Morgunblaðið - 11.07.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 11.07.2006, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Veitingastaður Miklir möguleikar www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Vorum að fá af sérstökum ástæðum glæsilegan veitingastað í nágrenni Reykjavíkur. Sæti fyrir allt að 180 manns. Gott tækifæri fyrir hjón eða jafnvel tvenn hjón. Nánari uppl. veitir Ellert Róbertsson eingöngu á skrifstofu. Sími 588 4477 SUÐURNES VINNA stendur nú yfir við stækk- un og breytingar á flugstöð Leifs Eiríkssonar og er markmiðið með framkvæmdunum að bregðast við spám um öra fjölgun farþega á ferð um Keflavíkurflugvöll. „Við búumst við mikilli fjölgun farþega á næstu árum og það hefði ekki mátt tæpara standa að hefja framkvæmdir úr því að fram- kvæmdir og farþegar urðu hvor tveggja að rúmast í flugstöðinni,“ segir Höskuldur. Hátt í tvær milljónir farþega fóru í gegnum flugvöllinn í fyrra og er áætlað að farþegafjöldinn nái 3,2 milljónum árið 2015. Fram- kvæmdirnar hófust árið 2003 og að þeim loknum, árið 2007, mun bygg- ingin hafa stækkað úr 22.000 fer- metrum í 38.500. Þjónustunni haldið í horfi „Við erum að endurgera og end- urskipuleggja norðurbygginguna frá grunni. Við höfum reynt að halda þjónustu við farþega í horfi á meðan framkvæmdirnar hafa stað- ið yfir. Það hefur verið heilmikið púsluspil og það hefur kallað á þó nokkrar tilfæringar og hróker- ingar,“ að sögn Höskuldar. Leið brottfararfarþega úr inn- ritun og í vopnaleit er gott dæmi um hvernig aðstaða hefur verið færð til bráðabirgða meðan fram- kvæmdum miðar áfram. Áður en framkvæmdir hófust var vopnaleit- in til vinstri við innritunina í norð- urenda, hún var síðan flutt hinum megin við innritunina í suðurenda. Vopnaleitin var í byrjun sumars opnuð á annarri hæð bygging- arinnar og gengu þá brottfararf- arþegar upp stigagang eða tóku lyftu. Endanleg leið fyrir brottfar- arfarþega hefur nú verið tekin í gagnið og fara farþegar nú upp í rúllustiga eða stiga í Laufskál- anum. Laufskálinn er glerhýsi þar sem áður var kaffitería og reykaðstaða. Vopnaleitin hefur verið aðskilin frá innrituninni og liggur Lauf- skálaleiðin svokallaða upp á 2. hæð þar sem beygt er til hægri að vopnaleitinni. Vopnaleitarhliðin eru fimm tals- ins og pláss er fyrir eitt hlið í við- bót eins og staðan er núna. Ætl- unin er að tengja Laufskálann við glerbygginguna sem liggur utan á norðvesturhorni byggingarinnar. Með því að færa gönguleiðina þangað komast tvö vopnaleitarhlið til viðbótar fyrir og þá er pláss fyr- ir átta hlið. Fjöldi nýrra verslana Flutningur vopnaleitar upp á 2. hæð er liður í fyrri áfanga fram- kvæmdanna ásamt stækkun vest- urhluta 2. hæðar norðurbyggingar til suðurs. Í seinni áfanganum verða breytingar gerðar á austur- hluta 2. hæðar og lokið við að stækka flugstöðina til suðurs, vinna við þann áfanga hefst ekki fyrr en í haust enda háannatími genginn í garð í flugstöðinni. Flug- stöðinni hefur verið skipt í tvennt, í austurhluta og vesturhluta, með- an á framkvæmdum hefur staðið og að þeim loknum mun flugstöðin hafa verið stækkuð um 42 metra til suðurs. Fyrri áfanganum lýkur á næst- unni þegar veggir þeir sem skilja að núverandi rými fyrir brottfar- arfarþega og stækkunina verða teknir niður. Í því rými munu Epal, Rammagerðin, 66° Norður, 10-11 og Saga Boutique opna nýjar verslanir. Auk þess sem Kaffitár mun opna kaffibar á svæðinu. Þá verður komin því sem næsta end- anleg mynd á vesturhlutann og mögulegt verður að sjá muninn á nýja tímanum og gamla tímanum á 2. hæðinni. Alls verða opnaðar 10- 12 verslanir á svæðinu og munu þær halda áfram að bætast við til vorsins 2007. Aukin afkastageta Höskuldur er nýkominn frá Þýskalandi þar sem hann var að ganga frá samningum um kaup á farangursflokkunar- og gegn- umlýsingarkerfi. „Nú er það þannig að töskur far- þega á leið úr landi eru flokkaðar handvirkt, þetta kerfi notar hins vegar strikamerki og flokkunin er öll tölvustýrð. Það býður upp á aukið öryggi auk aukinna afkasta. Afkastageta þessa kerfis, sem einnig gegnumlýsir farangur, er rúmlega þrjú þúsund töskur á klukkustund. Þegar það verður tekið í notkun má segja að straum- hvörf verði í farangursmeðhöndlun í flugstöðinni,“ að sögn Höskuldar. Kerfið verður staðsett á 1. hæð í vesturhluta viðbyggingar þeirrar sem er að rísa í suðurenda norð- urbyggingar. Leið komufarþega mun að fram- kvæmdum loknum liggja austan við farangursflokkunarkerfið niður stiga og rúllustiga í líkingu við þá sem nú hafa verið settir upp fyrir brottfararfarþega í Laufskálanum, þar verða fyrir þrjú farang- ursfæribönd, þó ekki þau sömu og nú eru í notkun. „Það verða ekki fleiri færibönd fyrir farangur í nýja komusalnum, en heildarlengd þeirra verður þre- falt lengri en þeirra sem nú eru í notkun. Jafnframt verður rými til stækkunar þeirra,“ segir Hösk- uldur. Ný fríhafnarverslun verður stað- sett þar sem farangursfæriböndin eru nú og þar á bak við en þar er núverandi farangursflokkunar- og gegnumlýsingarkerfi. Stiginn sem komufarþegar fara niður nú til að komast í fríhafnarverslunina á 1. hæð og að farangursfæriböndum verður rifinn. Tollurinn á sama stað Tollurinn verður ekki fluttur úr stað eins og svo margt annað held- ur verður hann gegnt hinni nýju fríhafnarverslun á 1. hæð. Eftir að gengið er í gegnum tollinn blasir við verslun 10-11 sem opnaði í vik- unni sem leið. Auk blómvanda er meðal annars hægt að fá bakkelsi og eitthvað að drekka með í versl- uninni sem er væntanlega mikil bragarbót fyrir þá sem eru snemma á ferðinni að sækja vini og vandamenn eða þurfa að bíða eftir farþegum úr flugi sem hefur seinkað. Fleira nýtt er á svæðinu eftir að komið er í gegnum tollinn, í apríl sl. var opnuð ný aðstaða fyrir bíla- leigufyrirtæki til vinstri eftir að komið er úr tollinum, þar er að finna útibú Hertz, National, Alamo, Avis, Budget, Europcar og bílaleiga Akureyrar. Auk þess sem Landsbankinn hefur opnað þar útibú með áherslu á gjaldeyr- isviðskipti. Í vetur var byggt yfir gönguleið þeirra sem leggja á langtímabíla- stæðum auk þess sem vísir að slíku skýli hefur verið reistur fyrir þá sem leggja á skammtímastæðum komufarþegamegin. Ný starfsmannaaðstaða Skrifstofu- og starfsmanna- aðstaða hefur ekki farið varhluta af breytingunum sem gerðar hafa verið á flugstöðinni. Um þriðj- ungur rýmis á 2. hæð bygging- arinnar var lagður undir þessa að- stöðu áður, en eftir breytingarnar er stefnt að því að öll 2. hæðin muni nýtast fyrir verslun og þjón- ustu við farþega. Því þurfti að finna skrifstofum og starfs- mannaaðstöðu annað heimili. Skrifstofur flugstöðvarinnar voru fluttar upp á 3. hæð sl. vor en geymsluris var áður á hæðinni. Nú er þar fjögur þúsund fermetra skrifstofu- og starfsmannaaðstaða, rýmið er tvískipt að hluta og gengt á milli um brú. Aðstaðan á 3. hæð- inni var tekin í notkun eftir að öll loftræstikerfi og önnur tækni hafði verið endurnýjuð. Geymslan verð- ur flutt í kjallara viðbygging- arinnar í suðurenda norðurbygg- ingarinnar. Ístak hf. er aðalverktaki þessara framkvæmda og verkfræðistofan VSÓ stýrir verkefninu. Heiðurinn af hönnun breytinganna eiga Teiknistofa Garðars Halldórssonar og VA arkitektar. Morgunblaðið/Jóhann Magnús Laufskálaleiðin Leið brottfararfarþega úr innrituninni á 1. hæð liggur upp þessa stiga og til hægri þar sem er búnaður til vopnaleitar. Púsluspil í flugstöð Leifs Eiríkssonar tekur á sig mynd Staðið er í ströngu við umbyltingu flugstöðvar Leifs Eiríkssonar um þessar mundir. Sjón er sögu ríkari og Jóhann Magnús Jóhannsson leit á framkvæmdirnar í fylgd Höskuldar Ás- geirssonar, forstjóra flugstöðvarinnar. johaj@mbl.is Morgunblaðið/Jóhann Magnús Yfirbyggð gönguleið Margir kannast við „íslenska veðrið“ sem tekur á móti manni þegar bíllinn er sóttur út á langtímabílastæðið við flugstöðina. Skýli hefur verið byggt yfir gönguleiðina til að hlífa fólki við misjöfnum veðrum. Bakkelsi og blómvendir Í nýrri verslun 10–11 á komusvæði er hægt að kaupa mat og drykk, auk þess sem blómvendir eru á boðstólum. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.