Morgunblaðið - 11.07.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.07.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 186. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Semur ljóð á léttum nótum Sturla Friðriksson hefur verið hagmæltur frá barnæsku | 19 Samspil húss og minninga Systkinin Freyr og Hlíf Sigurjóns- börn á sumartónleikaröð | 20 Zidane segir ekkert  Sævar Þór skaut Fylki í annað sætið  Olga Færseth skoraði tvö fyrir KR  RÚSSNESKIR sérsveitarmenn felldu í fyrrinótt Shamíl Basajev, leið- toga uppreisnarmanna úr röðum téts- enskra aðskilnað- arsinna, í aðgerð í Íngúshetíu, að sögn Nikolaj Patrúshev, leið- toga rússnesku leyniþjónustunn- ar, FSB, í gær. Talsmenn upp- reisnarmanna vís- uðu þessu hins vegar á bug í gær og sögðu Basajev hafa látist af slys- förum, þegar flutningabíll sem flutti sprengiefni hefði sprungið í loft upp. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, tjáði sig um málið í gær og sagði dauða Basajev „réttláta hefnd“ vegna ódæðisverka hans. „Þetta er réttlát refsing fyrir að myrða börnin okkar í Beslan,“ sagði Pútín í gær. Basajev er þannig talinn ábyrgur fyrir mörgum af helstu árásum uppreisnarmanna í Tétsníu, þ. á m. hryðjuverkinu í Beslan í maí 2006, þar sem 375 manns féllu, þar af 186 börn. Þá er Basajev talinn hafa gegnt lykilhlutverki í skipulagningu gíslatöku í leikhúsi í Moskvu árið 2002, þar sem 129 manns létu lífið. Basajev varð óformlegur leiðtogi upp- reisnarmanna í kjölfar dauða Aslan Maskhadov, þáverandi leiðtoga að- skilnaðarsinna, í mars 2005 og var gjarnan talinn lykilhlekkurinn í tengslum þeirra við íslömsku jíhad- hreyfinguna. Pútín fagnar „réttlátri hefnd“ Reuters Rússar felldu leið- toga aðskilnaðar- sinna í Tétsníu Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Shamíl Basajev FRAMKVÆMDASVIÐ Reykjavík- urborgar hefur auglýst til kynningar matsáætlun annars áfanga Sunda- brautar, sem unnin var af verkfræði- stofunni Línuhönnun hf. Um er að ræða 8 km langa braut frá Gufunesi og yfir Kollafjörð. Í skýrslunni eru fyrst og fremst tveir kostir um legu brautarinnar kynntir. Fyrri kosturinn gengur út frá því að brautin tengist Vestur- landsvegi norðan við Kollafjörð með því að þvera Eiðsvík, Leiruvog og Kollafjörð, að mestu með fyllingum og lágbrúm og gert ráð fyrir að braut- in sveigi til norðvesturs þar sem hún fer yfir Geldinganes. Þar er reiknað með að hún verði að hluta til í jarð- göngum. Þverun Kollafjarðar yrði að mestu á fyllingu en í miðjum firði er gert ráð fyrir brú sem tryggi vatns- skipti innan við fyllinguna. Hinn kosturinn er sambærilegur við valkost nr. 1 að undanskilinni þverun Geldinganess og Leiruvogs. Skv. þessari útfærslu er gert ráð fyrir legu brautarinnar töluvert austarlega á Geldinganesi og að Leiruvogur verði þveraður innarlega í sundinu milli Geldinganess og Gunnuness. Ekki er gert ráð fyrir jarðgöngum undir Geldinganes heldur verður brautin að nokkru leyti niðurgrafin. Þverun Kollafjarðar þykir heppi- legri kostur en að fara með alla um- ferð til og frá höfuðborgarsvæðinu um botn Kollafjarðar. „Þverunin styttir leiðina um 3,5 km,“ segir m.a. í skýrslu Línuhönnunar. Áætla að 8–10 þúsund íbúa byggð rísi á Geldinganesi Fram kemur að gert er ráð fyrir að lagning annars áfanga Sundabrautar eigi sér stað í áföngum og að fram- kvæmdir við lagningu brautarinnar út í Geldinganes geti hafist á árinu 2008. Fram kemur og að áætlað er að um það bil átta til tíu þúsund íbúa byggð rísi á Geldinganesi og að fyrstu lóðum verði úthlutað á þessu ári. Tillaga að matsáætlun vegna annars áfanga Sundabrautar kynnt Tveir kostir um legu brautarinnar Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is  Á fyllingum … | 11 Hermaður fylgist með því er bíll sem skemmdist í sprengingunni, sem ban- aði Shamíl Basajev skammt frá Ekazhevo, er hífður á brott. HJALTI Arnarson bíður þess að leysa land- festar þýska skemmtiferðaskipsins Aida blu við Korngarð í Sundahöfn. Fjær er hollenska skemmtiferðaskipið Maasdam en bæði skipin komu í gærmorgun og sigldu á brott í gær- kvöldi. Skipið sem ber nafn hinnar eþíópísku prinsessu er 245 metra langt, fjórtán hæðir og í því eru sjö veitingastaðir, spilavíti, tvær sund- laugar og líkamsræktarstöð. Það slær því út samferðaskip sitt Maasdam sem er 219 metra langt, en bæði geta borið tæplega tvö þúsund farþega og fimm hundruð manna áhöfn. Á sama tíma lá einnig hið 261 metra langa skemmtiferðaskip Sea Princess við Skarfa- bakka og vakti það ekki síður athygli. Morgunblaðið/Kristinn Senn siglir lúxusskipið sinn sjó BJÓÐENDUR í níu íbúðarlóðir í landi Úlf- arsárdals við Úlfarsfell, sem boðnar voru út í febrúar sl., hafa ekki staðið skil á greiðslum og hætt við lóðakaupin. Eins og fram kom í vetur skiluðu á fjórða hundrað aðilar inn rúmlega fjögur þúsund tilboðum, en alls voru seldar 104 lóðir í út- boðinu. Er hlutfall þeirra sem ekki standa við kauptilboð sín óvenju stórt í útboðum af þessu tagi, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Ágústi Jónssyni, skrifstofu- stjóra hjá framkvæmdasviði Reykjavíkur- borgar. Byggingarrétti fyrir um 450 íbúðir enn óráðstafað Ágúst segir að menn séu ekki krafðir skýringa á því að þeir standa ekki við tilboð sín. Hann sagðist telja að meginástæðuna mætti rekja til þeirrar stefnubreytingar sem hefur orðið hjá bönkunum varðandi íbúðalán, hún hefði þessi áhrif á ákvarðanir fólks. Fleira gæti þó komið til, m.a. sú stefna Sjálfstæðisflokksins sem nú er við völd í borginni, að byggingarréttur í borg- inni verði ekki seldur með þessum hætti í framtíðinni. „Svo höfum við líka heyrt að menn séu ekki ánægðir með skipulagið, sem er þó undarleg skýring vegna þess að menn höfðu alla möguleika á að kynna sér skipu- lagið áður en þeir lögðu inn tilboð.“ Að sögn Ágústs er óráðstafað bygging- arrétti fyrir um 450 íbúðir í Úlfarsárdalnum og gerir hann ráð fyrir að lóðirnar níu sem nú hafa losnað, verði látnar fylgja með þeg- ar þeim verður ráðstafað. Kaupendur níu lóða við Úlfarsfell hættir við Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.