Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Stækkun friðlandsinsí Þjórsárverum hef-ur verið til umræðu
að undanförnu og hefur
nýr umhverfisráðherra
meðal annars lýst því yfir
að vilji hennar standi til að
stækka friðlandið.
En hver eru áhrif þess
að friðlandið í Þjórsárver-
um yrði stækkað? Myndi
það eitt og sér nægja til
þess að fella áform um
Norðlingaölduveitu út af
borðinu?
Trúlega ekki. Með lög-
um frá 2003 var Lands-
virkjun veitt heimild, að fengnu
leyfi iðnaðarráðherra, til að reisa
og reka Norðlingaölduveitu í sam-
ræmi við úrskurð Jóns Kristjáns-
sonar og stendur sú lagaheimild
enn. Úrskurður Jóns er enn í gildi,
en með dómi héraðsdóms var
kveðið á um að set- og miðlunarlón
utan friðlandsins samkvæmt úr-
skurðinum þurfi að fara í umhverf-
ismat.
Forsætisráðherra og iðnaðar-
ráðherra veittu Landsvirkjun í
september 2004 leyfi til að reisa og
reka Norðlingaölduveitu með skil-
yrðum sem sett eru í úrskurði
Jóns.
Núgildandi ákvæði um friðlýs-
ingu Þjórsárvera gera ráð fyrir
Norðlingaölduveitu með allt að 581
metra lónshæð en í úrskurði Jóns
er gert ráð fyrir að lón verði 575
metra yfir sjávarmáli.
Friðlýsing landsvæða er að jafn-
aði ákveðin af stjórnvöldum en
ákvarðanir stjórnvalda eru rétt-
lægri en lög frá Alþingi og víkja ef
efni þeirra er ekki samræmanlegt.
Því yrði að öllum líkindum að
koma til lagasetning á þingi, þar
sem heimild til Norðlingaölduveitu
yrði afturkölluð, standi vilji á ann-
að borð til þess að slá framkvæmd-
ina alfarið út af borðinu með form-
legum hætti. Friðlýsingin ein og
sér myndi ekki duga til.
Undirbúningur hjá UST
Umhverfisstofnun sér um und-
irbúning að friðlýsingu lands-
svæða, samkvæmt lögum um nátt-
úruvernd.
Árni Bragason, forstöðumaður
náttúruverndarsviðs Umhverfis-
stofnunar (UST), segir að stofnun-
in vinni í flestum tilfellum undir-
búningsvinnu að friðlýsingu en
einnig geti komið til að umhverf-
isráðuneytið sjái um undirbúning
eins og nú standi yfir í sambandi
við Vatnajökulsþjóðgarð. Hann
segir að megináhersla hjá stofnun-
inni sé á þau 14 svæði sem Alþingi
samþykkti í náttúruverndaráætl-
un. Stækkun friðlandsins í Þjórs-
árverum er ekki þar á meðal.
„Það hefur ekki borist formleg
beiðni frá ráðuneytinu um stækk-
un friðlandsins í Þjórsárverum,“
segir Árni en bendir á að stækkun
friðlandsins hafi verið meðal
þeirra 75 svæða sem Umhverfis-
stofnun lagði fram í náttúruvernd-
aráætlun.
Hann segir að friðlýsing sé í
raun reglugerð sem ráðherra set-
ur. Í tilviki Þjórsárvera sé gert ráð
fyrir Norðlingaölduveitu sam-
kvæmt núverandi friðlýsingu.
Eins og fram hefur komið er laga-
heimild fyrir því að farið verði í
gerð Norðlingaölduveitu og segir
Árni að rekist slíkar heimildir á,
þ.e. annars vegar reglugerð sem
feli í sér friðlýsingu og hins vegar
lagaheimild til að fara í virkjunar-
framkvæmdir á sama svæði,
standi lagaheimildin. Því þurfi í
raun að koma til ný lög frá Alþingi
sem afturkalli heimild til að fara í
gerð Norðlingaölduveitu.
„Ný lög eða lagabreyting eru
forsenda þess að hætt verði við
Norðlingaölduveitu,“ segir Árni.
Þarf framkvæmdaleyfi
Þótt lagaheimild til að fara í
gerð Norðlingaölduveitu sé fyrir
hendi dugir hún ekki ein og sér.
Útgáfa framkvæmdaleyfis af hálfu
sveitarfélags er einnig tilskilin og
vegna Norðlingaölduveitu þyrfti
slíkt leyfi að koma frá Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Forsenda þess
að slíkt leyfi sé veitt er að fram-
kvæmdin sé komin inn á aðal-
skipulag en afgreiðslu aðalskipu-
lags á þessu svæði var hins vegar
frestað á sínum tíma og að sögn
Gunnars Arnar Marteinssonar,
oddvita hreppsnefndar, hefur eng-
in ákvörðun verið tekin um hve-
nær gengið verði frá afgreiðslu
skipulagsins.
Gunnar segir erfitt að segja til
um hvort pólitískur meirihluti sé
fyrir framkvæmdinni. Önnur mál
séu meira aðkallandi í sveitarfé-
laginu um þessar mundir. Auk
Gunnars situr Ingvar Hjálmars-
son í hreppsnefnd fyrir A-lista og
segir Gunnar að listinn hafi ekki
lagst gegn framkvæmdinni á sín-
um tíma. L-listinn hafi hins vegar
andmælt áformunum en flokkur-
inn á nú tvo menn í hreppsnefnd
og mynda A-listi og L-listi meiri-
hluta í hreppsnefnd.
Segist Gunnar reikna með að L-
listinn yrði mótfallinn fram-
kvæmdinni en ekki liggi þó fyrir
hvenær málið komi til afgreiðslu
hreppsnefndar.
Samvinnunefnd miðhálendisins
sér um að samræma skipulag á há-
lendinu. Óskar Bergsson, formað-
ur nefndarinnar, segir að af hálfu
nefndarinnar sé málið í biðstöðu
en það verði tekið upp ef eftir því
verði óskað.
Fréttaskýring | Norðlingaölduveita
Breytingu á
lögum þarf til
Stækkun friðlands útilokar ekki fram-
kvæmdir heldur þyrfti að setja ný lög
Framtíð Þjórsárvera hefur verið til umræðu.
Þjórsárver upphaflega
friðlýst árið 1981
Þjórsárver voru friðlýst árið
1981 og var friðlýsingin kynnt
með auglýsingu mennta-
málaráðuneytisins.
Í auglýsingunni segir m.a. að
Náttúrverndarráð muni veita
Landsvirkjun undanþágu frá
friðlýsingunni til að gera uppi-
stöðulón með stíflu við Norð-
lingaöldu í allt að 581 metra hæð
„enda verði kappkostað að halda
umhverfisáhrifum mannvirkja í
lágmarki“.
BANDARÍSKI fjárfestingarsjóður-
inn General Catalyst Partners hefur
sýnt íslenskra tölvuleikjafyrirtækinu
CCP mikinn áhuga og í samstarfi við
KB banka boðið í bréf hluthafa fyr-
irtækisins. Þetta segir Hilmar V. Pét-
ursson, framkvæmdastjóri CCP, en
hann á ekki von á því að fyrirtækið
verði selt.
„Þegar þetta fyrirtæki kom að máli
við okkur [...] sáum við að hugsanlega
væru einhverjir til í að selja sín bréf.
Hins vegar er stærsti hlutur fyrir-
tækisins í eigu annaðhvort starfs-
manna CCP eða Novator. Novator
hefur ekki sýnt neinn áhuga á því að
selja sín bréf og heldur ekki stjórn-
unarteymi CCP,“ segir Hilmar og
bendir á að þetta séu því aðallega
smærri hluthafar sem hugsanlega
gætu metið þetta tilboð sem tækifæri.
Tilboð General Catalyst Partners
hljóðar upp á 600 krónur á hlut en
rúm 8 milljón bréf eru í fyrirtækinu í
eigu um 110 hluthafa. Markaðsvirðið
er samkvæmt þessu um fimm millj-
arðar.
„Þeir hafa staðfest það að þeir
munu standa við öll tilboð sem fólk
svarar játandi sama hvað þeir enda
með stóran hlut. Það hefur verið
býsnast yfir því að það sé lítið um er-
lendar fjárfestingar í íslensku at-
vinnulífi en þetta er dæmi um hið
gagnstæða.“
Aðspurður segir Hilmar að ekki
liggi fyrir hversu margir hlutir hafi
verið keyptir en það muni hins vegar
liggja fyrir í þessari viku eða þeirri
næstu.
Bandarískur fjárfesting-
arsjóður býður í CCP
Ólíklegt
að fyrir-
tækið
verði selt
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
Innihaldið skiptir máli