Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 37
MENNING
NÁLÆGT höfuðborg Búlgaríu,
Sofiu, eða um 8 kílómetrum frá
miðborginni er Boyana hverfið. Í
því stendur ein af best varðveittu
miðaldakirkjum heims.
Kirkjan hefur verið á heims-
minjaskrá UNESCO frá árinu
1979 og ber vitni um þau miklu
áhrif sem búlgörsk veggjamálverk
höfðu á evrópska menningu á mið-
öldum.
Síðustu ár hafa farið fram mikl-
ar endurbætur á kirkjunni og í
síðustu viku var hún loks opnuð
fyrir ljósmyndurum.
Ómetanleg
veggjamál-
verk til
sýnis á ný
Unnið að endurgerðinni en margar myndir tengjast dýrlingnum Nikulási.
Reuters
Endurbæturnar stóðu yfir um árabil, en ekki er vitað hver gerði upprunalegu myndirnar sem eru frá 10. öld.
Texti úr málverki í kirkjunni, sem er rétttrúnaðarkirkja frá miðöldum.
UNGUR organisti, Guðný Ein-
arsdóttir, sem er nýútskrifuð frá
Konunglega tónlistarháskólanum í
Kaupmannahöfn, hélt tónleika í
Hallgrímskirkju á sunnudags-
kvöldið. Strax í byrjun Prelúdíu og
fúgu í D-dúr BWV 532 eftir Bach
heyrði maður að hún er verulega
fær; leikur hennar var óvenju skýr
og raddir orgelsins í prýðilegu
jafnvægi. Túlkunin var greinilega
úthugsuð, tímasetningar voru hár-
réttar og hápunktarnir glæsilegir.
Sömu sögu er að segja um Fant-
asíu nr. 2 eftir Jehan Alain; þar
kom framandi tónmálið, sem var
undir sterkum austurlenskum
áhrifum, sérlega fallega út í með-
förum Guðnýjar. Alain lést í seinni
heimsstyrjöldinni, aðeins 29 ára
gamall, en hafði þá samið hvorki
meira né minna en 120 tónverk. Í
mörgum þeirra sótti hann innblást-
urinn í marokkóskar tónlistarhefðir
og einnig djassinn. Verk hans eru
þó afar persónuleg; Alain tókst að
blanda saman ólíkum stílum og
gera að sínum; útkoman ber vitni
um gífurlega tónlistarhæfileika.
Synd að hann fékk ekki að lifa
lengur.
Síðasta atriðið fyrir hlé var kafli
úr fimmtu orgelsinfóníu Widors.
Hann ber yfirskriftina Allegro Vi-
vace, sem þýðir hratt og fjörlega.
Leikur Guðnýjar var nákvæmur og
öruggur, en heldur varfærnislegur
og því ekki eins fjörlegur og hann
hefði þurft að vera. Fyrir vikið
skorti flæðið í túlkunina.
Hinsvegar var margt einstaklega
glæsilegt í Myndum á sýningu eftir
Mússorgskí eftir hlé, en Keith John
umritaði verkið árið 1953. Mynd-
irnar eru margar erfiðar en Guðný
hafði lítið fyrir þeim. Túlkunin ein-
kenndist af kröftugum andstæðum
og var yfirleitt ákaflega sannfær-
andi. Helst mátti finna að dálítið
einhæfum styrkleika; tvær mynd-
irnar, Limoges, og Ballett óklöktu
fuglsunganna virkuðu óþarflega
vélrænar og sum millispilin hefðu
líka mátt vera veikari. Annað var
aftur á móti frábært; nornin Baba
Yaga var t.d. skemmtilega illileg og
Stóra hliðið í Kiev beinlínis yf-
irgengilegt; þannig mætti lengi
telja. Greinilegt er að Guðný er
hæfileikaríkur, hámenntaður org-
anisti; ég óska henni velfarnaðar á
tónlistarbrautinni.
Kröftugar andstæður
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Guðný Einarsdóttir organisti lék verk eft-
ir Bach, Alain, Widor og Mússorgskí.
Sunnudagur 9. júlí.
Orgeltónleikar
Jónas Sen
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðný Einarsdóttir er nýútskrifuð frá Konunglega tónlistarháskólanum í
Kaupmannahöfn og er að sögn gagnrýnandans verulega fær orgelleikari.
DJASSHÁTÍÐIN í Kaupmannahöfn
er djassgeggjurum að góðu kunn. Í
ár munu danskir fá að njóta krafta
nokkurra færustu tónlistaramanna
Íslands.
Næstkomandi laugardag, 15. júlí
kl. 21, mun Mezzoforte koma fram á
Nordatlantens Brygge sem er menn-
ingarmiðstöð fyrir Færeyjar, Græn-
land og Ísland. Tríóið Svare/
Thoroddsen mun svo leika á sama
stað á sunnudeginum 16. júlí.
Þrír áratugir af samstarfi
Á tónleikum Mezzofortes koma
fram þeir Eyþór Gunnarsson hljóm-
borðsleikari, Bruno Müller gítarleik-
ari, Jóhann Ásmundsson bassaleik-
ari, Gunnlaugur Briem
trommuleikari, Sebastian Studnitzky
trompett- og orgelleikari og Óskar
Guðjónsson sem leikur á saxófón.
Að sögn Jóhanns mun hljómsveitin
leika efni vítt og breitt úr alllangri
sögu hljómsveitarinnar á tónleik-
unum.
„Á næsta ári verða liðin þrjátíu ár
síðan við störfuðum og við höfum
fullan hug á að starfa áfram.“ Í því
samhengi nefnir Jóhann að stefnt sé
að plötuútgáfu til að halda upp á
tímamótin að ári, en síðasta plata
þeirra Forward Motion kom út árið
2004.
Aðspurður segir Jóhann það alltaf
jafn gaman að taka „Garden Party“ á
tónleikum. „Já, já við tökum það yf-
irleitt seint á prógramminu hjá okk-
ur. Það er gaman, fólk kemst í gott
skap og fer að dansa. Þetta er gamall
diskósmellur.“
Hljómsveitin hefur verið að spila
víðsvegar um Evrópu og komið við í
Rúmeníu, Búlgaríu, Ungverjalandi,
Sviss, Svíþjóð og Þýskalandi auk
Danmerkur. Auk þess léku þeir fyrir
skemmstu á Akureyri og hafa tvisvar
komið fram í Reykjavík nýverið.
Einnig brá bandið sér alla leið til
Indónesíu fyrirr skemmstu. Fram-
undan eru tónleikar í Færeyjum 27.
júlí og í Úkraínu í Nóvember.
Úr blindbylnum í Öxnadal
í birtuna í Kaupmannahöfn
Björn Thoroddsen og Jón Rafns-
son munu spila á sunnudeginum eins
og fyrr segir, en þeir hafa átt farsælt
tríósamstarf bæði í Guitar Islancio
og í Tríói Björns Thoroddsens. Í
þessu tríói er þriðji maðurinn klarin-
ettuleikarinn Jørgen Svare en tríóið
á að baki tvo geisladiska: Jazz airs og
Sweet and Lovely, sem gefin var út
af Olufsen records.
„Við erum að fara að spila á
djasshátíðinni í annað sinn, en spil-
uðum einnig fyrir tveimur árum“,
segir Jón bassaleikari. „Þá var mikið
um að vera og við lékum á fimm tón-
leikum víðsvegar um borgina.“
Tríóið leikur að sögn Jóns blöndu
af eigin efni og djassstandördum, og
mun á tónleikunum leika efni af disk-
unum tveimur. Einnig munu þeir
spila lög sem hugsanlega verða gefin
út í náinni framtíð.
Svare/Thoroddsen tríó hefur ekki
átt jafn langan starfsaldur og Mezzo-
forte, en á þó sína sögu.
„Við stofnuðum hljómsveitina í
blindbyl á Öxnadalsheiðinni“, rifjar
Jón upp. „Ég hafði reyndar kynnst
Jørgenþegar hann kom til Íslands
fyrir um tíu árum. Við spiluðum sam-
an og ákváðum að gera eitthvað
meira ef tækifæri gæfist til. Svo fékk
ég hann til að spila á minningartón-
leikum um Finn Eydal á Akureyri. Á
leiðinni vorum við þrír saman í bíl og
það gerði alveg hrikalegt veður. Og á
miðri heiðinni í bylnum stofnuðum
við semsagt tríóið.“
Að sögn Jóns getur stundum verið
erfitt að halda samstarfinu gangandi.
Allir séu þeir uppteknir í öðrum
hljómsveitum, auk þess að vera bú-
settir í tveimur löndum. Svare/
Thoroddsen tríóið hefur þó leikið
töluvert að undanförnu, t.a.m. í Dan-
mörku, í Grænlandi, í Bandaríkj-
unum og hér á landi á Café Rósen-
berg, á djasshátíð í Garðabæ,
Neskaupsstað og á Akureyri.
Djassleikarar í útrás
Stund milli stríða hjá Mezzoforte-mönnum en þeir hafa ferðast mikið und-
anfarið og meira að segja brugðið sér alla leiðina til Indónesíu.
Björn Thoroddsen, Jørgen Svare
og Jón Rafnsson munu leika á
djasshátíðinni í Kaupmannahöfn.
Tónlist | Mezzoforte og Björn Thoroddsen í Kaupmannahöfn