Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum.
Terra Nova býður nú síðustu sætin í júlí á ótrúlegum kjörum. Gríptu tæki-
færið og skelltu þér til þessa vinsæla sumarleyfisstaðar sem bíður þín
með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika,
fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. Þú bókar sæti og 4 dögum fyr-
ir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
kr. 29.994
Netverð á mann, m.v. hjón með 1 barn, 2
- 11 ára í hótelherbergi í viku.
Súpersólartilboð 13. eða 20. júlí.
Aukavika kr. 10.000.
kr. 34.990
Netverð á mann. m.v. 2 fullorðna í
hótelherbergi í viku.
Súpersólartilboð 13. eða 20. júlí.
Aukavika kr. 10.000.
Súpersól til
Búlgaríu
13. eða 20. júlí
frá kr. 29.994
Síðustu sætin
- SPENNANDI VALKOSTUR
Annað hollið í röð, sem veitt hef-ur yfir 100 laxa, lauk veiðum íNorðurá á sunnudag. Nálg-
ast veiðin í ánni nú 700 laxa. Megnið
af veiðinni, samkvæmt vef SVFR, er
frá Glanna niður í Munaðarnes, en
laxar þó að kroppast upp í dalnum.
Góður gangur er í veiðinni í Elliða-
ánum, að sögn Jóns Þ. Magnússonar
veiðivarðar. Í hádeginu í gær voru
216 laxar komnir á land en 339 höfðu
gengið gegnum teljarann. „Í nótt var
lang stærsta gusan til þessa, 70 fóru í
gegn,“ sagði hann. „Nú er bullandi
straumur og fiskurinn streymir í
ána.“
Til þessa hefur fiskurinn langmest
verið að veiðast neðst í ánni en er nú
farinn að veiðast á flugusvæðinu uppi
á dal, fiskar hafa náðst í Símastreng
og báðum Kistum. Hafa um tíu til
tuttugu laxar verið að veiðast á morg-
unvöktunum, sem venjulega gefa
heldur betur.
Fimm laxar veiddust í opnun Sval-
barðsár á dögunum og ágæt veiði
mun vera í Rangánum, sem sækja í
sig veðrið með hverjum deginum sem
líður; nú munu þær vera að gefa 25 til
30 laxa á dag saman.
Smálaxinn er byrjaður að ganga í
Blöndu og fréttist af félögum sem
veiddu ellefu stykki í Damminum
sunnanverðum í beit.
Forsetinn veiddi með flugum
margra bestu hnýtaranna
Við komu George H.W. Bush fyrr-
verandi forseta Bandaríkjanna til
landsins, voru honum afhentar, auk
veiðistangar frá Scott sem hönnuð
var af Engilbert Jensen og hjóls frá
3X á Ísafirði, flugur hnýttar af mörg-
um kunnustu fluguhnýturum lands-
ins. Voru þær í fluguveski úr laxa-
roði, sem Arndís Jóhannsdóttir
hönnuður hjá Kirsuberjatrénu gerði í
tilefni heimsóknarinnar. Flugurnar
hnýttu þeir Sigurjón Ólafsson, Ing-
ólfur Bragason, dr. Jónas Jónasson,
Pétur Steingrímsson, Skúli Krist-
insson og Oysten Aas frá Noregi.
Voru þetta meðal annars Black
Sheep, Frances, Dentist, Underta-
ker, Night Hawk, Fox Fly, Bill Yo-
ung Fly, Crossfield, Kistubaninn og
Sunray Shadow.
Þær komu greinilega að góðum
notum þar sem forsetinn fyrrverandi
landaði níu löxum í Selá.
Samkeppni um veiðimyndir
Stangveiðivefurinn www.votnog-
veidi.is og Hans Petersen hf. hafa
hleypt af stokkunum samkeppni um
bestu stangveiðimyndirnar 2006.
Myndavélin er orðinn nauðsyn-
legur hluti af staðalbúnaði veiði-
manna og margir luma á frábærum
myndum sem eiga án efa erindi í
keppnina.
Keppt er í tveimur flokkum, flokki
stemmingsmynda og fjölskyldu-
flokki.
Þurfa þátttakendur að senda
myndir sínar í netfangið rit-
stjorn@votnogveidi.is og láta fylgja
einhverjar upplýsingar um myndina,
auk þess fullt nafn, netfang og síma-
númer ljósmyndara.
Tekið er við myndum út október,
eða til loka sjóbirtingsvertíðarinnar.
Innsendar myndir verða sýnilegar
á www.votnogveidi.is
Verðlaun fyrir þrjár bestu mynd-
irnar í hvorum flokki verða vegleg,
m.a. veiðileyfi í boði Stangaveiði-
félags Reykjavíkur.
Tvö holl hafa veitt yfir
hundrað laxa úr Norðurá
George Bush og Vigfús Orrason leiðsögumaður með myndarlegan hæng
sem forsetinn fyrrverandi veiddi í Selá. Bush landaði alls níu löxum í Selá.
veidar@mbl.is
STANGVEIÐI
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
ÁLÖGUR sveitarfélaga á sumar-
húsaeigendur hafa margfaldast á
undanförnum áratug, að hluta til
vegna hækkaðs fasteignamats á
sumarhúsum, en einnig vegna til-
komu nýrra þjónustugjalda, og
hækkunar á gjöldum sem fyrir eru.
Mörg dæmi eru um eldra fólk sem
varð að selja bústaði sína vegna
þess að það réð ekki við greiðsl-
urnar.
Sveinn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands sum-
arhúsaeigenda, nefnir sem dæmi að
álögur á sumarhúsaeigendur í Blá-
skógabyggð hafi hækkað um 146%
frá árinu 2000. Hann segir félagið
hafa heyrt í fjölmörgum einstakling-
um, oft eldra fólki sem hafi hugsað
sér að eiga áhyggjulaust ævikvöld í
sumarhúsum sem það hafi átt ára-
tugum saman, sem ekki ráði við sí-
fellt hækkandi greiðslur á opinber-
um gjöldum og þurfi að selja
bústaðina.
„Það er að hringja í okkur grát-
andi fólk á efri árum sem lýsir því
að það geti ekki staðið í þessu, það
sem ætlaði eiga þarna rólegt ævi-
kvöld. Þetta er bara orðið of dýrt
fyrir þetta fólk,“ segir Sveinn. „Ef
fram fer sem horfir fer þetta að
verða möguleiki auðmannsins að
geta verið með sumarhús.“
Sorphirðugjald tvöfaldað
Hann nefnir dæmi af 50 fermetra
sumarhúsi í Bláskógabyggð þar sem
fasteignagjaldið var 12.450 kr. árið
2000, en er var í fyrra 26.940 kr. Á
sama tíma hefur sorphirðugjaldið
einnig rösklega tvöfaldast, farið úr
3.000 kr. í 6.203 kr. Í fyrra bættist
svo við nýtt gjald, svokallað rotþró-
argjald, sem er 4.900 kr. á ári. Sam-
tals hafa því álögur Bláskógabyggð-
ar á eigendur þessa bústaðar
hækkað úr 15.450 kr. árið 2000, í
38.044 kr. árið 2005, eða um 146%.
Sveinn segir það versta við þessar
auknu álögur það að þjónusta sveit-
arfélagana við sumarhúsaeigendur
aukist ekki í samræmi við hærri
gjöld, frekar virðist sem hún sé að
versna ef eitthvað er, t.d. hvað varð-
ar sorphirðu.
Fasteignagjald sveitarfélagana er
reiknað út frá fasteignamati á sum-
arhúsunum, sem hefur hækkað gríð-
arlega undanfarin ár. Sveinn segir
dæmi um að fermetraverð á sum-
arhúsi í Blá-
skógabyggð og
fermetraverð á
sérbýli á góðum
stað í Skerjafirði
í Reykjavík það
sama.
Sveitarfélögin
reikna fasteigna-
gjöld sín sem
hlutfall af fast-
eignamati, en
álagningarhlutfallið er misjafnt. Af
10 milljón króna húsi í Skerjafirð-
inum eru greiddar 20 þúsund kr. í
fasteignagjöld á ári, en af 10 milljón
króna sumarhúsi í Bláskógabyggð,
þar sem álögurnar eru í hámarki,
eru greiddar 60 þúsund krónur á
ári, segir Sveinn. Í Grímsneshreppi
eru álögurnar öllu minni, eða um 47
þúsund krónur af 10 milljón króna
húsi.
„Þetta mikla misræmi milli svæða
er algerlega óskiljanlegt. Fólk skil-
ur ekki hverju þetta sætir,“ segir
Sveinn. Hann segir sveitarfélög
hafa svarað því til að þau þurfi að
leggja á gjöld til að standa undir
sínum rekstri. Það skjóti þó skökku
við að einstaklingar sem litla sem
enga þjónustu fái haldi uppi sveit-
arfélögunum.
Kostnaður vegna
rotþróa þrefaldaður
Sveinn segir sumarhúsaeigendur
afar ósátta við hið nýtilkomna
rotþróargjald, sem hann segir úr
takti við kostnað við tæmingu rot-
þróa. Áður en gjaldið var sett á
þurftu sumarhúsaeigendur að panta
sérstaklega tæmingu á rotþróm, og
greiða um 5.000 kr. fyrir tæmingu á
hverri þró, en að meðaltali eru þær
tæmdar á þriggja ára fresti. Í dag
greiða sumarhúsaeigendur 4.900 kr.
á ári fyrir hvert hús fyrir tæmingu
rotþróa, eða 14.700 kr. á hverja
tæmingu.
Eins segir Sveinn það afar ósann-
gjarnt að innheimta gjald fyrir
hvert sumarhús, en ekki hverja
rotþró eins og áður var gert. Þannig
sé hagræðið af því að hafa eina
rotþró fyrir nokkur sumarhús í eigu
félagasamtaka og annarra fyrir bí.
Hann nefnir sem dæmi að félaga-
samtök sem eiga 10 sumarhús með
eina rotþró hafi áður þurft að greiða
um 5.000 kr. á þriggja ára fresti fyr-
ir tæmingu, en greiði nú 147 þúsund
krónur á sama þriggja ára tímabili
fyrir eina tæmingu.
Selur bústaði
vegna hækkana
Álögur sveitarfélaga á sumarhúsa-
eigendur rúmlega tvöfaldast frá 2000
Sveinn
Guðmundsson
LÖGREGLAN í Reykjavík tók 44
ökumenn fyrir of hraðan akstur um
sl. helgi, en m.a. ók 18 ára strákur á
169 km hraða á Vesturlandsvegi. Á
Suðurlandsvegi var ástandið litlu
skárra. Þar hafði lögreglan afskipti
af ökumanni sem ók á 162 km
hraða. Sá reyndist einnig vera með
útrunnið ökuskírteini. 15 ökumenn
voru teknir fyrir ölvunarakstur.
Lögreglan hefur einnig fylgst
með bílbeltanotkun og er ljóst að
allmargir ökumenn verða að taka
sig á í þeim efnum að mati lögreglu.
Sama gildir um farsímanotkun.
Ökumenn sem virða ekki reglur um
bílbelti og símanotkun mega búast
við sektum að sögn lögreglu.
Teknir á ofsa-
hraða í Reykjavík
RÁN var framið í verslun í Þing-
holtunum á níunda tímanum á
sunnudagskvöld meðan á úrslita-
leik Heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu stóð. Ræninginn ógnaði af-
greiðslufólki með sprautunál og
hafði lága fjárhæð upp úr krafsinu
og tvo sígarettupakka.
Lögregla leitar mannsins sem er
um 25 ára gamall, 170 cm á hæð,
grannvaxinn og kinnfiskasoginn
með stutt músarbrúnt hár og blá
augu. Hann var í svörtum leð-
urjakka og bláum gallbuxum og
með eyrnalokk í öðru eyra.
Lögreglan biður þá sem kannast
við lýsingu á manninum að hafa
samband.
Lögreglan leitar
að ræningja
STJÓRN Sálfræðingafélags Íslands
hefur ákveðið að fara í mál vegna úr-
skurðar áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála nr. 19/2005 frá í janúar
s.l. Með úrskurðinum felldi áfrýjun-
arnefndin úr gildi ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins um að heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu bæri
að semja við sálfræðinga um
greiðsluþátttöku hins opinbera
vegna sálfræðiviðtala. Áfrýjunar-
nefndin klofnaði í málinu (2:1) og
vildi minnihlutinn að ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins stæði, segir í bréfi
frá stjórn Sálfræðingafélags Íslands.
„Ástæður þess að stjórnin
ákveður að fara í mál eru nokkrar.
Málið er í fyrsta lagi mikilvægt rétt-
indamál stéttarinnar. Erfitt er fyrir
okkur sem stétt að sitja undir því að
brotið sé gegn okkur af stjórnvöld-
um.
[…] Ef við sættum okkur við nið-
urstöðuna erum við á vissan hátt að
gefa kröfur okkar eftir. Í fjórða lagi
er með greiðsluþátttöku hins opin-
bera stuðlað að þeirri þróun í geð-
heilbrigðisþjónustunni sem við sem
stétt teljum eðlilega og mikilvæga.
[…] Að sjálfsögðu liggja mikil-
vægustu rökin í hagsmunum sjúk-
linga. Þegar úrskurður áfrýjunar-
nefndar er kærður er kærunni beint
til Samkeppniseftirlitsins.
Mótaðili okkar í dómssal verður
því Samkeppniseftirlitið en ekki
áfrýjunarnefndin. Með því kemur
upp nokkuð skrýtin staða þar sem
Samkeppniseftirlitið er einmitt
þeirrar skoðunar að semja eigi við
sálfræðinga. Lögfræðingur okkar
sem fyrr er Þórunn Guðmundsdótt-
ir. Það skal tekið fram að aðilar geta
á hvaða stigi málsins sem er náð
sáttum. Reiknað er með að niður-
staða liggi fyrir öðru hvoru megin
við áramót,“ segir í bréfi stjórnar
Sálfræðingafélags Íslands.
Sálfræðingar stefna
Samkeppniseftirlitinu