Morgunblaðið - 11.07.2006, Page 16
Þingvellir | Þeir voru fjölmargir
sem nutu einstakrar veðurblíðu
á Þingvöllum á sunnudaginn.
Einmitt nú er blómskrúðið þar
allra fegurst. Stöðugur straum-
ur fólks var um Almannagjá og
vellina. Varla finnst fegurri
staður til að njóta slíks dags.
Vafalaust voru þó margir sem
fórnuðu heitri síðdegissólinni, til
að hverfa í hús og fylgjast með
einvígi Ítala og Frakka. Þar
gengu menn í skrokk hver á
öðrum líkt og norrænir menn til
forna og eggjuðu hvern annan.
Eitthvað gæti þó forn-
Íslendingum þótt hafa skort á
sæmdina í þeirri baráttu.
Ferskleiki í gömlum fótsporum
Blágresið blíða
Akureyri | Austurland | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þegar sólin fór að skína á sunnudaginn,
eftir langvarandi rigningarsudda, mátti
sjá ólíklegasta fólk rækta garðinn sinn.
Menn slógu gras, klipptu runna, reyttu
arfa og snyrtu beð. Það er trúlegt að sum-
ir hafi mætt til vinnu í gær með harð-
sperrur í það minnsta í handleggjunum,
en útiteknir og ánægðir með afrakstur
helgarinnar.
Á Bændamarkaðinum á Hvanneyri sl.
laugardag mátti finna sauðaosta, geita-
osta, hákarl, harðfisk, grænmeti, and-
aregg, hvannamarmelaði, rúgbrauð og
flatkökur svo eitthvað sé nefnt. Er þá
ónefnt kiðlingakjöt sem var á boðstólum.
En Borgfirðingar og aðrir sem leið áttu
um virtust kunna vel að meta framtakið,
stöðugur straumur fólks lá um svæðið og
salan var blómleg. Konur í kvenfélaginu
19. júní, stóðu við og bökuðu pönnukökur
sem jafnharðan voru borðaðar, aðallega af
litlum munnum. Og krakkarnir í dans-
hópnum frá Kleppjárnsreykjaskóla seldu
rabarbara og rabarbarapæ, til styrktar
dansferðalögum sínum, en þau hafa staðið
sig sérstaklega vel í danskeppnum, heima
og erlendis.
Á tjaldstæðinu að Fossatúni mátti líta
fjöldann allan af hústjöldum, tjaldvögnum
og fellihýsum um helgina. Veðurstofan
hafði spáð besta veðrinu á suðvesturhorn-
inu svo margir skruppu í Borgarfjörðinn í
útilegu. En sólin lét ekki sjá sig fyrr en í
helgarlok þannig að sumir gáfust upp á að
bíða og færðu sig sunnar á landið. Hins
vegar væsir ekki um neinn á Fossatúni,
því þar er aðstaðan til fyrirmyndar.
Fréttaritari sá tilsýndar að margmenni
var í útibúi KB banka í Borgarnesi um
helgina. Verið var að taka upp mynd og
fregnaðist að Helga Braga leikkona var á
tökustað ásamt starfsfólki og við-
skiptavinum sem þóttu hafa leikræna til-
burði til að bera. Leiksviðið var hin nýju
húsakynni KB banka í Borgarnesi. Hvað
út úr þessu kemur fékkst ekki uppgefið.
Úr
bæjarlífinu
BORGARNES
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur fréttaritara
Blönduós | Þessir hundar voru að leik á
hótellóðinni á Blönduósi og fóru mikinn.
Hundarnir höfðu ríka ástæðu til gleði-
láta því sólin blessuð var farin skína.
Hugsanlega hafði líka fjarvera Nonna
hunds sem býr í næsta húsi eitthvað með
gleðina að gera. Hann er umtalsvert
stærri en þessir tveir kútar.
Jafnvel mætti ganga svo langt að rifja
upp hið fornkveðna: „Þegar kötturinn er
úti leika mýsnar inni.“
Smáhundar á borð við þessa verða æ
algengari sýn hérlendis þótt gömlu fjár-
hundarnir standi alltaf fyrir sínu. Óneit-
anlega fara þessir þó betur í faðmi eig-
enda sinna og geta verið góðir félagar.
Ljósmynd/Örn Þórarinsson
Hundalíf í Aðalgötunni
Í kirkjugarðinum áÍsafirði er kvæði álegsteini Kristrúnar
V. Kristjánsdóttur sem
fæddist 5. ágúst 1865 og
lést 5. febrúar 1938. Fyr-
irmyndarmanneskja þess
tíma?
Hér er gengin hljóð til moldar
hæglát kona, er mikið vann.
Dygg í starfi, styrk í lundu
stóð í skuld við engan mann.
Falslaus vinum, frændum öllum
fús að hjálpa í hverri raun.
Óstudd gekk, en aðra styrkti
urðu það hennar verkalaun.
Rúnar Kristjánsson vill
svo vekja athygli á að
ekki sé það sem verst að
verða „(h)eldri borgari.“
Hann yrkir svo um efri
árin (-bestu árin?) og
varpar ljósi á það sem þau
eldri hafa fram yfir yngri:
Þegar efri árin hefjast
eftir margan krappan dans,
minninganna myndir vefjast
mörgum hjá í geislakrans.
Þá fær margt í skini að skarta,
skilning eykur hugarþel.
Þá mun lifa þökk í hjarta
þeirra til sem reyndust vel.
Fögur sál og
(h)eldri borgarar
pebl@mbl.is
♦♦♦
Fáskrúðsfjörður | Fyrsta skóflustunga
hefur verið tekin að framkvæmdum í
Hlíðahverfi í Fáskrúðsfirði. Valgerður
Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, var þar
að verki á stærðar gröfu.
Skóflustungan markar tímamót í bygg-
ingarsögu Fáskrúðsfjarðar enda lætur
nærri að íbúðum í byggðarlaginu fjölgi um
20% við framkvæmdirnar.
Fjárfestingafélag Austurlands fékk 26
lóðir úthlutaðar í hverfinu fyrir allt að 50
íbúðir í einbýlishúsum auk par- og rað-
húsa.
Fjölskylduparadís utan við skarkala
„Fyrsta kastið rísa þarna sextán íbúðir í
fjórum raðhúsum. Jarðvinnsla er hafin en
neðri hæð húsanna verður steinsteypt og
sú efri úr timbri. Hver íbúð verður á bilinu
120 til 150 fermetrar,“ segir Þórir Jens
Ástvaldsson, framkvæmdastjóri BKR ehf.
sem á Fjárfestingafélag Austurlands. „Um
er að ræða tveggja ára verkefni en eft-
irspurn á markaði ræður miklu um hvert
framhaldið verður að fyrsta áfanga lokn-
um. Þetta tengist auðvitað Fjarðaáls-verk-
efninu, en Fáskrúðsfjörður er meira út úr
skarkalanum en bæjarfélögin sem eru nær
framkvæmdunum og við sjáum þetta fyrir
okkur sem fjölskylduparadís.“
Leigufélagið Híbýli ehf. hefur fest kaup
á hluta íbúðanna en afgangurinn verður
seldur á frjálsum markaði.
Stefnt er að því að fyrstu húsin verði fok-
held og tilbúin að utan í árslok 2006. Áætl-
að er að lokafrágangi innan dyra verði lok-
ið á næsta ári.
Íbúðum
fjölgað um
fimmtung
Hveragerði | Bæjarráð Hveragerðis hefur
samþykkt samhljóða að leggja til 500 þús-
und króna hlutafé sem stofnfé í undirbún-
ingsfélag um Suðurlandsveg yfir Hellis-
heiði. Kom þetta fram á fundi bæjarráðs
þar sem lagt var fram bréf frá Sjóvá þar
sem óskað er eftir því að stofnað verði slíkt
félag. Bæjarráð fagnar frumkvæði Sjóvá í
þessu máli og telur það brýnt hagsmuna-
mál allra Sunnlendinga af ýmsum ástæð-
um. Segir í bókun að ef samningar muni
nást á þessum grunni verði Suðurlands-
vegur yfir Hellisheiði og á Selfoss vonandi
orðinn fjögurra akreina og upplýstur miklu
mun fyrr en annars.
Fé til félags um
Suðurlandsveg