 1889 og var þeim
ætlað að efla gæði tónlistarnáms
og jafnframt hvetja tónlistarnem-
endur í námi en þau byggjast á
átta hæfnisstigum þar sem fyrsta
stigið miðast við færni byrjanda
og það áttunda við fullnuma tón-
listarmann. Í grundvallaratriðum
hefur hugmyndafræði prófanna
haldist fram til dagsins í dag en í
kringum 640.000 nemendur gang-
ast undir prófið á hverju ári í 93
löndum og nýtist það sem alþjóð-
legur mælikvarði fyrir nemendur
sem sækja nám í öðrum löndum.
Frá stofnun Söngskólans í
Reykjavík hafa prófdómarar á
vegum ABRSM verið fengnir til
landsins til að meta nemendur við
í verklegu prófi en á bilinu 60-70
nemendur við Söngskólann gang-
ast árlega undir hæfnisprófið.
Að mati Richard Morris, yf-
irmanns ABRSM, eru gæði söng-
nema úr Söngskóla Reykjavíkur
mikil í samanburði við aðra skóla
sem stofnunin er í samvinnu við.
Richard er staddur hér á landi til
að kynna ABRSM og samstarf
stofnunarinnar við Söngskólann
en auk þess mun hann kynna sér
starf tónlistarskóla á Íslandi al-
mennt og íslenska prófakerfið.
„Mér þykir það mjög einstakt
að svona smár skóli eins og Söng-
skóli Reykjavíkur geti getið af sér
svo marga hæfileikaríka söngv-
ara,“ segir Richard Morris og vill
hann meina að söngnám skólans
sé tvímælalaust á heims-
mælikvarða. Hann segir auk þess
að útskriftarnemendur við skól-
ann séu gjarnan í hópi þeirra
bestu sem stofnunin metur ár
hvert. „Ég er meðal annars kom-
inn hingað til að komast að því
hvað veldur því að hér er svo mik-
ið af góðu söngfólki,“ segir hann.
Richard hrósar sérstaklega
Garðari Cortes, skólastjóra og
stofnanda Söngskólans, fyrir það
starf sem hann hefur unnið við
skólann.
Söngur í hæsta
gæðaflokki
Morgunblaðið/Ásdís
Richard Morris yfirmaður
ABRSM.