Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Stækkun friðlandsinsí Þjórsárverum hef-ur verið til umræðu að undanförnu og hefur nýr umhverfisráðherra meðal annars lýst því yfir að vilji hennar standi til að stækka friðlandið. En hver eru áhrif þess að friðlandið í Þjórsárver- um yrði stækkað? Myndi það eitt og sér nægja til þess að fella áform um Norðlingaölduveitu út af borðinu? Trúlega ekki. Með lög- um frá 2003 var Lands- virkjun veitt heimild, að fengnu leyfi iðnaðarráðherra, til að reisa og reka Norðlingaölduveitu í sam- ræmi við úrskurð Jóns Kristjáns- sonar og stendur sú lagaheimild enn. Úrskurður Jóns er enn í gildi, en með dómi héraðsdóms var kveðið á um að set- og miðlunarlón utan friðlandsins samkvæmt úr- skurðinum þurfi að fara í umhverf- ismat. Forsætisráðherra og iðnaðar- ráðherra veittu Landsvirkjun í september 2004 leyfi til að reisa og reka Norðlingaölduveitu með skil- yrðum sem sett eru í úrskurði Jóns. Núgildandi ákvæði um friðlýs- ingu Þjórsárvera gera ráð fyrir Norðlingaölduveitu með allt að 581 metra lónshæð en í úrskurði Jóns er gert ráð fyrir að lón verði 575 metra yfir sjávarmáli. Friðlýsing landsvæða er að jafn- aði ákveðin af stjórnvöldum en ákvarðanir stjórnvalda eru rétt- lægri en lög frá Alþingi og víkja ef efni þeirra er ekki samræmanlegt. Því yrði að öllum líkindum að koma til lagasetning á þingi, þar sem heimild til Norðlingaölduveitu yrði afturkölluð, standi vilji á ann- að borð til þess að slá framkvæmd- ina alfarið út af borðinu með form- legum hætti. Friðlýsingin ein og sér myndi ekki duga til. Undirbúningur hjá UST Umhverfisstofnun sér um und- irbúning að friðlýsingu lands- svæða, samkvæmt lögum um nátt- úruvernd. Árni Bragason, forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfis- stofnunar (UST), segir að stofnun- in vinni í flestum tilfellum undir- búningsvinnu að friðlýsingu en einnig geti komið til að umhverf- isráðuneytið sjái um undirbúning eins og nú standi yfir í sambandi við Vatnajökulsþjóðgarð. Hann segir að megináhersla hjá stofnun- inni sé á þau 14 svæði sem Alþingi samþykkti í náttúruverndaráætl- un. Stækkun friðlandsins í Þjórs- árverum er ekki þar á meðal. „Það hefur ekki borist formleg beiðni frá ráðuneytinu um stækk- un friðlandsins í Þjórsárverum,“ segir Árni en bendir á að stækkun friðlandsins hafi verið meðal þeirra 75 svæða sem Umhverfis- stofnun lagði fram í náttúruvernd- aráætlun. Hann segir að friðlýsing sé í raun reglugerð sem ráðherra set- ur. Í tilviki Þjórsárvera sé gert ráð fyrir Norðlingaölduveitu sam- kvæmt núverandi friðlýsingu. Eins og fram hefur komið er laga- heimild fyrir því að farið verði í gerð Norðlingaölduveitu og segir Árni að rekist slíkar heimildir á, þ.e. annars vegar reglugerð sem feli í sér friðlýsingu og hins vegar lagaheimild til að fara í virkjunar- framkvæmdir á sama svæði, standi lagaheimildin. Því þurfi í raun að koma til ný lög frá Alþingi sem afturkalli heimild til að fara í gerð Norðlingaölduveitu. „Ný lög eða lagabreyting eru forsenda þess að hætt verði við Norðlingaölduveitu,“ segir Árni. Þarf framkvæmdaleyfi Þótt lagaheimild til að fara í gerð Norðlingaölduveitu sé fyrir hendi dugir hún ekki ein og sér. Útgáfa framkvæmdaleyfis af hálfu sveitarfélags er einnig tilskilin og vegna Norðlingaölduveitu þyrfti slíkt leyfi að koma frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Forsenda þess að slíkt leyfi sé veitt er að fram- kvæmdin sé komin inn á aðal- skipulag en afgreiðslu aðalskipu- lags á þessu svæði var hins vegar frestað á sínum tíma og að sögn Gunnars Arnar Marteinssonar, oddvita hreppsnefndar, hefur eng- in ákvörðun verið tekin um hve- nær gengið verði frá afgreiðslu skipulagsins. Gunnar segir erfitt að segja til um hvort pólitískur meirihluti sé fyrir framkvæmdinni. Önnur mál séu meira aðkallandi í sveitarfé- laginu um þessar mundir. Auk Gunnars situr Ingvar Hjálmars- son í hreppsnefnd fyrir A-lista og segir Gunnar að listinn hafi ekki lagst gegn framkvæmdinni á sín- um tíma. L-listinn hafi hins vegar andmælt áformunum en flokkur- inn á nú tvo menn í hreppsnefnd og mynda A-listi og L-listi meiri- hluta í hreppsnefnd. Segist Gunnar reikna með að L- listinn yrði mótfallinn fram- kvæmdinni en ekki liggi þó fyrir hvenær málið komi til afgreiðslu hreppsnefndar. Samvinnunefnd miðhálendisins sér um að samræma skipulag á há- lendinu. Óskar Bergsson, formað- ur nefndarinnar, segir að af hálfu nefndarinnar sé málið í biðstöðu en það verði tekið upp ef eftir því verði óskað. Fréttaskýring | Norðlingaölduveita Breytingu á lögum þarf til Stækkun friðlands útilokar ekki fram- kvæmdir heldur þyrfti að setja ný lög Framtíð Þjórsárvera hefur verið til umræðu. Þjórsárver upphaflega friðlýst árið 1981  Þjórsárver voru friðlýst árið 1981 og var friðlýsingin kynnt með auglýsingu mennta- málaráðuneytisins. Í auglýsingunni segir m.a. að Náttúrverndarráð muni veita Landsvirkjun undanþágu frá friðlýsingunni til að gera uppi- stöðulón með stíflu við Norð- lingaöldu í allt að 581 metra hæð „enda verði kappkostað að halda umhverfisáhrifum mannvirkja í lágmarki“. BANDARÍSKI fjárfestingarsjóður- inn General Catalyst Partners hefur sýnt íslenskra tölvuleikjafyrirtækinu CCP mikinn áhuga og í samstarfi við KB banka boðið í bréf hluthafa fyr- irtækisins. Þetta segir Hilmar V. Pét- ursson, framkvæmdastjóri CCP, en hann á ekki von á því að fyrirtækið verði selt. „Þegar þetta fyrirtæki kom að máli við okkur [...] sáum við að hugsanlega væru einhverjir til í að selja sín bréf. Hins vegar er stærsti hlutur fyrir- tækisins í eigu annaðhvort starfs- manna CCP eða Novator. Novator hefur ekki sýnt neinn áhuga á því að selja sín bréf og heldur ekki stjórn- unarteymi CCP,“ segir Hilmar og bendir á að þetta séu því aðallega smærri hluthafar sem hugsanlega gætu metið þetta tilboð sem tækifæri. Tilboð General Catalyst Partners hljóðar upp á 600 krónur á hlut en rúm 8 milljón bréf eru í fyrirtækinu í eigu um 110 hluthafa. Markaðsvirðið er samkvæmt þessu um fimm millj- arðar. „Þeir hafa staðfest það að þeir munu standa við öll tilboð sem fólk svarar játandi sama hvað þeir enda með stóran hlut. Það hefur verið býsnast yfir því að það sé lítið um er- lendar fjárfestingar í íslensku at- vinnulífi en þetta er dæmi um hið gagnstæða.“ Aðspurður segir Hilmar að ekki liggi fyrir hversu margir hlutir hafi verið keyptir en það muni hins vegar liggja fyrir í þessari viku eða þeirri næstu. Bandarískur fjárfesting- arsjóður býður í CCP Ólíklegt að fyrir- tækið verði selt Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is Innihaldið skiptir máli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.