Morgunblaðið - 11.07.2006, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn hefur gaman af því að kynnast
nýju og áhugaverðu fólki en ætti að slaka
á í návist fjölskyldunnar í dag. Hún
þarfnast þín og hjálpar þér líka að upp-
fylla skyldurnar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Yfirmaður nautsins virðist breyta dag-
skránni aftur og aftur svo það er farið að
efast hvort viðkomandi viti yfirhöfuð
hvað hann er að gera. Notaðu tækifærið
og beittu zen-heimspeki í vinnunni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ráðleggingar tengdar peningum og fjár-
festingum koma við sögu, sem og áætl-
anir og samtöl um fjármálin. Skoðaðu ár-
angurinn í fortíðinni áður en þú tekur
ákvarðanir fyrir framtíðina.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Heppnin er með krabbanum þegar hann
les milli línanna, kíktu bakvið tjöldin,
hugsaðu handan við hið augljósa. Hul-
unni verður svipt af spennandi leynd-
armálum. Afstaða himintunglanna er ein-
staklega hagstæð fyrir rómantíkina,
veltu fyrir þér ferðalagi á spennandi stað.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Taktu af skarið. Þú hefur rétt fyrir þér,
en það sem ræður úrslitum er að þú náir
að sannfæra aðra. Ef þú þarft að rífast
eða kljást við einhvern er það í góðu lagi.
Árangurinn er tímamótauppgötvun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Væntingar sem erfitt er að standa undir
þrengja að meyjunni, segðu yfirmönnum
þínum og fjölskyldu að þú gerir þitt besta
en ekki skuldbinda þig um of. Ef ásetn-
ingur þinn er göfugur færðu smá inn-
spýtingu frá himintunglunum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er jafn auðvelt að gera eitthvað sem
maður hefur ekki gert áður og að end-
urtaka sig í sífellu. Uppbótin sem þú
færð fyrir að hætta þér út í óvissuna felst
í forfrömun og árangri þegar upp er stað-
ið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það sem máli skiptir í dag er að njóta sín
í sambandinu. Smávægileg erindi og
samræður sem þið eigið við hvort annað í
dag treysta böndin. Tvíburi kemur þér til
að skellihlæja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Einhver sem vill þér allt hið besta er að
verða dálítið þreytandi. Reyndu að gæta
háttvísi. Lagaleg álitaefni, skattar og for-
ræði verða þér í hag á endanum, þess
vegna skaltu slaka á og hætta að hugsa
um það í bili.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fljótfærnislegar og hvatvísar ákvarðanir
koma við sögu. Það verður þér til happs
að opna munninn í stað þess að þegja eins
og venjulega á tilteknu augnabliki. Sumt
verður bara hreinlega að segja upphátt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Himintunglin gefa til kynna að vatnsber-
inn verði ekki í stuði fyrir neitt sem er
honum hollt í dag. Reyndu samt að
stunda líkamsrækt þér til skemmtunar,
lesa eitthvað sem heillar þig og dansa af
því að þú ert lifandi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn ætti að vera á varðbergi gagn-
vart gróðabralli. Til allrar hamingju er
hann yfirleitt nokkuð veraldarvanur og
sér í gegnum blekkingar í margra kíló-
metra fjarlægð. Ef þú ert á gráu svæði
og hreinlega ekki viss, áttu að reiða þig á
það sem hefur reynst traustsins vert í
gegnum tíðina.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Merkúr hefur slegist í fylgd
hersingarinnar sem nú fer
í gegnum merki krabbans
og hefur heitið því að forðast ekki tilfinn-
ingamál, heldur taka opnum örmum; oft,
algerlega og af kappi. Ef þau hafa eitt-
hvað með heimili og fjölskyldu að gera,
ekki síst mömmu, er það bara betra. Tök-
um fyrir allt það sem hefur verið sópað
undir teppið næstu vikur.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 fara höndum
um, 8 lagvopn, 9 skúta,
10 aðgæti, 11 fiskur, 13
illa, 15 skammt, 18 dap-
urt, 21 ótta, 22 óþétt, 23
eru í vafa, 24 farangur.
Lóðrétt | 2 ákveð, 3 raka,
4 lok, 5 lítil tunna, 6 dæld
í jörðina, 7 efa, 12 fersk-
ur, 14 tré, 15 fokka, 16
hæsta, 17 höfðu upp á, 18
ekki framkvæmt, 19 púk-
ans, 20 pinna.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 drúpa, 4 flíka, 7 lepps, 8 Óttar, 9 aum, 11 röng,
13 gaur, 14 eigra, 15 volt, 17 treg, 20 æra, 22 tómur, 23
lyfið, 24 rýran, 25 akrar.
Lóðrétt: 1 dulur, 2 úlpan, 3 assa, 4 fróm, 5 ístra, 6 aurar,
10 ungar, 12 get, 13 gat, 15 vitur, 16 lemur, 18 rófur, 19
góður, 20 ærin, 21 alda.
Tónlist
Café Kulture | Kvartett Erik Qvick spilar
þriðjudaginn 11. júlí á Kaffi Kúlture, Reykja-
vík. Kvartettinn skipa þeir Erik Qvick
trommur, Haukur Gröndal saxófón, Ásgeir
Ásgeirsson gítar og Thomas Markuson á
kontrabassa. Kvartettinn leikur blöndu af
tónlist eftir hljómsveitarmenn og þekktari
lögum.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Allir
flautukvartettar Mozarts í flutningi Freys
Sigurjónssonar (flauta), Iwona Andrzej-
czak (lágfiðla), Jerzy Andrzejczak (selló),
en þau eru öll leiðarar síns hljóðfæris í sin-
fóníuhljómsveitinni í Bilbaó á Spáni – og
Hlífar Sigurjónsdóttur fiðluleikara.
Myndlist
101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir
til 22. júlí. Opið fimmtudaga, föstudaga,
laugadaga frá 14–17.
Anima gallerí | Sumarsýning: Opið fim.,
föst. og laug. kl. 12–17. Til 15. júlí.
Aurum | Helena Ragnarsdóttir sýnir
ónefnt akrýlverk unnið á pappír. Helena
lærði myndlist við myndlistardeild Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti og tók þátt í
samsýningu í Gallerí Tukt árið 2005. Sýn-
ingin stendur yfir í 2 vikur, opið er eins og
verslun mán-föst. kl. 10–18 og laug. kl. 11–16.
Til 21. júlí.
Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur
Hlynur“ (portret af Hlyni Hallssyni mynd-
listarmanni) er þriðja sýningin í röðinni af
stjörnumerkjaportrettum unnin sem inn-
setning í rými. Sýningin er til 4. ágúst.
Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey-
nomatic myndir, nærmyndir af náttúrunni,
einstakar ljósmyndir unnar á striga. Skart-
gripir fjallkonunnar sem vakið hafa mikla
athygli. Opið frá kl. 9–23.30 alla daga út
júlímánuð.
Gallerí BOX | Opnun laugard. 8. júlí kl. 16.
Þórarinn Blöndal, Finnur Arnar og Jón
Garðar opna sýninguna „Farangur“. Á sýn-
ingunni getur að líta hugleiðingar um
drauma, galdra, harðviðargólf, eldhúsgólf
og ástarævintýri. Til 27. júlí.
Gallerí Humar eða frægð! | Sýning um
diskó og pönk í samstarfi við Árbæjarsafn.
Myndir og munir frá árunum 1975–1985. Til
31. júlí.
Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson
sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga.
Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin
blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og
með henni beinir Hafnarborg sjónum að
hrauninu í Hafnarfirði. Listamennirnir tólf
sem að sýningunni standa hafa allir sýnt
víða og lagt drjúgan skerf til listalífsins
undanfarin ár. Til 28. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir
sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður
er frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og
hafa verk hennar ætíð haft sterka skír-
skotun til landsins og til náttúrunnar. Sýn-
ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla
Íslands. Til 26. ágúst.
Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er
til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur list-
iðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu
hráefni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru
hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og
silfri. Sýningin stendur til 27. ágúst. Að-
gangur er ókeypis.
Hrafnista Hafnarfirði | Ósk Guðmunds-
dóttir sýnir handverk og málun í Menning-
arsal til 15. ágúst.
Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í
borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning-
unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu
hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og
Jóns Hákonar Magnússonar. Meðal lista-
manna má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð
frá Dagverðará, Stórval og Kötu sauma-
konu. Til 31. júlí.
Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berja-
landi, Kjós með málverkasýningu. Opið í
sumar, alla daga kl. 12–20.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Til 6. okt.
Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verk-
um eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listahá-
skóla Íslands. Listasetrið er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst.
Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur
Smith, Hafstein Austmann og Kristín Þor-
kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einn-
ig eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar
Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17.
Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánud. kl. 14–17. Höggmynda-
garðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning, Lo-
uisa Matthíasdóttir. Umfangsmesta sýning
sem haldin hefur verið á verkum Louisu og
rekur allan hennar listamannsferil í sex
áratugi. Til 20. ágúst.
Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri
landslagslist frá upphafi 20. aldar og túlk-
un þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni
Ásgríms Jónssonar. Leiðsögn á ensku
þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 í júlí.
Kaffitár í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Op-
ið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Í samvinnu við Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safn-
búð og kaffistofa
Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu
Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af-
mæli bankans. Til 30. júlí.
Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn
tvinnaður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill
sýnir verk sem spannar sviðið frá tvívíðum
hlutum í skúlptúra og innsetningar. Í hópn-
um eru listamennirnir Amy Barillaro, Ann
Chuchvara, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Jaeha Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia
Tinajero Baker, Tsehai Johnson. Til 31. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og
hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum
efnum. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn-
ing á listaverkum sem voru valin vegna út-
hlutunar listaverkaverðlaunanna Carnegie
Art Award árið 2006. Sýningin end-
urspeglar brot af því helsta í norrænni
samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir ís-
lenskir listamenn, meðal annars listmál-
arinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur
verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst.
Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum
tímabilum í list Errós, þær nýjustu frá síð-
astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna
gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir
og límir saman myndir sem hann hefur
sankað að sér úr prentmiðlum samtímans.
Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem
fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val
verkanna og hefðbundin listasöguleg við-
mið látin víkja fyrir samhljómi þeirra.
Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga
verk á sýningunni sem spannar tímabilið
frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. ald-
arinnar. Til 17. sept.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos/
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða