Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 17
Döff-leikhús Fyrsta alþjóðlega Döff-leiklistarhátíð Draumasmiðjunnar var sett á Akureyri síðdegis í gær.
DRAUMAR 2006 er yfirskrift
fyrstu alþjóðlegu Döff-leiklist-
arhátíðar Draumasmiðjunnar, en
hún var sett á Akureyri síðdegis í
gær. Hátíðin stendur yfir alla vik-
una, lýkur á sunnudag, 16. júlí. Um
er að ræða alþjóðlega leiklist-
arhátíð leikhúsa sem sérhæfa sig í
leikhúsi fyrir heyrnarlausa, svo-
nefndra Döff-leikhúsa.
Hátíðin er haldin í samvinnu við
norræna menningarhátíð heyrn-
arlausra, sem haldin er á Akureyri
á sama tíma og Listasumar á Ak-
ureyri. Leiklistarhátíðin er opin öll-
um, bæði heyrandi og heyrn-
arlausum.
Á hátíðina koma nokkur af virt-
ustu Döff-leikhúsum heims. Þau
koma víða að, meðal annars frá
Frakklandi, Ástralíu, Bandríkj-
unum, Norðurlöndunum, Evrópu
og Asíu. Leiksýningarnar eru ann-
að hvort fluttar bæði á talmáli og
táknmáli eða nota ekkert tungumál
svo þær eru jafnt fyrir heyrandi
sem og heyrnarlausa. Sýningarnar
sem boðið verður upp á eru afar
fjölbreyttar; gamanleikrit, barna-
leikrit, dansleikhús, drama og uppi-
stand svo allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Nokkrar sýn-
ingar, tvær til þrjár verða á hverj-
um degi út vikuna til að sem flestir
hafi tækifæri til að sjá þær og einn-
ig verður miðaverði stillt í hóf í
sama skyni.
Samhliða verður svo boðið upp á
leiklistarnámskeið fyrir börn, 9 til
12 ára og mun afrakstur þess verða
í formi sýningar í lok hátíðarinnar,
en hún heitir Draugar.
Leiksýningar jafnt fyrir
heyrandi sem heyrnarlausa
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 17
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
AUSTURLAND
TEKIN hefur verið ákvörðun um að Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, FSA, verði með öllu
reyklaus stofnun frá 1. október næstkomandi.
Fyrir 10 árum voru reykingar starfsmanna bann-
aðar en sjúklingum heimilaðar reykingar í sér-
stökum reykherbergjum. Framkvæmdastjórn
hefur nú ákveðið að engar reykingar verði leyfð-
ar, hvorki af hálfu sjúklinga, starfsmanna né að-
standenda í húsnæði FSA né á lóð spítalans.
Frá því síðastliðið haust hefur til reynslu gilt
algjört bann við reykingum á Kristnesspítala,
sem er hluti af FSA.
Þetta kemur fram á vef sjúkrahússins og haft
eftir Halldóri Jónssyni forstjóra að reynslan af
því að banna reykingar með öllu á Kristnesi hafi
verið góð. Í því ljósi, sem og í framhaldi af þeim
takmörkunum sem gilt hafa í aðalbyggingu
sjúkrahússins á Akureyri, var sú ákvörðun tekin
að stíga skrefið til fulls nú í haust.
Góð sátt ríkir um það skref sem nú verður stigið
að því er fram kemur hjá Þóru Ákadóttur, starfs-
mannastjóra hjúkrunar FSA, en hún stýrði starfi
nefndar sem fjallaði um málið.
Hún segir ákvörðunina í takt við þá jákvæðu
þróun sem er að eiga sér stað í þjóðfélaginu hvað
þessi mál varðar, það sé jákvætt fyrir FSA að taka
þátt í henni.
FSA með öllu reyklaus stofnun frá 1. október
Fáskrúðsfjörður | Nýir eigendur
eru komnir að Café Sumarlínu á Fá-
skrúðsfirði. Eru það hjónin Björg
Elíesersdóttir og Óðinn Magnason
sem hér sjást á mynd ásamt syn-
inum Guðlaugi Magna. Þau hafa
hugsað sér að vera með venjulegan
heimilismat á boðstólum auk smá-
rétta, jafnframt rekstri á kaffihúsi
og bar. Staðurinn hentar vel fyrir
smærri veislur og er það hugmynd
þeirra að bjóða upp á slíkt.
Staðurinn verður opnaður
fimmtudaginn 13. júlí.
Ný Sumarlína
opnuð á fimmtudag
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fljótsdalshérað | Golfklúbbur Fljóts-
dalshéraðs og sveitarfélagið Fljóts-
dalshérað hafa gert með sér fjögurra
ára samning um uppbyggingu á
Ekkjufellsvelli. Fljótsdalshérað legg-
ur til fjármagn sem gerir klúbbnum
kleift að lengja völlinn úr stuttum par
33 velli upp í fullgildan par 36 níu holu
golfvöll. Kristmann Pálmason, for-
maður klúbbsins, segir að innan fjög-
urra ára eigi jafnframt að vera búið að
hanna upp 18 holu golfvöll á Ekkju-
felli. „Allar breytingar á vellinum eru
miðaðar við að hér verði 18 holu golf-
völlur í framtíðinni. Við ætlum okkur
að byggja upp góðan 9 holu völl áður
en við förum að stækka hann enn
frekar.“
Fjölgað úr 45 í 130
Breytingar á vellinum hófust í vet-
ur og á laugardaginn verða teknar í
notkun nýjar flatir á brautum 7 og 8
þegar KB-bankamótið verður haldið
á Ekkjufellsvelli. Kristmann áætlar
að verðmæti breytinganna í útseldri
vinnu sé milli 30 og 35 milljónir króna,
en hann segir fyrirtæki á Fljótsdals-
héraði hafa stutt vel við klúbbinn.
Sem dæmi nefnir hann að Malar-
vinnslan gefur flötina á 7. braut.
Kristmann segir að fyrirtækin taki
eftir því öfluga starfi sem klúbburinn
standi fyrir. „Félögum í klúbbnum
hefur fjölgað úr 45 í 130 á tveimur ár-
um auk þess sem barna- og unglinga-
starfið er í miklum blóma. Það eru að
jafnaði yfir 20 krakkar í kennslu alla
daga vikunnar.“
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæj-
arstjóri Fljótsdalshéraðs, segir samn-
inginn mikilvægan fyrir sveitarfélag-
ið. „Hann er mikilvægur fyrir bæði
ferðaþjónustu og íbúa. Golfíþróttinni
á Fljótsdalshéraði hefur vaxið veru-
lega fiskur um hrygg og með þessum
samningi, sem er bæði rekstrar- og
uppbyggingarsamningur, er búið vel
að uppbyggingu golfsins.“
Samið um stækkun
Ekkjufellsvallar
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Undirrita samning Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshér-
aðs, og Guðgeir Sigurjónsson, varaformaður Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs.
Eftir Gunnar Gunnarsson
Leikvellir| Foreldrar og dagforeldrar
á Syðri-Brekku hafa óskað eftir því
að lagfæringar verði gerðar á
Byggðavelli. Erindið var tekið fyrir á
fundi framkvæmdaráðs sem fól fram-
kvæmdadeild að verða við óskum um
nauðsynlegar lagfæringar á leikvell-
inum. Áætlanir gera svo ráð fyrir að
gagngerar endurbætur á leikvell-
inum verði gerðar á næsta ári, 2007.
Ekki var tekin ákvörðun um hvort
sett verði upp hreinlætisaðstaða á
svæðinu að svo komnu máli.
Þá var á sama fundi fram-
kvæmdaráðs lagður fram undir-
skriftalisti íbúa við Borgar- Búða og
Brekkusíðu sem óska eftir því að
gerður verði leikvöllur á grænu svæði
sunnan Búðasíðu. Því erindi var vísað
til umhverfisráðs.
Svæði fyrir lausa
hunda | Eigendur
hunda, 72 að tölu,
hafa ritað nafn sitt
á undirskriftalista
þar sem þeir óska
eftir afmörkuðu
upplýstu svæði í
Kjarnaskógi til að
fara með hunda í lausagöngu. Er-
indið var tekið fyrir á fundi fram-
kvæmdaráðs, þar sem tekið var já-
kvætt í það og framkvæmdadeild
falið að skoða það betur í samráði
við þá sem umsjón hafa með skóg-
inum og leggja að því búnu fyrir
ráðið á ný.
Gatnagerð | Tvö tilboð bárust í
verkefni við gatnagerð í Hrísey.
Lægra tilboðið var frá Vinnuvélum
Símonar Skarphéðinssonar ehf.,
rúmlega 30,1 milljón króna, hitt frá
Steypustöð Dalvíkur ehf., 37,2 millj-
ónir króna. Kostnaðaráætlun hönn-
uða var upp á tæpar 30,2 milljónir.
Framkvæmdaráð hefur samþykkt
að ganga til samninga við lægstbjóð-
anda. Viðbótarkostnaði miðað við
fjárhagsáætlun var vísað til endur-
skoðunar framkvæmdaáætlunar.
Njóli | Sveitarstjórn Grýtubakka-
hrepps hefur samþykkt að greiða
niður njólaeitur um sem nemur 40%
af innkaupsverði eitursins. Hvetur
sveitarstjórn jarðeigendur til þess
að nýta þetta tækifæri og útrýma
njólanum í eitt skipti fyrir öll.
Grenivík | Hann var býsna virðu-
legur þessi vinalegi hundur sem
gætti hússins Svalbarða við Æg-
isgötu á Grenivík. Sat í makindum á
pallinum og lét fara vel um sig í sól-
inni. Fáir voru á ferli, þannig að
starfið var rólegt. Mest fólgið í að
skima út á götu og gæta að bílaum-
ferð.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hundur
gætir húss