Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.07.2006, Blaðsíða 10
FYRIRTÆKI geta ekki stofnað eigin lífeyrissjóði fyrir starfsmenn sína þar sem þau eru bundin af kjarasamning- um sem fela í sér greiðslu í ákveðinn lífeyrissjóð. Hugmyndin er því ófram- kvæmanleg eins og umhverfið er núna. Þetta segir Vilhjálmur Egils- son, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, en forsvarsmenn verka- lýðshreyfingarinnar hafa einnig gagnrýnt slíkar hugmyndir. Fregnir hafa borist af því að Baug- ur og FL Group séu að kanna mögu- leika á stofnun sérlífeyrissjóðs fyrir starfsmenn sína sem eru 3–4.000 tals- ins. Ástæðan er óánægja með fjár- festingarstefnu Lífeyrissjóðs versl- unarmanna sem reyndi nýverið, án árangurs, að selja hlut sinn í Straumi- Burðarási fjárfestingabanka. Baugur og FL-Group eiga bæði hlut í Straumi-Burðarási. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir ástæðuna fyrir tilraun til sölu á hlutabréfum í Straumi-Burðarási hafa verið að átök milli blokka hafi hækkað hlutabréfaverðið. Sjóðurinn hafi því viljað kanna hvort kaupandi fyndist, fremur en að lenda í átökum. „Það er ekki vilji okkar að standa í ill- deilum við fyrirtæki og auðvitað má gagnrýna ákvarðanir lífeyrissjóða. Mér þætti þó eðlilegra að menn beittu sér innan rammans sem þeir hafa og færu lýðræðislegar leiðir.“ Um 1.400 milljarða eignir Stjórnir lífeyrissjóða eru venjulega skipaðar fulltrúum atvinnurekenda að helmingi til og fulltrúum stéttar- félaga að helmingi. Gunnar Páll segir sér gremjast hótanir Baugs og FL Group og bendir á að þetta myndi snerta fleiri lífeyrissjóði enda þótt meirihluti starfsmanna fyrirtækj- anna sé í Lífeyrissjóði verslunar- manna. „Út frá hinum almenna laun- þega séð er mikilvægt að gera skýr skil milli þeirra sem þú vinnur hjá og eftirlaunasparnaðarins, svo fólk sé ekki með öll eggin í sömu körfu,“ seg- ir Gunnar Páll og bætir við að reynsla af fyrirtækjasjóðum úti í heimi sé mjög misjöfn. T.a.m. hafi starfsmenn stórfyrirtækisins Enron misst líf- eyrisréttindi sín þegar fyrirtækið varð gjaldþrota. „Við búum við allt aðrar aðstæður en t.d. í Bandaríkjun- um. Þar eru stærstu lífeyris- sjóðir í heimi en þeir eiga vel innan við 1% í stórum amerískum fyrir- tækjum. Hér á landi er þátttakan miklu meiri.“ Um mikla fjár- muni er að ræða en í árslok 2005 voru eignir 42 líf- eyrissjóða lands- ins 1.200 milljarð- ar króna og eru líklega nálægt 1.400 milljörðum í dag. Lífeyrissjóð- ur verslunar- manna er næst- stærstur og segir Gunnar Páll hann eiga um 200 millj- arða. Vilhjálmur Eg- ilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), segir fyrirtækjasjóði hafa verið starfandi á árum áður en að þeir hafi ekki reynst hagkvæmir í rekstri. „Ef það væru starfandi mjög margir fyr- irtækjasjóðir yrðu þeir allir það litlir að aldrei næðist sama hagkvæmni í rekstri þeirra eins og þegar þeir eru stærri,“ segir Vilhjálmur og bætir við að réttindi og iðgjöld yrðu mismun- andi milli sjóða. „Síðan er það þannig að fólk skiptir um starf mörgum sinn- um á starfsævinni og fyrirtækjasjóð- irnir væru að halda utan um réttindi miklu fleiri einstaklinga en borga í sjóðinn.“ Vilhjálmur segir hagkvæmnina skipta mestu máli í þessum efnum og ítrekar að álit hans snúist ekki um einstök fyrirtæki heldur um hug- myndina um fyrirtækjalífeyrissjóði almennt. „ Eins og staðan er núna eru fyrirtæki og starfsmenn skyldug til að greiða í lífeyrissjóði í samræmi við kjarasamninga,“ segir Vilhjálmur og bætir við að þess vegna sé hugmyndin um lífeyrissjóði fyrirtækja ekki fram- kvæmanleg. Hefð fyrir húsbóndaábyrgð Pétur H. Blöndal, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að það væri þróun aftur á bak að fyrirtæki stofnuðu eigin lífeyrissjóði. „Í árdaga lífeyrissjóðanna voru þeir iðulega stofnaðir á vegum fyrirtækja, yfirleitt stórra, sem voru að kaupa sig frá húsbóndaábyrgðinni,“ segir Pétur og vísar til þess að hér áður fyrr hafi bændur ekki getað úthýst vinnuhjúum sem höfðu starfað fyrir þá lengi, þótt þau væru orðin gömul og óstarfhæf. „Það var ákveðið siðalögmál að bónd- inn skyldi sjá þeim farborða. Þessi húsbóndaábyrgð fylgdi inn í iðnvæð- inguna og mörg fyrirtæki stofnuðu því lífeyrissjóði. Þetta skýrir hvers vegna fyrirtæki greiða iðgjald í sjóðina.“ Pétur segir það minnka áhættu launþega að lífeyrissjóðir séu aðskild- ir fyrirtækjum. „Lífeyrissjóðir gætu annars fjárfest í fyrirtækjum sem að þeim standa. Áhætta launþeganna af vinnuveitenda væri þá enn meiri,“ segir Pétur og bætir við að eignir líf- eyrissjóðanna séu gífurlegar enda renni þangað 12% af launum allra landsmanna. Pétur segir vafasamt hversu tak- markað lýðræði sé innan lífeyrissjóð- anna. Launþegar geti aðeins komist í stjórn í gegnum stéttarfélag og það sé langur vegur. „Menn ættu annað hvort að geta kosið stjórn sjóðanna beint eða greitt atkvæði með fótunum með því að velja sér lífeyrissjóði,“ segir Pétur. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda- stjóri ASÍ, segir þessa hugmynd and- vana fædda. „Núverandi kerfi byggir á mjög djúpstæðri sátt milli allra flokka á Alþingi og aðila vinnumark- aðarins,“ segir Gylfi og bætir við að það sé mjög mikilvægt að launafólk og atvinnurekendur séu þátttakendur í stjórnum lífeyrissjóðanna. Samtök atvinnulífsins og ASÍ mótfallin sérlífeyrissjóðum fyrirtækja „Ófram- kvæmanleg hugmynd“ Morgunblaðið/Árni Sæberg FL-Group og Baugur gagnrýna fjárfestingastefnu Lífeyrissjóðs versl- unarmanna en það er næststærsti lífeyrissjóður landsins. Gunnar Páll Pálsson Vilhjálmur Egilsson Skarphéðinn Berg Steinarsson Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is 10 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stendur ekki til að stofna lífeyrissjóð „VIÐ ERUM ekkert að skoða stofn- un lífeyrissjóðs heldur aðeins að velta fyrir okkur hvernig þetta um- hverfi er,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL- Group, um fréttir af því að Baugur og FL-Group séu að kanna mögu- leika á að stofna sérstakan lífeyr- issjóð fyrir sína starfsmenn. Skarphéðinn segir Lífeyrissjóð verslunarmanna hafa unnið gegn hagsmunum Baugs og FL-Group. „Við gerum ráð fyrir að hagsmunir starfsmanna fari saman við hags- muni fyrirtækja. Lífeyrissjóðir hljóta að eiga að taka afstöðu með ávöxtun sjóðsins og hagsmunum sjóðsfélaga en ekki taka þátt í ein- hverju valdabrölti í atvinnulífinu eins og þekkt er að þeir [Lífeyr- issjóður verslunarmanna] hafa gert.“ Skarphéðinn segir hugmyndina um að stofna sérlífeyrissjóð ekkert vera sérstaklega uppi á borðinu en að það kæmi t.d. til greina að hvetja starfsmenn til að greiða í aðra sjóði. Hann gagnrýnir skipan í stjórnir lífeyrissjóða og segir að færa þyrfti það ferli nær þeim sem greiða í sjóðinn. „Þeir sem eiga líf- eyrissjóðinn hafa ekkert um það að segja hverjir skipa stjórnina,“ segir Skarphéðinn og bætir við að það séu hagsmunir fyrirtækja að lífeyr- isréttindi starfsmanna þeirra séu sem mest og best. „Þeir sem borga í lífeyrissjóðina eiga þessa peninga.“ umræðan á morgun Daglegt málþing þjóðarinnar KAJAKKONAN Rotem Ron, sem rær í kringum landið, er nú byrjuð á erfiðasta hlutanum, sjálfri suður- ströndinni. Hún reri Austfirðina á rúmri viku og hvíldi sig síðan á Höfn. Straumar liggja stöðugt upp að suðurströndinni og geta auð- veldlega hrakið báta upp í fjöru- brim. Njóta ræðarar því engrar hjálpar frá straumi eins og útaf Norðurlandinu þar sem straum- urinn liggur austur með landinu. Norður- og suðurströndin eru því gerólíkar hvað þetta snertir og í þokkabót er spáð suðlægum áttum. Skilaboð hennar eftir að hún lagði af stað frá Höfn voru einföld: „Er á svarta sandinum mikla,“ og er þar átt við Skeiðarársand. Hringróðrinum á að ljúka við Stykkishólm, þaðan sem Rotem lagði af stað fyrir réttum mánuði. Takist henni að róa hringinn verð- ur hún fyrsti kajakræðarinn til að afreka það í einmenningsleiðangri á kajak. Erfiðasti hluti leiðarinnar hafinn PÁLMI Ragnar Pálmason, formað- ur stjórnarnefndar Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH), segist ætla að ræða við heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra vegna mál- efna spítalans. Aðspurður hvort nefndin muni biðja ráðherra um við- bótarfjármagn segir Pálmi það eiga eftir að koma í ljós. „Þegar búið er að greina vandann og það standa peningar upp úr verð- um við auðvitað að fara fram á aukið fjármagn með einum eða öðrum hætti.“ Pálmi segir hins vegar ljóst að ein- hver brestur sé í samskiptaferlinu á spítalanum og fara verði í gegnum það ferli í því skyni að komast hjá leiðindum. Þessi mál verði því rædd við ráðherra. „Það er eitthvað ekki eins og það á að vera fyrst að þessi mál koma upp en það er erfitt að gera svo öllum líki alltaf.“ Pálmi bendir á að nefndin telji sig hafa að leiðarljósi hagsmuni spítal- ans og þeim sé best komið með svo- kallaðri helgun. Það felur meðal ann- ars í sér að yfirlæknar sjúkrahússins séu í 100% starfi og reki ekki lækna- stofu utan hans. „Það er alveg klárt að yfirlæknar verða af tekjum með þessari helgun en þeir fá auðvitað umtalsverðar tekjur fyrir að reka sínar stofur, sem þeir verða af. Það hefur verið reynt að mæta þessu og spítalinn telur sig núna vera búinn að teygja sig þang- að sem hann getur. Ef þessir menn [...] vilja ekki sæta þessu er fórnað minni hagsmunum fyrir meiri að okkar áliti. Við fórnum þeirra hags- munum fyrir hagsmuni spítalans.“ Framhald málsins óráðið Ákvörðun hefur ekki verið tekin um það fyrir hönd LSH hvort máli Stefáns E. Matthíassonar gegn spít- alanum verði áfrýjað til Hæstarétt- ar. Þetta kemur fram í bréfi sem for- stjóri LSH og framkvæmdastjóri lækninga sendu læknum spítalans til upplýsingar. Þar segir jafnframt að lögmaður Stefáns, Ragnar H. Hall, hafi óskað eftir viðræðum til að leita leiða til að leysa þann ágreining sem varð tilefni málaferlanna. Spítalinn muni að sjálfsögðu verða við þeirri beiðni en ákvarðanir um framhald málsins verði að bíða þess að nið- urstöður viðræðnanna liggi fyrir. „Fórnum þeirra hags- munum fyrir hagsmuni spítalans“ Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.