Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 2

Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BASAJEV ALLUR Shamíl Basajev, leiðtogi uppreisn- armanna úr röðum tétsenskra að- skilnaðarsinna, lést í sprengingu í Íngúshetíu í gær. Rússnesk stjórn- völd sögðust hafa myrt Basajev en talsmenn uppreisnarmanna vísuðu því hins vegar á bug og sögðu hann hafa látist af slysförum. Ábyrgð hjá fyrirtækjum Félagsdómur komst í dómi sínum í máli Trésmiðafélags Reykjavíkur gegn Sóleyjarbyggð að því að hið ís- lenska fyrirtæki bæri ábyrgð á því að tryggja að erlendum starfs- mönnum sem hingað kæmu til að vinna væru greidd laun í samræmi við lágmarkskjör í viðkomandi starfsgrein. Níu hættir við kaup á lóðum Bjóðendur í níu íbúðarlóðir í landi Úlfarsárdals við Úlfarsfell, sem boðnar voru út í febrúar sl., hafa ekki staðið í skilum á greiðslum og hætt við lóðakaupin. Á fjórða hundr- að aðilar skiluðu inn rúmlega fjögur þúsund tilboðum, en alls voru 104 lóðir í útboðinu. Hlutfall þeirra sem ekki standa við kauptilboð sín er óvenju hátt í útboðum af þessu tagi. RÚV stefnir 365-miðlum Ríkisútvarpið ætlar að höfða mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur 365- ljósvakamiðlum og aug- lýsingastofunni Góðu fólki til heimtu skaðabóta og miskabóta fyrir brot á höfundarrétti og sæmdarrétti í aug- lýsingum. Áfram mannfall á Gaza Ísraelsher hélt áfram mann- skæðum loftárásum á Gaza-svæðið í gær og Ehud Olmert, forsætisráð- herra Ísraels, neitaði því að Ísraelar hefðu beitt Palestínumenn of mikilli hörku eftir að ísraelskur hermaður var tekinn í gíslingu. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 21 Fréttaskýring 8 Forystugrein 22 Viðskipti 12 Minningar 24/29 Úr verinu 13 Dagbók 32/35 Erlent 14/15 Víkverji 32 Minnstaður 16 Velvakandi 33 Akureyri 17 Staður og stund 34 Austurland 17 Menning 36/37 Suðurnes 18 Ljósvakamiðlar 42 Daglegt líf 19 Veður 43 Menning 20 Staksteinar 43 * * * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %           &         '() * +,,,                         STEFNA Ríkisútvarpsins og Sigurðar Guðjóns Sigurðssonar, sjálfstætt starfandi hönnuðar, á hendur 365-ljósvakamiðlum ehf. og auglýsinga- stofunni Góðu fólki var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Krafist er að stefndu greiði stefnanda, Ríkisútvarpinu, 960.265 kr. og Sigurði Guðjóni Sigurðssyni 2 milljónir kr. Málsatvik eru að 14. febrúar sl. pantaði Ríkis- útvarpið síðu í Fréttablaðinu undir auglýsingu sem stofnunin hafði látið Sigurð vinna fyrir sig og sendi 365 fullbúið eintak af auglýsingunni á raf- rænu formi. Þar var greint frá niðurstöðu fjöl- miðlakönnunar IMG-þekkingarsköpunar hf. frá í janúar og bent á að 10 af 10 vinsælustu sjónvarps- þáttunum væru í Sjónvarpinu. 365 ljósvakamiðlar birtu auglýsingu frá Stöð 2 í Fréttablaðinu 28. febrúar þar sem auglýsing RÚV var tekin í heilu lagi, minnkuð og hallað til vinstri. Yfir auglýsingu RÚV höfðu verið settir rauðir borðar með orðinu „búið“, og tekið fram að ekki væri nóg að vera vin- sæll í viku og bætt við að 7 af 10 vinsælustu þáttum Sjónvarpsins væru ekki lengur á dagskrá. Byggja stefnendur báðir á því að auglýsing njóti verndar sem höfundarverk samkvæmt 1. grein höfundarlaga nr. 73/1972. Stefnandi Ríkisútvarpið byggir á því að auglýsingin hafi verið tekin og not- uð í heimildarleysi og án samþykkis eiganda henn- ar, sem er Ríkisútvarpið. Stefnandi Sigurður byggir á því að útliti og innihaldi auglýsingarinnar hafi verið breytt án leyfis hans, hún afbökuð og notuð gegn viðskiptavini hans. Telur vinnubrögð í samræmi við venjur „Ég held að þessi vinnubrögð sem viðhöfð voru við þessa auglýsingu, sem var unnin af auglýs- ingastofu fyrir okkur, séu nú í samræmi við það sem hafi tíðkast, m.a. af Ríkisútvarpinu,“ sagði Ari Edwald, forstjóri 365-miðla, í samtali við Morg- unblaðið í gær og sagðist lítið annað hafa um málið að segja á þessu stigi. „Við erum að fara að taka til varna í málinu, eða því sem að okkur snýr.“ Málið verður þingfest 7. september nk. Stefna 365 og Góðu fólki fyrir brot á höfundarlögum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is MAGNI R. Magnússon, sem rak verslun í 40 ár með spil og ýmsa muni á Laugavegi, hefur löngum verið þekktur safnari. Nýverið fann hann franskt póstkort með mynd af frönskum sjómönnum á skútu að láta úr höfn. Undir myndinni er rit- að á frönsku: „Franskir sjómenn á leið til fiskveiða við Ísland.“ Eftir að Magni hætti verslunarrekstri stofnaði hann ásamt konu sinni fyr- irtækið Safnmuni í því augnmiði að safna gömlum munum tengdum Ís- landi. „Það er fyrst núna sem mað- ur hefur tíma til að skoða það sem maður hefur safnað,“ segir Magni. Eftir áratuga reynslu á hann orð- ið ágætis félaga og kunningja í hin- um alþjóðlega safnaraheimi sem láta hann vita ef þeir rekast á eitt- hvað á hans áhugasviði. „Þeir taka oft frá fyrir mig hluti sem tengjast Íslandi og ef það er eitthvað mjög skemmtilegt hef ég stundum fært þeim íslenskt brennivín en því gleyma þeir aldrei.“ Magni fékk t.d. ábendingu frá Frakklandi um að bjóða ætti upp póstkortið góða og náði því að næla sér í það. Hann er ekki búinn að ákveða hvað hann ætlar að gera með póst- kortið en hann var á leið til Tyrk- lands þegar blaðamaður náði tali af honum. Aðspurður hvort nokkrar líkur væru á því að finna eitthvað áhugavert fyrir safnara eins og hann þar sagði Magni að það væri nú ekki markmið ferðarinnar en hann hefði augun alltaf opin. Slíkt borgaði sig því oft hefði hann séð merkilegustu hlutina þar sem hann hefði síst átt von á þeim. Fær margar ábendingar um forvitnilega muni tengda Íslandi Morgunblaðið/Sverrir Magni R. Magnússon með póstkortið sem hann keypti á uppboði í Frakklandi eftir ábendingu frá einum kunningja sínum þar. Á kortinu er mynd af frönskum sjómönnum á leið til veiða við Íslandsstrendur. Eignaðist franskt póstkort frá upp- hafi síðustu aldar Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is ALDREI hafa fleiri skráð sig til leiks í hið árlega 55 kílómetra langa Laugavegarhlaup sem fer fram hinn 15. júlí nk. Þátttakendur verða nú 150 og er það aukning um 17 frá því í fyrra. Skráningu er nú lokið. Hlaupararnir eru frá 12 löndum. Alls eru 87 Íslendingar skráðir til keppni og 63 frá öðrum löndum. Bretar eru í miklum meirihluta er- lendra þátttakenda eða alls 30 en einnig eru 14 Þjóðverjar skráðir til keppni. Laugavegurinn er fræg gönguleið milli Landmannalauga og Húsadals í Þórsmörk. Hlaupið er mikil þrek- raun enda er það 13 kílómetrum lengra en hefðbundið maraþon, auk þess sem hækkunin á leiðinni er 800 metrar og undirlag óslétt. Hæsti punktur leiðarinnar er við Hrafn- tinnusker. Morgunblaðið/Rúnar Í fyrra hlupu 133 milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Aldrei fleiri í Laugavegarhlaupi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.