Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is Í GÆR kom að landi á annan tug breskra skútna frá siglingaklúbbnum The Royal Cruis- ing Club, en þær eru komnar hingað til lands til að fagna því að 150 ár eru síðan breski lávarð- urinn Dufferin sigldi til Íslands og annarra landa á ferð sinni um Norður-Atlantshaf árið 1856. Líklega er óhætt að kalla Dufferin lávarð einn af fyrstu Íslandsvinunum, en hann ferðað- ist hingað til lands árið 1856 á skipi sínu Foam. Ásamt því að koma til Íslands sigldi hann víða um Norður-Atlantshafið, m.a. sigldi hann ná- lægt ströndum Jan Mayen áður en hann heim- sótti Hammerfest í Norður-Noregi og Spitzbergen eyju á Svalbarða. Um ferð sína skrifaði hann víðfræga ferðasögu sem nefnist Letter from High Latitude. Bókin er samansafn bréfa sem hann skrifaði til móður sinnar um ferðir sínar og meðal annars segir hann frá heimsókn sinni til Íslands og þá sérstaklega kvöldverði sem hann snæddi hér á landi en þar furðar hann sig á drykkjusiðum Íslendinga, sem virtust vera sískálandi. Bókin kom út í þýðingu Hersteins Pálssonar árið 1944 undir nafninu Ferðabók Dufferins lávarðar og er hún víð- þekkt fyrir gamansaman frásagnarstíl. Afkomandi lávarðarins kemur Þrátt fyrir að hafa sýnt góð tilþrif í ritsmíðum og bók hans hafi náð umtalsverðum árangri hélt lávarðurinn þeirri braut ekki áfram. Hann sneri sér alfarið að störfum í þágu konungsins í Bret- landi og gegndi meðal annars embætti varakon- ungs á Indlandi, ríkisstjóra Kanada og sendi- herra Bretlands í Frakklandi. Egill Kolbeinsson, formaður Siglingaíþrótta- sambands Íslands, sagði í samtali við Morg- unblaðið að ásamt skútuáhöfnunum myndi af- komandi lávarðarins, lafði Dufferin, koma hingað til lands til að afhenda þjóðinni gjöf til minningar um ferðir forföður síns. Dagskráin fyrir ferðalangana verður þétt og hefst hún með móttöku á Bessastöðum í dag auk þess sem meðal annars verður farið í Viðey þar sem snæddur verður kvöldverður auk þess sem farið verður Gullna hringinn svokallaða um Gullfoss og Geysi, móttaka verður í breska sendiráðinu auk þess sem ráðgert er að sigla til Hvamms- víkur þar sem grillað verður í landi. Ferð þeirra mun svo ljúka hinn 15. júli þegar þau halda ferð sinni áfram. Á meðal ferðafélaga er formaður The Royal Cruising Club, Anthony Browne, en hann var ásamt konu sinni, Monique, að skipta um olíu á 49 feta skútu sinni, Quiver, þegar blaðamann bar að garði. Browne-hjónin, sem eru frá bæn- um Dorsid á Englandi, sögðu að ferðin hefði gengið einstaklega vel en þau hafi siglt síðasta legginn frá Rifi á Snæfellsnesi. Anthony Browne sagði að þau hjónin hefðu lagt úr höfn í Svíþjóð fyrir mánuði og siglt til Noregs, þaðan til Hjaltlandseyja, síðan Færeyja og þaðan til Seyðisfjarðar. Frá Seyðisfirði hafi þau siglt norður fyrir landið og komið við á Húsavík, Ak- ureyri, Grímsey og á Vestfjörðum þaðan sem þau hafi siglt að Rifi. Afleitt veður í Færeyjum Spurður um veðrið á leiðinni sagði Browne þau hafa hreppt einstaklega góð skilyrði í kring- um landið en hins vegar hefði veðrið í Fær- eyjum verið afleitt. Browne minntist einnig á mjög fjölbreytt fuglalíf í Grímsey og voru þau hjónin sammála um að hafa sjaldan séð jafn- marga fugla. Um undirbúning ferðarinnar sagði Browne að hann hefði hafist fyrir tveimur árum, þegar félagsmaður í siglingaklúbbnum hefði áttað sig á þessum tímamótum. Sá hefði þá siglt leið Dufferins og kannað aðstæður, en ferðabóka lávarðarins er mjög þekkt á meðal siglingafólks. Eftir að félagsmaðurinn hafði kannað aðstæður var ákveðið að halda af stað í ferðina við tíma- mótin, en um 50 manns víðs vegar að úr heim- inum eru í klúbbnum. Browne sagði leiðina vera mjög þýða og Browne-hjónin vildu koma á framfæri þakklæti til fólksins í landinu, en það hefði tekið einstaklega vel á móti þeim hvar sem þau hefðu stigið á land á Íslandi. Lafði Dufferin kemur til Íslands til að heiðra minningu forföður síns og afhenda gjöf í minningu hans 150 ár frá komu Dufferins lávarðar Morgunblaðið/Jim Smart Anthony og Monique Browne hyggjast sigla í mánuð til viðbótar á skútu sinni Quiver. BREIÐHOLTIÐ verður fyrsta hverfið í Reykjavík sem tekið verður í gegn í sérstöku hreinsunarátaki borgarinnar, undir yfirskriftinni Fegrum Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, ætlar að funda með Breiðhyltingum annað kvöld, en hreinsunin sjálf mun fara fram í hverfinu laugardaginn 22. júlí. „Við segjum sóðaskapnum stríð á hendur,“ segir Vilhjálmur, sem telur borgarbúa langþreytta á óhreinni borg. Ætlunin er að fá borgarbúa í lið með starfsmönnum borgarinnar í því að snyrta hverfin; tína rusl, hreinsa veggjakrot, leggja torfur, laga net á fótboltamörkum, kant- skera, sópa og bæta girðingar. „Við byrjum þetta sérstaka átak í Breiðholtinu, en höfum reyndar ver- ið að herða á hreinsun og fegrun borgarinnar allrar á undanförnum vikum frá því sem áður hafði verið ákveðið, og ég vona að borgarbúar hafi tekið eftir því,“ segir Vilhjálm- ur. Hann segir að þótt áherslan sé á Breiðholtið að þessu sinni séu íbúar allra hverfa hvattir til að hreinsa til í sínu hverfi. Ætlunin er svo að fara í samskon- ar átak í öllum öðrum hverfum borg- arinnar. Vilhjálmur segir að hægt verði að hreinsa a.m.k. eitt annað hverfi í sumar, en þau sem ekki tekst að komast í verði tekin fyrir síðar. „Við ætlum að halda áfram, og vera með áhersluna á fegrun og hreinsun borgarinnar.“ Bæklingi með upplýsingum um átakið var dreift í Breiðholtinu í gær, en bæklingurinn var bæði á íslensku, ensku og pólsku. Vilhjálmur segir Reykjavík alþjóðlega borg, og því verði að leggja sig fram við að ná til allra borgaranna, svo sem flestir viti hvað standi til og geti tekið þátt. Hreinsunarátak hefst í Breiðholti DR. HANNES Jóns- son, fyrrverandi sendi- herra, lést í gær á 84. aldursári. Hannes fæddist í Reykjavík 20. október 1922, sonur hjónanna Jóns Guð- mundssonar, bónda að Bakka í Ölfusi og Mar- íu Hannesdóttur. Hannes lauk Iðn- skólaprófi árið 1942 og Samvinnuskólaprófi ásamt sveinsprófi í prentiðn árið 1944. Ár- ið 1949 lauk hann MA- prófi í félagsfræði og hagfræði frá University of North Carolina í Chapel Hill í Bandaríkj- unum. Hannes varð doktor í þjóð- félagsfræði og þjóðarrétti frá Vín- arháskóla í Austurríki árið 1980. Áður en Hannes hóf störf hjá ut- anríkisþjónustunni starfaði hann sem prentari, blaðamaður og fulltrúi hjá SÍS ásamt störfum fyrir Fram- sóknarflokkinn. Á árunum 1953–1989 starfaði Hannes sem embættismaður hjá ut- anríkisþjónustunni og um tíma sem blaða- fulltrúi ríkisstjórnar- innar. Var hann m.a. varafastafulltrúi hjá SÞ og ræðismaður í New York, sendiherra og fastafulltrúi hjá EFTA, GATT og öðr- um alþjóðastofnunum í Genf og sendiherra í Moskvu og Bonn. Hannes gegndi margvíslegum trúnað- arstörfum og sat meðal annars í fyrstu bæjar- stjórn Kópavogs og átti sæti í miðstjórn Alþjóðasambands félagsfræðinga. Eftir hann liggja fjölmargar fræðiritgerðir og bækur á sviði félagsfræði, hagfræði og al- þjóðamála. Hann var sæmdur stór- riddarakrossi fálkaorðunnar árið 1976 og stórkrossriddara með axla- borða og stjörnu þýsku Verdienst- orðunnar árið 1986. Hannes kvæntist árið 1948 eftirlif- andi eiginkonu sinni Karin Waag, fæddri 1926. Þau eignuðust sjö börn. Andlát HANNES JÓNSSON KRISTÍN Ingólfsdóttir, rektor Há- skóla Íslands (HÍ), tekur undir það álit menntamálaráðherra að það sé undir háskólunum sjálfum komið hvað þeir leggi mikið til bókakaupa. Hins vegar hafi þurft að skera niður framlög til bókakaupa á undanförn- um árum og það sé ljóst að HÍ verði ekki háskóli á heimsmælikvarða nema með eflingu bókasafnsins. „Til þess að við náum að fram- fylgja okkar stefnu þurfa tekjur skólans að aukast verulega. Að hluta til ætlum við að afla þessa fjár sjálf. Við erum jafnframt að sækjast eftir fjárveitingum frá ríki þannig að þær verði sambærilegar við fjárveitingar samanburðarskóla hér í nágranna- löndunum,“ segir Kristín og bendir á að það sé for- senda þess að HÍ nái að skipa sér í fremstu röð að tekjur skólans aukist – þar á meðal tekjur til bókakaupa. „Við erum ekki að halda því fram að við getum náð að vera í röð fremstu háskóla miðað við núverandi ástand. Þetta er hins vegar liður í stærri sókn.“ HÍ á í viðræðum við menntamála- yfirvöld um þessar mundir og Krist- ín segist bjartsýn á framhaldið og niðurstöður þeirra viðræðna. „Ég er bjartsýn á framhaldið mið- að við þá stefnu sem við höfum sett okkur og þann einsetta vilja og raun- hæfar aðgerðaráætlanir, sem við höfum sýnt til þess að ná okkar markmiði.“ Undanfarið hafa verið miklar um- ræður um bókakost Háskóla Íslands í kjölfar greinar Guðna Elíssonar sem birt var í Lesbók Morgunblaðs- ins laugardaginn 1. júlí síðastliðinn þar sem fram kom meðal annars að hann teldi að gjörbylta þyrfti bóka- safnsmálum Háskóla Íslands til að gera hann að frambærilegum rann- sóknaháskóla. Tekjur skólans þurfa að aukast verulega Kristín Ingólfsdóttir RALLÖKUMAÐURINN Guð- mundur Guðmundsson sem hryggbrotnaði við útafakstur í rallkeppni í Skagafirði á laug- ardag var útskrifaður af gjör- gæsludeild Landspítalans í gær, en verður rúmliggjandi næstu 9 mánuði. Annar öku- maður, Sigurður Bragi Guð- mundsson, slasaðist líka í keppninni, brákaði hryggjarlið og verður frá keppni í 8 vikur. Guðmundur fór í aðgerð á sunnudag en honum er spáð fullum bata, sem og Sigurði. Að sögn Jóhanns Bachmanns, tals- manns Guðmundar, verður efnt til fjársöfnunardagskrár í veit- ingahúsinu Klúbbnum á Stór- höfða til styrktar Guðmundi. Að sögn Garðars Gunnars- sonar, forseta Landssambands íslenskra akstursíþróttamanna, mun fara fram athugun á að- draganda slysanna en hann tekur fram að öllum öryggis- reglum rallmótsins hafi verið fylgt. Rúmliggj- andi í níu mánuði www.lyfja.is - Lifið heil VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR - ALDREI OF SEINT! Vectavir FÆST ÁN LYFSEÐILS Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. ÍS LE N SK A AU G L† SI N G AS TO FA N /S IA .I S LY F 33 20 4 06 /2 00 6 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.