Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FORSETI Mongólíu, N. Enkhbayar, stendur fyrir framan risastóra styttu
af mongólska höfðingjanum og stríðsmanninum Genghis Khan eftir að hún
var afhjúpuð í Ulan Bator í gær. Genghis Khan sameinaði mongóla fyrir
um það bil átta hundruð árum, setti þeim lög og lagði undir sig mikil land-
svæði frá Kaspíahafi til Kyrrahafs.
AP
Stytta af Genghis
Khan afhjúpuð
Gaza-borg. AFP. | Ísraelsher hélt áfram mann-
skæðum loftárásum á Gaza-svæðið í gær og
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, neitaði
því að Ísraelar hefðu beitt Palestínumenn of
mikilli hörku eftir að ísraelskur hermaður var
tekinn í gíslingu. Olmert sagði að hernaðurinn á
Gaza-svæðinu væri nauðsynlegur til að binda
enda á loftskeytaárásir Palestínumanna á Ísr-
ael.
Khaled Meshaal, útlægur leiðtogi Hamas-
samtakanna, hélt blaðamannafund í Damaskus,
og sagði að ísraelski hermaðurinn yrði ekki
leystur úr haldi nema Ísraelar létu palestínska
fanga lausa.
„Þeir tala um einn hermann, palestínsku
fangarnir eru 10.000, þeirra á meðal 400 börn og
120 konur. Þess vegna sækjumst við eftir fanga-
skiptum,“ sagði Meshaal.
Að minnsta kosti 49 Palestínumenn og einn
ísraelskur hermaður hafa beðið bana frá því að
hermenn og skriðdrekar voru sendir inn á norð-
urhluta Gaza-svæðisins á miðvikudaginn var til
að reyna að frelsa hermanninn og stöðva flug-
skeytaárásir á Ísrael.
Kveðst ekki ætla að fella heimastjórnina
Olmert hafnaði tillögu Ismails Haniya, for-
sætisráðherra Palestínumanna, um vopnahlé en
neitaði því að Ísraelar hygðust steypa palest-
ínsku heimastjórninni undir forystu Hamas.
Olmert sagði að hernaðinum yrði haldið
áfram eins lengi og þörf þætti. Hann bætti við
að hernaðurinn væri ekki of viðamikill eða of
harkalegur ef tekið væri tillit til þess að meira
en þúsund flugskeytum hefði verið skotið að
saklausum borgurum í Ísrael á tæpu ári.
Herskáir Palestínumenn hafa skotið að
minnsta kosti 30 flugskeytum í átt að Ísrael frá
því að her landsins hóf hernaðinn á norðanverðu
Gaza-svæðinu. Einn íbúi eyðimerkurbæjarins
Sderot særðist lítilsháttar í einni árásanna.
Hjálparstofnanir hafa látið í ljós áhyggjur af
erfiðleikunum við að koma 1,4 milljónum íbúa
Gaza-svæðisins til hjálpar, en þeir eru sagðir
búa við skort á matvælum og nauðþurftum.
Neitar því að Ísraelsher
hafi beitt of mikilli hörku
Kaíró. AP. | Hosni Mubarak,
forseti Egyptalands, skipaði í
gær ríkisstjórn sinni að falla
frá því að heimila fangelsun
blaðamanna í umdeildu frum-
varpi til fjölmiðlalaga.
Mubarak sagði stjórninni að
sleppa ákvæði um að hægt yrði
að fangelsa blaðamenn sem
bera brigður á heiðarleika
embættismanna og þingmanna
í fjármálum. Stjórnin hafði ver-
ið sökuð um að reyna að koma í
veg fyrir að fjölmiðlar fjölluðu
um fjármálaspillingu.
Frumvarp stjórnarinnar
fékk ekki nægan stuðning í at-
kvæðagreiðslu á sunnudag eft-
ir að stjórnarandstaðan hafn-
aði ákvæðinu um fangelsun
blaðamanna.
Mubarak lagði til að í stað
þessa ákvæðis yrði kveðið á um
hærri sektir fyrir brot á lög-
unum. Eftir breytinguna eiga
blaðamenn þó yfir höfði sér
fangelsisdóm fyrir meiðyrði
um forseta Egyptalands eða
þjóðhöfðingja annarra landa.
Útgáfa yfir 20 blaða í
Egyptalandi var stöðvuð til að
mótmæla frumvarpinu og um
300 blaðamenn söfnuðust sam-
an fyrir utan þinghúsið á
sunnudag til að krefjast þess
að frumvarpinu yrði breytt.
Búist er við að þingið sam-
þykki frumvarpið eftir breyt-
inguna.
Sjö blaðamenn áttu yfir
höfði sér saksókn vegna frétta
um meinta spillingu embættis-
manna.
Fallið frá
heimild til
að fangelsa
blaðamenn
London. AFP. | Yfir 2.000 grunn-
skólanemendur í breskum skólum
munu á næstu árum sitja sérstakar
kennslustundir í hamingju, sem eru
hluti af nýrri herferð stjórnarinnar
til að draga úr þunglyndi og and-
félagslegri hegðun ungmenna. Þá
munu nemendur sitja námskeið þar
sem sjálfsmynd þeirra verður
styrkt, með það að markmiði að
bæta námsárangur og draga úr
glæpum.
Að sögn breskra yfirvalda hefur
orðið mikil aukning í þunglyndi
grunnskólanema, sem er meðal
annars rakið til þess að margir
þeirra áfellast sjálfa sig þegar for-
eldrar þeirra skilja. Að auki er talið
að prófkvíði og ýmiss konar þrýst-
ingur samfara hröðu lífi nútíma-
mannsins séu orsakavaldar í þessu
samhengi.
Kenna
hamingju
SÚDAN, Úganda og Kongó eru þau
lönd sem eru hættulegust börnum
vegna stríða sem hafa kostað hundr-
uð þúsunda barna lífið, ýtt undir far-
sóttir og orðið til þess að milljónir
barna hafa neyðst til að flýja heim-
kynni sín.
Þetta kemur fram á fréttavefnum
AlertNet sem Reuters heldur úti og
er helgaður umfjöllun um ýmsa
hörmungaratburði, hungursneyðir
og farsóttir í heiminum. Fréttavef-
urinn bað um 110 sérfræðinga í
hjálparstarfi og blaðamenn að nefna
þá staði í heiminum sem væru
hættulegastir börnum.
Niðurstaðan er sú að Súdan þykir
hættulegasta landið, síðan Úganda
og Kongó. Á listanum yfir tíu hættu-
legustu löndin og landsvæðin eru
einnig Írak, Sómalía, Indland, svæði
Palestínumanna, Afganistan,
Tétsnía og Myanmar (Búrma).
Að sögn Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna (UNICEF) hafa átökin í
Darfur-héraði í Súdan komið hart
niður á börnum, sem eiga á hættu að
verða neydd til að taka þátt í hernaði
og mörg þeirra hafa dáið af völdum
sjúkdóma eða vannæringar.
Hneppt í kynlífsánauð
Í norðurhluta Úganda hafa upp-
reisnarmenn rænt allt að 25.000
börnum og neytt þau til að berjast
við stjórnarherinn eða hneppt þau í
kynlífsánauð. Barnahjálpin segir að
rúmar tvær milljónir barna hafi dáið
af völdum vopnaðra átaka í heim-
inum á síðustu tíu árum og um 20
milljónir barna hafi neyðst til að
flýja heimkynni sín. Rúm milljón
barna hefur orðið munaðarlaus eða
orðið viðskila við fjölskyldu sína.
Súdan og Úganda
hættulegust börnum
<,
<% N ,
!%
" <3
O + P
4, ,
R.
%&'
( ! &
)
!
*!+, + , +- %, !! ! & ( ) '
%, ( - & + . * * /
=+ 1,
, , 3 ++$3 + .
3 $#
*!+, + ,
! ./0
/ +
Multan. AFP. | Farþegavél af gerð-
inni Fokker-27 varð alelda þegar
hún brotlenti á akri í Pakistan í
gær. Fjörutíu og fimm manns fór-
ust í slysinu og enginn komst lífs
af.
Vélin var á leiðinni til borg-
arinnar Lahore í austanverðu Pak-
istan þegar hún brotlenti skömmu
eftir flugtak frá flugvelli í borginni
Multan í miðhluta landsins. Vélin
fórst um fimm kílómetra frá mið-
borginni.
Ekki var vitað um orsök slyssins.
Embættismaður á staðnum sagði
þó að reynt hefði verið að lenda
vélinni á akrinum vegna bilunar en
hún hefði rekist á rafmagnslínu.
Annar embættismaður í Multan
sagði að sjónarvottar hefðu séð eld
í vélinni eftir flugtakið. „Svo virð-
ist sem vélin hafi brotlent vegna
einhvers konar bilunar þar sem
nokkrir sjónarvottar segjast hafa
séð blossa í vélinni eftir að hún fór
á loft frá flugvellinum. En við vit-
um ekki hvað olli slysinu.“
Vélin var í eigu flugfélagsins
Pakistan International Airlines.
Flugfélagið hafði sætt gagnrýni
fyrir að nota of gamlar Fokker-
vélar í innanlandsflugi. Ákveðið
hafði verið að leggja vélunum og
kaupa nýjar flugvélar.
Reuters
Björgunarmenn við brunninn hreyfil flugvélar sem fórst í Pakistan í gær en enginn farþeganna komst lífs af.
Flugslys kostaði
45 manns lífið